Dagblaðið - 22.07.1976, Síða 23

Dagblaðið - 22.07.1976, Síða 23
 DACiBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1976. 23 Útvarp kl. 19,35: Nasasjón: „Gunnar Reynir hress í viðrœðu" „Við munum spjalla við Gunnar Reyni Sveinsson, tón- skáld í þættinum I kvöld,“ sagði Árni Þórarinsson, sem mun ásamt Birni Vigni Sigurpáls- syni veita útvarpshlustendum nasasjón af tónskáldinu. „Gunnar Reynir á að baki æði litríkan feril i músíkinni. Hann er I hópi kunnustu tón- skálda Islands. Á sínum ung- dómsárum var hann mjög virkur i ball-lífinu hér á landi, spilaði á trommur og víbrafón. Meðal annars spilaði hann með hinum fræga KK-sextett, og var með okkar beztu jassistum. 26 ára að aldri kúvendir hann og hættir allri spilamennsku og snýr sér algjörlega að tón- smíðum." „Gunnar Reynir hefur upp- lifað margt og er mjög hress I viðræðu," sagði Árni.“ Við munum reyna að kynnast við- horfum hans til tónlistar, og reyna að fá nasasjón af ferli hans. Einnig verður leikið af segulbandi nokkur af tónverk- um hans, og við munum eiga stutt símtal við Ólaf Stephen- sen, sem kynntist Gunnari Reyni þegar hann var I jass- bransanum og Ölafur mun I stuttu máli segja hvað ein- kenndi hann sem spilara. Gunnar hefur aðallega samið nútímatónlist, en er nú alltaf meir og meir að fara út I að semja jass- og popplög." — KL Hér mundar Gunnar Reynir kjuðana og leikur Bach á víbrafón. ✓ Útvarp kl. 20,35: Leikrit vikunnar: Súlkönnun getur veríð hœttuleg Það getur verið varasamt að hætta sér of langt út á braut sálkönnunar. Að þeirri niður- stöðu kemst Henrietta, frúin i leikritinu sem flutt verður I útvarpinu kl. 20.35 I kvftld. Leikritið heitir „Bældar hvatir" eftir bandarfska rit- höfundinn Susan Glaspell. Þýðingin er eftir Þorstein O. Stephensen og leikstjóri er Helga Bachman. Með hlut- verkin fara Bríet Héðinsdóttir, Borgar Garðarsson og Kristín Anna Þórarinsdóttir. Fjallar leikritið um Finnbjörn húsameistara og konuna hans Henríettu sem eins og áður segir kemst að raun um að sálarlífskannanir geta verið varasamar. Frúin er mjög hrifin af öllu sem viðkemur sálarlífinu og undirmeðvitundinni. Uppgötvar frúin hina ótrú- legustu hluti hjá manni sínum á því sviði. Ekki sízt eftir að systir hennar María kemur I heimsókn. Leikritið var frumsýnt árið 1914, en höfundurinn Susan Glaspell er fædd I Iowaríki árið 1882. Var hún við háskóianám I Chicago en skrifaði jafnframt bæði leikrit og skáldsögur. Eiginmaður Susan Glaspéll og rithöfundurinn George Cram Cook tók ásamt henni þátt I stofnun leikflokksins „Pro- vinchetown Players“ árið 1915 og skrifuðu þau mörg leikrit fyrir hann, aðallega einþátt- unga. Susan fékk Pulitzer- verðlaunin árið 1931 fyrir leikrit sitt Alison’ s House.” Önnur leikrit Susan eru m.a. „Trifles," „Tickless Time,“ og „The Outside." Susan Glaspell lézt árið 1948. —A.Bj' Borgar Garðarsson Kristín Anna Þórarinsdóttir. Útvarp Fimmtudagur 22. júlí 12.00 Da«skráin. Tónteikar. Tilkynning- ar. 12.25 VeðurfreKnir og fréttir. Frá Ólympíuleikunum í Montreal: Jón ÁSKeirsson sejíir frá. Tilkynniní>ar. Á frívaktinni. MarKiét Guðmundsdóttir kynnir óskalöK sjómanna. 14.30 MiAdegissagan: „Römm er sú taug" eftir Sterling North. Þórir Friðseirsson þýddi. Knútur R. MaKnússon les (10). 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilk.vnningar. (16.15 VeðurfreKnir). Tónleikar. 16.40 Utli barnatíminn. FinnborK Schev- inK stjórnar. 17.00 Tónleikar. 17.30 Spjall frá Noregi. Ingólfur MaiKeirsson talar um norska verka- lýðsskáldið Rudolf Nielsen. Siðari þáttur. 1S.00 Tónleikar. TilkynninKar. 18.45 VeðurfreKnir. DaKskrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. Fróttaauki. TilkynninKar. 19.35 Nasasjón. Árni Þórarinsson ok Björn VÍKnir SÍKurpálsson ra‘ða við Gunnar Revni Sveinsson tónskáld. 20.10 Gestir í útvarpssal. Bernhard Wilkinsson leikur á flautu ok Lára Rafnsdóttir á pianó. a. Sónata i K-moll eftir Johann Sebastian Bach. b. Són- ata í D-dúr eftir Carl Philipp Emanuel Bach. 20.35 Leikrit: „Bœldar hvatir" eftir Susen, Glaspell. Þ.vðandi Þorsteinn ö. Step- hensen. Leikstjóri: Helga Bach- mann. Persónur og leikendur: Henrietta-Bríet Héðinsdóttir, Finn- björn-BorKar Garðarsson, Marla- Kristín Anna Þórarinsdóttir. 21.10 Holbergsvíta op. 40 eftir Edvard Grieg. Walter Klien leikur á pianó. 22.00 Fréttir. 22.15 VeðurfreKnir. Kvöldsagan: „Utli dyrlingurinn" eftir Georges Simenon. Ásmundur Jónsson þýddi. Kristinn Reyr les (15). 22.40 Á sumarkvöldi. Guðmundur Jóns- son kynnir tónlist varðandi ýmsar starfsKreinar. 23.30 Fréttir. DaKskrárlok. Föstudagur 23. júlí 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00. 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl.). 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Hallfreður örn Eiríksson byrjar lestur þýðingar sinnar á tékkneskum ævintýrum. Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. SpjallaA viA bændur kl. 10.05. Tónleikar kl. 10.25. Morguntónleikar kl. 11.00: János Starkér og György Sebök 12.00 Dagskráin. Tómeikar. Tilkynning- ar. Dagblað án ríkisstyrks Leikstjórinn Helga Bachman. Þýðandinn Þorsteinn O. Step- hensen. Bi ícl Iléðinsúúttir v__—

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.