Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 09.08.1976, Blaðsíða 14
DACBLAÐIÐ. — MANUDAGUR 9. AGUST 1976 Staðan í 1. deild Úrslit leikja í 13. umferd: Víkingur — KR 1-2 FH — Fram 1-2 Akranes — Valur 1-3 Breiðablik — Kefiavík 3-1 Staðan í 1. deild er nú: Valur Fram Breiðablik Akranes Víkingur KR Keflavík FH Þróttur 13 8 4 1 37-12 20 13 7 3 2 20-15 19 12 6 2 4 16-14 14 12 5 4 3 16-16 14 12 6 1 5 16-16 13 13 3 5 5 19-18 11 13 5 1 7 18-20 11 12 1 4 7 8-20 6 12 1 2 9 9-26 4 Eitt met en dauft mót! — íslandsmet í 4x100 metra boðhlaupi kvenna á sviplitlu meistaramóti íslands í f rjálsum Markhæstu leikmenn 1. deildar: Ingi Björn Albertsson, Val, 11 Guðmundur Þorbjörnsson, Val, 10 Hermann Gunnarsson, Val, 10 Kristinn Jörundsson, Fram, 7 Jóhann Torfason, KR, 6 Teitur Þórðarson, í A, 6 Hinrik Þórhalisson, UBK, 6 Sigþór Ómarsson, ÍA, 5. Enn tap Hauka Haukar eru nú að komast í alvarlega fallhættu en í undan- förnum leikjum hafa þeir mátt þola hvern ósigurinn á fætur öðrum. Engin breyting varð á þegar liðið mætti Armanni í 2. deild íslandsmótsins í Hafnar- firði — 0-1 ósigur Hauka. Síðan Haukar fengu nýjan þjálfara frá Skotlandi hefur þeim ekki tekizt að sigra í leik og sannarlega voru þeir óheppnir í gærkvöld því að Armann var lengst af í vörn og til að kóróna mistök Hauka misnotuðu Hafn- firðingar vítaspyrnu. Látlaus sókn Hauka var að marki Armanns í fyrri hálfleik — svo þung að Armenningar áttu aðeins tvö upphlaup sem hægt var að tala um. Og þeir skoruðu úr öðru þeirra er Þráinn Ásmundsson nýtti sér varnarmistök Hauka. Þrátt fyrir þunga sókn Hauka tókst ekki að nýta tækifærin — og enn máttu Hafnfirðingar sætta sig við tap. Virðist sem heilla- disirnar hafi alveg yfirgefið Hafnfirðingana — auðveldustu tækifæri nýtast ekki. Tvö jafntefli Víðis í Fœreyjum Meistaraflokkur Víðis, sem er á keppnisferðaiagi i Færeyjum, hefur leikið tvo leikið við gest- gjafa sína Tvoröyrar Boltfelag. Fyrri leikurinn var við B-lið TB á föstudag og lauk honum með jafntefli 2:2. Víðir náði tveggja marka forskoti, með mörkum Jóns Ögmundssonar og Ingi- mundar Guðmundssonar, en slíkt forskot virðist illa nægja Víði, því TB-ingum tókst að jafna áður en leiknum lauk og voru þar að verki þeir Michael Johansen og Atli Hanson. Seinni leiknum sem spilaður var í gærkvöldi, lauk með jafn- tefli, 0-0 en þá áttu Víðispiltarnir við a-lið TB. Var mikið fjör í leiknum og góð færi á báða bóga, sem nýttust ekki. Ýmist bjargað á línu, eða skotin hittu ekki markið. Þess má geta að Kjartan Sigtryggsson, fyrrum markvöröur iBK, þjálfar TB-Iiðið, sem er i öðru sæti i Færeyjakeppninni, aðeins einu stigi á eftir IIB, en liðin munu leika seinni leikinn á Tvoröyri 22. agúst nk:, en hann getur ráðið úrslitum um hver hlýtur meistaratitilinn. Víðismenn róma mjiig allar mótlökur á Tvoriiyri, en þeir munu leika seinasta leikinn á þriöjudag, sennilega við Vágs Boltfí'lag. emm i Sviplítið meistaramót íslands i frjálsum íþróttum var haldið á Laugardalsleikvanginum um helgina. Til liðs við frjáls- íþróttamenn okkar komu fjórir sovézkir frjálsiþróttamenn. V. Knelevskaya, en hún keppti í kringlu og kúluvarpi. V. Podoliaka keppti í 800 metra hlaupinu. Stangarstökkvarinn V. Boliko keppti í stangarstökki og A. Fedophline keppti í 5000 m hlaupi. Veður um helgina til frjáls- íþróttakeppni var ákaflega slæmt, hvasst og rigning. Enda varð og árangurinn í samræmi við að- stæðurnar. Þó leit eitt íslandsmet dagsins ljós en það var met kvennasv. IR í 4x100 metra boðhlaupi. Sveitin hljóp á 48.9 — en gamla metið átti Ármann en það var 50,2 Landssveit hefur hlaupið á beztum tíma eða 48.0 Vilmundur Vilhjálmsson var drjúgur í mótinu — hann varð fjórfaldur meistari. Vilmundur sigraöi i 100 metra spretthlaupi á 11.4 en sterkur mótvindur var á meðan hlaupið fór fram. Annar í 100 metra hlaupinu varð Magnús Jónasson á 11,5 og þriðji Björn Blöndal, hljóp á 11.7. Vilmundur sigraði einnig í 200 metra hlaupinu á 22.1 og í 400 metra hlaupinu á 50.6 en annar þar var FH-ingurinn Gunnar Þ. Sigurðsson á 51.6. Fjórða titil sinn vann Vilmundur í 4x400 metra boðhlaupinu, en þar var hann í sigursveit KR — sem hljóp á 3.31.5. Raunar hefði Vilmundur unnið sinn fimmta titil í 4x100 metra boðhlaupinu ef Valbjörn Þorláksson hefði ekki gleymt keflinu þegar hann hljóp af stað en Valbjörn uppgötvaði mistökin eftir um 60 metra. Að vonum sigruðu Sovét- mennirnir í öllum þeim greinum er þeir tóku þátt í og setti Knelevskaya valíarmet í kringlu- kastinu — kastaði 56.92. Eins jafnaði hún vallarmetið í kúlu- varpi en það var 15.71, sett 1973 af Mary Peters. Podoliaka sigraði í 800 metra hlaupinu á 1.54.4 — vel frá sínum bezta tíma. Ágúst Ásgeirsson varð annar á 1.54.8 Boiko sigraði í stangarstökkinu — stökk 4.80 en þar setti ungur piltur úr HSK, Eggert Guðmunds- son, nýtt drengjamet er hann stökk 3,70. Thelma ' Björnsdóttir úr Kópavogi setti tvö met — bæði í stúikn iflokki undir 12 ára. Thelma hljóp 1500 metra hlaup á 5.21.3 og 800 metrana 2.31.3. Ingunn Einarsdóttir sigraði örugglega í 100 metra hlaupi kvenna á 12.6 sekúndum. Hreinn Halldórsson sigraði örugglega í kúluvarpinu, varpaði kúlunni 19.20. í kringlukastinu sigraði Erlendur Valdimarsson, kastaði tæpa 60 metra — eða 59.35. Sandgerði í úrsfit Sandgerði, sem þegar hafði tryggt sér sæti í úrslitakeppni 3. deildar, lék í gærkvöld síðasta leik sinn í riðlinum — þá gegn Njarðvíkingum. Jafntefli varð 1-1 og fyrir Sand- gerðinga skoraði Magnús Kristjánsson, en Viðar Oddgeirs- son fyrir Njarðvíkinga. Sandgerði hafði eins og áður sagði tryggt sér sæti í úrslitakeppninni — þar sem Leiknir úr-BreiðhoIti tapaði tveimur síðustu leikjum sínum í riðlinum. -emm. Ung hlaupaslúlka. Thelma Björnsdóttir úr Kópavogi. Thelma setti tvo stúlknamet undir 12 ára aldri — í 800 og 1500 metra hlaupum. Hér afhendir Jóhann Jóhannesson, sem allir íþróttaunnendur kannast vió af vollinum, Thelmu verólaunapening. UB-mynd Bjarnleifur. Keflvíkingar hreinsa frá — algeng sjón í Ieiknum gegn Breiðablik. Hinrik Þórhallsson fylgist meó. Nú leika Bli stœðingana — Breiðablik komið í þriðja sœti 1. deildar efli af sem áður var fyrir nokkrum árum þegar Blik Breiðablik heldur áfram að þokast upp stigatöflu 1. deildar — liðið er nú komið í þriðja sæti, hefur hlotið 14 stig í 12 leikjum. I gær sigraði Breiðablik ákaflega slaka Keflvíkinga í Kópavoginum 3-1. Raunar hefði sá sigur getað orðið mun stærri. Öll knattspyrna sem sást í leiknum kom frá Blikunum, oft á tíðum skemmti- legt sainspil, sem yljaði áhorfendum í suðaustan nepjunni. Raunar var mesta furða hvað Blikarnir náðu að sýna skemmtilegt spil ef tekið er mið af aðstæðum. Já, ekki verður annað sagt en Blikarnir hafi tekið stórstígum framförum frá fyrstu leikjum liðsins í tslandsmótinu. Er nú svo komið að Breiðablik er orðið eitt bezt leikandi lið í 1. deild — knötturinn er látinn hafa fyrir erfiðinu og leikmenn liðsins öðl- ast meira sjálfstraust með hverjum leiknum sem líður. 1 síðustu fimm leikjum sínum hafa Blikarnir hlotið 9 stig — sannar- lega er framtíðin björt. Breiddin i liðinu eykst með hverjum leiknum, þó enn séu þrír leikmenn sem bera af — þeir Hinrik Þórhallsson, ákaflega leikinn og útsjónarsamur mið- herji, Gísli Sigurðsson tengiliður er ávallt er livaða liði skeinu- hættur, og miðvörður liðsins, Einar Þórhallsson. Aðrir leik- menn vaxa með hverjum leik og í gær komu þeir Þór Hreiðarsson og Vignir Baldursson skemmtilega frá leiknum, en sem heild lék liðið skínandi vel. Helzti ljóður hjá liðinu í dag virðist markvarzlan — Ólafur Hákonar- son sýndi alls ekki það öryggi, sem til þarf liði í toppbaráttu. — Úlafur var raunar heppinn að fá ekki á sig fleiri en eitt mark, eftir misheppnuð úthlaup. Nú. en snúum okkur að leiknum. Keflvíkingar léku undan strekkingsvindi í fyrri hálfleik og allt spil er sást í hálf- leiknum var Blikanna. Þó sköpuðu Keflvíkingar sér tvö ágæt tækifæri — bæði í kringum bakvörð sinn, Gunnar Jónsson. En Keflvíkingar höfðu hvorki getu né kraft til að færa vindinn sér i nyt — langspörk út og suður. Staðan í hálfleik var því 0-0 — en þegar á 2. mín. skoraði Þór Hreiðarsson, eftir að Blikarnir höfðu galopnað vörn ÍBK með skemmtilegu spili. Hinrik Þór- hallsson fékk sendingu fram á miðju vallarins — sendi skemmtilega sendingu til Gísla og hann var ekkert að tvínóna við hlutina, renndi knettinum í eyðu og Þór Hreiðarsson var einn á auðum sjó — skoraði örugglega framhjá Þorsteini Ölafssyni. Á 22. mínútu bætti Hinrik sjálfur við marki — eftir að vörn IBK opnaðist hrikalega — Hinrik brauzt upp háegri kantinn og gott skot hans af 15 metra færi réð Þorsteinn ekki við, 2-0. Þriðja mark sitt skoruðu Blikarnir er þeir rétt einu sinni opnuðu vörn tBK. Þorsteinn Ólafsson átti slæmt útkast — Guðni Kjartansson náði ekki til knattarins. Knötturinn barst inn fyrir vörn ÍBK — Hreiðar Breið- fjörð einn á auðum sjó og enn mátti Þorstreinn Ólafsson hirða knöttinn úr neti sínu. Frekar bjuggust menn við að Blikarnir bættu við sínu fjórða marki en að ÍBK kæmist á blað. En þó — Einar Gunnarsson skallaði knöttinn yfir Ólaf Hákonarson markvörð eftir að minnsti maðurinn á vellinum, Guðjón Guðjónsson hafði skallað knöttinn fyrir mark Breiðabliks. Mark sitt skoruðu Keflavíkingar á 40. mínútu en þá var llka allt búið — Blikarnir höfðu tekið stigin tvö.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.