Dagblaðið - 15.07.1976, Síða 9
I) XCHI.AÐIt) — FIMMTUDACUH 15. JUUl 1976.
9
HVAÐ KOSTAR ÞJOÐAR-
DRYKKUR OKKAR ÍS-
LENDINGA, MOLAKAFFIÐ!
Þaó er misjafnlega dýr
dropinn af þjóðardrykk okkar
íslendinga, kaffinu, ef hanfi
er keyptur á veitingahúsum.
DB hringdi í nokkra 'staði og
kannaði verð á molakaffi og var
þáð allt frá kr. 85 og upp í 180
kr. Taka verður mið af því að
sumsstaðar er kaffið borið á
borð fvrir fólk, en annars
staðar verður hver og einn að
sækja það sjálfur, í Kaffi-
vagninum var kaffisopinn
ódýrastur af þeim stöðum er
DB hringdi í, þar kostaði hann
85 krónur. Dýrastur var sopinn
í veitingasalnum á Loftleiða-
hótelinu 180 kr. Hægt er að fá
helmingi ódýrara kaffi á Loft-
leiðahötelinu þvi í kaffi-
teríunni þar kostar bollinn 90
krónur og hægt að fá ábót.
Frammámenn þjóðarinnar
þinga oft á Borginni yfir kaffi-
bolla og ræða landsins gagn og
nauðsynjar. Þar kostar bollinn
165 krónur og ekki þarf að hafa
fyrir neinu öðru en setjast, því
komið er með kaffið á borðið. A
Hressingarskálanum kostaði
molasopinn 150 kr. Algengt
verð á kaffibolLnnum virtist
vera 100 kr. því á mörgum
stöðum er við hringdum í
fengum við það verð uppgefið.
Af þeim stöðum sem við
hringdum í úti á landi var kaffi-
dreitillinn ódýrastur á Hótel
Selfossi, 125 kr. Bæði á Mána-
kaffi á ísafirði og Hótel Höfn
hornafirði kostaði molakaffi
150 krónur.
-KL
HIMBRIMI EÐA LOMUR, HANN
HEITIR ALLAVEGA HIMMI
,,Æ, hann er svo sætur að ég
tími varla að láta hann frá mér
þetta grey," sagði hún Magnea,
húsmóðirin að Digranesvegi 115 í
Kópavogi er DB heimsótti hana
og fjölskylduna til að líta á nýj-
asta gæludýrið.
,,Við höldum að þetta sé
himbrimaungi eða kannski er það
lómur," bætti hún við.
..Þetta er ábyggilega himbrimi,
enda kalla ég hann Himma." sagði
Agúst Eðvald Ólafsson. en það var
einmitt hann sem fann ungann
uppi á heiðum einhvers staðar
fyrir norðan en þá var unginn
nær dauða en lífi. Nú hefur hins
vegar færzt heldur betur lif í
hann og hann hleypur á eftir
Ágústi litla hvert sem hann fer.
„Hann heldur að ég sé mamma
hans,“ segir Ágúst. ,,Ég gef
honum gras og flugur að borða og
svo étur hann líka helling af
hænuungafóðri og drekkur mikið
vatn.“
Og Himmi er ekki eina gælu-
dýrið á bænurn Þar eru tveir
páfagaukar og hundur sem heitir
Polli og gengur sambúðin slysa-
laust að jafnaði. A.m.k. er Himmi
ekkert hræddur við Polla því
hann er ófeiminn við að stökkva
upp á hann og kroppa i hann.
En fuglum er víst ekki frá nátt-
úrunnar hendi ætlaður bústaður í
steinkumböldum mannanna
barna, svo fljótlega verður að láta
hann fara. „Við ætlum með hann
suður í Sædýrasafn og vita hvort
hann þrífst ekki þar innan um
gæsirnar, en það veit almáttugur
að við tímum ekki að sjá af hon-
um," mælti húsfreyjan að lokum.
JB
Agúst litli er i sumarlevfi hjá
ömmu og afa, en hann er frá
Blönduósi. Og hann hefur sannar-
lega nóg að gera við að annast
Himma og gæta þess að Polli
gerist ekki of nærgöngull.
DB-mynd Arni Páll.
Góður er blessaður sopinn.
DBmynd Bjarnleifur.
ALLT ÍFÓKUS HJÁ 0KKUR
Finnst ykkur ég ekki sætur? spyr
Himmi, sem enginn veit hvort er
himbrimi, lómur eða eitthvað
annað.
N0TIÐ
filmuna
í ferðalagið
SMÁSALA F0KUS HEILDSALA
Lœkjargötu 6b, sími 15555
Mjög góð veiðiaðstaða
/f
fyrir fatlaða,
— segir Arnór Pétursson, f ormaður íþróttaf élags fatlaða
„Það er mikil og góð veiði í
vatninu og full ástæða til að vera
bjartsýnn." sagði Arnór Péturs-
son formaður Íþrðttafélags fatl-
aðra cr I)B spurðist fyrir' um
nýtilkomna veiðiaðstöðu fyrir
fatlaða í Elliðavatni.
„Svæðið sem aðstaðan er við, er
á mótum Helluvatns og Elliða-
vatns. en iil að komast þangað er
fariö gegnum Kauðhóla og inn í
Heiömörk." héll Arnór áfram.
Staöurinn var o|>naður sl. föstu-
dag og hefur verið töluverð
aðsókn að þessu. Aðstaðan er sér-
staklega góð lyrir fólk í hjóla-
stólum og aðrir. sem auðveldar
eiga með hreylingu, geta flutt sig
til og veitt þarna i nágrenninu.
Veittar verða leiðbeiningar og
kennsla við vciðar, auk þess sem*
annað aðsloðarfólk verður til
staðar.
„Upphal'leg drög að þessu máli
voru þau, að Veiði- og fiskiræktar-
ráð lagði fram til borgarráðs á
síðasta ári tilliigu Olafs Jenssonar
um veiðiaðstöðu f.vrir fatlað fólk,
og samþ.vkkti ráðið að veita
rúmar 900 þúsund krónur til þess-
ara framkvæmda. Siðan var hafizt
handa strax og fr.ost fór úr jörðu i
vor og eins og fyrr segir var opnaö
sl. föstudag. Veiðiféjag Elliða-
vatns, sem hefur veiðile.vfisrétt-
indi á þessutn stað, lét okkur eftir
veiðileyfi á mjög góðu verði og
gerði okkur þar með kleift að
opna," sagði Arnór að lokum.
Veiðiaðstaðan 'við Elliðavatn
verður opin daglega i sumar og
eru veiðileyfin til siilu hjá
Iþróttalelagi fatlaðra. Kiwanis-
klúbhurinn Esja hefur gefið 2
verðlaunabikara, annan l'yrir
ástundun við veiðar. en hinn lýrir
inesla veiði yfir sumanð.
JB
Sólgleraugu hinna vandlátu
PRIMETTA
eru nú aftur fáanleg í verzlunum (margir
litir og gerðir).
PHIMETTA sólgleraugu eru vönduð, létt og
fara vel.
PRIMETTA sólgleraugu fvrir ökumenn eru
höggvarin.
PRIMETTA sólgleraugu eru með I)IN-
stimpli, sem er gæðastimpill vestur-þýzku
neytendasamlakanna.
PRIMETTA UMB0ÐIÐ
H.A. TULINIUS
HEILDVERZLUN
AUSTURSTRÆTI 20, REYKJAVÍK.
Optisk .moða.uler