Dagblaðið - 19.08.1976, Side 1
2. ÁRG. — FIIWMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1976 — 182. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINÖAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMI 27022
'
Tveir blaðamenn Dog-
blaðsins handteknir
— Sakadómsmenn
beittu valdi, neituðu
þeim um samband við
umheiminn og tóku
engar skýrslur af þeim
Tveir blaðamenn Dag
blaðsins voru teknir höndum.
er þeir voru að störfum í mat
stofu nokkurra ríkisstofnana að
Borgartúni 7 í hádeginu í gær
Berglind Ásgeirsdóttir blaða
maður og Arni Páll Jóhanns-
son, ljósmyndari Dagblaðsins,
voru stödd í áðurnefndu
mötuneyti á matmálstíma i gær
þeirra erinda að taka mynd af
Karli Schutz, hinum þýzka
rannsóknarmanni, sem er til
aðstoðar sakadómi við rann-
sókn Geirfinnsmálsins og ann-
arra mála og freista þess að ná
tali af honum.
Árni Páll tók þarna nokkrar
myndir og Berglind hafði hug á
því að ná tali af Schiitz. Ljós-
myndarinn notaði leifturljós
eða ,,flash“ eins og það er
venjulega nefnt. Fór hann því
með engri leynd í starfi sínu.
Berglind sat við borð þar sem
þau höfðu snætt brauð og kaffi.-
Er ljósmyndarinn hafði tekið
nokkrar myndir, bar þarna að
Örn Höskuldsson, fulltrúa yf-
irsakadómara. Ýtti hann
ljósmyndaranum inn í húsa-
kynni sakadóms og skipaði
honum að afhenda ljósmynda-
vél sína og filmur er hann
kynni að hafa í fórum sínum.
Þegar Árni Páll neitaði að
verða við þessu, skipaði full-
trúinn lögreglumönnum að
taka þessa hluti af honum með
valdi. Ekki kom til frekari
átaka, en lögreglumenn fóru að
fyrirmælum yfirboðara síns.
Berglind Ásgeirsdóttir var
skömmu síðar færð í húsakynni
sakadóms. Var henni haldið þar
án nokkurra skýringa í um það
bil klukkustund. Var hún síðan
látin laus, en Árni Páll fékk að
fara frjáls ferða sinna eftir um
Berglind Ásgeirsdóttir blaðamaður og Árni Páll Jóhannsson Ijósmyndari Dagblaðsins koma út frá Sakadómi Reykjavíkur. —
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
það bil hálfa klukkustund.
Hvorugt þeirra fékk leyfi til
að hafa nokkurt samband við
umheiminn í síma og mjög treg-
legar eða engar skýringar
fengu þau á þessari frelsissvipt-
lingu.
Ragnar Aðalsteinsson hefur
tekið að sér að reka réttar fyrr-
greindra blaðamanna Dag-
blaðsins. Mun hann í dag óska
þess að fá skýrslur sakadóms
um þennan einstæða atburð.
Frásögn blaðamannanna er
birt á öðrum stað hér i blaðinu.
BS.
— sjó nánar bls. 8
frásagnir blaðamanns og Ijósmyndara
D
[ Laxá verður virkjuð frekar í framtíðinni — Viðhorf munu breytast
— sjá bls. 9
Gömul hús komin á verðlaunapaí
fyrirfegurð -
Repúblikan
senda
íframboð
FORD
1187,
REAGAN
1052
Klukkan hálfsex i morguh varð ijóst að Ford forseti hafði tryggt
sér útnefningu sem forsetaefni Repúblikanaflokksins á flokks-
þingi í Kansas Citv. Hér má sjá forsetahjónin er þau komu til
borgarinnai, þar sem þeim var ákaft fagnað af stuðnings-
mönnum sinum.
— sjá erlendar f rettir bls. 6-7
Kristján Pétursson:
ORDID VARASAMT AD
KOMA UPP UM SAKAMÁL
Nokkrir spíramálsmennirnir gera nú athugasemdir við
rannsóknaaðferðir hans og Hauks Guðmundssonar
,,Sumir hinna yfirheyrðu
hafa gert athugasemdir við
rannsóknaaðferðir þeirra
Hauks og Kristjans, er þeir
voru spurðir hvort ásakanirnar,
sem birtust í grein í Tímanum
14. apríl sl. í þeirra garð, ættu
við er þeir Kristjan og Haukur
voru að rannsaka mal þeirra,"
sagði Halldór Þorbjörnsson,
yfirsakadómari í viðtali við
blaðið í gær.
Þá staðfesti hann að höfund-
ur greinarinnar væri bróðir
tveggja sakborninga úr spíra-
málunum svonefndu. en eins og
blaðið skýrði frá á sínum tima
fól rikissaksóknari sakadómi
Reykjavikurað yfirheyra um 30
sakborninga úr þeim málum
um starfsaðferðir Kristjáns og
Hauks. Að sögn Halldórs er nú
búið að yfirheyra 27 mannanna
og rannsóknin langt komin. Að
svo stöddu vildi hann ekki tjá
sig frekar um málið.
Tilefnið til viðtalsins við
Halldór var m.a. að Kristjan
Pétursson ritar kjallaragrein í
blaðið í dag þar sem hann segir
m.a. vafasamar aðferðir ríkis-
saksóknara að leita álits sak-
borninga í smyglmálum á rann-
sóknaraðferðum þeirra sem
komu upp um málið, ekki sízt
með hliðsjón af því að sak-
borningarnir kvörtuðu ekki
yfir aðferðunum á meðan á
rannsóknum stóð, eins og þeim
er þó heimilt.
í greininni segir hann orðrétt
um afleiðingar þessa- „Það
fordæmi, sem þessi máls-
meðferð ríkissaksóknara gefur,
hefur þá alvarlegu áhættu í för
með sér að löggæzlumenn
munu hugsa sig um tvisvar í
framtíðinni hvort þeir geti
tekið þá áhættu, sem fylgir því
að upplýsa sakamál, þar sem
rnargir aðilar eru viðriðnir."
—G.S.
Sjá kjallara bls. 11