Dagblaðið - 23.06.1976, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 23. JUNl 1976.
9
Fengu kranobifreið
inn í svef nherbergi
„Eg sat uppi á efri hæðinni
við símann og átti mér einskis
ills von,“ sagði húsmóðirin að
Reynigrund 47 I Kópavogi,
Kristjana Kristjánsdóttir er DB
ræddi við hana í gær um
hvernig tilfinning það væri að
fá krana af stærstu gerð inn I
svefnherbergi hjá sér. Það
gerðist í gærdag laust eftir
klukkan eitt að kranabifreið
rann aftur á bak á húsið.
Húseignin númer 47 og 49
við Reynigrund er timburhús
sem flutt var inn í sambandi við
Vestmannaeyjagosið. Við slysið
brotnaði húsið undan þunga
kranans og svalir beggja íbúð-
anna hrundu. Mesta mildi var
að engin slys urðu því að oft er
mikið af krökkum að leik þarna
í kring. Þá hafði ungbarn legið
sofandi á svölunum við Reyni-
grund 49. Það vaknaði og var
nýbúið að taka það inn er
óhappið varð.
,,Ég veit svei mér ekki hvað
konan, sem ég var að ræða við í
símann, hefur haldið er ég
hrópaði í íólrð að einhver hefði
keyrt á húsið hjá okkur,“ sagði
Kristjana Kristjánsdóttir enn-
fremur. „Ég get eiginlega ekki
lýst því hve mér brá þegar ég
leit út og sá að heill krani hafði
komið á húsið. Maður reynir
allt af að passa sig á þessum
tækjum í umferðinni en er svo
ekki óhultur fyrir þeim heima
hjá sér.“
Inni i svefnherbergi hjón-
anna Kristjönu og Péturs
Maack var allt á rúi og stúi. Gat
hafði komið á útvegginn, rúður
brotnað og hurðir í klæðaskáp
losnað af hjörunum. Kraftur-
inn var meira að segja svo
mikill á einni hurðinni að hún
hentist í vegg beint á móti og
gerði gat á hann. Rétt við
staðinn, þar sem gatið kom á
vegginn, stóð barnarúm. Ef svo
hefði viljað til að barn hefði
legið í því hefði vafalaust farið
verr.
Kópavogslögreglunni var
ekki kunnugt um það í gær
hvað olli því að kranabíllinn
rann á húsið. Verið var að nota
hann í gærmorgun við steypu-
vinnu í hverfinu. Nokkru fyrir
hádegi lögðu starfsmenn kran-
ans honum og fóru i mat. Þeir
geta sér þess til að kraninn hafi
hrokkið úr gír eða að fiktað
a»-.................... >
Svo sem sjá má urðu skemmdir
á húsinu miklar. Kraninn rann
aftur á bak í gegnum garðinn
og lenti með afturhlutann inn í
svefnherbergi á Reynigrund
47.
hafi verið I honum með fyrr-
greindum afleiðingum.
— AT —
Litlu munaði að verr færi er
kraninn lenti á húsinu. Barna-
rúmið, sem var tómt, stendur
rétt hjá gatinu á veggnum. DB-
myndir Árni Páll.
Hluti biðraðarinnar í Sundahöfn eftir að komast í Viðeyjarferð
tltivistar — DB-mynd ASt.
FIMM BÁTSFARMAR
FÓLKS ÚT í VIÐEY
387 tóku þótt í f rœðsluf ör Ú tivistar í Viðey
387 manns tóku þátt í Viðeyjar-
för Útivistar á lengsta degi ársins
sl. mánudagskvöld. Gott veður
hafði sín áhrif á fjölda þátttak-
enda en hann sýnir einnig þann
áhuga er fólk hefur á stuttum
fræðslu- og kynningarferðum um
nágrenni sitt. Útivist hefur farið
margar slíkar ferðir I vor en þetta
er sú fjölmennasta. Þátttakendur
í ferðum Útivistar á árinu eru nú
komnir á 3. þúsund.
Biðröð myndaðist við korn-
hlöðuna í Sundahöfn þar sem
Hafsteinn Sveinsson flutti hvern
farminn af fólki af öðrum út i
eyju á bát sínum, Skúlaskeiði.
Fyrsti bátsfarmurinn var kominn
út fyrir kl. 8 en sá síðasti ekki
fyrr en nær hálftíu.
Sigurður Líndal og Örlygur
Hálfdánarson voru leiðsögumenn
um eyjuna og héldu fróðleg
erindi um sögu eyjunnar og
skýrðu frá öllu því markverðasta
sem fyrir augu bar.
Ferðir Útivistar hér um ná-
grennið eru orðnar mjög vinsælar
og aðsókn í þær jafnan mikil enda
jafnan góðir fararstjórar og leið-
sögumenn.
Á mánudaginn var áberandi
margt af starfsfólki Borgarspital-
ans með í ferðinni. Við spurðum
hvort mikið væri um að starfs-
hópar fjölmenntu í ferðirnar.
„Það kemur oft fyrir," sagði
Einar Guðjohnsen. „En þó er
oftar að starfsmannafélög láti
okkur sjá um ferðir fyrir sig og er
þá gjarnan um Iengri ferðir að
ræða. Við erum t.d. að fara með
starfsfólk stjórnarráðsins norður
á Strandir um næstu helgi. A.Bj.
Tveir íslenzkir skákmenn
tefla í Bandaríkjunum
Tveir íslenzkir skákmenn, Þar er teflt i styrkleikaflokkum
Helgi Ölafsson og Jónas Erlings-
son, halda utan til Bandaríkjanna
nú í vikunni til að tefla á skák-
mótum vestra. DB ræddi við
Helga fyrir skömmu í tilefni
þessarar farar.
„Það er afráðið að viö Jónas
teflum á að minnsta kosti einu
skákmóti,“ sagði Helgi. „Það er
World Open keppnin sem hefst í
næstu viku í New York. Við
ætlum að dvelja í Bandaríkjunum
í þrjár vikur til mánuð og á þeim
tíma verður talsvert af skákmót-
um, sem við getum tekið þátt í.“
Helga var ekki kunnugt um hve
World Open mótið veróur sterkt.
Allar búðir
loka ó laug-
ardögum
Kaupmannasamtök Islands
vilja minna á að frá og með 20.
júní til ágústloka eru verzlanir
lokaðar á laugardögum. Þetta
er samkvæmt kjarasamningi
við Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur. Heimilt er að
hafa verzlanir opnar til kl. 10 á
föstudagskvöldum allan
ársins hring.
og verður Helgi í efsta flokknum.
Ekki vissi hann heldur hve há
verðlaunin á mótinu yrðu, en
sagði þó að 1. verðlaun I efsta
flokki væru um helmingi hærri
en á alþjóðlega mótinu sem
verður hér á landi seinna í sumar.
Þeir Helgi Ölafsson og Jónas
Erlingsson hafa báðir teflt
erlendis áður, — Helgi í Hollandi,
Danmörku, Noregi og Svíþjóð og
Jónas I Danmörku og Noregi.
íslenzkir skákmenn hafa oft
staðið sig vel í Bandaríkjunum.
Til dæmis lenti Daði Jónsson I
efsta sæti ásamt öðrum á
unglingameistaramóti Banda-
ríkjanna í fyrrasumar og verður
því a.ð teljast hafa verið unglinga-
meistari Bandaríkjanna I skák
árið 1975. -ÁT-
'Helgi Ólafsson er einn at okkui
fremstu skákmönnum um
þessar mundir. Hann teflir á
World Open mótinui i Banda-
ríkjunum í næstu viku. DB-
mynd Björgvin Pálsson.
VORUBIFREIÐ 0G FIAT
Í HÖRÐUM ÁREKSTRI
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Skeiðarvogs og Suður-
landsbrautar um hálfsjö I fyrra-
kvöld. Fíatbifreið ók suður
Skeiðarvog og viðstöðulaust út á
Suðurlandsbrautina í veg fyrir
vörubifreið, sem kom þar
aðvífandi.
Báðar bifreiðarnar skemmdust
talsvert við áreksturinn. Fíatinn
er mjög illa farinn og einnig sér á
vörubifreiðinni. A þessum gatna-
mótum er stöðvunarskylda á bif-
reiðar frá Skeiðarvogi. — Hemla-
för vörubifreiðarinnar mældust
um 23 metrar. Bílstjóri hennar
gaf upp hraðann 50 kílómetra.
Ökumaður Fíatbifreiðarinnar
hruflaðist á höfði við áreksturinn.
Einnig kvartaði hann um eymsli 1
mjöðm og síðu.
-ÁT-
NÚ ER HÆGT AÐ NÁ SÉR í ÓSKASTEIN
- EN AÐEINS EFTIR ÁKVEÐINNIAÐFERÐ
Ef þú vilt fá einhverja ósk
þína uppfyllta þá er það mögu-
legt en aðeins ef fylgt er ákveð-
inni reglu. Fyrst er að ná sér i
óskastein sem finnst á þrem
stöðum á landinu. Skag-
firöingar geta nálgazt hann i
Tindastól, Vestfirðingar í
Kofra og einnig finnst hann í
Drápuhlíðarf jalli í Snæfells-
nessýslu.
1 öllum þessum fjöllum eru
tjarnir og brunnar og á Jóns-
messunótt. 24. júní, fljóta þeir
up|i a .viiriioröið. Það er að vísu
ekki vandalaust að nálgast
þessa steina þvi þeir bregða á
leik svo erfitt er að handsama
bá. En þarna finnast fleiri ger-
semar sent gætu komið i góðar
þarfir. Þarna eru steinar sem
gera fölk ósýnilegt og aðrir sem
lengja lífdagana. Þennan fróð-
leik er að finna í bók Jónasar
Jónssonar „íslenzkir þjóðhætt-
ir“.
Jónsmessan var hér áður fyrr
ntikill merkisdagur en talið er
að kristnir hafi tekið hátiðina
upp úr heiðnum sið.
Hún var numin úr
gildi með konungsbréfi árið
1770 svo ekki er þetta heilagur
dagur nú. Það er margt í þjóð-
trú okkar sem tengist þessari
fornu hátíð. Ef votviðri er á
Jónsmessunni er það nterki
þess að það verði óþurrkur um
sláttinn. Döggin er svo heilnæm
á Jónsmessunótt að mönnutn
batna allir sjúkdómar ef þeir
velta sér upp úr henni alls-
nakíir. Einnig er gott að sitja
úti á krossgötum þessa nótt. Fá
menn þá óskir sínar uppfylltar.
Ef tekin er jurt, sem heitir
pula, á Jónsmessunótt og hún
ge.vmd í líknarbelg getur eig-
andinn opnað hvern einasta lás
ef honum sýnist svo.
Það er tækifæri nú um Jóns-
messuna að reyna eitthvað af
þessu. Hver veit nema sann-
leikskorn leynist í þessum
gömlu þjóðsögum? — KP.