Dagblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1976 — 143. TBfe. RITSTJÓRN SÍÐUMÓLA 12, SÍMI 83322, 4.UGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
V
Sýnið varúð d Vesturlandsvegi:
Enn eitt stórslysið ó
svipuðum slóðum og fyrr
— fjórir á slysadeild
Mjög harður árekstur varð á
gatnamótum Vesturlandsvegar
og Bæjarháls laust eftir
klukkan fjögur í gærdag. Þar
skullu saman Mercedes Benz
sendibifreið og Scania Vabis
vörubíll. Mjög mikið eignatjón
varð í árekstri þessum, sendi-
bifreiðin er sennilega ónýt og
vinstra horn vörubílsins
skemmdist mikið.
Allt fólkið í þessum árekstri
— ökumaður vörubílsins og
þrír menn í sendiferðabílnum
— voru fluttir í slysadeild en
fengu að fara heim að rannsókn
lokinni.
Vörubifreiðin kom akandi
niður Bæjarhálsinn bg í veg
fyrir sendiferðabílinn, sem var
á leið út úr bænum. Eftir kraft-
inum að dæma, er bilarnir
skullu saman, hafa þeir verið á
mikilli ferð. Hins vegar vantar
lögregluna allar nánari upplýs-
ingar og biður því sjónarvotta
að hafa samband við slysarann-
sóknadeild lögreglunnar i síma
10202. Þar er opið allan sólar-
hringinn.
Þetta er fjórði stóri árekstur-
inn á Vesturlandsvegi síðan á
þriðjudaginn i síðustu viku.
Það er því vissara fyrir
ökumenn að vara sig á þessum'
slóðum. — Þarna er hraðinn
mikill og ef árekstur verður er
hann stórárekstur.
—at
Areksturinn á mótum Bæjar-
háls og Vesturlandsvegar var
mjög harður.
DB-myndir Sveinn Þorm.
Það er dálitið óvenjulegt
gæludýrið hennar Lovísu
Hannesdóttur I Kópavoginum
og ber nafnið Gauki, ekki af því
að það sé neitt í ætt við gauk,
heldur einfaldiega vegna þess
að þegar Lovísa fann Gauka,
ólýsanlega blautan og skjálf-
andi í Grímsnesinu rétt hjá
Hvítá, þá vissi hún ekki hvaða
tegund af fugli hún væri með.
En Gauki óx hratt og eins og
ljóti andarunginn varð hann
fallegri með degi hverjum.
Núna, hálfum mánuði eftir að
hann fannst, er hann dúnmjúk-
ur, helmingi stærri og vel á
vegi með að verða myndargæs.
Þegar við Björgvin komum i
heimsókn vappaði Gauki
ánægður inni í eldhúsi hjá
Lovísu og gaggaði án afláts.
Hann var að gera sér gott af
grasi sem hún hafði reytt
handa honum. „Gauka finnst
líka afskaplega gott að fá fisk
og kartöflur," sagði Lovísa og
bar hann út til myndatöku. Þar
sem hann spígsporaði á lóðinni
fyrir utan kom í ljós að fleira er
góðmeti í hans augum, i\efni-
lega arfi og elfting. ,,Já, hann
sækir í slíkt, maður þarf ekki
að reyta á meðan,“ segir Lovísa
og bætir við að mikið sé Gauki
hændur að fólkinu á heimilinu,
þeim hjónum og fimm börnum
þeirra. Hann fái að hreyfa sig
að vild inni í eldhúsi en er
króaður af inni í stofu því að
sóði er hann. Þegar hann fær að
fara út verður einhver að
passa hann, ekki af því að hanr.
fari út á götu heldur vill hann
ekki vera einn og kemur þá
strax að dyrunum og vill fara
inn aftur. —EVI
Haldið þið ekki að ég sé nógu
failegur fyrir heiminn?
DB-mynd Björgvin.
UNGLINGAVINNAN
MÓTMÆLIR!
- BAKSÍÐA
l irnfíT* FISKINUM
DENGTÚR
ifc,. t* .,Jj KASSA í KÖS
tali — baksíða um Ijóta með- ferð á mannamat
Stykkishólmsbflstjórar í ham:
HÓTUÐU AÐ LOKA STYKKIS-
HÓLMSVEGIYRÐI HAHN
EKKI LAGFÆRDUR
Atta vörubifreiðastjórar i
Stykkishölmi bundust í gær
samtökum um að stöðva umferð
um Stykkishólmsveg i
Korlingarskarði ef ekki yrði
gorð skjót bragarbót á
voginum. Að sögn Viggós
Þorvarðarsonar bii'roiðarstjóra
hafði rignt upp á siðkastið svo
að holur inynduðust í .voginn.
Bilst jórarnir töldu því að
vegurinn væri stórhættulegur.
Til að laga voginn vildu vöru-
bifreiðastjórarnir að hann yrði
heflaður. Um það lo.vti som
stöðvunin kont lil fram-
kvætnda — klukkan sox i gær-
kvöld — kom hofill og lagaði
voginn. Til utnforðarstöðvunar
kom því ekki. noma hvað tvoir
bilar töfðust í um fimm
minútur.
Að sögn Viggós var vegurinn
hættulogastur við efri brúna á
Bakká. Þar er mjög bratt að frá
báðum hliðum og ef ókunnugir
hefðu ekið um veginn mátti
alveg eins búast við því að slys
yrðu. Annars var allur Stykkis-
hólmsvegurinn holóttur og
harður oftir rigningarnar og
siðan þurrkinn á eftir.
—AT