Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 30.07.1976, Blaðsíða 17
DACBLAÐIi). — FÖSTUDACUR 30. JÚLt 1976 fþróttir íþróttir 17 I íþróttir Iþróttir Stefón og Marteinn gera samning við Union! Stefan Halldórsson og Marteinn Geirsson munu næsta keppnistímabii leika með belgíska 2. deildarliðinu Royale Union St. Galloise. Marteini Geirssyni var boðinn samningur við félagið, sem hann hefur ákveðið að taka. Þá hefur Víkingurinn Stefán Halldórsson einnig hug á að taka samningi, sem honum hefur verið boðinn. Aðeins stendur á pappírum hér heima. Stefán þarf leyfi félags sins, Víkings, til að gerast at- vinnumaður með Union. Víkingur hefur fyrir sitt leyti samþykkt félagsskipti og mun Marteinn halda utan með tilkynninguna í dag er hann heldur til Belgíu. Það verður því fjölgun í belgískri knattspyrnu á íslenzk- um leikmönnum um 100% — þeg- ar voru fyrir Guðgeir Leifsson og Ásgeir Sigurvinsson. Ekki verður annað sagt en að félagsskipti Stefáns hafi borið skjótt að. Hann fékk boð frá fyrr- verandi félaga sínum í Víkingi Guðgeiri Leifssyni, um að Union hefði áhuga að fá Stefán í sínar raðir. Þetta var síðastliðinn laugardag og nú, tæpri viku síðar hefur Union boðið honum samning, sem hann hefur fullan hug á að taka. Samningar við Martein hafa hins vegar staðið lengur yfir og hefur félagið þegar skoðað Mar- tein og því boðið honum samning, sem hann hefur ákveðið að taka. Nú, vegna vinnubragða hins belgíska félags — Royale Union St. Galloise, margfaldur belgískur meistari, sneri DB sér til Jóns Aðalsteins Jónassonar formanns Víkings og var hann ómyrkur í máli. „Mér finnst vinnubrögð hins belgíska félags við að fá leikmenn héðan fyrir neðan allar hellur. Að eitthvert félag úti í heimi skuli geta hringt hingað upp, boðið leikmanni að koma út til reynslu á miðju keppnistímabili hér heima er fyrir neðan allar hellur. Ekki það — að ég ann strákunum alls hins bezta og sjálfsagt, að hafi þeir getu og vilja til að fara í atvinnumannaknattspyrnu þá munum við ekki leggja stein í götu þeirra. En svona hlutir eiga að fara í gegnum félögin. Hið belgíska félag átti að snúa sér til okkar og biðja okkur um leyfi, það er rétta leiðin. Eg ræddi við framkvæmda- stjóra Union, Spiegel að nafni og spurði hann hvort honum fyndist - Southampton — bikarmeistar- ar Englands frá síðastliðnu vori — sigraði úrvalslið KSÍ á Laugar- dalsleikvanginum í gærkvöld, 2-0. Um fimm þúsund manns lögðu leið sína i Laugardalinn í blíð- skaparveðri. Þrátt fyrir það að Southampton stillti upp sama liðinu og sigraði Manchester United í úrslitaleik bikarsins í vor þá byrjaði íslenzka liðið stór- vel — hefði átt að skora tvö mörk á upphafsmínútum. Já, sannarlega áttu íslendingar sín tækifæri. Þegar á 2. mínútu fékk Víkingurinn Óskar Tómas- son knöttinn innfyrir viirn South- ampton, greinilega rangstæður. í stað þess að leika að markinu lék Oskar út — gaf kniittinn til Hall- dórs Bjiirnssonar en skot hans fór hátt yfir. Þegar á næstu minútu komst Guðmundur Þorbjörnsson innfyrir viirn Southampton og komsl í mjiig gotl skotfæri en skaut himinhátt yfir. Þar fóru góð t;ekif;eri forgiirðum. þetta rétt aðferð. Hann kvað nei við, en bar við tímaskorti — pilt- arnir verða að vera búnir að skrifa undir fyrir hádegi á laugar- dag. Ég fékk að heyra samning- inn, sem Union hefur boðið Stefáni og hann er ánægður með samninginn. tslenzk knattspyrnufélög eyða íslenzka liðið hafði í fullu tré við Englendingana, sem reyndu stutt spil. Hins vegar voru allar sendingar leikmanna Southamp- ton — eða dýrlinganna eins og þeir eru nefndir i daglegu tali á Englandi — mun nákvæmari og örvggi í spili meira. Vörn Sout- haiiipton opnaðist nokkrum sinnum ílla og á 27. mínútu komst Ilermann Gunnarsson einn inn- fyrir vörn Dýrlinganna en Ian Turner, markvöðrur liðsins b.jargaði vel með góðu úthlaupi. Ekki svo að skilja. að Dýrling- arir hafi ekki átt sin tækil'æri einnig. Jú, en þau voru alls ekki eins opin og tækifieri islenzka liðsins. Sigurður Dagsson bjarg- aði vel frá Jimrny l’each, bakverði Soulhampton þegar Dýrlingarnir fengu dremda óbeina aukapyrnu innan vftateigs Islendinganna. Nú — engin mörk voru skoruð í l'vrri hálfleik en rétt eins og í stórpening í uppbyggingu hér heima. Að einhvert félag úti í heimi geti hringt — boðið 2-3-4 leikmönnum út og þeir síðan farið. Það félag stendur skyndi- lega uppi án liðs. Nei, þessu þarf að breyta — hin erlendu félög eiga að snúa sér til knattspyrnufélaganna hér heima hinum fyrri byrjuðu íslenzKU leikmennirnir síðari hálfleikinn vel. Atli Eðvaldsson átti gott skot, sem Turner bjargaði vel í horn og eftir langt innkast Atla fór knött- urinn í stöng af varnarmanni. Smám saman náðu Dýrlingarnir betri tökum á leiknum og á 20. mínútu kom markið. Glæsimark, skorað af kunnáttu atvinnumannsins Peter Os- good. Hann fékk knöttinn í víta- teig íslenzka liðsins, aðeins til hægri. Skrokksveifla ruglaði varnarmenn. Osgood sneri sér á punktinum og skaut lausu, en hnitmiðuðu skoti efst I mark- hornið fjær. Nú. við markið dofnaði yfir leiknum. — Dýrlingarnir höfðu gert það sem þeir þurl'tu. Hins vegar náðu þeir að b;eta við öðru marki á 42. nunútu. Brotið var á Channon út við vitateigslínu l'rá hægri — áður en nokkur hafði áttað sig hafði énski faridsliðs- og biðja um leikmenn. Þannig verndum við bezt hagsmuni félag- anna og eins getum við haft hönd í bagga með að íslenzkir leikmenn séu ekki hlunnfarnir. Eins og ég sagði, við viljum ekki leggja stein í götu piltanna en íslenzku félögin verða að hafa einhvern rétt. h.halls.. maðurinn seni Knottinn beint á kollinn á Pat Earles, sem skallaði í netið. Þarna var íslenzka vörnin sannarlega illa á verði. Lokatölur því 2-0. Sannast sagna verður að segja að lið Southampton olli vonbrigð- um. Leikmenn virkuðu þungir, ekki nema von, eru að byrja æf- ingar. Hins vegar reyndu þeir skemmtilegt spil, sem að vísu gaf ekki góða uppskeru. Lítið bar á hinum frægu köppum Channon og Osgood og þó, Osgood skoraði. Channon átti síðara markið! Margir leikmenn voru reyndir í gærkvöld — og ollu sumir von- brigðum. Vörnin var hins vegar sterk með Martein Geirsson sem bezta mann. Einnig kom Jón Pétursson ágætlega frá leiknum. Oskar Tómasson gerði ýmislegt skemmtilegt. Halldór Björnsson barðist vel en aðrir ollu von- brigðum. h halls Auðvelt hjá Sovét gegn Brðssunum! Sovétríkin tryggðu sér bronsverðlaunin í knattspyrnu á Olympíuleikunum í nótt þegar Sovétmenn sigruðu hið unga lið Brazilíu örugglega 2-0. Tvö mörk — bæði einföid en falleg í einfaldleik sínum. Hið fyrra kom þegar á 5. minútu. Oleg Blohkin lék af miklum hraða niður kantinn, gaf stór- góða sendingu fyrir og þar kom Vladimir Onischenko að- vífandi og skallaði knöttinn óverjandi fyrir markvörð Brassanna — Carlos. Á 20. minútu var Blohkin brugðið innan vítateigs og Kolotov tók vítið — en Carlos varði. Þrátt fyrir stórgóða markvörzlu Carlos þá gat hann ekki komið í veg fyrir siðara mark Sovétmanna. Leonid Nazarenko sem kom inná sem varamaður fyrir Onischenko skoraði af 15 metra færi eftir mjög skemmtilega sóknarlotu Sovétmanna þar sem knött- urinn gekk á milli fjögurra sóknarmanna — og Nazarenko var einn á auðum sjó. Eftir markið fóru Sovétmenn að gefa eftir og Brassarnir náðu góðum sóknarlotum í úrhell- isrigningu, sem var á með- an leikurinn fór fram. En Brazilíumenn vantaði herzlu- muninn. Sovétmenn brutu oft af sér fyrir utan vítateig sinn — og í einu tilvikinu var Vladimir Troshkin vísað af velii — en hann hafði líka rifizt við dómarann. En þrátt fyrir að Brassarnir væru einum fleiri tókst þeim ekki að opna vörn Sovétmanna. Bronsið fór því til Sovétmanna, frétt eins og í Munchen ’72. Áhorfendur í nótt voru 55.674 og hefur hinn mikli áhorfendafjöidi á knatt- spyrnunni komið nokkuð á óvart — sýnir að knatt- spyrna er í greinilegri sókn í Ameríku. Sovét - Pólland í úrslit í blaki Pólland og Sovétríkin mætast í úrslitaleik Olympíu- leikanna í blaki. Pólverjar sigruðu olympíumeistarana frá Munchen — Japan 3-2 Sovétríkin sigruðu Kúbu auðveldlega 3-0. Leikur Pólverja og Japana var stórskemmtilegur, geysi- lega jafn og spennandi. Eftir þriggja tíma viðureign stóðu hinir hávaxnari Pólverjar loks uppi sem sigurvegarar en þá voru bæði lið lika að þrotum komin og vonir Japan um að verja titilinn að engu. Olympíumeistararnir sigr- uðu í fyrstu hrinunni 17-15 en mjög á óvart sigruðu Pólverjarnir i þeim tveim næstu mjög auðveldlega 15-6, 15-6. Bjuggust menn því við að Pólland léti kné fylgja kviði... en Japanir voru ekki á að gefast upp — sigruðu í fjórðu hrinunni 15-10. Staðan var þvi 2-2 og úrslitahrina leikin. Hún var ge.vsilega jöfn og spennandi — en hinir hávaxnari Pólverjar reyndust sterkari, sigruðu 15-10. Sovétmenn áttu ekki i vandra'ðum með Kúbu — sigruðu í öllum hringunum. 15-12. 15-7. 15-8. Sovétmenn hafa því unnið allar hrinur sínar á leið i úrslitin. Guðmundur Þorbjörnsson reynir sannarlega að ná til knattarins en Mel Blyth skallar frá — Öskar Tómasson fvlgist með og er við öllu búinn. DB-mynd Bjarnleifur. DÝRLINGAR í RAUN? — Bikarmeistarar Southampton sigruðu úrvalslið KSÍ 2-0 en ollu vonbrigðum

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.