Dagblaðið - 15.07.1976, Blaðsíða 7
!> v;m,.u>it> — !•’immtiii>acíuk ir>. .mu
7
INNLAUSNARVERÐ
FLOKKUR INNLAUSNARTiMABIL 10.000 KR. SKÍRTEINI
Ford: _
„Ég gef þér kaffi—
09 svo kýst þú mig'
Helzta vopn Forcls forseta í
baráttunni um franiboð til for-
setakjörs er um þessar mundir
aó bjóða flokksþingsfulltrúum
upp á kaffi og kökur í Hvita
húsinu.
Báðir mennirnir er koma ti!
greina sem frambjóðendur
Repúblikanaflokksins. þeir
Ford og Ronald Reagan. berjast
nú harðri baráttu um útnefn-
ingu. Ljóst þykir að hvorugur
þeirra nær hreinum meirihluta
i fyrsta hluta kosninganna á
flokksþingi repúblikana í
Kansas City í næsta mánuði.
Aðalmaðurinn i baráttu
Fords forseta er James Baker.
Hann eyðir 8—10 klukkustund-
um á dag við símann og spjallar
við væntanlega fulltrúa á
flokksþinginu. Helzta tálbeita
hans til að vinna h.vlli full-
trúanna er að bjóða þeim
ókeypis flugferð til Washing-
ton og morgunverð eða hádegis-
mat með forsetanum í Hvita
húsinu. Foretinn hringir einnig
í nokkra sjálfur og býður þeim
heim.
Ford hefur nú séð, að ekki
nægir að heilsa fólki með
handahandi. — heldur er rétt
aðgcfa því kaffi líka.
Olympfuleikarnir:
Bandaríkin hóta að
verða ekki með
Almenningur í Sulishury hefur nú viðað að sér vopnum og hýsl við
hinu vorsla.
1965
1966
1967
1970
1971
1. FL.
1. FL.
1. FL.
1. FL.
1. FL.
10.09.76
20.09.76
15.09.76
15.09.76
15.09.76
10.09.77
20.09.77
15.09.77
15.09.77
15.09.77
KR. 173.562
KR. 136.621
KR. 120.504
KR. 67.950
KR. 47.592
INNLAUSNARVERÐ ÁRSGREIÐSLUMIÐA
1973 — 1. FL. B
15.09.76 — 15.09.77
10.000 KR. SKÍRTEINI
50.000 KR. SKÍRTEINI
KR. 2.479
KR. 12.396
Olympíunefnd Bandaríkj-
anna hótaði í gærkvöld að
hætta við að senda lið á leikana
í Montreal. Þetta var gert
vegna ákvörðunar Kanada-
stjórnar um. að líó Taiwan
fengi ekki að keppa undir nafni
Lýðveldisins Kína.
Taiwan hafnaði því í gær, að
nota olvmpíúfánann fyrir þjóð-
fána og keppa þar með nafn-
laust. Alþjóða olympíunefndin
tilkynnti i morgun. að stöðugt
væri unnið að lausn þessa máls.
og nefndin vonaði aö Taiwan
mvndi á endanunt samþykkja
að verða með. hvernig sem það
á að gerast.
Innlausn spariskírteina og árgreiðslumiSa fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar
jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík júlí 1976.
FYRVCRANDINAZISTAFORINGI
MYRTUR í FRAKKLANDI
Fyrrvérandi nazistaforingi í
starfsliði Heinrichs Himmlers,
Jouchim Feiper, var drepinn að
heimili sínu í Vesoul í Frakk-
landi í gær. Liigreglan telur að
hann hafi verið skotinn og
síðan hafi líkið veriö brennl, er
kveikt var í húsi hans.
Feiper var á sínum tíma
dæntdur til dauða f.vrir að hafa
fyrirskipað aftöku á 71 banda-
rískum stríösfanga. Ilauðadómi
hans var siðar breytt í tevilangt
fangelsi. — Liigreglan hal'ði i
gærkviildi ekki komizt endan-
lega að því, hvernig l’eiper
hafði verið myrtur, þar eð lik
hans var skaðbrunnið.
Ródesía: ,
SKÆRULIÐAR DRAPU
HVÍTA STÚLKU
— og sœrðu fíinm
Öryggisþjónusta Ródesiu til-
kynnti í gær, að átta ára gömul
hvit stúlka hefði verið drepin
og fimm manns verið særðir á
þjóðvegi, sem liggur til suðurs
frá höfuðborg landsins,
Salisbury. Svartir þjóðernis-
skæruliðar eru taldir hafa verið
þarna að verki.
A þessum vegi eru her-
menn til staðar og f.vlgja bíla-
lestum eftir veginum á meðan
bjart er. Þaó voru þrír bílar,
sem skæruliðarnir réðust á, en
þeir voru einir sér og höfðu
ekki notfært sér þjónustu
ródesíska hersins.
Stjórnmál eru orðin aðalum-
ræðuefnið í sambandi við
Olympíuleikana og þykir
mörgum sem þeir hafi verulega
sett ofan síðan Spartverjar og
Grikkir lögðu niður vopn til
þess að leikarnir gætu farið
fram hér í f.vrndinni.
íjarðskjálfta á
eyjunni Bali
Talið er að 52 hafi látizt og
um 150 slasazt, er jarðskjálfti
gekk yfir indónesísku ferða-
mannaeyjuna Bali. Jarðskjálfti
þessi mældist 5.6 stig á
Richterskvarða.
Nokkur hús og brýr hrundu I
skjálftanum. Mestu skemmd-
irnar urðu á tveimur stöðum á
eyjunni. I Buleleng á norður-
hluta eyjarinnar og Jembera á
vesturhlutanum. í Buleleng
býr mikill fjöldi fólks og var
hreinasta mildi að ekki fór verr
í þessum snarpa skjálfta.
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERD
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS