Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDACUR 30. JÚLÍ 1976
DA(íBLAÐIÐ. — FÖSTUDAdUH 30. JULÍ 1970
" - ...
'
Montreal-76
Dagskráin
á 01. í dag
Dagskrá Olympíuleikanna í
dag — 13. keppnisdag leikanna.
Frjálsar-iþróttir: Tugþautin hefst
í dag. Undanrásir í hástökki
karla, undanrásir kúluvarps
kvenna. Þrístökk, úrslit. 1500
metra hlaup kvenna, úrslit og
úrslit í 5000 metra hlaupinu.
Þá veröa einnig undanrásir í
4x400 m hlaupi kvenna og
eins 4x100 metra hlaupi, þar
undanúrslit. Einnig 4x400
metra hlaup karla, undanrásir.
Blak — úrslit, kajakróður,
hokkey, júdó, glíma, hesta-
mennska, skotkeppni með
boga.
„Stóri" Tate
seig á rassinn
og horfði
glaseygur
ó dómarann
Kúbanski hnefaleikakappinn
Teofilo Stevenson, olympíu-
meistarinn frá Munchen í þunga-
vigt hefur aldrei þurft að berjast
heilan leik í hringnum á Olympíu-
leikum. Hann hefur alltaf slegið
andstæðinga sína niður, áður en
bjallan glumdi í síðasta sinn.
Það varð engin breyting á í
gærkvöld þegar hann mætti
Bandaríkjamanninum „Stóra“
John Tate. Fyrirfram var búizt
við, að Tate veitti Stevenson
keppni — jafnvel búizt við að
bandaríski risinn sigraði Kúbu-
manninn.
En svo átti ekki að verða —
járnhnefar Stevenson sáu um
það. Þeir byrjuðu rólega kapp-
arnir, þreifuðu fyrir sér. Síðan
eftir 89 sekúndur kom höggið —
hægri handar högg á kjálka
„Stóra Táte, Bandaríkjamaðurinn
hafnaði í horninu — seig þar
niður á rassinn og horfði glas-
eygur á dómarann telja sig út!
Hann var út úr heiminum! Hann
var sigraður!
Hart hefur verið lagt að Steven-
son að leggja hnefaleika fyrir sig
sem atvinnu.. . en eins og hann
hefur sagt: „Til hvers keppa fyrir
peninga þegar 8 milljónir Kúbu-
manna elska mig?“
Stevenson mætir Mircea
Simon, Rúmena í úrslitum.
En það eru ekki bara Stevenson
sem rotar! Landi hans Sixto Soria
í léttþungavigtinni skilur einnig
eftir sig „menn út úr heiminum.“
Hann keppti við Rúmenann
Costica Dafinoiu, en í tveimur
fyrstu leikjum sinum hafði Soria
rotað andstæðinga sína. Eftir
aðeins 58 sekúndur sást veifað
hvitu flaggi úr horni Rúmenans
en þá hafði hann tvívegis verið
sleginn niður! Þeir voru búnir að
fá nóg. . . Rúmenarnir, að horfa
ujip á sinn mann verða fyrir járn-
hnefum Soria.
Þegar hafa sex kúbanskir
hnefaleikamenn tryggl sér úr-
slilasæli og jafnmargir Banda-
rikja'menn. Það er því mikið upp-
gjör milli þessara hnefaleika-
þjóða framundan og melingur um
hvorl hlýlur fleiri litla.
Pólsk húsmóðir mesta afreks-
konan í sögu Olympíuleikanna
— Irena Szewinska setti heimsmet, þegar hún sigraði í 400 m hlaupi í Montreal í gœr
Þritug, dökkhærð, há og grönn
— pólska húsmóöirin Irena
Szewinska, sem er hagfræðingur
að mennt, gift og á tvö börn, sann-
aöi heiminum í gær svo ekki
verður um villzt, að hún er mesta
afrekskona í frjálsum íþróttum
sem um getur. í gær sigraði hún
með gífurlegum yfirburðum í 400
m hlaupi á Olympiuieikunum.
Setti heimsmet og vann til sinna
sjöundu verðlauna á fernum
Olympíuleikum. Þrjú þeirra gull-
verðlaun — og auk þess hefur
hún unnið til sjö verðlauna á
Evrópumeistaramótum.
Það virtist aðeins ein kona á
hlaupabrautinni í Montreal í gær
í úrslitum 400 m hlaupsins —
Irena. Aðrar konur úrslitahlaups-
ins virkuðu nánast sem statistar.
Meira að segja þær austur-þýzku.
Hvílíkir yfirburðir. Irena kom
langfyrst í mark á 49.29 sek. — en
eldra heimsmet hennar var 49.75
sek. Sú næsta, Christina Brehm-
er, hljóp á 50.51 sek.
Irena var þremur metrum á
undan, þegar komið var á beinu
brautina eftir síðustu beygju og
jók það í yfir fimm metra í lokin.
Og slíkt átti sér stað f olympískri
keppni — á stuttri vegalengd.
Brosti mjög, þegar hún sneri sér
við og leit á ljóstöfluna. Hún hafði
bætt mánaðargamalt heimsmet
sitt heldur betur.
Irena Szewinska vakti fyrst
heimsathygli, þegar hún hlaut
silfurverðlaun í 200 m hlaupi á
leikunum í Tókíó 1964. Þá 18 ára
— Irena Kirszenstein, og hljóp á
23.1 sek. Sigurvegarinn Edith
McGuire, USA, hljóp á 23.0 sek.
— og gullverðlaun hlaut Irena i
4x100 m boðhlaupi. Síðan gull í
200 m í Mexikó 1968 — en í
Montreal gat hún ekki keppt í 200
m hlaupinu, þar sem undanrásir
voru þar á sama tíma og í 400 m
hlaupinu.En hún er jafngóð í 200
m og þjer, sem þar urðu fyrstar. I
Munchen keppti Irena ekki vegna
þess, að hún var þá nýbúin að ala
barn.
Úrslit í 400 m hlaupinu í gær
urðu þessi — og það er athyglis-
vert að tvær finnskar stúlkur
komust í úrslitahlaupið:
1. I. Szewinska, Póll. 49.29
2. C. Brehmer, A-Þýzk. 50.51
3. E. Streidt, A-Þýzkal. 50.55
4. P. Haggman, Finnl.
5. R. Bryant, USA
6. S. Ingram, USA
7. R. Salin, Finnl.
8. D. Sapenter, USA
Garnla olympíumetið í 400 m
hlaupinu átti Monika Zehrt, A-
Þýzkalandi, 51.08 sek. sett í
Munchen.
50.56
50.65
50.90
50.98
51.66
■****■"•
Heimsmethafinn fjórði
' - *
— Austur-þýzkastúlkanEvelinSchlaaksigraðiíkringlukasti, Melnikfjórða
Evina Schlaak frá Austur-
Þýzkalandi varð olympiumeistari
í kringlukasti kvenna þegar hún
mjög óvænt sigraði heimsmethaf-
ann og olympíumeistarann frá
Munchen, sovézku stúlkuna
Eaina Melnik.
Ekki var nóg með að Faina
Melnik missti gullið heldur missti
hún silfrið I bókstaflegri merk
ingu. I fimmta og síðasta kasti
sínu kastaði Melnik 68.60 — sem
gaf henni silfurverðlaun og voru
henni veitt þau. En þá kom kæra
— Melnik hafði kastað æfinga-
kasti, lagði greinilega ekkert á sig
— síðan kom aðalkastið.
Það var dæmt ógilt — æfinga-
kastið látið gilda og þetta var
ákveðið fimm klukkustundum
eftir að keppnin hafði farið fram.
Melnik var svift verðlaunum
sínum — verðlaunum sem allir
voru sammála um að hefðu með
réttu verið Rrnr. .. En eigi þýðir
að deila vió Jómarana — hvort
sem þeir hafa á réttu eða röngu að
standa. Búlgarska stúlkan Maria
Vergova hlaut því silfrið, hafði
áður verið afhent bronsverðlaun-
in og Gabriellu Hinzmann frá A-
Þýzkalandi voru afhent bronz-
verðlaunin.
Urslit í kringlukasti kvenna:
1. E. Schlaak, A-Þýzkal. 69.00
2. Maria Vergova Búlg. 67.30
3. G. Hinzmann, A-Þýzkal. 66.84
4. F. Melnik Sovét 66.40
5. S. Engel, A-Þýzkalandi
6. A. Menis, Rúmeníu
7. M. Betancourt, Kúbu
8. N. Gorbacheva, Sovét
65.88
65.38
63.86
63.46
Lasse Viren hleypur frá Portúgalanum Lopes í 10 km hlaupinu. Tekst Viren að hlaupa frá hinum
stórgóðu hlaupurum í 500 m hlaupinu i dag — og vinna sér ódauðlegan sess í sögu Olympíuleikanna?
Kúbu maðurinn skrifaði nýjan
kafla í hina olympísku sögu
— Albé rto Juantorena varð fyrstur til að sigra í 400 og 800 m hlaupum ú sömu leikum
Þeir eru snjallir — hlaupararn-
ir fra eyjunum i Karabíska
hafinu. 1 gær skrifaði Alberto
Juantorena nýjan kafla i hina
olympísku sögu, þegar hann varð
fyrsti maður til að sigra í 400 og
800 m hlaupum á sömu leikum,
Aður hefur munað litlu, að það
afrek væri unnið. Arthur Wint,
risi eins og Kúbumaðurinn, frá
annarri eyju, Jamaíka, sigraði i
400 m hlaupinu á leikunum i
Lundúnum 1948 og varð annar í
800 m. Juantorena var enn ör-
þreyttur 10 mín, eftir að hann
sigraði í Montreal í gær í
úrslitum 400 m hlaupsins, og
sagði. — Ég hélt að mér ætlaði
ekki að takast að sigra fyrr en um
15 m voru eftir. Þá átti ég enn
örlítið inni. Það var erfitt að sigra
Newhouse.
Irena Szewinska sigrar í 400 m hlaupinu í gær. Pirjo Haggman, Finnlandi, er á fyrstu braut — Christina
Brehmer, Austur-Þýzkalandi, sem varð önnur og tók finnsku stúlkuna á lokasprettinum, er nr. 137 og
bandaríska stúlkan Sheila Ingram, USA, nr. 369.
Langslökkíð brást ekki
Bandaríkin unuu sín önnur
gullverðlaun í frjálsum íþróttum
í gærkvöld þegar Arne Robinson,
frá San Diego sigraði í langstökki
og skaut félaga sínum og
olympíumeistaranum frá
Munchen — Randy Williams
aflur f.vrir sig.
Arnie Robinson stiikk sigur-
stiikkið þegar í fyrslu umferð —
8.35 og kom þetta ága-ta stökk
iitrnri ítW'Mmí'iéíII
jsgBi aanBBn
- ■ . „...I ' .. - .', r
öðrum keppendum úr jafnvægi,
ekki í fyrsta skiptið á leikunum.
Williams var sá eini sem var
líklegur til að ógna Robinson og
verða þannig fyrsti maðurinn i 70
ár til að vinna gull tvívegis á
Olympíuleikum í langstökki. Hon-
um tókst það þó ekki — hinn 22
ára gamli Bandaríkjamaður varð
að láta sér nægja silfrið — stökk
8.11. Þrið.ji varð A-Þjóðverjinn
Wartenburg, stökk 8.11.02.
ja, Bandaríkin hlutu sitt annað
gull í frjálsum. Hugsið ykkur, 25
greinum lokið! Og „öruggu"
greinarnar eins og spretthlaupin,
grindahlaupið, 400 metra hlaupið
800 metra hlaupið, stangarstökk-
ið, kúluvarpið. . . allar þessar
greinar hafa fallið í hlut annarra
en Bandaríkjanna. það er af sent
áður var!
En úrslitin í langstökkinu
urðu:
1. Arnie Robinson USA 8.35
2. Randy Williams USA 8.11
3. F. Wartenburg. A-Þýzkal. 8.02
4. J. Rousseau Frakkland 8.00
5. J. Olivera Braziliu 8.00
6. N. Stekic Júgóslaviu 7.89
7. N. Podlujn.vi Sovét 7.88
8. H. Baymgartner V-Þýzkal. 7.84
9. R. Bernhard Sviss 7.74
10. A. Pereverzev Sovét 7.66
Juanlorena — allt fyrir Caslro!
Bandaríkjamaðurinn, sem varð
annar sagði. — Ég gerði mitt
bezta — en þessi gæi er of góður.
En eitt afall Bandaríkjanna á
leikunum. í fyrsta skipti í 24 ár,
sem Bandaríkjamaður sigrar ekki
í 400 m hlaupi á Olympíuleikjum.
—Þeir verða að vera að
minnsta kosti 10 metrum á undan
Kúbumanninum eftir 200 ipetra
ef þeir ætla að sigra hann, sagði
þulur BBC, sem lýsti hlaupunum.
Það ræður enginn við risaskref
Juantoreno lokakaflann nema
hafa mikið forskot.
Og hlaupararnir, sem hafa
meiri hraða en Kúbumaðurinn,
sprettu úr spori framan af. David
Jenkins, Bretlandi, virtist fyrstur
eftir 200 m, en Banda-
ríkjamennirnir voru þó skammt á
eftir honum. Hinn litli Fred
Newhouse hafði forustu, þegar á
beinu brautina kom, Jenkins, og
Frazier rétt á eftir.
Þá fór Juantorena að sækja á
með sínum löngu skrefum — smá
minnkaði muninn og komst upp
að hlið Newhouse, þegar um 30
metrar voru eftir. Þá voru úrslit
ráðin — þó svo sá bandaríski
reyndi hvað hann gat. Jenkins var
alveg búinn lokakafla hlaupsins
— Skotinn varð aðeins sjöundi.
Langt frá sínum bezta tíma. Juan-
toreno náði bezta tíma ársins á
vegalengdinni 44.26 sek. en var
nokkuð frá heims- og olympíu-
metinu, sem Lee Evans setti í
þunna loftinu i Mexíkó 1968 —
43.86 sek.
Urslit í hlaupinu urðu þessi:
1. Juantorena, Kúbu 44.26
2. F. Newhouse, USA 44.40
3. H. Frazier, USA 44.95
4. A. Brijdenbach, Belg. 45.04
5. M. Parks, USA 45.24
6. R. Mitschell, Ástr. 45.40
7. D. Jenkins, Bretl. 45.57
8. J. Werner, Póll. 45.63
Auslur-þýzkt — hvað annað
Johanua Schaller — 23 ára
kennari frá A-Þýzkalandi hélt
gullinu fyrir A-Þýzkaland. í 100
metra grindahlaupi þegar hún
sigraði — en naumt var það, hún
var aðeins 1/100 úr sekúndu á
undan sovézku stúlkunni Tatiiinu
Anismóvu.
Þessi sigur var A-Þjóðverjum
kærkominn og ef til vill óvæntur,
en hver getur talað um óvænt
þegar A-Þýzkaland er annars
vegar. En sem sagt, aðeins 90
mínútum áður höfðu a-þýzku
slúlkurnar séð gullhafann frá
Munchen missa af úrslitasæti.
Kom þar til að 100 metra grindin
— undanúrslit voru kærð eins og
við siigðum frá í gær og hlaupa
varð aftur. í gær tryggði Erherdt
sér örugglega úrslitasæti, en
missti mjög óvænt af urslita-
sætinu í endurtekna hlaupinu
síðar um kvöldið, fór illa af stað
og hafnaði í fimmta sæti.
En maður kemur í manns
stað. . . það sannaðist áþreifan-
lega þegar Schaller tryggði A-
Þýzkalandi gullið.
Urslit í 100 metra grind:
1. J. Schaller A-Þýzkalandi 12.77
2. T. Anisimova Sovét 12.78
3. N. Levedeva Sovét 12.80
4. G. Berend A-Þýzkalandi 12.82
5. G. Rabsztyn Póllandi 12.96
6. Esther Rot Israel 13.04
7. V. Stefanesvu Rúmeníu 13.35
8. I. Ognar Italíu 13.51
Esther Rot — eini israelski
keppandinn sem slapp lifandi úr
fjöldamorðunum í Munchen hafn-
aði í sjötta sæti. Það er athyglis-
vert að eftir 25 greinar — hafa
a-þýzkir keppendur unnið 8 gull í
frjálsum! Sovétrikin og Banda-
ríkin-2 hvor þjóð!
Wlí
Moníreal-76
Skipting
verðlauna
í Montreal
Eftir 12. keppnisdag Olympíu-
leikanna höfðu Sovétmenn
nauma forystu á A-Þýzkaland%
hvað varðar fjölda gullverðlauna.
Hins vegar hafa Sovétmenn unnið
til mun fleiri verðlaunapeninga
en A-Þýzkaland þegar á heildina
er litið. Bandaríkjunum hefur
ekki vegnað vel í frjálsum —
„öruggar“ greinar hafa brugðizt
þeim, svo sem spretthlaupin,
stangarstökkið og kúluvarpið.
En litum á skiptingu verðlauna
á Olympíuleikunum — kepp-
endur 36 þjóða hafa unnið til
verðlauna. Gull=g, silfur=s,
Brons=b:
g s b
34 32 28
32 30 21
23 28 21
9 8 12
Sovétríkin
A-Þýzkaland
Bandaríkin
V-Þýzkaland
Búlgaría
Japan
Pólland
Ungverjaland
Sviþjóð
Rúmenía
Bretland
Finnland
italia
Tékkóslóvakía
Kúba
Frakkland
Júgóslavía
Jamaica
Noregur
Danmörk
Mexíkó
Trinidad
Kanada
Holland
Belgía
Portúgal
Spánn
Astralía
Sviss
Austurríki
Brazilía
íran
Nýja-Sjáland
S-Kóvea
Bermúda
Púerto-Ricó
Elías með
3623 stig
— Ágúst setti
íslandsmet
Elías Svemsson stökk 1.94
metra'í hástökki í tugþrautinni á
Olympíuleikunum í gær — og
hljóp svo 400 m hlaup á 51.77
sek. Hann var því með 3623 stig
eftir finim fyrstu greinarnar og
meðal þeirra lökustu af 30 kepp-
endum, sagði Sveinn Björnsson,
þegar blaðið ræddi við hann í
inorgun. Eftir þrjár f.vrstu grein-
arnar var Elías með 2192 stig.
Hljóp 100 m á 11.51 sek. Stökk
6.37 m í langstökki og varpaði
kúlu 13.94 m. Nánari frásögn af
tugþrautinni er á bls 14.
Þá setti Agúst Asgeirsson nýtt
íslandsmet í 1500 m. hlaupi í
undanrás í gær. — hljóp á 3:45.47
mín., en eldra met hans, sem
hann setti í sumar, var 3:45.8 mín.
Þetta er því í annað sinn, sem
Agúst hleypur innan við mettíma.
Svavars Markússonar. 3:47.1 mín.
frá leikunum i Róm 1960.
Allir Islendingar hér eru
fríksir og biðja fyrir kveðjur
heim — en hópurinn kemur heim
3. ágúst um morguninn, sagði
Sveinn að lokum.