Dagblaðið - 19.08.1976, Page 24
Laxveiðin
skapar
miklar
gjaldeyris-
tekjur:
Aætlað er að erlendir menn
sem hingað koma til laxveiði
greiði u.þ.b. 150 milljónir króna
til þeirra bænda og annarra er
þeir kaupa veiðirétt af. Margir
þessara erlendur gesta eru
margfaldir milljónamæringár
og 1 panta fyrirfram beztu
þjónustu, hótel, bílaleigubíla,
úrvBls mat- og vínföng,
þjónustufólk og leiðsögurhenn.
Peningar skipta þá ekki máli.
Sumir koma meira að segja í
einkaþotum. Altalað er meðal
kunnugra að margfalda megi
bá krónutölu, sem hinir
erlendu gestir eyða til
.veiðileyfa hér, með að minnsta
kosti 5, sumir segja 7, til þess að
finna út hvað þeir eyði til
ferðarinnar í heild. Kemur þá
út að erlendir laxveiðimenn
eyða til Islandsferða sinna í ár
750 til 1000 milljónum króna.
750 til 1000 millj-
ónir f ró útlending-
um í laxveiðum hér
— Um 150 milljónir af því eru greiddar fyrir veiðileyfi
Leigutekjur oænaa gf
laxveiðiám og vötnum eru af
fróðustu mönnum taldar hafa
verið milli 200 og 300 milljónir
króna 1975. Þeir sem vel til
þekkja telja hærri töluna lík-
legri. Nákvæmar tölur um
leigutekjurnar er hvergi að
finna á einum stað og þyrfti að
blaða í reikningum um 130
veiðifélaga eða reikningum og
framtölum einstaklinga til að
finna þær, en leiga ánna hefur
verulega hækkað árið 1976.
Þessar 200-300 milljónir eru
aðeins „frumleiga" bændanna,
sem veiðiréyinn eiga. í
mörgum tilvikum taka svo
einstakir menn ána á leigu i
þvi skyni að endurleigja hana
til einstakra veiðimanna og þá
einkum útlendinga. Á það við
um margar af beztu veiðiám
landsins. I endurleigunni
hækkar árleigan mjög svo að
nemur milljónatugum.
Það munu aðallega vera 17 ár
á landinu sem leigðar eru út-
lendingum á bezta veiði-
tímanum, eða yfir hásumarið. 1
þær komast íslendingar fyrst
og síðast á veiðitímanum, þá er
veiði hefur ekki náð hámarki
eða þá að tekið er að draga úr
henni. Sumar ár eru „alveg
erlendar“ þ.e. í þær koma ekki
Islendingar nema í einstaka
tilfellum bændur er veiðirétt
eiga þá er útlendingurinn, sem
þeir hafa leigt veiðirétt í ánni,
er þar ekki né heldur neinn af
þeim útlendingum, sem hann
hefur endurleigt réttinn til
veiða.
Góðu árnar 17, — þar sem
veiðar útlendinga eru mestar,
og leigðar eru á hæstu verði
dag hvern, — eru i upphafi
teknar á leigu hjá bændum
fyrir um helming þeirrar upp-
hæðar, sem bændur samtals fá
fyrir veiðiréttindi á öllu
landinu, eða 100-150 milljónir
kr. árið 1975. Þessar ár eru:
Laxá í Kjós, Norðurá, Grímsá,
Laxá i Leirársveit, Laxá í
Dölum, Þverá í Borgarfirði,
Langá á Mýrum, Hítará,
Haffjarðará og Straumfjarðará
á Snæfellsnesi, Víðidalsá,
Vatnsdalsá' Laxá í Þingeyjar-
sýslu, Hofsá í Vopnafirði og
Hafralónsá, Hölkná í Þistilfirði
og Deildará við Raufarhöfn.
í öllum þessum ám veiða
útlendingar yfir „bezta
tímann,“ en hann hefur verið
að lengjast á undanförnum ár-
um og mun sums staðar tæpur
helmingur veiðitímans en ann-
ars staðar rúmlega hemingur
hans. —ASt.
frjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 19. AGÚST 1976
Lögreglumenn kera af Schútz
„Þeir menn, sem vinna með
Schiitz njóta mikillar reynslu
hans,“ sagði Olafur Jóhannesson
dómsmálafáðherra í viðtali við
Dagblaðið 1 morgun, en frétta-
maður leitaði staðfestingar á
frétt, sem birtist í Dagblaðinu í
gær um fyrirætlanir um endur-
skipulagningu rannsóknarlög-
reglunnar og námskeið fyrir
hana.
I viðtali við Tímann segir
Ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra: „Þetta hlýtur að vera á
misskilningi byggt. Blaðið hlýtur
að eiga við Karl Schiltz." -BS.
Gjaldeyri
Útsýnar
skilað ídag
Gjaldeyririnn, sem stolið
var frá Útsýn er köminn
aftur í leitirnar, og ætti að
komast í umferð eftir
daginn í dag. Haukur
Bjarnason, rannsóknarlög-
reglumaður, sem annazt
hefur rannsókn 20
viðurkenndra innbrota
Náttfara, sagði í viðtali við
DB í morgun, að gjald-
eyrinum yrði skilað í dag.
Hvort peningarnir verða af-
hentir forstjóra Útsýnar
beint eða afhending þeirra
til hans fer fram í Seðla-
bankanum var ekki alveg
ákveðið, en alla vega ættu
skil ú gjaldeyrinum til banka
að geta farið fram 1 dag.
Upphæðin er mjög nálægt
þeirri upphæð er forstjóri
Útsýnar gaf upp.
Ekkert nýtt hefur komið
fram til lausnar á óupp-
lýstum inn'brotum af sama
tagi eða svipuðu og þau er
Náttfari hefur viðurkennt.
—ASt.
Hjólmur hefði
getað bjargað
Umferðarslys varð í
Vestmannaeyjum á tíunda
timanum í fyrrakvöld. Piltur á
léttu vélhjóli varð fyrir bifreið
á mótum Kirkjuvegar og
Heiðarvegar. Hann var hjálm-
laus og kom það honum illa í
koll. Fékk hann allmikið
höfuðhögg, en er þó engan
veginn í lífshættu.
—ASt
Kindur falla
ó þjóðvegum
Nú gengur í garð sá tími er
slysum á sauðfé fjölgar. Haust-
dimman færist yfir og eykur á
slysahættuna. Tvö kvöld í röð
hefur gelfosslögreglan haft
atskipti af slíkum slysum og
drapst kind í báðum
tilfellunum.
Vill lögreglan vekja, athygli á
þessari vaxandi hættu sem
ökumönnum stafar af ágangi
sauðfjár í vegakanta. ASt
Af hassmólum:
Hillir undir
samgöngubót
í Kópavoginum
Langþrað samgöngubót fer
senn að verða að veruleika.
Lokið er smiði brúarinnar yfir
Kópavogslækinn og verið er að
vinna við nýja akbraut til
suðurs sem mun verða notuð
samhliða þeirri gömlu. Standa
vonir til að malbikun ljúki í
september eða byrjun október.
Þegar framkvæmdunum
lýkur mun nýja akbrautin ná
suður fyrir Arnarneshæðina og
verður vegurinn jafnframt
notaður sem tengivegur út á
Arnarnesið.
Bygging vegarins hófst í júlí-
mánuði pg mun kostnaðurinn
við þennan 1200 m vegakafla
frá brúnni yfir Kópavogslæk-
inn verða 75—80 millj. kr„ þar
af kostar bygging undir malbik
30 millj.
Myndirnar sýna þegar verið
var að fylla að nýju brúnni í
gær, og veginn til suðurs. DB-
myndir Sveinn Þormóðsson
A.Bj.
ENDASLEPP FLUG-
FERÐ HÁn UPPI
Einn þriggja pilta, sem um
hálftvöleytið í gær ætluðu með
Vængjum vestur á Suðureyri
við Súgandafjörð, átti lítinn
hassmola, 5-6 grömm, i vasa
sínum. Hann bauð félögum
sínum upp á reyk áður en
haldið var i loftið.
En einhver sá til og lét hass-
lögregluna vita. Þaðan komu
menn á staðinn þegar farþegar
voru komnir inn í vél, og vildu
fa að leita á piltunum og í
farangri þeirra.
Þremenningarnir neituðu,
farangur þeirra var tekinn út
úr vélinni og þeir fluttir til
vfirheyrslu á lögreglustöðinni.
Þar fannst hassmolinn á
einum þeirra og allir játuðu að
hafa neytt efnisins. Um kl. 17 í
gær gengu þeir út úr lögreglu-
stöðinni og málinu var lokið
með dómsátt. Eigandi molans
sættist á 15.000 króna sekt, en
félagar hans tveir, hlutu
áminningu, enda um fyrsta
brot að ræða og aðeins neyzlu.
„Sá, sem hafði efnið undir
höndum, veit ekki hvaðan það
emur, eða frá NN með öðrum
orðum." sagði Arnar
Guðmundsson, fulltrúi fíkni-
ci'nadómstólsins. í samtah við
DB um þetta atvik.,,Það er
cililt að kyng.ia því, en þætti
þessai a iidi a ei lokið,"
—ÓV
ísofjörður:
Hverjum skal tilkynna
bruna ef tir 1. sept.?
„Við sjáum fram á hreint
vandræðaástand 1. september
ef ekki finnst lausn á þessu
máli fyrir þann tíma,“ sagði
Bolli Kjartansson, bæjarstjóri á
isafirði, í samtali við frétta-
mann blaðsins í morgun urn al-
varlegt vandamál, sem blasir
við þar vestra.
Þannig hagar til um bruna-
útköll á isafirði, að undanfarna
þrjá áratugi eða svo hefur sim-
stöðin á staðnum annazt þau.
Fyrst í stað var hringt í hvern
og einn slökkviliðsmann í
áhugamannaliðinu — 50—60
manns — en eftir að sjálfvirk
símstöð var tekin í notkun 1969
er ýtt á fjóra hnappa í símstöð-
inni til að ræsa allt brunaliðið.
Bolli Kjart.insson sagði í
morgun að nú aefði Landssím-
inn sagt þessar þjónustu upp
frá og með 1. : eptember, þar
sem talsímakoni r vildu losná
undan þessari k vöð og auka-
álagi. „Málin stmda illa, því
hér er ekki só. arhringsvakt
nema á tveimur st- ðum, síman-
um og sjúkrahú: nu," sagði
Bolli í morgun.
„Starfsfólk úkrahúss-
ins getur ekki an zt þessa
þjónusui. þannig að ð höfum
leitað til stjórnvalda um sam-
ræmda lausn á málinu — því
þetta er ekki aðeins svona hér á
isafirði, heldur um allt land —
svo nauðsynlegt kann að vera
að setja um þetta heildarreglur.
Svo kann að fara, að það verði
að gera með löggjöf — og þá
dregst það að minnsta kosti þar
til þing kemur saman — ef ekki
er hægt að setja um það reglu-
gerð eða komast að samkomu-
lagi við Póst og síma. Það hefur
ekki tekizt til þessa. Staðan er
þvi erfið og illleysanleg," sagði
Bolli Kjartansson.
OV.