Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 1
t i i i i i i i i i i i i i i t t t t t í t i i i i i i i 2. VRG. — MÁNUDAGUR 9. AGUST 1976 — 173. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022 íslenzkir aðalverktakar hf.: u «47 ■ W ■ vawwiii ■ wb h« « ■■■«(• Stnrfsemin meira og minna lömuð — 200 starfsmenn tepptir í Þórsmörk og ollir fólksf lutningabflor fyrirtœkisins Starfssemin er meira og minna lömuð hjá okkur enda eru um 200 af starfsliðinu tepptir í Þórsmörk og um leið allir fólksflutningabílar okkar, sem áttu að safna saman stárfs- mönnunum í morgun, sagði Halldór Jósefsson ráðningar- stjóri íslenzkra aðalverktaka í viðtali við DB í morgun. Allt í allt, með öllum undir- verktökum, starfa um 600 manns hjá fyrirtækinu, en um 470 eru beinir starfsmenn þess. Af þeim 200, sem tepptir eru í Þórsmörk vegna vatna- vaxtanna, eru langflestir beinir starfsmenn. Starfsfólk efndi til þessarar skemmtiferðar um helgina og fékk fólksflutningabíla fyrir- tækisins til ferðarinnar, en það eru 22 manna Benzar, ekki með framdrifum. Var áætlað að koma heim í gærkvöld. Halldór sagði, að þegar ljóst varð hvers kyns var í morgun, hafi verið leitað aðstoðar sér- leyfishafa um að safna saman þeim mannskap, sem ekki hafði farið austur, og bjóst hann við að því yrði lokið innan tíðar, er blaðið talaði við hann. I Þórsmörk eru nú 400 manns tepptir, komast ekki yfir Krossá, sem er í miklum vexti eftir hinar miklu rigningar helgarinnar. Fólkinu er ekkert að vanbúnaði, en í gærkvöld varð þó að senda þyrlu Slysa- varnafélagsins í Mörkina. Ung stúlka hafði fengið botnlanga- bólgukast og var flutt á sjúkrahús í Reykjavík. Tókst flutningurinn eins og bezt varð á kosið. -GS. — sjó bls. 8 FAST ÞEIR SOnU SJOINN, VALSMENN Knattspyrnuleikvangurinn a Akranesi er i sérkennilegu landslagi. Líklega er það á fáum stöðum í heiminum sem 1. deildarlið hefur Atlantshafið sem svo náinn granna sem þeir Skagamenn. Á laugardaginn fengu Akurnesingar Valsmenn, væntanlega Islandsmeistara (??), í heimsókn. Valsmenn sigruðu i þeim leik, eins og komast má að raun um ef flett er upp á íþróttasíðunum í opnu, þessa blaðs. Hér voru Valsmenn tveir að sækja boltann niður í fjöru Langasands, þeir eru Atli iso- valdsson og fyrirliði Vals, Ingi Björn Albertsson. — SJA ÍÞRÖTTIR I OPNU. (DB-mvnd Bjarnleifur Bjarnleifsson > 5 milljóna króna bfl stolið í Kaupmannahöfn: FENGINN FYRIR 0RD „ÍSLENZKS SENDIRÁÐS" 5 milljón kröna bifreið, Mercedes Benz 280 SE, var nýlega stolið frá þekktri bíla- leigu í Kaupmannahöfn undir yfirskyni lilmæla frá íslenzku sendiráði. Hefur bif- reiðarinnar verið leitað dyrum og dyngjuin um alla Evrópu án árangurs. Starfsmaður bilaleigunnar skýrði svo frá, að tilmæli, sem sagt var að kæmu frá íslenzka sendiráðinu í Stokkhólmi, hefðu borizt um að leigja til- teknum manni bíl af framan- greindri gerð, þegar hann kæmi. Snemma daginn eftir kom maður á afgreiðslu bíla- leigunnarog vitnaði til þessara 'tilmæla sendiráðsins. Þótti ekki ástæða til að rannsaka skilríki mannsins eins gaumgæfilega og venja er til. Fékk hann leigðan gullfagran vagn og ók'burtu á honum. Ekki hefur til hans spurzt síðan, og öll leit reynzt árangurslaus. Er talið víst, að sænskur maður hafi leikið þennan leik, og eru tilgátur um, að hann hafi ekið bflnum náttfari dag- fari suður Evrópu og jafnvel yfir til Afríku í þeiin tilgangi að selja bílinn þar. Bendir allt til þess, að fyrirætlun svika- hrappsins hafi tekizt. -BS. ,Löglegt, - en siðlaust"?? 100 milljóna eignir, engir tekju- eða eignaskattar — viðtal við Guðjón Styrkórsson lögfrœðing CIA réð þó tilað myrða Castro. Nú hafa bóðir verið myrtir — Erl. f réttir bls. 6*7 Prúðmennskan sat í öndvegi — fró þjóðhátíð í Eyjum — bls. 9 Þú getur fengið f rítt í soðið í dag - — baksíða

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.