Dagblaðið - 15.07.1976, Qupperneq 22
22
DAÍ.BLAÐIÐ — FIMMTUDACUR 15. Jt’Ll 1976.
BILASALA-
BÍLASKIPTI
RORGAHiÖN
BÍLDEKkOí
—□
KUJBBUBINt
Hreinsað tii í Bucktown
Hörkuspennandi og vióburðahröð
ný bandarísk litm.vnd.
FRED WILLIAMSON
PAM GRIER
tslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýndkl.3, 5, 7,9 og 11
Ilér er roktorinn að reyna að konia i vejí fyrir að Hia Hjort veki athygli vegfaranda á slefnumóti
þeirrá.
Ný spennandi amerísk mynd i
litum frá MGM. Aðalhlutverk:
Robert Duvall, Karen Black, Joe
Don Baker og Robert Ryan.
Leikstjóri: John Flynn.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Örvænting Piu er alger þegar henni verður ljóst að eiginmaður hennar hafði ætlað að drepa hana.
Hörkutól
Bflskúrinn
Kvik
myndir
Garagen (bílskúrínn).
Leikstjóri: Vilgot Sjöman.
Kvikmyndahandrit: Vilgot Sjöman.
Klipping: Vilgot Sjöman og Wic Kellin.
Bílskúrinn er verk Sjömans
að langmestu leyti eíns og upp-
talningin hér á undan sýnir, en
þessi sænski leikstjóri kom
hingað til lands í vetur.
Leikararnir eru lítt kunnir
hérlendis enda sjáum við allt of
fáar sænskar kvikmyndir.
Mynd þessi lýsir örlögum
tvennra hjóna í smábæ í
Svíþjóð. Mennirnir starfa báðir
við gagnfræðaskólann og
stendur til að bæta við hann
menntaskóla. Konurnar hlúa að
mönnum sínum en engin börn
eiga hjónin. Lýsir myndin lífi
sænskra smáborgara, framhjá-
haldi þeirra og loks hinum ei-
lífa þríhyrningi. Rektorinn og
kristinfræðikennarinn eyða
mörgum frístundum sínum
saman og hið sama má segja um
konur þeirra. Rektorinn hefur
haldið við konu kennarans í
nokkur ár, en er hálfpartinn
orðinn leiður á henni. Hún
verður ófrísk eftir hann, en
taldi sig óbyrju áður. Maður
hennar er ákaflega rólegur og
ekki til stórræðanna í sambandi
við kvenfólk, en elskar konu
sína mjög innilega. Hann fær
ekki afborið samband konu
sinnar við rektorinn og gerir
heiðarlega tilraun til að drepa
hana, nákvæmlega á sama hátt
og hún hafði áður reynt að
fremja sjálfsmorð.
Rektorinn, sem giftur er
auðugri konu er sífellt í leit að
nýjum viðhöldum og vill losa
sig við Piu Hjort (konu kristin-
fræðikennarans). Hún reynist
hins vegar hin harðasta á því að
halda í hann. Þegar henni
verður ljóst að hann ætlar að
hætta við hana, reynir hún að
drepa rektorinn.
Lokaþáttur myndarinnar er
stórkostlegur. Þar burðast þeir
rektorinn og kennarinn báðir
með það á samvizkunni að hafa
drepið Piu. Og það verður, eins
og svo algengt er í daglega
lífinu að hinn slægi sleppur.
Hinn saklausi er svo kúgaður af
samvizkubiti og þreyttur á
lífinu að hann gefur sig fram.
Myndin lýsir ákaflega vel
sálarlífi þess fólks sem við sögu
kemur. Rektorinn verður
ógleymanlegur sem hinn
miskunnarlausi maður. Vald
hans yfir fólkinu í kringum
hann er með ólíkindum. Tekst
Per Myrberg að gera hann afar
sannfærandi
Fréj Lindqvist leysir af-
burða vel af hcndi hlutverk
hins kokkálaða eiginmanns.
Hinn grandvari kristinfræði-
kennari er svo saklaus, að jafn-
vel þótt nemendur hans væru
reiðubúnir til fylgilags við
hann, tekur hann ekki eftir því.
Örvænting hans er tjáð ákaf-
lega vel.
Piu Hojrt ieikur Agneta
Ekmanner. Fer hún mjög vel
með hlutverk hinnar ósjálf-
stæðu eiginkonu, sem lifir tvö-
földu lífi. Henni tekst sérstak-
lega vel upp í þeim atriðum
sem örvænting Piu og ráðleysi
hafa völdin.Kvikmyndun fer
fram í þorpi sem er ólíkt ,,kvik-
myndaþorpum." Það lítur ná-
kvæmlega út eins og sænskur
kaupstaður og fólkið sem
kemur fram — fyrir utan aðal-
leikarana — er ákaflega
„þorpslegt." Nefna má til
dæmis granna kennarans, lög-
regluþjón, sem er fullkomlega
háður konu sinni með allt. Hún
er aftur á móti ein slík sem
bakar kökur og færir fólki.
Samantekt: Prýðisgóð af-
þreyingarmynd sem vekur
athygli á því hvað getur gerst
þegar framhjáhald á sér stað.
Leikstjórn Sjömans er mjög
frambærileg sem og klipping
hans. Hvergi í myndinni er þó
að finna snilldarframmistöðu á
einu eða neinu sviði.
—BA—
Afar spennandi og skemmtileg ný
bandarísk „hryllings-músík“ lit-
mynd, sem víða hefur fengið
viðurkenningu sem bezta mynd
sinnar tegundar. Leikstjóri og
höfundur handrits: Brian de
Palma. Aðalhlutverkið og
höfundur tónlistar: Paul
Williams.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBiO
Frumsýnir
Bílskúrinn
GARAGEN
...der sker uhygge/ige tíng /
GATiAGEN
Vilgot Sjömans thríller
STJÖRNUBIO
Svarta gullið
IQKlfcHOMA CIUDI) tf-
lUMiimLnmi -w-w
PRODUCtRtT 00 IKtlllStl «1 SUHltT UUtl 130
Íslenzkur texti
Afar spennandi ný amerísk verð-
launakvikmynd í litum. Leikstjóri
Stanley Kramer. Aðalhlutverk:
George C. Scott, Fay Dunaway.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð innan 12 ára.
Þrumufleygur og Lettfeti
(THUNDERBOLT AND
LIGHTFOOT)
Övenjuleg, ný, bandarísk mynd
með Clint Eastwood í
aðalhlutverki. Myndin segir frá
nokkrum ræningjum, sem nota
kraftmikil striðsvopn við að
sprengja upp peningaskápa.
Leikstjóri: Mikael Cimino.
Aðalhlutverk: Clint Eastwood,
Jeff Bridges, George Kennedy.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5. 7.10 og 9.20.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Júlía
og karlmennirnir
(Júlía)
Bráðfjörug og mjög • djörf ný,
frönsk kvikmynd í litum.
Aðalhlutverk: Sylvia Kristel; (lék
aðalhlutverkið í „Emmanuelle")
Jean Claude Bouillon.
Stranglega bönnuð
börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Ný bandarísk teiknimynd fram-
leidd af Hanna og Barbera, þeim
er skópu Flintstones. Mynd fyrir
alla f jölskylduna.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Forsíðan
Front Page
Sýnd kl. 11.
HÁSKÓLABÍÓ
Chinatown
Heimsfræg amerísk litmynd,
tekin í Panavision Leikstjóri:
Roman Polanski. Aðalhlutverk:
Jack NicholsonrFay Dunaway.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
lslenzkur texti.
NÝJA BIO
Paradísaróvœtturinn
Ný djörf sænsk sakamálamynd
gerð af Vilgot Sjöman, þeim er
gerði kvikmyndirnar: „Forvitin
gul og blá.
Aðalhlutverk: Agneta Ekmanner,
Frej Lindquist og Per Myrberg.
Sýnd kl. 9 og 11.05.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
ísl.'texti.
LAUGARÁSBÍO
Dýrin í sveitinni
(Charlotte‘s Web)