Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 15

Dagblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 15
DAC.BLAÐIÐ. FIMMTUDAC.UR 22. JULÍ 1976. 15 I íþróttir iþróttir Iþróttir Iþróttir I Stefán Halldórsson í góðu færi innan vítateigs Breiðabliks en skot hans fór yfir. DB-mynd Bjarnleifur. Breiðablik batt endi á meistaravonir Víkings! — Blikarnir sigruðu Víking 3-1 í 1. deild íslandsmótsins íknattspyrnu í gœrkvöldi Víkingur hefur endanlega misst af möguleikanum á íslands- meistaratign í ár eftir tap í gær- kvöld fyrir Breiðablik á Kópa- vogsvelli 3-1. Breiðablik lék einn sinn bezta leik í sumar á meðan Víkingum tókst ekki að ná upp þeirri baráttu, sem þarf til sigurs. Eins er, að í undanförnum leikjum Víkings hafa nokkrir leikmenn liðsins leikið langt undir getu — því hafa þrír leikir í röð tapast. Já, Víkingar eru alveg heillum horfnir í 1. deild. Þeir byrjuðu svo sem nógu vel og voru mun frískari framan af en Blikarnir. Myndaðist þá oft þvaga í vítateig Blikanna án þess að opin tækifæri sæjust. Hins vegar skoruðu Blik- arnir á 20. mínútu — sannkallað glæsimark. Knötturinn var gefinn fram á hinn leikna Gísla Sigurðsson, sem vippaði knettinum skemmtilega með hælunum inn í vítateig Vík- ings og skaut síðan þrumuskoti — óverjandi fyrir Diðrik Ölafsson markvörð Víkings. Víkingar áttu einnig sín tæki- færi — þannig átti Óskar Tómas- son skalla í þverslá eftir góða sendingu frá félaga sínum, Stefáni Halldórssyni. En Blikarnir komust aftur á biað þegar Vignir Baldursson skaut meinleysislegu skoti af 20 metra færi — knötturinn fór í varnarmann og breytti um stefnu og þrátt fvrir heiðarlega tilraun Diðriks markvarðar tókst honum Staðan í 1. deild eftir UBKgegn Víkingi 3-1: sigur Valur 11 7 4 Fram 11 6 2 Akranes 10 5 3 Víkingur 11 6 1 Breiðablik 10 4 2 KR 11 2 5 Keflavík 11 4 1 FH 10 1 4 Þróttur 11 0 2 Næsti leikur í 1. deild verður á föstudag — þá leika í Kaplakrika hotnlióin i 1. deild, FH og Þróttur. ekki að ná til knattarins, 2-0. Víkingar sóttu í sig veðrið það sem eftir var hálfleiksins og sköpuðu sér nokkur góó mark- tækifæri, Oskar Tómas- son komst tvívegis upp að endamörkum og gaf góðar send- ingar fyrir — annað skiptið fór knötturinn framhjá bæði sóknar- og varnarmönnum. t hitt skiptið skaut Stefán í hliðarnetið af stuttu færi. Stefán komst i gott, færi inn 1 vítateig en skaut yfir og loks bjargaði Ólafur Hákonarson vel skoti frá Gunnlaugi Krist- finnssyni af 30 metra færi, 2-0 í hálfleik. Víkingar byrjuðu síðari hálfleik af krafti, Blikarnir gáfu eftir. Enda fór svo, að Stefán Halldórs- son skgllaði laglega í mark Blik- anna eftir góða sendingu frá Har- aldi Haraldssym á 12. mínútu. En illa gekk að skapa fleiri tækifæri — Blikarnir skoruðu siðan á 45. mínútu — Hinrik Þór- hallsson skoraði af stuttu færi eftir að Einar Þórhallsson hafði skallað knöttinn fyrir markið úr hornspyrnu, 3-1. Þegar á heildina er litið er sigur Blikanna sanngjarn. Liðið gerði sér mun gleggri hugmyndir en Víkingar hvernig á að sækja — skemmtilega ýtfærðar skyndi- sóknir komu Vikingum oft í vand- ræði. Blikunum hefur farið mikið fram frá byrjun móts þegar liðið virkaði nánast sem meðal 2. deildarlið. Beztu menn Blikanna voru þeir bræður Einar Þórhalls- son og Hinrik, sem með leikni sinni og hraða gerði oft usla í vörn Víkings. Eins kom Gísli Sigurðsson vel frá leiknum, 'mjög leikinn og skemmtilegur leik- maður. Já; ég held ég megi full- yrða að Blikarnir hafi átt sinn bezta leik í sumar. Lið Víkings hefur farið hrakandi með hverjum leik, kemur þar bæði til minnkandi geta ýmissa leikmanna og svo minni barátta. Liðið er ákafloga þungt — breytt hefur verið í 4-4-2 taktík — þeim Stefáni og Öskari ætlað að brjóta niður vörn and- stæðinganna. Ég held ég megý fullyrða að þessi breyting úr 4-3-3 er ekki til batnaðar — og liðið er alls ekki eins skemmtilegt. Meira lagt upp úr vörriinni — stingur í stúf við yfirlýsingar um sóknar- knattspyrnu. Langbezti maður Víkings í gær- kvöld var Óskar Tómasson, sí- vinnandi og leikinn. Stefán Hall- dórsson var ávallt hættulegur. Vörnin er alls ekki eins örugg og í fyrri umferð mótsins. — Kemur þar til að fyrrum Breiðabliks- maðurinn, Helgi Helgason hefur ekki sýnt sama öryggið í leikjum undanfarið og í fyrri umferð. Leikinn í gærkvöld dæmdi Grétar Norðfjörð og gerði hann hlutverki sínu góð skil. h halls. Þór tryggir Þór frá Akureyri vann mikilvægan sigur í 2. deild í Kaplakrika gegn Haukum i gærkvöld, 2-1. Þessi sigur Þórs svo gott sem gulltryggir þeim annað sætið í 2. deild og er nú Þór eina liðið sem getur veitt ÍBV keppni um fyrsta sætið. Hafni Þór í öðru sæti ieikur liðið við neðsta liðið i 1. deild um rétt til þátttöku í 1. deild næsta sumar. Nú, en leikurinn í Kapla- krika var jafn — góð mark- tækifæri á báða bóga. Sérstak- lega var fyrri hálfleikur líf- legur og á köflum vel leikinn af báðum liðum, enda öll mörk leiksins skoruð þá. Þór náði forystu þegar á 7., mínútu þegar Sigurður Lárus- son skaut góðu skoti af rúm- lega 20 metra færi og knöttur- inn hafnaði í netmöskvunum, laglegt mark. Fn svo fór að Haukar jöfnuðu enda atkvæðameiri. Það var á 30. mínútu að Ólafur Jóhannesson sendi knöttinn i netið, 1-1. Fn aðeins tvær mínútur liðu — þá voru Þórsarar aftur yfir, — Jón Lárusson skoraði eftir að hafa komizt inn fyrir vörn Haukanna, 1-2. Fleiri mörk voru ekki skoruð og Þórsarar héldu norður með dýrmæt stig upp á vasann. Þrenna Hreins Völsungur frá Húsavík er heldur en ekki kominn á skrið í 2. deild tslands- mótsins í knattspyrnu. 1 gærkvöld fóru Húsvíkingar vestur yfir Vaðlaheiði og léku' við KA á Akureyri. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu 4-1 Með þessum sigri sínum hafa Völsungar hlotið 7 stig úr síðustu fjórum leikjum sinum en fóru illa af stað í mótinu. Þrátt fyrir óskabyrjun KÁ tókst liðinu ekki að nýta sér það. Þegar á 5. mínútu skoraðí Sigurbjörn Gunnarsson fyrir KA af stuttu færi, 1-0. Þannig var staðan í hálfleik. Völsungar jöfnuðu síðan á 20. mínútu síðari hálfleiks eftir vel útfærða skyndisókn — Hermann Jónasson var þá að verki og jafnaði 1-1. Húsvíkingar voru ekki á þeim buxunum að láta þar við sitja. — Aðeins tveimur mínútum síðar náði Hreinn Elliðason forystu með góðu skallamarki, 1-2. A 27. minútu var Hreinn aftur á ferð og aftur skallaði þessi markheppni leikmaður knöttinn í mark KA, 1-3. Hreinn fullkomnaði síðan þrennu sína á 44. minútu þegar hann skaut góðu skoti frá vítateig, 1-4. Sanngjarn sigur Húsvíkinga en ef þeir aðeins hefðu farið af stað fyrr þá... Sigur Selfoss Selfoss vann þýðingar- mikinn sigur í botnbaráttunni í 2. deild á Árskógsströnd í gærkvöld. Selfyssingar sigr- uðu Reyni 2-1 og skildu þvi heimamenn eina eftir á botni 2. deildar með 4 stig — Selfoss hefur 6 stig. Leikurinn á Árskógsströnd var slakur knattspyrnulega séð en mikil barátta í báðum liðum. Revnismenn höfðu frumkvæðið lengst af í leiknum og voru óheppnir að tapa en slík er knattspyrnan, tækifærin verður að nýta. Sumariiði Guðbjartsson skoraði f.vrsta mark leiksins á 43. mínútu fyrri hálfleiks, og’ var staðan í hálfleik því 0-1. A 25. mínútu síðari hálf- lciks var Sumarliða brugðið innan vítateigs. Halldórs Sig- urðsson skoraði úr vítinu. Á 30. mínútu minnkuðu heimamenn muninn í 1-2 þegar Selfyssingar skoruðu sjálfsmark en ekki tókst þeim að knýja fram annað mark þrátt f.vrir að þungt hafi legið á Self.vssingum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.