Dagblaðið - 25.06.1976, Síða 7
DAGBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 25. JUNt 1976.
Koma ðll kurl til graf ar?:
100 MILLJ. KR. SKILAÐ í GJALD-
EYRI FYRIR VEIÐILEYFI1975
Yeiðiréttoreigendur mótmœlo „illvígum" óróðri gegn veiðileyfasölu til útlendinga
„Erlendum gjaldeyri fyrir
rétt um 100 milljónir króna var
á árinu 1975 skilað til íslenzkra
banka fyrir seld veiöileyfi í ám
og vötnum landsins,“ sagði Sig-
urður Jóhannesson hjá gjald-
eyriseftirliti Seðlabankans í
viðtali við DB.
Þetta er langhæsta upphæð
sem skilað hefur verið fyrir
seld veiðileyfi og sagði
Sigurður að gjaldeyrisupp-
hæðin, sem af veiðileyfasölu
fengist, hefði hraðvaxið á und-
anförnum árum.
Sigurður sagði að þessi
upphæð gæfi engan veginn
tæmandi upplýsingar um í hve
ríkum mæli veiðileyfi væru
seld útlendingum. I ýmsum til-
fellum greiddu útlendingar
fyrir veiðileyfi sín með íslenzk-
um peningum en hefðu áður
fengið skipt erlendum gjald-
eyri í banka hér án þess að gera
grein fyrir til hvers ætti að
nota peningana.
Sigurður sagði að eftirlit með
skilum gjaldeyris fyrir seld
veiðileyfi, sem og aðra selda
þjónustu við erlenda aðila hér á
landi, hefði mjög verið eflt.
Ekki væri þó enn hægt að full-
yrða að allt kæmi til skila þetta
varðandi.
1 Landssambandi veiðifélaga
eru nú 43 veiðifélög víðs vegar
um landið. A aðalfundi sam-
bandsins nýlega var mótmælt
harðlega „þeim illviga áróðri,
sem rekinn hefur verið opin-
berlega gegn veiðiréttareig-
endum, sérstaklega hvað
varðar veiðileyfasölu til út-
lendinga. Fundurinn benti á:
1) tsl. stangveiðimenn gætu
hvergi nærri fullnýtt það fram-
boð sem er á veiðileyfum i vötn-
um landsins.
2) Veiðileyfi verða að vera
háð frjálsu framboði og eftir-
spurn eins og hver önnur verzl-
unarvara.
3) Veiðiréttareigendur
þyrftu á- öllum tekjumögu-
leikum að halda til uppbygg-
ingar sínum atvinnurekstri,
fiskirækt, vegagerðar og veiði-
húsabygginga.
4) Veiðileyfasala er gjald-
eyrisskapandi atvinnugrein,
þjóðhagslega hagkvæm og
dregur úr erlendri skuldasöfn-
un.
5) Sportveiði útlendinga
stuðlar að fjölbreytni Isl,
landbúnaðar og gerir hann fjár-
hagslega sjálfstæðari en verið
hefur og eykur atvinnu í
sveitum landsins.
— ASt.
Tón-
leikar í
búðinni
Viðskiptavinir hjá Hljóðfæra-
verzlun Pálmars Árna í Borgar-
túni hafa síðustu dagana fengið
óvenjulega tónleika í búðinni.
Þar hefur setið bandarískur
hljóðfæraleikari, Howard
McCullough, og leikið á konsert-
orgelin sem verzlunin býður upp
á. Hefur fólki þótt þetta góð til-
breyting og fjölmenni safnazt
saman til að hlýða á manninn.
Verið er að kynna Baldwin-orgel.
Bandaríkjamaðurinn fór eitt
kvöld austur í Eden í Hveragerði
og lék þar fyrir kvöldkaffigestina
og fékk góðar undirtektir. I dag
mun hann leika fyrir framan
sjónvarpsmyndavélarnar og upp
úr 3 tekur hann til við leik sinn í
verzluninni.(DB-mynd Björgvin).
Tjaldið fauk svo að það varð bara að fara að byggja.
Valdis litla, sonardóttir þeirra
Barböru heitinnar og
Magnúsar Á. Arnasonar, var að
aðstoða við uppsetningu hinnar
mikiu minningarsýningar í
gærkvöldi. (DB-mynd Arni
Páll).
Minningar-
sýning
um
Barböru
Minningarsýning um Bar-
böru Árnason verður opnuð á
Kjarvalsstöðum annað kvöld kl.
20. Hafa þeir feðgar, Magnús A
Árnason listmálari, eiginmaður
Barböru, og Vífill sonur þeirra
undanfarið unnið að uppsetn-
ingu viðamikillar sýningar þar
sem sýnd eru 175 verk hinnar
látnu listakonu.
Sýndar verða vatns-
litamyndir, málverk, grafik,
vefnaður og aðrir gripir eftir
Barböru. í sýningarskrá segir
Aðalsteinn Ingólfsson, list-
fræðilegur forstöðumaður
Kjarvalsstaða, að framlag Bar-
böru til íslenzkrar listsögu sé
óumdeilanlegt. Hafi hún ásamt
Jóni heitnum Engilberts lagt
grunninn að íslenzkri grafík.
Minningarsýningin um Bar-
böru verður opin til 20. júlí.
— JBP —
væta og vitanlega rok svo að
menn og skepnur sneru rassinum
upp í vindinn.
Hestamannamót ó Hellu:
GEDSLAG HESTSINS ÞARF LÍKA AÐ VERA GOTT
— ef hann ó að fó góða einkunn
„Tjaldið fauk í nótt svo það er
ekki um annað að ræða en
byggja," sögðu þeir fyrstu sem við
tókum tali er við skruppum til
Hellu í gær. Undirbúningur undir
fjórðungsmót hestamanna, sem
fram fer um helgina, var í fullum
gangi og verið að dæma stóðhest-
ana.
Raunar var þetta ekkert venju-
legt tjald, sem fauk, heldur átti að
selja í þvi alls konar góðgæti
handa mótsgestum. En að eigin
sögn byggingamanna gekk smíðin
vel enda vanir smiðir að verki og
góðir fúskarar. Það eru flugbjörg-
unarsveitin á Hellu og slysavarna-
félagið á Hvolsvelli sem þarna
ætla að sameinast um veitinga-
sölu.
Dómnefndin var að dæma stóð-
hestana en gat ekki byrjað fyrr en
um einni klst. á eftir áætlun
vegna moldviðris, komin var smá-|
Ekki var enn orðið mannmargt
en þeir, sem við spjölluðum við,
voru handvissir um gott veður um
helgina fyrst veðurguðirnir hefðu
verið í ham í byrjun. Það er víst
líka eins gott því það er jafnvel
búizt við um tíu þúsund manns.
Stóðhestar eru ekkert sérlega
rólegir og mikið var hneggjað.
Það verður handagangur í öskj-
unni þegar öll hrossin eru mætt
til leiks.
Sigurbjörg Jóhannesdóttir
knapi frá Kröggólfsstöðum var að
æfa hinn glæsilega gæðing Hlaða-
Blakk frá Selfossi. Hún gerir
mikið af þvi að temja og sagði að
öll fjölskylda hennar væri mikið
fyrir hestamennsku.
Tveir ungir tamningamenn í
Fáki, Skafti Steinbjörnsson og
Trausti Þór Guðmundsson, bíða
rólegir með tvö af sex afkvæmum
hins fræga Gulltopps frá Arnar-
nesi sem sýnd verða í lokin með
föður sínum. Trausti hafði riðið
frá Reykjavík ásamt þrem öðrum,
rekið 28 hross á undan sér og
hafði ferðin gengið ljómandi vei.
Tveir tólf ára og verðandi
hestamenn, Sæmundur og Eiður,
héldu fast í stóðhestinn Stíganda,
eign Kristins Guðnasonar frá
Hann Hlaða-Blakkur er ekkert litið glæsilegur. Knapi hans er Sigur-
björg Jóhannesdóttir. DB-myndir Björgvin.
Skarði. Þeir ætluðu ábyggilega að
vera á mótinu og ekki missa af
neinu.
„Það kæmi mér ekki á óvart
þótt Hlaða-Blakkur tæki hæstu
einkunn fyrir líkamsbyggingu á
mótinu,“ sagði Skúli Steinsson
hesta- og tamningamaður frá
Eyrarbakka. Hann hafði séð
15—20 hesta af 33 sem dæma átti.
Guðni í Götu kom einmitt í þessu
þeysandi eftir vellinum á Hlaða-
Blakk. Hann er að kanna gjeðslag
hestsins.
„Við komum hérna í bíl í gær
með 20 ferðahesta,“ bætti Skúli
við. „Við vorum fljótir að snúa til
baka. Það mætti ætla r ' hestarnir
ættu að fara í bíó í ferða-
girðingunni, 750 kr. kostaði fyrir
hvern fyrir veruna þar. Það
kostar þó ekki nema 1500 kr.
fyrir manninn inn á mótið."
Við lítum út á völlinn. Það er
verið að líta á fætur eins hestsins,
síðan er hann myndaður. Myndin
skal í safnið og ættartölu hans.
A heimleiðinni mætum við átta
hestamönnum.
Þeir hafa áð við hinn gamla
skemmtistað Strönd sem nú ku
vera reimt í. Hestamennirnir láta
það ekkert á sig fá og fá sér ofboð
lítinn glaðning, enda orðið stutt
að Hellu. Hópurinn hafði lagt af
stað frá Reykjavík á miðvikudag
og gist á Bollastöðum.
„Það er svo hressandi að vera á
hestbaki úti í guðsgrænni náttúr-
unni,“ er samdóma álit þeirra.
Vel eru þeir ríðandi með tvo til
reiðar og einn er með þrjá. Og
baggahestinn vantar ekki. Hann
er raunar aðeins öðruvísi en hann
var í gamla daga, nefnilega Land
Rover með hestakerru aftan i.
EVI