Dagblaðið - 25.06.1976, Qupperneq 32
Klóakleiðsl-
ur út í órnar
og smó-
bótalœgi
fyrir
órósnum
frfálst, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1976
Þaggað
niður í
hundinum,
en logreglu
ekki
hleypt inn
„Hundurinn réðst ekki á telp-
una heldur var það frekar hún
sem truflaði hann við beinaát úti í
garði,“ sagði eigandi hundsins
sem kært var yfir í Ásgarði á
þriðjudag og sagt frá í gær. „Það
er heldur ekki rétt að við höfum
ekki viljað ræða við lögregluna.
Það var bara enginn heima þegar
lögreglan kom.“
Nú er það bláköld staðreynd
þessa máls að hundurinn beit í
hönd stúlkunnar. Farið var með
hana í slysadeild og þar gert að
sárinu og stúlkan var sprautuð
gegn frekari afleiðingum hunds-
bitsins.
Lögreglumenn hugðust tala við
eigendur hundsins og í lögreglu-
skýrslu stendur að er þeir kvöddu
dyra heyrðu þeir að þaggað var
niður í hundinum. Enginn vildi
koma til dyra og í slíku tilfelli
hafa lögreglumenn ekki rétt til
inngöngu. Af þeim sökum er
skýrslan send sakadómi og er ein
margra slíkra er þar liggja eftir
afskipti lögreglumanna af hund-
um borgarbúa.
Hundamál höfuðborgarinnar
eru í megnasta ólestri. Hér er
hundabann en því er ekki fram-
fylgt. Lögreglumenn eru í vanda
hvað snertir lausn kærumála
vegna hunda því enginn dómur
hefur fallið í slíku máli.
í nágrannabæjum er tak-
markað hundahald leyft. Þar
greiða menn skatta af hundum,
láta skrá þá og verða að láta baða
þá. t höfuðborginni er hundabann
samþykkt en hundahald við-
gengst í allstórum stíl. Hér mun
engin skráning og engin böðun
fer fram í venjulegum skilningi
þess orðs.
—ASt.
EKIÐ í VEG
BIFHJÓL
Ungur piltur á bifhjóli
siasaðist í umferðarsiysi á
Langholtsvegi kl. 12.45 í gær.
Pilturinn ók eftir Langhoks-
veginum er bifreið var þar
skyndilega ekið frá gang-
stéttarbrún. Hugðist
ökumaður hennar snúa við á
götunni og aka í gagnstæða átt
við það hvernig bifreiðin stóð
við götuna. Sá hann ekki
NYJAR TILRAUNIR TIL
AÐ DREPA LAXA-
STOFN ELLIÐAÁNNA?
FYRIR
piltinn á vélhjólinu og af varð
árekstur. Piiturinn slasaðist á
fæti og var fluttur í siysadeild.
-ASt.
„Það verður ekki annað séð
en að reyna eigi endanlega að
ganga frá Elliðaánum lax-
lausum,“ sagði Egill Jónasson
Stardal er við hittum hann við
árnar á dögunum. Egill er I
klaknefnd Stangaveiðifélags
Reykjavíkur og fylgist því vel
með ánum og því sem fram fer
við þær.
Laxstofninn í Elliðaánum
hefur staðið af sér mörg áföll
og tilræði af mannavöldum.
Þannig var ósi ánna breytt
mjög með uppfyllingu. í upp-
fyllingunni var m.a. komið
fyrir gömlum bílflökum. Var á
það bent að ósnum og laxgöng-
um þar kynni að stafa hætta af
olíumengun frá slíkum hlutum.
Kann hún enn að eiga eftir að
koma fram þó unnendur lax-
veiði í ánum voni að svo verði
ekki.
Frá Toppstöðinni hefur ætíð
seytlað svolítil olía, misjafnlega
mikil, en sjaldan eða aldrei er
alveg frítt við slíkan leka út í
einn mesta veiðihyl árinnar.
Klóakleiðslum út í ána fjölg-
ar jafnt og þétt. í vetur var á
það bent og skýrt með myndum
að opið klóak liggur út í ána við
Keilufell í Breiðholti. Víðar
mun pottur brotinn að þessu
leyti við Elliðaárnar.
Við Sævarhöfða rákumst við
á stóra og mikla nýlega klóak-
leiðslu sem liggur opin og
Stútar kióaksins eru myndarlegir. Að baki eru þær byggmgar og su
starfsemi sem e.t.v. hentar verst af öllu á bökkum laxár.
óvarin út í neðsta hluta
árinnar. Sú klóakleiðsla kemur
úr Ártúnshöfðanum þar sem
verksmiðjubyggingum og til-
heyrandi skúrum og skýlum við
þær fer fjölgandi. Ekki sáust
ljótir hlutir á floti í því rennsli,
þá er við skoðuðum ummerkin.
en mengað er rennslið þó, því
að það tók á sig ýmis litbrigði
og litaði fleti í mjóum árfarveg-
inum.Umfang leiðslunnar er
slíkt að sýnilega er gert ráð
fyrir að hún geti flutt mikið
vatnsmagn út I ána.
Uti fyrir árósnum hafa svo
borgaryfirvöld nú síðast heim-
ilað smábátalægi. Þar verður I
framtíðinni „heimili" tuga eða
hundraða báta af öllum gerð-
um, flestum með kraftmiklum
mótorum. Getur þvl hver og
einn gert sér í hugarlund þá
óværð er sá floti skapar utan
áróssins og þá mengun sem öll
sú meðferð mótora og véla
skapar utan árósanna. Báta-
„sportið" tekur sinn fjörkipp á
hverju vori og I byrjun hvers
sumars. Þá er áhugi bátaeig-
enda og ákafi hvað mestur, en
þá eru einnig vogurinn og
árósinn viðkvæmastir vegna
laxagangna upp í árnar.
Egill Jónasson kvaðst
undrandi á að enn skyldi lax
vera í Elliðaánum, þrátt fyrir
allar þær tilraunir sem gerðar
hefðu verið af mannavöldum til
að drepa stofninn þar. En Egill
kvaðst óttast að í þessum efnum
gilti sama lögmál og með úlfald-
ann. Á hann er hægt að hlaða
oki og byrði án þess að skepnan
kveinki sér. En þegar einu strái
er þætt á bak hans, brestur
skyndilega hryggur hans og
skepnan er dauð. Elliðaárlax-
inn hefur orðið að þola margt.
En gerum okkur ekki leik að
því að ógna tilveru hans svo
lengi að við skyndilega eitt gott
vor blðum eftir komu hans í
árnar — án árangurs.
—ASt..
Mengað rennsii viðrar
klóakieiðslu litar vatnsflöt
þröngrar árinnar sem allar
göngur verða að fara um.
DB-myndir Arni Páll.
Kerfismistök hjá símanum:
ENGIR REIKN-
INGAR,
SÍMUM
Stór hluti íbúa Garðabæjar
vaknaði við vondan draum
síðastliðinn mánudag er þeir
ætlúðu að taka upp símtólið og
hringja. Línan var dauð og
þegar málið var athugað kom i
ljós að lokað hafði verið fyrir
símann sökum vanskila við
Póst og síma, vanskila á reikn-
ingum sem þeir höfðu aldrei
fengið í hendur.
„Mánudaginn 21. júni
þurftum við að loka fyrir 2000
númer hér í Kópavogsstöðinni
sökum vanskila," sagði Guð-
mundur Ár nason, stöðvarstjóri
Pósts og síma í Kópavogi.
„En á miðjum degi fara að
berast óvenjumargar kvartanir
frá Garðabæ og þegar við fór-
um að athuga málið kom í ljós.
að reikninga vantaði í heilu göt-
- EN
LOKAÐ
urnar Ekki er enn komið í ljós
hvar mistökin liggja en verið er
að snúa öllu við á pósthúsum í
Reykjavík og nágrenni i leit að
týndu gíróseðlunum. Ekki er
talið að mistökin hafi getað átt
sér stað hjá tölvunni sem
skrifar út reikningana.
Starfsfólk símstöðvarinnar í
Kópavogi vakti langt fram á
nótt við að leiðrétta þessi mis-
tök. Það flokkaði út öll síma-
númerin í Garðabæ, sem lokað
hafði verið fyrir, og síðan voru
þau öll opnuð. Nú er því ekki
einn einasti sími í Garðabæ
lokaður. Lokunargjöld, sem
skráð höfðu verið, hafa nú öll
verið strikuð út. Reikningar
verða síðan sendir til símnot-
enda sem lentu í þessu um mán-
aðamótin.“ —KL
„Augljóst að þetta f ólk þarf ó aðstoð
að halda' - segir félagsmalastofnunin
„Við ætlum að líta inn í
Laugardal í dag til Ölafs M.
Jónssonar og konu hans,“ sagði
Ágúst ísfjörð, fulltrúi hjá
húsnæðismáladeild Félags-
málastofnunar Reykjavfkur.
„Þaó er alveg augljóst, að þetta
fólk þarf á aðstoð að halda,“
sagði Ágúst.
1 Dagblaðinu í gær var sagt
frá fötluðum manni og konu
hans, sem ekki hafa þak yfir
höfuðið, og hafa tjaldð inni í
Laugardal til að hafast þar við,
þangað til úr rætist á annan
hátt.
Þess má geta, að ritstjórn
Dagblaðsins barst strax í gær
svolátandi bréf:
Við, tveir ónefndir borgarar
viljum þakka yður og blaði yðar
fyrir að vekja athygli okkar á
þeirri neyð, sem meðbræðurnir
eiga við að búa.
Hjálagt fylgir lítið lóð á
vogarskálina, kr. 10.000, og
vonandi getur það hjálpað Ölafi
M. Jónssyni og konu hans til að
fá íbúð. Vonandi láta fleiri
eitthvað af hendi rakna. -BS.-
S!” FELLUR EKKISJÁLFKRAFA
ÚR GILDI1. DESEMBER
Bókun sex fellur ekki sjálf-
krafa úr gildi 1. desember, og
nýja samþykkt þarf hjá Efna-
hagsbandalaginu til þess, að
hún falli niður. Þetta gefur
íslendingum betri stöðu en ella
væri, þegar að því kemur að
ganga frá fiskveiðiheimildum
Bretum til handa eða hætta
þeim.
Þetta er túlkun Islendinga á
yfirlýsingu Efnahagsbanda-
lagsins um gildistöku bókunar
sex frá 1. júlí. Yfirlýsingin
barst í gær.
Islendingar óttast, að bókun
sex verði beitt sem vopni í
viðræðum um fiskveiðiheim-
ildir innan landhelgismark-
anna í haust. Bretar og Vestur-
Þjóðverjar muni hóta að beita
afli sfnu í bandalaginu til þess,
að tollfríðindi til handa íslenzk-
um sjávarafurðum falli niður,
fái þeir ekki að taka hér veru-
legan afla.
Tollar á flestum íslenzkum
sjávarafurðum lækka 1. júlí um
80% í stofnríkjum bandalags-
ins. Freðfiskflök og fryst rækja
verða strax tollfrjáls í Bret-
landi og Danmörku. Tollur á
flökum lækkar i stofnríkjum
bandalagsins úr 15% í 3% og
fellur niður eftir ár. 12% tollur
á flökum I Bretlandi og Dan-
mörku fellur niður. Tollur á
frystri rækju lækkar úr 20% í
4% í stofnríkjunum og fellur
niður eftir ár, en i Bretlandi og
Danmörku feilur 16% tollur á
frysti rækju alveg niður. Tollur
á ísfiski verður í öllum banda-
lagsríkjunum 3,7% á þorski,
ýsu og ufsa í stað 12%. —HH