Dagblaðið - 03.07.1976, Page 15
DACBI.AtMÐ — LAlKiARDACiUR 3. JULÍ 1976.
Týndi
eiginkon-
unni í
27 ár
Hjónin Maria og Amos Cham-
berlain höfðu ekki rætt saman í
27 ár þegar þau rufu þögnina
fyrir nokkrum dögum.
— Ég hef alltaf elskað þig,
var það fyrsta sem hann sagði,
og hún svaraði í svipuðum dúr.
Amos, sem er Kanadamaður,
giftist Maríu sinni í stríðinu,
þegar hann gegndi herþjónustu
í brezka flughernum I
Englandi.
Eftir stríðið undi hann sér
ekki í Bretlandi og sneri aftur
til Kanada. Honum og
prestinum, sem gifti hann,
tókst í sameiningu að fá Maríu
til að flytjast með honum til
Kanada. En þegar þangað kom
þjáðist hún af heimþrá og
saknaði móður sinnar svo, að
hún gat hvorki borðað né sofið.
Eftir að hún sneri heim
rofnaði sambandið milli hennar
og Amos smám saman eftir því
sem árin liðu þótt enn væru
þau löglega gift.
Þögnin var rofin er læknar
tjáðu Amos að hann ætti stutt
eftir ólifað. Hann vildi hitta
konuna sína áður en yfir lyki og
bað brezku lögregluna að hafa
uppi á henni.
Frúin fannst og hún ákvað að
hringja í deyjandi eigin-
manninn. Hann tjáði henni að
hann vildi arfleiða hana að
öllum sínum eigum og bað hana
að heimsækja sig á banasæng-
ina.
Og þessa dagana er María
Chamberlain að búa sig undir
förina til Kanada til að hitta á
ný eiginmann sinn sem hún
hefur ekki séð í 27 ár.
Hugsaðu
þig um
tvisvar
dður en þú
tekur í
handfangið
Meðalmaður með eðlilega
meltingu sturtar niður úr
klósettinu að meðaltali 5'A sinni
á dag. 9 lítrar að meðaltali fara
í hverja gusu, þannig að
salernisferðirnar kosta okkur
nær 50 lítra af vatni daglega.
Þessa merku staðreyndir
koma fram í nýbirtri skýrslu
opinberra aðila í Bretlandi. Það
er vatnsskorturinn, sem undan-
farið hefur hrjáð Breta, sem
hrint hefur af stað rannsóknum
á þessu áður ókannaða sviði.
Á meðan hver regnhlifa-
verksmiðjan á fætur annarri
fer nú á hausinn brýna yfirvöld
fyrir almenningi að spara við
sig vatnið og sturta ekki niður
oftar en nauðsyn ber til.
Aftur á móti hafa yfirvöTd
þvertekið fyrir sögusagnir um
að skattayfirvöld ráðgeri að
setja upp teljara á öll salerni í
landinu og leggja lúxusskatt á
þá sem fara yfir fimm og hálfu
sinni markið.
Auk vatnseyðslu salernanna
er Brelum nú bent á að lekur
krani geti sólundað allt að 60
iitrurn á sólarhring. garðúðari
fari með upp i 100 lilra á
klukkutíma og 70 lít ,.r eyðist
við að fara i bað. Brelar eru þar
af leiðandi beðnir um annað
hvort að fara í sturtu, sem eyðir
helmingi minna vatni, eða tvi-
menna í baðkarinu. ef þeir vilja
endilega nota þá aðferðina.
Þessi síðasta tillaga er sú eina
sem náð hefur verulcgu fylgi.
Bolirnir
ganga
aftur
Bikíníin eiga í vök að verjast,
þrátt fyrir hlj'tt og þurrt sumar
i Evrópu. Ástæðan er aftur-
ganga sundbolanna.
Þegar tízkuteiknararnir voru
búnir að ná því marki, að skera
baðfötin niður í frímerkja-
stærðir, var ekki um annað að
ræða en færa sig aftur á
byrjunarreitinn.
Baðfatatízkan í ár felst því í
nýjum og niðurskornum
útgáfum af sundbolnum
gamalgróna og verzlanir,
sem búnar voru að birgja sig
upp af bikíníum, eiga I stór-
vandræðum.
Kaupmennirnir í Frakklandi
björguðu sér þó frá svelti með
því að bjóða kúnnunum upp á
þá nýjung að kaupa efri og
neðri hlutann sinn í hvoru lagi.
Þetta átti að hjálpa þeim að
finna sér baðföt, sem ekki
höfðu botn og bringu i sama
þyngdarflokki.
En nú kvarta kaupmennirnir
undan því, að kvenfólkið
Sayuri Tanaka með opnu úr
japönsku blaði, þar sem fjallað
er um undrasjón hennar.
Hún sér
með
nefinu
Japanska stúlkan Sayuri
Tanaka, sem er nýorðin 11 ára,
sér með nefinu. í vísinda-
stofnun I Tokyo, japanska
sjónvarpinu og á heimili
hennar hefur hún gengið í
gegnum fjölda sjónþrauta með
þykka leppa fyrir augunum og
staðizt þær allar. Hún hefur
hjólað eftir beinni línu með
bundið fyrir augun, lýst
sjónvarpsþætti án þess að
heyra hljóðið, lesið úr bók, sem
hún hafði ekki séð áður,
gripið bolta og hellt í tebolla án
H IðaíT^
Jón Björg y|
<■ ÞAÐAN
misnoti sér þjónustuna og láti
sér nægja að kaupa bara neðri
hlutann.
Þeir myndu ekki kvarta
svona mikið, karldurgarnir, ef
þeir skryppu nú einn sólar-
daginn niður á frönsku
strendurnar og litu á hvaða
afleiðingar þetta hefur í för
með sér.
Húrkollan
sem brann
Slökkviliðsmönnunum í
Herefordshire í Englandi
hitnaði svo við að berjast við
slóran sinubruna, að þeir
köstuðu af sér hlífðarfötunum
og hjálmunum. Einn þeirra lét
það þó ekki nægja heldur
kippti lika af sér hárkollunni
og kom henni fyrir á öruggum
stað. En vindarnir snerust
snögglega í iofti, eldurinn
brcytti um stefnu og áður en
slökkviliðsmennir.ntr fengu
nokkuð að gert var hárkollan
brunnin ásamt hinu grasinu.
Sveitarstjórnin í Herefords-
hire hefur nú samþykkt að
kaupa nýja hárkollu handa
slökkviliðsinanninum sem farið
befur huldu höfðu síðan
kollan haus brann.
þess að einn dropi færi til
spillis.
I vísindastofnuninni leysti
hún erfiðar þrautir annaðhvort
með klúta fyrir augunum, eða
þá vísindamennirnir sjálfir
héldu fyrir augun á henni. Hún
stóðst þær allar.
Fræðimennirnir komust að
þeirri niðurstöðu, að stúlkan
hefði fullkomna sjón, þótt
augnanna nvti ekki við.
Sayuri sjálf segist sjá
móðukennt í gegnum vinstri
nosina þegar bundið er fyrir
augun á henni. Viti menn,
þegar vísindamennirnir héldu
fyrir nefnið á henni jafnt og
augur. sá hún ekki hót.
Eins og undramaðurinn Uri
Geller, sem beygir hnífa og
gaffla með huganum, hefur
undrabarnið Sayuri vakið
vantrú margra. Engu að síður
hefur fjöldi erlendra blaða birt
myndskreyttar greinar um
undrasjón hennar. Vitað er
um tiu manneskjur sem líkt og
Sayuri virtust hafa auka-
sjónskyn. Allt hafa þetta verið
konur eða stúlkur, og í flestum
tilfellunum var aukasjónskynið
sagt yera í fingurgómunum.
Auk Sayuri er ac’eins vitað
um eina konú.sem virðist geta
séð i gegnum nel nið.
Uppstopp-
aðir
fuglar
Uppstc paðir fuglar og
uppboðshaldarinn Sotheby’s í
Lundúnum eru nú aftur
komnir í fréttirnar eftir
nokkurra ára hlé. Ekki er þó
vitað til að tslendingar eigi
neinn hlut að máli að þessu
sinni.
Brezkir fuglafræðingar voru
almennt fremur vantrúaðir,
þegar Sotheby’s bauð fyrir
nokkrum dögum upp mikið
safn fugla, sem fullyrt var að
Charles nokkur Stonham hefði
veitt í Bretlandi og stoppað upp
á árunum frá 1900 til 1910.
Markmið Stonham var að ná
öllum tegundum brezkra fugla í
safn sitt. Sumir fuglanna eru
sjaldséðir í Bretlandi að ekki sé
nú nú meira sagt.
Sérfræðingar töldu safnið
hina svívirðilegustu fölsun og
vonlaust að allir fuglarnir í
safninu væru veiddir í Bret-
landi eins og haldið var fram.
Eftir mikið umtal tókst þó
ekki að sanna neitt misferli óg
safnið var selt eins og ráðgert
var fyrir fleiri milliónir króna.
Blústu
mig upp
Hustler heitir bandaríska
blaðið sem nú er skæðasti
keppinautur ritanna Playboy
og Penthouse.
Yfirburðirnir liggja í stúlku-
myndinni á miðopnunni, sem í
Hustler er uppblásanleg.
Yildi
ekki
missa af
jarðar-
förinni
Hvaða vit er nú í því að safna
fyrir jarðarförinni sinni í tugi
ára og missa svo sjálfur af
öllum hátíðarhöldunum
steindauður í kistunni sinni?
Ekki nokkurt, segir Prinstene
Jones, sem fyrir nokkrum
dögum mætti prúðbúin til
glæsilegrar jarðarfarar sinnar í
Virginíu í Bandaríkjunum.
Hún ákvað að drífa
jarðarförina af, meðan hún er
enn 54 ára gömul og við
hestaheilsu og verðbólgan
hefur ekki alveg étið upp
peningana, sem hún hefur um
langan aldur lagt til hliðar í
þessu sk.vni.
Eyjan
sökk
Ég rakst fyrir stuttu á sögu
frá árinu 1602. Viti. sem þá var
reistur í Corduan i Frakklandi,
var það sterkb.vggður. að eyjan,
sem hann átti að standa á, sökk
undan þunganum.
íslenzk
sýnir
sundbol
—arf taka
bikíni -
ú forsíðu
Eins og önnur virt blöð hefur
Daily Telegraph fjallað um
afturhvarfið til sundbolanna I
leiðurum sínum. Þessa útgáfu
„sundbolsins” birti blaðið á
forsíðu fyrir stuttu. (efri
mynd). Fyrirsætuna kannast
ég ekkert við. Aftur á móti
könnumst við öll við fyrirsæt-
una á myndinni hér að neðan.
Þetta er hún Anna Björns-
dóttir, starfandi ljósmynda-
fyrirsæta í Lundúnum, sem
sýnir okkur öllu hefðbundnari
gerð af sundbolnum góða á
forsíðu blaðsins Slimming í
síðasta mánuði.
15