Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 16
16 IMdBLAÐIf). — MANUDAGUK 9. ACUST 1976 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir „Vissulesa-r alltaf gaman að sigra í íslandsmótinu. En þrátt fyrir sigur gct ég ekki sagt að ég sé ánægður með spilamennsku mina í þessu íslandsmóti í golfi. Að vísu hefur veðrið verið af- leitt," sagði Björgvin Þorsteins- son GA, sem á laugardag varði íslandsmeistaratitil sinn í golfi f jórða árið í röð. Björgvin Þorsteinsson háði harða keppni við Hagnar Ólafsson GR um titilinn. Þegar að síðasta degi kom hafði Björgvin 6 högga forystu. Veður var afleitt — suðaustan kaldi og rigning, sem vissulega setti sín mörk á spila- mennsku keppenda. Þegar á 8. holu fékk Björgvin víti og eftir 12 holur hafði Ragnari tekizt að minnka muninn í aðeins eitt högg. En íslands- meistarinn sýndi hvers hann er megnugur — náði að auka mun- inn í 2 högg. Þegar á 13. holu og eftir það virtist fátt geta komið I veg fyrir sigur Björgvins. Þegar að 18. holu kom hélt hann forystu enn í tveimur höggum og Ragnari tókst ekki að minnka muninn þá frekar en áður — Björgvin Þor- steinsson varð því íslandsmeistari í golfi fjórða árið í röð. Björgvin Þorsteinsson GA lék 72 holurnar .á 300 höggum — fyrstu 18 lék hann á 74, þá 76, svo 71. Þegar að fjórða degi kom hafði Björgvin, eins og áður sagði, sex högga forystu, en honum tókst ekki vel upp — fór síðustu umferðina á 79 höggum. Ragnar Ólafsson lék á 302 högg- um — 73, 79, 75, 75. Þriðji varð Sigurður Thorarensen á 306 — 78, 78, 73, 77. Þessir þrír höfðu umtalsverða yfirburði yfir aðra keppendur því næstu menn léku á 318 höggum. Það voru þeir Sigurður Pétursson og Óskar Sæmundsson báðir í GR. Kappklæddir kappar í rigningunni á Grafarholtsvelii á laugardag. Ragnar Ólafsson óskar Björgvini Þorsteinssyni til hamingju meðsigurinn. DB-mynd Bjarnieifur. Kjartan L. Pálsson íþrótta- fréttaritari Vísis sigraði í 1. flokki eftir harða baráttu við Knút Björnsson GK. Kjartan lék á 366 höggum — Knútur á 367 höggum, svo naumara gat það tæpast verið. íslandsmeistari I kvennaflokki varð Kristín Pálsdóttir GK. Hún lék á 352 höggum og í öðru sæti varð Jakobína Guðlaugsdóttir GV á 360 höggum. íslandsmeistari I 1. flokki kvenna varð Ágústa Dúa Jóns- dóttir GR á 404 höggum. íslandsmeistari í 2. flokki karla varð Georg Hannah GS eftir bráðabanavið Sigurð Guðmunds- son. Báðir léku þeir á 366 höggum og þar varð Georg hlutskarpari. Sama gilti um 3.—4. sætið — þar varð Einar Guðlaugsson G Lux. I þriðja sæti eftir bráðabana við Garðar Halldórsson en báðir léku þeir á 367 höggum. BJÖRGVIN MEISTARI EJÓRÐA ÁRIDÍ RÖDi — í (slandsmótinu í golfi. Björgvin hef ur því orðið íslandsmeistari 5 sinnum — jaf noft og Magnús Guðmundsson GA USA — Sovét — Þó hafnaði Stones í síðasta sœti! — Sovétmenn sigruðu með yfirburðum í landskeppni þjóðanna með 211-157. Tíundi sigur Sovétmanna, Bandaríkin hafa aðeins sigroð þrisvar Bandaríkin og Sovétríkin háðu landskeppni í frjálsum íþróttum og for keppnin fram i Maryland. Bandaríkjunum. Eins og svo oft áður báru Sovétmenn sigur úr býtum — samanlagt. Sigruðu með 211 stigum gegn 157. Hins vegar báru bandarísku karlarnir sigur- orð af þeim sovézku 115-107. Sovézku konurnar cinokuðu kvennagreinarnar alveg — sigruðu 104-42. Tvö heimsmet voru sett — Ludmila Bragnina, hin 33 ára hlaupastjarna, setti glæsilegt heimsmet í 3000 metra hlaupi — hljöp vegalengdina á 8:27.12 og bætti heimsmet Gretu Waitz frá Noregi verulega — en það var 8:45.4. Að vísu er þessi véga- lengd sjaldan hlaupin en árangur Ludmilu athyglisverður. Landi hennar, Raisa Katyukova, hljóp einnig vel undir gamla heimsmet- inu, 8:41.77. Sovézku stúlkurnar settu einnig heimsmet í 4x400 metra boðhlaupi. Þær hlupu á 3:29.06 — bættu heimsmet v-þýzku stúlkn- annu ff-á 1975 um tæpa sekúndu. Bandaríska sveitin hljóp á 3:33.76. Til marks um yfirburði sovézku stúlknonnu ei að ekki einasta sigr- uðu l>ær í öllum greinum — heldur höfnuðu þær i 1. og 2. sæti I öllum greinum utan einni. Það var í langstökkinu, að silfurhaf- inn frá Montreal, Kathy McMillan, hafnaði i öðru sæti er hún stökk 6.42 en sigurvegari varð Lidyia Alfeeva, sem stökk 6.46. Aðeins fjórir keppendur tóku þátt í hverri grein. Þrátt fyrir tvö heimsmet sovézku stúlknanna stal þó heims- methafinn í hástökki, Dwight Stones, rétt einu sinni senunni. Ekki fyrir að sigra — nei, þvert á móti — hann hafnaði í fjórða og síðasta sæti i hástökkinu og það skömmu eftir að hann hafði bætt heimsmet sitt — sem nú er 2.32. Já, Dwight Stones tókst mjög illa upp í hástökkinu, meira að segja verr en á Ólympíuleik- unum. Stones stökk aðeins 2.18 í hástiikkinu — sigurvegarar urðu Sovétmennirnir Sergey Saniuko og Sergey Budalov, sem báðir stukku 2.21. Árangur í þessari 13. lands- keppni þjóðanna var annars mjög slakur. Mac Wilkinrs sigraði i kringlukasti — kastaði 66.20 metra. Edwin Moses sigraði í 400 metra grindahlaupi á 48.55 sek- úndum, ágætur tími. Gullhafinn frá Montreal i lang- stökki, Arnie Robinson, sigraði í langstökkinu, stökk aðeins 7.80 — langt frá sínu bezta. Anthony Hall sigraði í spjót- kastinu — kastaði 81.74, annar varð hinn frægi Jan Lusis, sem nú má muna sinn fífil fegri. Lusis kastaði 81.46. Aleksander Barysnikov sigraði i kúluvarpinu er hafin varpaði kúlunni 21.15. Annar varð Georgs Woods —20.52. Þelta var 10. sigur Sovélmanna i þrettán landskeppnum — Bandarikjamenn liafa aðeins sigr- að þnsvar. Þar immar að sjáll'- sögðu mest um yfirburði sovezku stúiknanna. Norðmenn Norðmenn urðu Norðurlanda- meistarar í knattspyrnu drengja 14-16 ára. Þeir sigruðu Svía i úrslitaleik en til þurfti víta- spyrnukeppni því staðan eftir venjulegan leiktima var 0-0 og einnig framlengingu. Vítaspyrnu- keppnin var einkar spennandi — bæði lið skoruðu úr fjórum fyrstu spyrnum sínum. Síðan brást Svia bogalistin og þá einnig Norðmanni — það var loks í sjöundu spyrnu að úrsiit fengust Svíinn lét verja frá sér — en Norðmaðurinn skoraði af öryggi. Því fór 6-5 Norðmönnum í vil. Island hafnaði i sjötta sæti eftir ósigur gegn V-Þjóðverjum 1-4. Þrátt fyrir að leikurinn hafi verið fremur jafn liðin skiptust á að sækja, skoruðu V-Þjóðverjar fjögur f.vrstu mörk leiksins. Ensk-skozka bikarkeppnin afstað! Hin árlega keppni enskra og skozkra liða hófst um helgina og er liðunum skipt i riðla. Þarna konia saman lið úr skozku deildunum og eins ensku deildunum en yfirleitt taka hin sterkari lið þjóðanna ekki þátt. (Jrslit urðu: Ayr — Clydebank 0-0 Blackburn — Burnley 1-1 Bolton — Blackpool 0-0 Bristoi City — WBA 1-0 Chelsea — Fulham 0-0 Dundee United — Aberdeen 1-0 Middlesbro — Hull 2-0 Motherwell—Kilmarnoek 1-1 Norwich — Orient 0-0 Raith Rovers — Tartick 1-2 Sheff. Utd. — Newcastle 0-1 ☆ Gorski hœttir með pólska landsliðið Kazimierz Gorski, hinn 55 ára gamii þjálfari hefur sagt að bráðlega muni hann láta af störfum sem þjálfari pólska landsliðsins — tími væri til að menn með nýjar hugmyndir tækju við. Gorski hefur gert Pólland að stórveldi í knattspyrnuheimin- um í dag. Hann leiddi Pólland til sigurs á Ólympíuleikunum í Múnchen ’72. Því var síðan fylgt eftir með því að siá Eng- land út úr undankeppni heimsmeistarakeppninnar ’74. Ekki létu Pólverjar þar við sitja — heldur hlutu þeir bronsið á sjálfri heims- meistarakeppninni. Loks varð Póiiand að sætta sig við silfur á Ólympíueikunum í Montreal á dögunum — engu að síður glæsilegur árangur og Póliand á eitt bezta landslið Evrópu í dag. ☆ Turishcheva hœttir Ludmila Turishcheva — hin dáða fimieikastjarna Sovét- ríkjanna — hefur ákveðið að draga sig í hlé 24 ára að aldri og helga sig þjálfun ungra og upprennandi fimieikastjarna í Sovétríkjunum. Turishcheva hiaut ein gull- verðlaun á Ólympíulcikunum í Montreal og tvenn silfurverð- laun. Hún féll þá af stalli sínum sem fremsta fimleika- kona heims — Nadia Coman- eci og Nelli Kim tóku við. meistarar! ísland missti meðal annars víti og fór illa með tækifæri sín í leiknum. Arnór Guðjohnsen úr Víking skoraði eina mark Islands skömmu fyrir leikslok. Danska liðið sem margir höfðu spáð fyrsta sætinu á mótinu — varð að sætta sig við þriðja sætið. Danirnir kepptu við Finna suður i Keflavík í hávaðaroki og báru sigur úr býtum, 3-2. Sanngjörn úrslit en Finnarnir áttu einnig góða kafla, þó ekki stæðu þeir Dönum snúning. Skemmtilegastur Dananna var fyrirliðinn Tommy Andersen og hann skoraði fyrsta markið úr víti snemma í leiknum. Eins skoraði Andersen þriðja mark Dana. Per Bertelsen skoraði í millitíðinni og komust Danir í 3-0 áður en Finnar náðu aðeins að rétta sinn hlut í 3-2.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.