Dagblaðið - 25.06.1976, Side 21

Dagblaðið - 25.06.1976, Side 21
DACBI.AÐIÐ — FÖSTUDAGUR 25. JUNl 1976. 21 ALLAR VILDU MEYJARNAR — eigna honum barn Eftir áramótin 1716 kom ungur maður að Þingeyra- klaustri og gerðist djákni staðarins. Hann hét Gunnar Þorláksson, álitlegur maður og ötull i starfi, eða svo verður að álykta af afrekum hans þann stutta tíma sem hann þjónaði þarna. — En eins og menn vita getur dugnaður og elja gengið of langt, — ekki síst ef þessar dyggðir fara inn á svolítið aðrar brautir en ætlast er til af almenningi eða yfirboðurum. Já, honum vannst vel, honum Gunnari Þingeyradjákna, því þrjú voru honum börnin kennd frá október um haustið og fram á góuna. Fyrst var það ein griðkona staðarins sem ól honum barn — og hafði að sögn gert það einu sinni áður. Á jóla- föstunni kemur svo klaustur- ráðskonan og vitnar upp á hann eitt til meó fæðingu, — og á góu er það sjálf lögmannsdóttirin, Magðalena Gottrup, sem kennir honum króga. Þetta þótti of mikið að gert á svo stuttum starfstíma. Aumingja Gunnar djákni var gerður héraðsrækur fyrir allar þessar „fjölgunar-anstaltir", enda gat hann ekki innt af höndum sektargjöld fyrir ,,ráð- spjöll" með lögmannsdóttur, en hún varð skiljanlega fyrir nokkru gengissigi vegna ótíma- bærs barnsburðar — svo og allt Gottrups-slektið. Makabœtur Bola-Gísla Svo segir á fornum bókum, að árið 1690 bjó sá maður að Hugljótsstöðum á Höfðaströnd sem Gísli hét. Kona hans, sem ekki er nafngreind, gekk fyrir kvíaær kvöld eitt um sumarið. Kom þá í veg fyrir hana grað- ungur einn af næsta bæ, mannýgur mjög og þvi skaðræðisskepna. Réðst hann tafarlaust á varnarlausa konuna, lagði hana undir og gekk af henni dauðri. Gísli bóndi fór að vonum fram á bætur fyrir konuna úr hendi nágranna síns og eiganda tuddans, en sá hinn sami stakk upp á því til sátta að gefa Gísla graðunginn, því hann hafði sannarlega fyrirgert lífi sínu, — en ekki heldur meira. Þetta lét Gísli sér vel líka, skar bola og át hann sjálfur ásamt hyski sínu. Þóttist hann ekki hafa borðað betra eða ódýrara kjöt i annan tíma. Var hann eftir þetta nefndur Bola-Gísli. Baneitraður hani Árið 1763. —„Sagt var að einn hani hafi orpið eggi i Stykkishólmi, hvarf í burtu, en fannst aftur að 4 eður 5 dögum og þetta hans egg. Kaupmaðurinn í Stykkishólmi Nikulás Hofgard. Hann varð kvillaður (véikur) skömmu eftir, barst og að þegar þessi hani fannst, hafi hann (kaup- maðurinn) látið hann drepa og krydda fyrir sig, og eftir það lagðist hann til fulls og lá fram á haustið, með stórverkjum stundum. Var svo sent eftir Medicus (landlækni) Bjarna Pálssyni suður á land, 'kom hann i Stykkishólm 2. eður 3. sept, en kaupmaður deyði nóttina milli þess 3. og 4. sept.“ — Grímsstaðaannáll. Hvað segja stjörnurnar? Spáin gildir fyrir laugardaginn 26. júni. Vatnsberinn (21. jan.—19. feb.): F'réttir sem j)ú færð lan«t að kunna að «era þi« eilítið undrandi. (lættu þess að fá ákveðið svar við einni hu^mynd þinni áður en þú ferð af stað með lokaáætlunina. Ánæj>julcKt kvöld virðist framundan, Fiskarnir (20. feb.—20. man): I>ú verður að uppfytla krefjandi loforð ef þú átt að «eta andað rðle«a. Láttu í ljós þakklæti þitt við þá sem eru þér hjálpsamir. Hrúturínn (21. marz—20. apríl): Þér opnast leið til þess að hitta óvenjulefía mann^erð þe«ar þú ert i heimsókn hjá vini. Þolinmæði er afar nauðsynes í samskiptum þínum við einn hinna eldri í fjölskyldunni. Nautiö (21. apríl—21. maí): Láttu en«in vanhugsuð orð annarra hafa áhrif á þitf. Sú sem viðhafði þessi orð er hrifin af þér en dálítið afbrýðisöm vegna hæfileika þinna. Eitt heimilisverkanna er dálítið þreytandi en vel þess virði að það sé unnið. Tviburamir (22. mai—21. júní): Þér er óhætt að láta í Ijós skoðanir þínar. Stattu fast á þínu og láttu ekki aðra ögra þór til að framkva^ma hluti sem þú kemur til með að iðrast. Rómantiskur blær er yfir kvöldinu. Krabbinn (22. júní—23. júlí): Láttu sennilegar afsakanir persónu. sem svikizt hefur um. engin áhrif hafa á þig. Þú kætist við fréttir sem létta um leið áhyggjum af þér. Þetta er prýðisdagur til þess að jafna ágreiningsefni. Ljoniö (24. júlí—23. ógúst): Það kann að reynast erfitt fyrir þig að skilja viðbrögð vinar þíns. Rómantlk er að finna í óvæntri átt.Gættu þin þar sem þú kannt að vera flæktari í þetta mál en þú heldur. Meyjan (24. ágúst—23. sept.): Hegðun vinar kann að leiða til vandræðaástands í samkvæmislífinu. Eyddu fáeinum orðum á þennan aðila. Óvænt árVægja virðist framundan. Vogin (24. sept.—23. okt.): Þú ættir að öðlast mikinn fróðleik við það að ræða málin við líflegan hóp fólks. Þú verðurað taka fjölskylduna með í reikninginn þegar þú gerir áætlanir fyrir daginn. Sporödrekinn (24. okt.—22. nóv.): Þetta er úrvals dagur til þess að setjast niður og hugsa um Hfið oetilveruna. Ertu alltaf að hamast án þess að komast nokkuð áfram? Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Ahrif stjarnanna skapa smáspennu f rómantíkinni. Þú nýtur mest þess sem heimilið hefur upp á að bjóða f kvöld. Reyndu að1 hlúa að einmana mannveru. Spáin gildir fyrír sunnudaginn 27. júní. Vatnsborinn (21. jan.—19. feb.): Fjölskyldulffið gæti valdið erfiðleikum. Venju einhverrar eldri persónu að vera í sífellu að segja sögur er bezt að leiða alveg hjá sér. Þér mun farnast betur með vinum úr þinum aldurs- flokki. Fiskamir (20. feb.—20. marz): Með óvæntum gesti ættu þér að berast góðar fréttir Lfkur eru á skemmtilegum fundi með persónu af gagnstæðu kyni og það mun verða hápunktur dagsins. Hrúturínn (21. marz—20. apríl): Einn vina þinna virðist verða dálítið útundan f hópnum. Með því að beita áhrifum þínum til þess að koma honum meó. muntu ávinna þér þakklæti sem verður endurgreitt sfðar á gagnlegan máta. Nautiö (21. apríl—21. maí): Þú munt verða ósammála einhverjum ástvini í dag. Ræðið hlutin f rólegheitum. Ef þú færð einhverjar upplýsingar um kunningja eða vin, þá haltu þeim fyrir sjálfan þig. Tvíburamir (22. mai—21. júní): Forðastu skyndideilur þar sem þeim getur aldrei lokið farsællega. Fylgdu. vcnjulegri dagskipan eftir beztu getu. Heppni er líkleg framundan. Krabbinn (22. júní—23. júli): Þetta verður tímabil breytinga, en þó nokkuð farsælt. Einhver hugmynd kitlar ævintýraþrá þfna. Taktu ekki athugasemdir yngri persónu of alvarlega. LjóniÖ (24. júlí---23. ágúst): 4 Ef vinur lánar þér bók muntu undrast þá þekkingu sem hún veitir þér. Þctta mun hjálpa þér mjög félagslega. Skemmtilegt kvöld er líklegt. Meyjan (24. ógúst—23. sept.): Einhver gæti þvingað þig til að gefa upplýsingar sem eiga að vera trúnaðarmál. Neitaðu öllu þess háttar. Þú munt öðlast ánægju við fullkomnun einhvers ákveðins verkefnis. Vogin (24. sept.—23. okt.): Vertu ekki of fljótfær við að svara ákveðnu boði. Þú gætir verið lítt hrifinn af því en líkur eru á meiri farsæld en þig óraði fyrir. Reyndu að tá meira næði og tíma fyrir sjálfan þig. Sporödrekinn (24. okt.—22. nóv.): Einhver áhrif frá stjörnunum gætu reynt talsvert á þolrifin í dag. Vinir munu veita þér stuðning. Reyndu samt að láta eigin dómgreind duga f einkamáfum. Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Farðu varlega með tilfinningar og viðhorf yngri persónu. Þetta er upplagður tími til að huga nánar að áætlunum um ævintýralega skemmtun. Þú munt finna eitthvað sem þú hafðir týnt. KRUMMABER RÓSBERG G. SNÆDAL SKRIFAR N / V K Steingeitin (21. des.—20. jan.): Fjölskyldumálin hafa forgang f dag. Þú dregst inn i umræður um skipulags- breytingar varðandi heimilið. Gamall vinur hefur lík- lega samband við þig í kvöld Steingeitin (21. des.—20. jan.) Heimilismál munu taka meiri tíma en þú hefðir óskað. Smáatriðunum hættir vió að fara úrskeiðis í dag. Ef þú ferð út í kvöld með vinum þfnum muntu fá mikla uppörvun. Afmœlisbarn dagsins: I ár ættiróu að sjá mikla drauma rætast.A stnmálin skapa eilítil vandræði um mitt kvartil og þú munt verða óróleg(ur) um tima. Fjárhagsleg staða þin batnar og þú hefur úr meiru að spila. Nýtt ástar- ævintýri undir loktímabilsins mun hafa mikil áhrif á þig. Afmælisbarn dagsins: Fyrstu mánuðirnir munu verða frekar rólegir og vanabundnir. l'm mitt ár ættu að koma talsverðar breytingar. Þér gæti hlotnazt tækifærið sem þú hefur beðið eftir. Eitt ástarævmtyri gæti komið þér úr jafnvægi. Félagslífið mun blómstra í lok ársins. Laun heimsins eru vanþakklœti Á sjómannadaginn kom til mín inaður og snurði hvort ég vildi ekki gefa smá- uppnæð til styrktar ekkju óþekkta sjó- mannsins. Mér finnst hugmyndaflug íslendinga aldeilis frábært. Ég hélt upp á 1. maí með því að fara í skrúðgöngu. Á sumar- daginn fyrsta fór ég einnig í skrúðgöngu. Hvað haldið þið að ég hafi gert 17. júní? Eg sat auðvitað heima með hæi- særi eftir allar þessar skrúðgöngur. Aftur á móti er mér sagt að skrúðgangan sautjánda júní hafi tekið öllum hinum fram. Aldrei hafi fólk verið jafnlétt á fæti, sjaldan hafi lúðrablásararnir blásið jafnljúflega og það sé langt síðan jafn- fáir hafi fengið jafnfá hælsæri í jafn- langri göngu og þessari.Það er líka jafn gott, því að sjaldan hefur íslenska þjóóin átt jafnlitla peninga til að festa kaup á heftiplástri. Sá dagur lifir enn með okkar þjóð er einhugur á föstum rótum stóð. En þjóðin bjó við áþján erlends valds og okkur skorti nienn til trausts og halds. Eining fannst og enginn nema þú gast eflt vort þrek og styrkt þá veiku trú, að þjóðin gæti ennþá fært þá fórn að frelsa sig og lúta eigin stjórn. Nú sjálfstæðis vér syngjum glaðan brag, því sigur vor vannst einmitt þennan dag. Sigrinum vér fögnum keik og kát við kóka kóla drykkju og pylsuát. A göðviðrisdögum geng ég gjarnan niður að Tjörn. Ég hef ekki komið þangað síðan í hitteðfyrra. Aftur á móti hef ég oft ekið þarna um og furða mig í hvert skipti á því að Tjörnin skuli vera þarna enn. Hvernig stendur á því að það er ekki húið að malhika hana? Nú hafa að það fari ekki fyrir brunninum líkt og hafmeynni forðum, en hún var sprengd í loft upp á gamlársdag sællar minningar. Um það orti Karl Kristjánsson: Ómynd býður eyðing heim. Auði brást með vörnina. Enginn hefur uppi á þeim sem afmeyjaði Tjörnina. Ég fékk kvef um daginn, hringdi í lækninn minn og bað hann að gefa mér eitthvað við þessu. Hann spurði hvort ég hefði hita. Ég neitaði því. Þá spurði hann hvort ég hefði beinverki eða aðra vanlíðan. Ég neitaði því líka. Þá verðurðu að koma eins og skot til mln á stofuna, sagði læknirinn. Ég bað auð- vitað guð að hjálpa mér og spurði hvað væri eiginlega að mér. Það er ekkert að þér, sagði læknirinn. Ég ætla bara að sýna þér hvernig á að fara að því að snýta sér. Kankvís orti eitt sinn: Sá hæfnisskortur maður minn er mestur sem ég þekki, að henda steini í himininn og hæfa ekki. Það eru ekki margir hagyrðingar sem hafa náð svo langt í list sinni að verða landsfrægir. Fyrir utan mig veit ég bara um tvo. Þessir tveir urðu frægir vegna þess hve þeir eru góðir hagyrðingar. Eg varð aftur á móti frægur þegar dag- blaðið Tíminn birti ljóð eftir mig á sín- um tíma. Það var þegar bókin um Ragn- heiði Brynjólfsdóttur kom út og Helgi og Behedikt voru að rífast um það frammi fyrir alþjóð hver væri höfundur Njálu. I tilefni af þessu orti ég eftirfarandi ljóð sem Tíminn birti og sagði að væri eftir einhvern hagyrðing: og karltetur það sem skrifaði bókina um hann, er ná má tali af allt að því sérhverri sál með samvinnu túlks sem forna norrænu kann. Ég er ekki viss um hve vel þeir í himnunum heyri. Hitt veit ég, það er sími um Akureyri. En laun heimsins eru vanþakklæti. Eftir að Tímamenn höfðu tekið þetta frábæra ljóð mitt, ófrjálsri hendi, og gert mig landsfrægan, bað ég þá um að birta annað ljóð i blaðinu. Þeir þverneit- uðu og töldu að það væri sök sér að gera mig landsfrægan, hitt væri annað mál hvort það svaraði kostnaði að gera mig heimsfrægan, eins og Ólaf R. Grímsson. Á þessum tíma var ýmislegt að gerast í Framsóknarflokknum. Ungu mennirnir voru að berjast um völdin og þeir sem þóttu helst til vinstrisinnaðir voru reknir úr flokknum. Vor Framsókn er ekki í framsókn, þótt finnist þeim sjálfum, að þeir gert hafi ýmislegt ágætt. Það efast víst flestir um það. En þeir farga öllum framagosum. Það framtak ég meta kann. Nú er að rækta þá ríkjandi stefnu og reka hvern framsóknarmann. En það er ekki öll sagan sögð með þessu. Þjóðviljinn gerði sitt besta til að gera mig landsfrægan líka á sínum tíma. Það var þegar þing Norðurlandaráðs stóð yfir og Magnús Kjartansson hélt þar ræðu sem vakti menn til umhugsunar. Ég ætla ekki að rekja efni ræðunnar. Hún er eflaust flestum í fersku minni. Aft-ur á móti er ljóðið sjálfsagt Iöngu gleymt, en það héuErivlagnús sekur sam kvæmt íslenskum lögum? BENEDIKT AXELSSON þótt keppni virðist stundum i hópnum vera haldin, um hvaða þingfulltrúi mest og fastast geti sofið. ug þarna eiga margir sínar mestu unaðsstundir, því matinn, uppihaldið og svefninn ríkið greiðir. Og þegar Magnús Kjartansson kom þeim til að vakna þeir kepptust flestir um að verða ógurlega reiðir. Þeir skömmuðust og létu öllum illum látum, engan blett það setti á mannorð fulltrúanna. En Magnús gerðist þarna sekur samkvæmt lögum, því samkvæmt lögum er bannað að trufla svefnfrið manna. Að lokum vil ég benda þeim, sem ætla út í kvöld, á það að gleyma ekki að fara í skóna. Það er svo erfitt að ganga fram af V þau gleðitíðindi heyrst að það eigi að setja gosbrunn i Tjörnina, ungum og iindum til augnavndis. Ég ætla að vona Því eru menn að karpa um kempuna Njáí A þingi Norðurlanda er ágætlega unnið og ekki nema sjálfsagt að bera á þingmenn lofið. sér á sokkaleistunum. Ben. Ax. *

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.