Dagblaðið - 15.07.1976, Síða 12
DACBLAtilÐ — KIMMTUDACUK 15. JÚUl 1976.
EHefu hafa varpað
yfír 21 melra í ár
— og sextán yfir 20.62 metra í kúluvarpinu
Mikil afrek hafa verið unnin í
kúiuvarpi i ár — eins og alltaf er
á Olympíuári. Ileimsmet hafa
verið sett bæði i fiokki atvinnu-
manna og áhugamanna. Brian
Oldfield, sem er atvinnumaður og
keppir því ckki á ieikunum í
Montreal, hefur varpað lengst eða
22.45 metra. Bandaríkjamaður-
inn Terry Albritton, sem aðeins
er 21 árs, setti heimsmet í vor í
flokki áhugamanna, þegar hann
varpaði 21.85 metra — en á
bandaríska úrtökumótinu varð
hann aðeins fjórði og komst því
ekki í bandaríska olympiuliðið.
Um heigina bætti sovézki kúlu-
varparinn Barysjnikov, sem lengi
hefur verið í fremstu röð, metið í
22 metra í landskeppni Frakka og
Sovétmanna í Paris.
Alls hafa ellefu kúluvarparar
varpað kúlunni yfir 21 metra í
sumar — og sextándi bezti árang-
urinn í ár er 20.62 metrar. Því
miður hefur blaðið ekki skrá yfir
alla þá.sem varpað hafa yfir 20
metra í sumar, en reikna má með
að það séu um 25—30 kúlu-
varparar. Hér á eftir fer listi yfir
16 beztu afrekin í ár — en rétt er
að vekja athygli á því, að sex
þeirra eru unnin af Bandaríkja-
mönnum, fjögur af Sovétmönnum
og fjögur af Austur-Þjóðverjum.
Bezti árangur í kúluvarpi í heiminum i ár litur þannig út:
Arangur Nafn Aldur
22.45 Brian Oldfield, USA (31)
22.00 A. Barysjnikov, Sovét, (28)
21.85 Terry Albritton, USA (21)
21.74 A1 Feuerbach, USA, (28)
21.63 George Woods, USA, (33)
21.55 Geoff Capes, Bretl. (27)
21.53 Jev. Mironov, Sovét, (27)
21.46 R. Oesterreich, A-Þ. (27)
21.12 Udo Bayer, A-Þýzkal. (21)
21.12 H. Peter Gies, A-Þ. (29)
21.10 Petcr Shmock, USA, (26)
20.92 H. Rothenburg, A-Þ. (32)
20.84 Mac Wilkins, USA, (26)
20.84 Matti Yrjola, Finnl. (28)
20.72 Anat. Jarosj, Sovét, (24)
20.62 Alexs. Nosenko, Sovét- (24)
Óvœnt í Garðinum — Ár-
mann tapaði fyrir Víði
Bikarkeppnir hafa löngum
verið keppnir hinna óvæntu úr-
slita, þegar lið hinna ýmsu deilda
leiða saman hesta sína. í gær-
kvöld áttust við i Garðinum lið
heimamanna Víðir úr III. deild
og 2. deildarlið Armanns. Urslit
leiksins fóru nokkuð á annan veg
en við mátti búast, því Víðir bar
sigur úr býtum með glæsilegu
marki útherjaús Ingimundar
Guðmundssonar, sem skaut frá
vítateig föstum snúningsknetti,
sem skrúfaðist yfir Ögmund
Kristinsson markvörð Armanns
og féll að baki'honum í markið.
Þar sem markið var skorað um
miðjan fyrri hálfleik, höfðu
Ármenningar nægan tíma til að
jafna og einnig tækifæri. Tvívegis
virtist knötturinn stefna í Víðis-
markið, en Þorleifur „Jashín“
Guðmundsson, markvörður, kom
höndum undir knöttinn og gat
lyft honum í þverslá og aftur fyrir
markið. Einnig greip Þorleifur
vel inn í leikinn, þegar Ármenn-
inar sóttu hvað ákafast á tímabili
i seinni hálfleik.
En Víðispiltarnir áttu einnig
sín færi á að auka muninn. Jóna-
tan Ingimarsson, fótfrái miðherj-
inn, komst fram hjá Ögmundi
markverði og skaut, en Magnúsi
Þorsteinssyni tókst á síðustu
stundu að bjarga á marklínunni.
Rétt fyrir leikslok skaut Jón Ög-
mundsson, sem kom inn á í seinni
hálfleik, himinhátt yfir í dauða-
færi.
Hafnfirðingurinn, Daniel Hálf-
dánarson, hefur náó Víðisliðinu
vel á strik eftir lélega byrjun í
vor. Sýndu þeir oft á tíðum
ágætan leik, samspil og snerpu
ásamt ódrepandi dugnaði allan
leikinn. Hvergi veikur hlekkur,
en ath.vgli vakli Haildór Einars-
son miðvörður, ásamt Gísla
Eyjólfssyni tengilið og Ingimundi
Guðmundssyni útherja.
Lið Armanns var ekki eins heil- I
steypt og við mátti búast af ann-
arrar deildar liði. Einhvers óróa
gætti í leik þeirra og baráttuvilji
sumra leikmanna var í lágmarki. |
Ingi Stefán, miðvörður og Jón
Hermannsson voru þeir sem
„héldu höfði“ í leiknum. Dómari
var Ársæll Jónsson og slapp hann
vel frá því hlutverki. emm
Vinna leikina
fyrir félög sín
Allmargir leikir í yngri flokk-
unum voru háðir á Norðurlandi
sl. sunnudag. Urslit urðu þessi:
Sunnudagurinn 11. júlí 1976.
íslandsmótið 2. flokkur.
Sauðárkrókur:
Tindastóll — KA 2—0
Sunnudagurinn ll.júlí
íslandsmótið, yngri flokkar.
Norðurland. Sauðárkrókur:
4. flokkur.
Tindastóll — KS 1—2
5. flokkur.
Tindastól! — KS 0—3
Húsavík: 3. flokkur.
Völsungur — Þór 8—2
4. flokkur.
Völsungur — Þór 4—1
5. flokkur.
Völsungur — Þór 2—2
Akureyri: s flokkur.
KA — Leifur. 2—0
4. flokkur.
KA — Leifur. 7—0
5. flokkur.
KA — Leifur. 5—0
Að lokum má geta þess, að
dómarar á Sauðárkróki og Húsa-
vík eru lélegir og algjörir heima-
dómarar. Það sýndi sig til dæmis í
leik Tindastóls og KA. í 2. flokki
og í leik Völsunga og Þórs í þriðja
flokki á sunnudaginn. Þessir
menn vinna leikina fyrir sín félög
og er það að vonum mjög leiðin-
legt.
Það hefur hingað til verið nógu
erfitt að leika gegn 11 manna liði
þó svo að dómararnir fari ekki að
verða liðsmenn sinna manna.
Hvernig er með eftirlit með leikj-
um þessum og þá frá dómara-
félögunum? Jú, það er ekki neitt.
Til dæmis í leiknum lá Sauðár-
króki. Þegar flautað var þá var
það vitað mál að það var dæmt á
KA-menn. Er það nema von að
svona fari í skapið á leikmönn-
um og þeir gera oft það sem þeir
mundu aldrei gera annars og það
eina sem þeir hafa upp eru gul
spjöld og brottrekstur. Undir-
ritaður telur það frumskilyrði að
viðkontandi dómari kunni knatt-
spyrnureglur KSl en það hefur
komið í ljós að svo er ekki. Það er
ekki nóg að klæðast svörtu
dómarapeysunni og geta flautað í
tíma og ótíma. Bæði Akureyrar-
félögin eru mjög óhress yfir
þessu. Ef þetta endurtekur sig
oftar verður að fara að gera eitt-
hvað í málinu óg það hið allra
fyrsta. Dómgri getur gert mistök
eins og allir aðrir en þegar þeir
eru farnir að taka stig af liðum og
það i baráttunni um Islands-
meistaratitilinn er bezt fyrir þá
að hætta að sinna „dómgæzlu."
StA.
Hreinn Halldórsson í metkasti sínu á Laugardalsvelli í gær — 20.24 metrar -i
en Evrópumet Gunnars Huseb.v var — 16.74 metrar, sett á Evropumeistarmótim
var eini Ijósmyndarinn. sem tók myndir af keppninni í gær.
— Strandamoðurinn sterki, Hreinn Halldórsson
Hreinsaði sig i
Tuttugu metrarnir eru á næsia
leiti, sagði Hreinn Halldórsson, KR.
— Strandamaðurinn sterki — eftir
Kalottkeppnina á dögunum og i gær á
Laugardalsvellinum urðu þeir stað-
reynd. Tvívegis varpaði Hreinn kúl-
unni yfir 20 metra ntarkið — fyrst
20.01 metra og síðan 20.24 metra.
Framför Hreins hefur verið mikil í
sumar. Islandsmetið frá í fyrra var
19.49 motrar og hefur Ilreinn þvi
baút árangur sinn um 75 sentimetra.
Það er mikið i kúluvarpi — og
Hreinn stefnir að því að vera í topp-
þjálfun á Olynipíuleikunum. Þaö
veröur hann greinilega og gæti oröið
þar nieðal tíu heztu.