Dagblaðið - 15.07.1976, Blaðsíða 8
DAGBI.AÐIO — KIMMTUDAGUK 15. JULl 1976.
...... ..
---——>
Bandaríkja-
menn vilja
meiri fisk:
TEKST OKKUR AÐ
SEUA ÞEIM KARFA?
úr því ekki er hœgt að anna eftirspurninni eftir „þeim gula"
..Við erum afskaplega
ánægðir með hversu góður
markaðurinn er i dag og eftir-
spurnin mikil," sagði Guðjón B.
Ólafsson framkvæmdastjóri
Iceland Products Inc. i Banda-
ríkjunum, er DB spurðist fyrir
um sölu á fiskafurðunum frá
íslandi.
..Verðið á þorskblokkinni er
nú komið upp í 80 cent og fer
hækkandi. Við getum engán
veginn annað eftirspurninni,
því okkur vantar alltaf fisk frá
Islandi. íslenzki þorskurinn er
mjög eftirsóttur hér, enda lang-
bezta framleiðslan sem er á
markaðnum. Þó að framleiðsl-
an hafi aukizt það sem af er
árinu, þá höfum við næga
möguleika á að koma henni í
sölu.
Við ætlum að reyna nýja
sölumöguleika á karfa núna, en
að svo komnu, er ekki unnt að
segja til um árangurinn.
Kanadamenn hafa svo til ein-
okað karfamarkaðinn I Banda-
ríkjunum, en þeir eru með mun
smærri karfa en við svo ómögu-
legt er að segja um hvernig
móttökur okkar framleiðsla
fær. En þetta er samt stefnan
hjá okkur að beina karfafram-
leiðslunni inn á Bandaríkja-
markað og í því sambandi erum
við að þreifa fyrir okkur með
meiri flokkun á honum og
nýjar leiðir I pakkningu. Helztu
möguleikarnir, að mínu mati,
eru að beina þessari fram-
leiðslu til þeirra sem ekki fá
nægan þorsk og ýsu, eða annan
fisk.
En við erum mjög bjartsýnir
á framtlðina og bíðum bara
eftir meiri afurðum að
heiman,“ sagði Guðjón að lok-
um.
DB náði einnig sambandi við
Óttar Hansson sölustjóra hjá
Coldwater Seafood Co., en hann
vildi sem minnst um málið
segja. Hann kváðst þó vera
fullur bjartsýni og vonast til að
tilraunir með karfann gæfu
góðan árangur ef meðhöndlun
yrði skv. þeirra fyrirmælum.
Öttar tók einnig undir það að
markaðurinn í dag væri mjög
hagstæður íslenzkri fram-
leiðslu og engin ástæða til ann-
ars en bjartsýni með framtíð-
ina.
JB
HÆSTÁNÆGÐIR MED
r
— vonanditeknarí
notkun í lok september
sem heilsugœzlustöð
..Það kom aldrei til í raun og
veru að fl.vtja embættið í Hafnar-
búðir úr Heilsuverndarstöðinni,"
sagði Skúli Johnsen borgar-
læknir, en skrifstofur borgar-
læknis eru staðsettar i Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstíg.
Skúli sagði ennfremur að að-
eins væri aðstaða fyrir 12-14
sjúklinga á Heilsuverndarstöð-
inni en 28 í Hafnarbúðum, auk
þess sem um betri aðstöðu væri að
ræða þar. Það hefur og verið
stefnan að Heilsuverndarstöðin
starfaði sem heilsugæzlustöð ,en
ekki sem sjúkrahús.
Gerðar hafa verið hávaða-
mælingar við Hafnarbúðir bæði
úti og inni og hefur hávaði þar
ekki re.vnzt truflandi. Þess ber
einnig að geta að fæstar sjúkra-
stofurnar vísa út að götunni, þar
sem umferðin er. 1 göngum
Heilsuverndarstöðvarinnar
Barónsstígsmegin, hefur mælzt
meiri hávaði. Skúli gat þess að
menn væru hæstánægðir með
Ilafnarbúðir.
„Það hefur satt að segja gengið
hægar en við vonuðum að koma
Hafnarbúðum í lag,“ sagði Skúli
og bætti við að það væri vegna
seinkunar á tækjabúnaði erlendis
frá, eins og til dæmis lyftu. í stað
þess að opna fyrir sumarfrí er
vonazt til að allt verði tilbúið í lok
september.
„Við erum bjartsýnir á að það
takist að fá nóg hjúkrunarfólk,"
sagði Skúli. en alls munu 32
starfa við Hafnarbúðir. Sjúkra-
liðum hefur fjölgað og fleiri
hjúkrunarkonur hafa útskrifazt.
Nýlega er búið að taka 1 notkun
barnaheimili fyrir hjúkrunar-
konur við Borgarspítalann. Skúli
sagðist ekki hafa orðið var við það
nú, eins og á undanförnum árum,
að loka þyrfti heilu sjúkra-
stofunum vegna skorts á
hjúkrunarfólki. EVI
Brautryðjendur lækkaðs vöruveros
tilkynna:
KÖNNUN VERÐLAGSSTJÓRA SÝNIR
GREINILEGA AÐ MATVÖRUVERÐ OKK-
AR ER HVAÐ LÆGST Á LANDINU ÖLLU.
OPIÐ FÖSTUDAGSKVÖLD TIL 10.
LOKAÐ LAUGARDAGA Í SUMAR.
Tvíverknaðurinn er
þá bara hagrœðing
— graf ið, fyllt upp í, graf ið síðan enn á ný
Hafnarfjarðarbær hefur staðið
fyrir mikluin gatnagerðarfram-
kvæmdum í Hafnarfirði að
undanförnu. Skipt hefur verið
um jarðveg og lagnir í nokkrum
götum. Það hefur vakið furðu
íbúa við sumar þessar götur að sjá
verktaka á vegum bæjarins koma
og leggja vatns- og skólplagnir,
ganga síðan frá götunni, moka
yfir allt og gera hana akfæra
aftur, því síðan koma verktakar á
vegum hitaveitunnar og grafa
upp sömu götu fyrir hitaveitu-
lagnir Læðzt hefur sá grunur að
mörgum að hér sé um tvíverknað
að ræða og peningasóun.
„Það vill bregða við að grafið sé
í tvígang í sömu götu,“ sagði
Halldór ' Hannesson verk-
fræðingur hjá Hafnarfjarðarbæ.
„Við erum með verktaka á
okkar snærum sem sjá um að
grafa fyrir vatns- og skólplögnum,
og hitaveitan er með sina verk-
taka. Oft er aðstaðan svo þröng að
3rfitt er fyrir fleiri en einn vinnu-
flokk í einu að athafna sig með
góðu móti. Svo kemur það einnig
til að hitaveitulagnirnar liggja
yfirleitt grynnra. eða 60-80 cm
niðri í jörðinni, en lagnir á okkar
vegum 120-150 cm og þyrfti þá að
koma til uppfyllingar.
Tiltölulega lítið mál er að grafa
fyrirhitaveitulögnum.Ef skurðirn-
ir væru mokaðir upp með hand-
afli þá lægi málið öðruvísi við, en
með nútima tækni, fljótvirkum
gröfuvélum, þá tekur það aðeins
einn til tvo daga að grafa skurð
eftir 100-200 metra götu.
Rafveitan og síminn grafa ekki
fyrir sínum strengjum, þeirfá að
læða þeim niður með lögnunum.
Fólki þ.vkir þessi framkvæmd
kannski svolítið spaugileg en
þetta er yfirleitt gert svona hér
um slóðir og við værum ekki að
þessu ef ekki væri einhver hag-
ræðing í því.
—KL
Boejarróð íKópavogi:
Bara ánœgt með
framtak þeirra ungu
Á fundi bæjarráðs Kópavogs á
þriðjudag var samþykkt bókun
um vinnuskólann í Kópavogi, sem
minnihlutinn vísaði síðan til
bæjarstjórnar.
í bókuninni kemur fram að
unglingarnir skuli fá 10% kaup-
hækkun með tilvísun til almennra
kauphækkana sem þá tóku gildi.
Ennfremur skulu unglingarnir fá
fríar ferðir með SVK til og frá
vinnustað. Fundurinn lýsti yfir
ánægju sinni með framtak
unglinganna og ákveðið var að
fela sérstakri stjórn endurskoðun
á þessum málum fyrir næsta
starfstímabil.
Fundur verður í bæjarstjórn á
föstudag og ef málið verður sam-
þykkt þar, eru unglingar i vinnu-
skólanum í Kópavogi komnir með
10% hærri laun en nágrannar
þeirra, unglingarnir í Reykjavík
og Garðabæ. jb
Fenixballettinn í
Norrœna húsinu íkvöld
Líkt og undanfarin sumur
verður Norræna húsið í Reykja-
vik með sérstök k.vnningarkvöld
f.vrir erlenda — og þá sérstaklega
norræna — ferðamenn á fimmtu-
dagskvöldum það sem eftir er
sumars.
Dagskráin verður með svipuðu
sniði og áður: Fengnir verða rit-
höfundar og fræðimenn til að
fjalla um land og þjóð. bók-
menntir. tónlist. myndlist og
byggingarlist að fornu og nýju á
Islandi Auk þess verða sýndar
kvikmyndir tengdar því efni sem
flutt er hverjtt sinni. Þessi kvöld
verður svonefnt opið hús. þ.e.
bókasafn. sýningarsalir og kaffi-
stofa verður opin almenningi til
kl. 23.00.
I kjallara Norra'tta hússins
verður „Sumarsýning" frá 24. júli
lil 15. ágúst. þar sein listmálar-
arnir Hjörleifur Sigurðsson.
Ragnheiður Jónsdóttir Ream og
Snorri Sveinn Friðriksson sýna
verk sin og er þetta i tengslum við
ívrrnefnda kynningarstarfsemi.
í kvöld verður sérstök sýning á
ballett Unnar Guðjónsdóttur um
islenzkt og norrænt söguefni.
Unnur sýnir þar ásamt Fenixball-
ettinum tvo þa'tti. Iiinn fyrri um
þjóðtrú á Norður-
löndum en hinn siðari um Gunnar
a Hliðarenda. Untiur hefur
dvalizt i Svíþjóð um árabil og
stofnaði þar Fenixballettinn. en i
honum eru auk hennar fjórir
sa'itskir dansarar. Þau hafa að
undanförnu verið i sýningarferð
um Island.
Sýningin i kvtild hefst kl.
20.30 og verða aðgöngumiðar
seldir við innganginn.
JK