Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 28
Enn er Grjótjötunn/Perla ónothœft skip: Víðgerðin í Holkmdi „handvömm og vinnusvik" — segir stjórnarformaður útgerðarfyrirtœkisins Þaö á ekki af sanddæluskip- inu Perlu — eða Grjótjötni, eins og skipið hét áður eins og frægt er, að ganga. Fyrir um það bil mánuði síðan kom það aftur til landsins frá Hollandi, þar sem gerðar höfðu verið á því miklar endurbætur fyrir milljónatugi. „Við höfum varla komizt frá bryggju stðan,“ sagði Halldór Jónsson, formaður stjórnar hlutafélagsins Námunnar, sem nú rekur skipið og á það, í samtali við fréttamann DB í gær. „Þetta hafa verið stanz- lausar bilanir og í rauninni má segja að skipið hafi verið langt- um verra en nokkurn tíma áður, eftir að það kom frá Hollandi. Allt er þetta fyrir óskiljanlega handvömm og vinnusvik hollenzka fyrirtækis- ins, sem annaðist viðgerðirnar og endurbæturnar, IHC Smit Engineering. Útreikningar þeirra og hönnun, sem við treystum á í blindni, hafá í mörgu ekki staðizt. Við eigum töluvert vantalað við þá á næst- unni.“ Að sögn Halldórs hefur töfin og bilanirnar nú kostað millj- ónir bæði í beinum útgjöldum og tekjutapi. „Okkur var til dæmis sagt að sjálf dæluvélin væri nýuppgerð og ætti að duga í sex ár. Eftir sex tíma hafði hún brætt úr sér. Svo brotnaði landleiðslan og síðan hefur eitt rekið annað.“ Halldór Jónsson sagði við- gerð nú um það bil að ljúka og stæðu vonir til að hægt væri að hefja vinnu með skipinu af full- um krafti nú um helgina. — OV. Unnið að viðgerðum á Perlu inni í Sundahöfn í gærdag. Nú á að fara að reyna að dæla. (DB-mynd Árni Páll) Margt að sjó fyrir útlendinga íVestmannaeyjum Mjög mikið hefur verið um heimsóknir erlendra ferða- manna til Vestmannaeyja í sumar. Stórir hópar hafa komið með flugvélum Flug- félags Islands á hverjum degi, — meira að segja svo stórir, að Vestmannaeyingar sjálfir hafa oft átt í vandræðum með að fá flugfar, þegar þeir hafa þurft á að halda. Þá hefur einnig verið mikið um, að útlendingar hafi fengið far með litlum flugvélum til að skreppa í smá útsýnisferðir. Flugstöðin og Flugleiga Sverris Þóroddssonar hafa verið hvað atkvæðamestar með stuttar út- sýnisferðir. Einn af flugmönnum Sverris, Vilhjálmur Vilhjálmsson, sagði Dagblaðinu í gær, að oft og iðu- lega væru farnar þrjár ferðir á dag, ef veður leyfði, og stundum fjórar. — Það sem út- lendingum þykir mest til koma í Vestmannaeyjum er að sjálf- sögðu eldstöðvarnar og gufu- strókarnir sem rlsa frá þeim. Þá vekja húsin, sem grófust undir hrauninu alltaf mikla at- hygli. ÁT/DB-mynd: Arni Páll FÉÐ SÆKIR í DAUÐA TEIGINN Það er drengilegt, en jafnframt sjálfsagt að tilkynna lögreglu um það ef þú verður fyrir því óhappi aö aka á lamb eða kir.d. Hversu gagngert menn gera það, veit enginn. Ökumaður tilkynnii Arbæjar- Iögreglunni í nótt um að hann hefði orðið valdur að dauða lambs I Lækjarbotnum. Kindur við vegina eru plága og víðast virðist fátt vera gert til þess að stugga þeim frá vegarköntun- um. Tilkynni menn um dauða lambs á vegum fær bóndinn lambið bætt miðað við meðal- verð lambs við haustslátrun. Sumum — jafnvel lögreglu- mönnum finnst bóndinn því bezt settur væru öll hans lömb ekin niður snemma vors. Þá væru allar áhvggjur úti. —ASt Ljótur leikur við ungan dreng: BORGAÐ FYRIR BLAÐIÐ MEÐ FÖLSKUM100-KALLI 'Haglega gerð eftirlíking af 100 krónu seðli var meðal ann- arra peninga, sem blaðsölu- drengur Dagblaðsins dró upp úr vasa sínum, þegar lokið var dagsins önn eitt kvöldið nú fyrir skömmu. Drengurinn gerði lögreglunni viðvart um þennan prett. Var honum vel tekiö og fékk góðar ábendingar um að gæta sín gegn slíkum viðskiptavinum, sem þeim, er hafði verzlað við hann með þessum falsaða seðli. Eftirlíkingin er gerð i ljósrit- unarvél, sem nentur mynd á næstum hvernig pappír sem er. Er hún því nákvæm og vantar ekkert annað en hárréttan lit- blæ til þess að vera óþekkjan- leg frá. gildum seðli. Er því ungum dreng vorkunn að hafa tekið við þessari greiðslu. sem góðri og gildri í þeirri öru sölu, sem sölubörn Dagblaðsins eiga að fagna hjá borgarbúum. Astæða er þó til að fara við þessum ljóta leik. Sem betur fer heyrist ekki um mikil brögð að þessu, og víst er, að ekki þýðir að reyna hann við Dag- blaðskrakkfia á næstunni. BS frjálst, úháð dagblað FÖSTTIDAGUR 30. JÚLÍ 1976 Stólu peninga- kassanum Þjófurinn, sem brauzt inn í biðskýlið við Bústaðaveg, hafði öllu meira upp úr krafsinu, en í fyrstu var talið. Hann gerði sér lítið fyrir og fór með pen- ingakassann á brott. Eigandi biðskýlisins hafði ætlað að tæma hann kvöldið fyrir innbrotið. Af þvi hafði hins vegar ekki orðið. I kassanum var eingöngu skiptimynt. Það er alkunna að eftir tilkomu 50 króna pen- ingsins geta fleiri þúsund verið í slíkum kössum. Eigand- inn var ekki viss á því hversu mikið hefði verið af smápen- ingum i peningakassanum. — BA Enginn ógnar Larsen enn Pað er gott nesti sem Bent Larsen hefur í sínum pakka eftir 13 umferðir á millisvæðamótinu í skák í Bienne í Sviss. Hálfur annar vinningur í forskot, sem hann hefur áunnið Sér þýðir nánast nú að hann er öruggur í áskorendamótið. Fáum skák- mönnum hefur tekizt jafnvel upp á stórmótum eins og Bent Lársen nú. Hann er langt frá því að vera dauður úr öllum æðum eins og ýmsir héldu. I gær unnust 3 skákir í Bienne. Sosonko vann Diaz, Tal vann Byrne og Lombard tapaði fyrir Rogoff. Jafntefli gerðu Castro og Hiibner, Smyslov og Petrosjan, Geller og Larsen, Liberzon og Smejkal. Biðskákir urðu hjá Czom og Matanovic, Portisch og Gulko, Andersen og Sanguneti. Að 13 umferðum loknum er Larsen efstur með 9'/5 Hilbner og Smyslov hafa 8, Portisch 7'A og' biðskák, Byrne og Tal 7V4 vinning. Næstir þar á eftir koma Smejkal og Sosonko með 7 vinninga. —ASt. Iðrumst ó morgun Mikii drykkja og ölvun varð í Reykjavík í nótt og hafði lögreglan ymislegt amstur af. Færði hún hálfan þriðja tug manna i fanga- geymslur og biðu þeir lausnar í morgun gegn við- eigandi lausnargjaldi eða skýringum. Aðalvarð- stjórinn taldi að ölvun hefði verið óvenju mikil i gær- kvöld og í nótt. —ASt Innbrot ún sýnílegs órangurs Söluturninn hjá bókabúð Almenna bókafélagsins í Austurstræti fékk ekki frið í nótt. Rctt fyrir klukkan 2 tilkynnti vaktmaður í Pósthúsinu um innbrot i söluturninn. Ekki tókst að hafa hendur í hári þjófsins, en inikið var ruglað til í varningi og hirzlum á stuttum tima. —ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.