Dagblaðið - 03.07.1976, Blaðsíða 24
VINNUAFLC
— segja unglingar Kópavogs
Þeir eru að-leggja áherzlu á kröfur sínar um hærra kaup og betri vinnuaðstöðu, unglingarnir í Kópavoginum. DB-mynd Björgvin.
„ERUM EKKILÉLEGT
LENDINGA
— en líklega hangir
hann þurr syðra
Ef ykkur langar til þess að
komast í sólbað um helgina er
hætt við að nauðsynlegt reynist
að ferðast til Norður- eða Norð-
austurlandsins. Það eru litlar
líkur á sól um helgina í höfuð-
borginni eða nágrenni hennar.
„Það er ekki að sjá annað en
það verði hægviðri og nokkuð
notalegt hjá okkur hér syðra,“
sagði Guðmundur Hafsteinsson
veðurfræðingur í viðtali við DB
í gær.
„Það verður ekki nein telj-
andi úrkoma, frekar hlý
sunnangola. Hitinn fer líklega
ekki yfir Í2 stig. Það verður
auðvitað sólskín á ííorðaustur-
landi og hitinn 15—16 stig ;á
skjólsælum stöðum. Á Vest-
fjörðum verður sama veður og
hér, sunnangola og kannski
smáskúrir.“
Það er þó; alténd, huggun að
ekki verði rok og rigriing um
helgina, en sólin — hún ætlar
að láta á sér standa.
—A.Bj.
Innbrotsþjófur
gripinn við
iðju sína
■
Brotizt var inn á tveimur
stöðum á Akureyri seint í
fyrrinótt. Var farið inn i
tvær verzlanir við Hafnar-
stræti sem eru hlið við
hlió.
Innbrotsþjófurinn náðist
á staðnum. Hafði hann
fundið 12000 krónur er hann
var gripinn.
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 3. JÚLl 1976.
SOLIN:
AÐEINS
FYRIR
NORÐ-
Undarleg meðferð ó fiski:
Tekinn úr kassa,
settur í kösina
Sú nýlunda var tekin upp
fyrir nokkrum árum að ísa fisk
í kassa um borð í fiskiskipum.
Þótti þetta hin merkasta fram-
för í meðferð fisks enda
reyndin sú að hráefnið varð
miklu betra bæði til vinnslú og
neyzlu. Gerðar voru strangar
reglur um meðferð þjóðarauðs-
ins, allt frá króknum og upp
á bryggjuna. Jafnframt varð
mat strangara og fiskur, sem
slæma meðferð hlaut, var
miskunnarlaust verðfelldur.
skemmdir og jafnvel þótt þung-
inn væri mikill ætti það ekki að
koma að sök í svo stuttan tíma.
Astæðuna fyrir því að
kassarnir voru ekki notaðir við
bilflutninga kvað Jón vera að
ætlunin hefði verið að spara
flutning á þeim til baka. Sagði
Jón áð lokum að ef þetta teldist
hneykslanleg meðferð mætti
víst víða fara og finna aó.
—JB
.
„Við viljum hærra kaup,“
stóð á kröfuspjöldum sem all-
vígalegir krakkar í unglinga-
vinnunni í Kópavogi báru í
gærdag er þeir þrömmuðu eða
var ekið í hjólbörum eftir
Digranesveginum. Áfanga-
staðurinn var bæjarskrifstof-
urnar í Kópavogi. Þar ætla
krakkarnir að mótmæla skoð-
unum bæjarstjórnar á
unglingavinnunni og jafnframt
vinnuaðstöðunni sem þeim
finnst vægast sagt léleg.
„Kópavogurinn liti öðruvísi
út ef okkar nyti ekki við,“ sagði
einn unglingurinn og var mikið
niðri fyrir. „Þar að auki viljum
við mótmæla þeirri skoðun al-
mennings að við séum lélegt
vinnuafl og séum bara í at-
vinnubótavinnu. Það er heldur
ekkert réttlæti í því að þeir sem
eru fæddir 1962 fá aðeins 4
klst. vinnu á dag og 130 kr. á
tímann, en þeir sem eru árinu
eldri fá 140 kr. og 8 klst, vinnu
á dag.“
Þessu eru sammála margir
eldri unglingarnir í kröfugöng-
unni sem lagt hafa niður vinnu
til þess að mæta og auka þannig.
áherzlu á kröfurnar.
Þótti mönnum því hin mesta
nýlunda að sjá fiski skipað upp
úr togara í kössum en síðan
hvolft úr kössunum á vörubíls-
pall, og áttu þessir bílar að aka
með fiskinn á palli, kassa-
lausan, allt að 60 km leið i
næstu sjávarþorp. Fannst
mörgum sjómanninum og fisk-
verkunarfólki þetta óskiljanleg
öfugþróun sem fram kom i
þessari meðferð á því úrvals-
efni sem kemur í kössum upp
úr togurunum.
DB sneri sér tjl Jóns
Stefánssonar, framkvæmda-
stjora fiskvinnslunnar og togar-
ans á staðnum, og innti hann
eftir frekari upplýsingum um
þetta mál. Jón kvað það vera
rétt að þessari aðferð hefði
verið beitt en þetta væri ekki
eins alvarlegt og menn álitu.
Fiskinum hefði verið hvolft á
bilana með ísnum og öllu
saman, alls um 5 tonnum á
hvern bíl. og átti hann að
flytjast um 60 km leið til Suður-
eyrar á Súgandafirði. ísinn
hefði átt að koma í veg fyrir
Vínveitingar í Krist-
alssal eru lögbrot
segja templarar
Á vorþingi umdæmisstúkunnar
■. 1, sem háð var í Hafnarfirði,
r því lýst yfir að sú áferigissala,
m rekin er i Þjóðleikhúsinu á
iksýningum, sé lögbrot og ætlazt
þess að tekið verði fyrir hana.
Veitingahúsum eru sett þau
ilyrði í lögum að ekki megi selja
nveitingar nema um leið sé
atur á boðstólum og þá á þeim
ma sem veitingarnar standa
yfir. Þessu skilyrði mun ekki full-
nægt í Þjóðleikhúsinu og telst
þetta því lögbrot. Annað atriði,
sem þingið lýsti vanþóknun sinni
á, er að unglingum innan 18 ára
aldurs er óheimil dvöl á vínveit-
ingastað eftir kl. 8 á kvöldin en
þessu atriði muni ekki vera full-
nægt í Þjóðleikhúsinu og sé þar
komin önnur ástæða til lokunar
vínveitingasölu. —JB
Fimm bflar í árekstri
í Bankastrœti
Fimm bíla árekstur varð í
Bankastræti á sjötta tímanum í
gærkvöldi. Hófst atlagan með
því að bil var ekið'ur Þingholts-
dræti inn á Bankastrætið. Hélt
hann inn á miðakrein götunnar
tem merkt er strætisvögnum.
Strætisvagn bar að i sömu
andrá og lenti hann á þeim
óvelkontna á miðak reininni.
Við það kastaðist fólksbíllinn á
tvo aðra bíla og annar þeirra
svo á hinn fimmta, en mikil
umferð og örtröð var í götunni
á þessurn aðalumferðartíma
föstudagsins.
Allir bílarnir fimm skemmd-
ust mikið og bensín og olía
flaut eftir götunni. Varð að fá
aðstoð slökkviliðsins til að þvo
og hreinsa til og afstýra frekari
ha*ttu. —ASt.