Dagblaðið - 25.06.1976, Side 4

Dagblaðið - 25.06.1976, Side 4
DAGBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 25. JtJNl 1976. FLYTJA LIFANDIKJUKLINGA FRÁ FRAKKLANDITIL TÚNIS og heila farma af þvottavélum fró Ítalíu heim Líklega mun ekkert íslenzkt flugfélag skáka þeim í Iseargo hvað viðvíkur farþegafjölda þetta árið. Þó er Iscargo vöruflutningaflugfélag og flytur ekki venjulega farþega. Ástæðan fyrir þessu er sú, að félagið hefur gert samning um flutninga hálfsmánaðarlega næsta árið, 26 ferðir í allt, með Kristmundur Magnússon flug- stjóri. Kristmundur og félagar hans fiuttu 13,6 tonn af útfíutnings- vörum til Evrópu í síðustu ferð og sama magn heim. Að jafnaði fivtja flugvélar Iscargo meira vörumagn úr landi en heim. íslenzkir innflytjendur eru þó óðum að átta sig á hagkvæmni vöruflugsins. 125.000 sólarhrings gamla kjúklinga í hverri ferð. Að afloknum þessum ferðum verða ..farþegarnir'* orðnir 3.250.000 talsins. Kristmundur Magnússon, flugstjóri hjá Iscargó, er nýlega kominn heima ásamt áhöfn sinni eftir að hafa flogið þrjú fyrstu flugin suður til Túnis. „Flutningurinn er mjög viðkvæmur, við þurfum að halda 10-15 gráða hita á kjúklingunum og gegnumstreymi lofts allan tímann, annars kann að fara illa,“ sagði Kristmundur okkur. Kristmundur sagði að fyrsta ferðin hefði heppnazt með ágætum, þá drápust engir „far- þeganna." Oft getur dánartalan vrið þetta 2-3000 á 4 tíma flugi sem er á milli staðanna. Kjúklingarnir eru eldis- kjúklingar og kvaðst Krist- mundur hafa stundað slíkt flug áður, það var meðan hann starfaði í Hollandi fyrir Transavia-flugfélagið. Flugvélin, sem Iscargo notar við þessa flutninga, er DC- 6-flugvél með skrásetningar- stöfunum TF-OAA, en í stað . bókstafanna eru notuð mannanöfnin Öttar- Alfreð—Alfreð, keppinautar þeirra í skipaútgerð og flugi. Vélin þykir henta mjög vel til þessa og tók félagið við eftir að DC-4 flugÝel hafði reynzt mjög illa og stór hluti farmsins drepizt á leiðinni. Á heimleið til íslands frá Túnis kemur vélin við í Mílanó á Italíu og tekur þar um borð- fullfermi af Candy- þvottavélum sem fluttar eru beint til innflytjenda í Reykja- vík. -JBP- y KANNABISJURTIRNAR V0RU HÁLFGERÐIR GRÆNJAXLAR — en ólöglegar samt „Þessar kannabisjurtir eru nú eiginlega hálfgerðir grænjaxlar," sagði Guðmundur Gígja lögreglu- maður er hann sýndi blm. Dag- blaðsins plönturnar sem lögreglan lagði hald á í Breið- holtinu í vikunni. „Fullvaxnar eru kannabisplönturnar um 60- 100 cm háar þannig að þær, sem við höfum nú undir höndum, eru tiltölulega ungar," sagði Guðmundur ennfremur. Það var fyrir einskæra tilviljun að lögreglan rakst á kannabis- plönturnar. Kvartað hafði verið um hávaða í íbúð í einu af háhýsunum í Efra Breiðholti. Er lögreglan kom til að athuga málið nánar var lyfta hússins föst. Er hún losnaði kom í ljós að í henni voru níu manns þótt lyftan tæki aðeins fimm. Flest var fólkið verulega undir áhrifum eitur- lyfja. Lögreglan kannaði þegar á hvaða ferðalagi fólkið væri og kom þá i ljós að það var einmitt viðloðandi íbúðina sem kvartað hafði verið yfir. Er betur var að gáð reyndist þar vera partí í fullum gangi. Lögreglan stöðvaði það og kom þá einmitt auga á nokkrar jurtir sem reyndust vera kannabisið Lögreglan hefur nokkrum sinnum áður lagt hald á kannabis- jurtir. Ur blöðum þeirra er fíkniefnið marijuana unnið en hass úr blómum þess. Er fólk fær marijuana f.vlgja því oft fræ sem hægt er að rækta upp. Það er að sjálfsögðu stranglega bannað. I flestum tilfellum, sem lagt hefur verió hald á kannabis- plöntur, hafa þær verið betur sprottnar en þær sem voru teknar í Breiðholtinu. Guðmundur Gígja sagði að oftast væru þó plönturnar orðnar hálfsköllóttar á miðjum aldri, þar eð eigendur þeirra eru óþolinmóðir og vilja fá eitthvað út úr umhyggju sinni fyrir plöntunum, áður en þær eru fullvaxnar. Yfirleitt reynist þetta íslenzka kannabis illa — hefur ekki hálfan kraft á við það erlenda. -AT- » Þrju sýnishorn af kannabis- plöntunum sem lagt var hald á í Breiðholtinu. Þær voru reyndar hálfgerðir grænjaxlar, en „mjór er mikils visir.“ DB- mynd Árni Páll. decadex ^öatherproofinð corryKXind VIIT ÞÚ EITTHVAÐ VARAHUGT? K.B. Sigurösson ÁRMULA 38» SIMI 30760« Isóclad var meðal annars Pá skalt þú nota DECADEX UTANHÚSSMÁLNINGU EÐA ISOCLAD MÁLMVÖRN. Decadex er viðarkvoðuríkt vatnsuppleyst plastcfni sem inniheldur óvirk litarefni og trefjar til styrktar. Decadex fa *' í mörgum litum og má blanda alla liti innbyrðis. Decadex hrindir vel frá sér óhreinindum og er sjálfhreinsandi, sem gerir það að verkum aö það hcldur sama ástandi ár eftir ár. Dccadex er laust við klístur og því mjög auðvclt í ásetningu. Pað má nota á flesta hluti t. d. múrstein, steypu, við, málm, hellur, flísar, asfalt, bik, steinlím, tjargaða fleti o .fl. það er sérstaklega mælt með Decadex á sprungin hús, forsköluð timburhús o. þ. h. vegna teygju cfnisins. Við höfum ennig fyrirliggjandi Isoclad anti-tærandi efni fyrir jámmálma og aðra málma. Isoclad myndar þykka teygjanlega plasthúð sem springur hvorki né flagnar. Isoclad er borið á með pensli beint úr dósinni eftir að grunnað hefur verið með LPL Metal Primer. Sandblástur og önnur dýr undirvinna er ekki nauðsynleg fyrir ryðgaðan málm, Isoclad er ckki eldfimt og inniheldur ekki hættuleg efni. Tilkynning Vegfarendum á Sprengisandsvegi um Sigöldu skal bent á að hlið hefur verið sett á veginn hjá Tungnárbrú vegna virkjunarframkvæmda og er ónauð- synleg umferð um vinnusvæðið stranglega bönnuð. Hafa skal sam- band við hliðarvörð. Búast má við algjörum tímabundnum lokunum vegarins. Lögreglan í Rangórvallasýslu, Sigöldu. Það gerist alltaf eitthvað Heimsókn ó snyrtistofu — Andlitslyfting ón hnífs — Sérfrœðingur snyrtir tvœr konur fyrir ' sem alls ekki eru nein svín — Sveinn ó Vellinum og sveinar hans — Sakamálasago - — Krossgáta — Póstur — Stjörnuspá — Draumar — Tœkni — Matur — I í þessari Viku:

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.