Dagblaðið - 22.07.1976, Síða 22
DAGBLA ÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JULl 1976.
22
CHARLES GROOIN CANDICE BERGEN
JAMES MASON TREVOR HOWARD JOHN GIELGUO
7.......
Spennandi og viðburðarík ný
bandarísk kvikmynd með íslenzk-
um texta um mjög óvenjulegt
demantarán.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
STJÖRNUBÍÓ
Engin sýning ídag
BÆJARBÍÓ
I
Forsíðan
sýnd kl. 9.
Bílskúrinn
sýnd kl. 11.
I
IAUGARÁSBÍÓ
Dýrin í sveitinni
sveitinni
sýnd kl. 5, 7 og 9.
Karateboxarinn
Hörkuspennandi kínversk karate-
mynd með ensku tali og Isl. texta.
Endursýnd kl. 11.
Bönnuð innan 16 ára.
1
HÁSKÓLABÍÓ
&
Chinatown
Heimsfræg amerísk litmynd,
tekin í Panavision Leikstjóri:
Roman Polanski. Aðalhlutverk:
Jack Nicholson, Fay Dunaway.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
íslenzkur texti.
'---------------->
AUSTURBÆJARBÍÓ
ÍSLENZKUR TEXTI
Fjöldamorðinginn
Lepke
Hörkuspennandi og mjög við-
Ijurðaiik. ný. bandarisk kvik-
mvnd í litum og Panavision.
Aðalhlutverk:
TONY CURTIS
ANJANETTE COMER.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
I
HAFNARBÍÓ
i
Þeysandi þrenning
Spennandi og fjörug ný banda-
rísk litmynd. Nick Nolton, Don
Johnson, Robin Mattson.
Islenzkur texti
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
I
GAMLA BÍO
I
Lögreglumennirnir
ósigrandi
Afar spennandi og viðburðarík
bandarísk sakamálamynd —
byggð á sönnurn atburðum. Ron
Leibman — David Selby,
Sýnd kl. 5. 7 og 9.
Könnuð innan 14 ára.
Þrumufleygur og Lettfeti
(THUNDERBOLT AND
LIGHTFOOT)
Óvenjuleg, ný, bandarísk mynd
með Clint Eastwood í
aðalhlutverki. Myndin segir frá
nokkrum ræningjum, sem nota
kraftmikil stríðsvopn við að
sprengja upp peningaskápa.
Leikstjóri: Mikael Cimino.
Aðalhlutverk: Clint Eastwood,
Jeff Bridges, George Kennedy.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
Hversu kvenleg eirlu?
Þetta er prófsteinn, í léttum
dúr, einkum hugsaður kven-
fólkinu til gamans. Væntanlega
mun þó karlpeningurinn geta
aukið við þekkingu sína á
konum, með því að lesa þetta.
Kynlíf er það sem hvað mest
er talað um leynt og ljóst. Fólk
vill fá að vita allt um það? En
hvað er átt- við með hinum
„typiska kvenmanni“?
Konur eru oft dæmdar eftir
töfrum þeirra, kynþokka, áhrif-
um sem þær hafa á umhverfi
sitt og svo mætti lengi telja. Og
almennt er talið að á meðan
manninn langi og taki það sem
hann vill, — þrái konan og gefi.
En er þetta rétt?
Hér er 20 fullyrðingar sem
eiga að gefa þér rétta mynd af
sjálfri þér. Lestu þær vandlega
yfir og skrifaðu strax niður það
sem þér finnst eiga við þig.
Svörin eru já eða nei, bókstafir
þar sem um val er að ræða.
Athugaðu síðan stigatöfluna
og leguðu saman stigin og upp-
götvaðu hvernig kona þú ert.
1. Ég elska ævintýri.
2. Ég hef gaman af dýrum
fötum.
3. Mér þykir gaman að fara í
samkvæmi.
4. Ég er ánægð með að vera
kona.
5. Ég trúi því að konan sé
jafnoki mannsins á öllum
sviðum.
6. Ef ég lenti i þeirri aðstöðu að
standa andspænis tígrisdýri, á
klettasyllu, sem byggi sig
undir að ráðast á mig, myndi
ég.
a) Henda mér fyrir björg.
b) Mæta tígrisdýrinu og takast
á við það.
7. Er það ókarlmannlegt að
gráta?
8. I fari karlmanns kann ég illa
við. . . (allt að fjórum svörum)
a) veikleika
b) hroka
c) tillitsleysi
d) kiarkleysi
f) skort á tilfinningasemi.
g) viðkvæmni.
h) árásargirnd.
9) Varðandi konur kann ég illa
við ( svara má fjórum spurn-
ingum)
a) veikleika
b) hroka
c) hik
d) tillitsleysi
e) kjarkleysi
f) skort á tilfinningasemi.
g) Viðkvæmni
h) Arásargirnd.
10. Eg kann bezt við leiki sem
fela í sér einhverja áhættu.
-:
.wVtf'
<,
11. Eg hata snáka.
12. Ég er alger listdýrkandi og
vi! safna listaverkum
13. Ef ég héldi að heimsendir
v;eri i nánd m.vndi ég: (aðeins
má svara 2 spurningum)
a) drekka mig blindfulla
b) halda upp á það með
kynsvalli.
c) lesa biblíuna.
d) Reyna að koma inn hugrekki
hjá nánustu vinum
e) eitra fyrir sjálfa mig og
elskhugann
f) bíða og sjá til
g) reyna að koma í veg fyrir að
heimsendir yrði.
14. Ég dái hafið
15. Mér finnst gaman að fólki
sem gerir grín hvert að öðru.
16. Samband mitt við móður
mína er (var)
a) virðing og aðdáun
b) _Ég sé veikleika hennar en
tek hana eins og hún er.
c) Ég er óánægð með hana
vegna þess að hún olli mér von-
brigðum.
17) Samband mitt við föður
minner(var).
a) virðing og aðdáun
b) Ég sé veikleika hans en tek
hann eins og hann er
c) Mér líkar ekki við hann af
því hann olli mér vonbrigðum.
18. Ég tel að konur eigi að njóta
fleiri réttinda.
19. Fyrsta skylda konunnar er
að vera móðir.
20. Ég vil tala um ástamál mín
við menn.
Stigatafla
Þú færð stig ef þú hefur
svarað á eftirfarandi máta: 1=
nei. 2= já. 3= já. 4= já. 5= nei
6= a 7= já. 8= a, c, e, g, 9= b, d,
f, h, 10= nei 11= já 12= já. 13=
c, d 14= já 15= nei 16= b 17= b
18=b 18= nei 19= já 20= nei
Ef þú hefur fengið frá
0—13 stig
Þér finnst að þú eigir að
njóta jafnréttis á við karlmenn.
Og þú telur að nokkuð auðvelt
yrði að spjara sig án verndar
karlpeningsins. Þér finnst það
ómögulegt að kona eigi
einungis að vera móðir og hús-
moðir. Þér finnst þú verðir að
standa þig á fleiri sviðum.
Jafnvel eftir að þú giftir þig
viltu halda óskertu sjálfstæði
þínu, og munt ekki gefa það
upp auðveldlega. Fáist móta’ðil-
inn til að samþykkja sjálfstæði
þitt, getur hann treyst þér full-
komlega. Ef vandamál rísa
verður þú sjálf að reyna að
leysa þau ásamt mótaðilanum.
Þú ert kona sem aldrei
veldur vonbrigðum og þér tekst
að halda óskertri athygli hins
kynsins. Þú ert mótaður
persónuleiki, laus við fordóma,
og myndir aldrei reyna að
halda manni með því að nota
kvenleg brögð.
Hvað ást og kynlíf snertir
ættirðu að vera laus við öll
vandamál. Ef þú vilt fá eitthvað
tekurðu það bara.
Eins og aðrar konur þá eiga
tilfinningarnar ekki ómerkan
þátt I lífi þínu. En þú leitast við
að reyna að koma skynseminni
að.
14—20 stig
Þér tekst að telja maka þín-
um trú um að þú þarfnist
hans. Þrátt fyrir það þá ertu
ekki eins hjálparvana og þú
lítur út fyrir að vera. Þér yrði
ekki skotaskuld úr því að ná
takmarki þinu ein og óstudd.
Þú gengst fúslega inn á það, að
helga líf þitt einhverjum
manni. Á hinn bóginn heldurðu
hluta af sjálfstæði þínu einkum
og sér í lagi viljafestunni. Þú
ert sem sagt blanda: maður veit
aldrei hver þáttur persónuleik-
ans er ofan á í hvert einstakt
skipti. En þetta virðist vera það
sem gerir þig svo ákaflega
kvenlega. Þú ert draumóra-
gjörn og sífellt að gæla við hluti
sem kunna aldrei að verða að
raunveruleika. Með þinum
mikla viljastyrk reynirðu að
verja hamingju þína og þú
munt aldrei horfa á það að-
gerðarlaus að einhver taki
eitthvað frá þér.
Þú munt beita öllum
klækjum sem konur búa yfir til
að tryggja þér árángur. Yfir-
leitt er þér ákaflega eðlilegt
að berjast eins og ljón, og.
kemur sú kennd í ljós, enda
þótt þú ætlir að sitja á strák
þínum.
Þú yeizt vel að þú kemst
fram úr vandamálum lífsins
eins og óstudd. Þú vilt hins
vegar reyna að undirstrika
kvenlega eiginleika þína og
vekja verndartilfinningu hjá
karlmanninum.
21—27 stig
Þú ert afskaplega kvenleg:
vera sem þarfnast verndar
sterkara kynsins. Þú vilt eiga
mann sem þú getur ætíð leitað
til og byggt upp heimili með
honum. Eða viltu kannski
heldur vera hjákona hans. Líf
þitt snýst allt um tilfinningar.
Höfuð þitt stjórnast af því sem
hjartað segir. Aðlögunarhæfi-
leiki þinn er ótrúlegur, þj ert
þjónn maka þins og þú virðir
ákvarðanir hans. Þú hefur enga
skoðun sjálf. Þú hegðar þér
eins og þú heldur að hann vilji
að þú komir fram. Þú hefur
gaman af að undirstrika veik-
leika þinn, þú sért hjálparlaus
kona
Maki þinn verður að vera
stjórnsamur og sérfræðingur á
einhverju sviði. Þvi ef þú værir
með manni sem vissi minna en
þú værirðu óhamingjusöm.
Þinn mesti plús liggur í þolin-
mæði þinni. Hins vegar ertu of
tilfinninganæm og lætur oft
raunir annarra fá of mikið á
Þig.
Reyndu að vera pínulítið
eigingjarnari að minnsta kosti
endrum og eins.