Dagblaðið - 23.08.1976, Side 2

Dagblaðið - 23.08.1976, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. ÁGUST 1976. Samskipti almennings og lögreglu G.G. skrifar: A undgnförnum mánuðum hafa fréttir af innlendum vett- vanni einkum snúizt um hin fjölmörgu og margþættu saka- mál er hérlendis hafa skotið upp kollinum síðastliðin ár. í þessu sambandi ber hvað hæst ranns’ókn Geirfinnsmálsins margumrædda, sem hvoru- tveggja hefur skotið fólki skelk í bringu og leitt það til umhugs- unar um að hér á landi eru glæpir ekki lengur sériðja öl- kærra „góðkunningja lögregl- unnar", heldur jafnframt skipulögð starfsemi hópa manna gegn ríflegri gróðavon. Það er ekki ætlunin hér að gera skil félagslegum orsökum og af- leiðingum þessarar stað- reyndar, hversu óhugnanleg sem tilvera slíkra glæpasamv taka er í okkar litla þjóðfélagi. Það sem ég vil gera að umræðu- efni í þessari grein er hið al- gera sambands- og upplýsinga- leysi milli opinberra aðila og almennings, er hvað bezt hefur komið í ljós undanfarnar vikur í tengslum við rannsókn Geir- finnsmálsins. Ilin hæga framvinda þessa máls hefur leitt til þess að for- svarsmenn rannsóknarlögregl- unnar hafa nú um skeið með öllu neitað að veita fjölmiðlum, og þar með almenningi, nokkra vitneskju um gang og fram- þróun rannsóknar Geirfinns- málsins. í Vísi þann 18. þessa mánaðar má lesa eftirfarandi viðtal við Örn HÖskuldsson full- trúa hjá Sakadómi undir fyrir- sögninni „KERFIÐ LOKAÐ". — „Er þetta Orn Höskulds- son?" „Já." — „Þetta er á dagblaðinu Vísi, gætuð þér gefið mér einhverjar upplýsingar um Geirfinnsmálið svonefnda?" „Nei". . Þar með lagði Örn Höskulds- son símlólið á er blaðamaður reyndi að afla upplýsinga hjá honum I gær. Það fer ekki hjá því að maður undrist slíka framkomu opin- bers starfsmanns og fordæmi þá vanvirðu sem hún sýnir al- menningi, er einungis á þess kost að fylgjast með rannsókn málsins gegnum fjölmiðlana. Sama dag og þessi frétt Afsláttarkort SVR eru einnig fvrir ðryrkja 4331-8594 hringdi: Mig langar að fá staðfest á opinberum vettvangi hjá Eiríki Ásgeirssyni forstjóra SVR hvaða reglur gildi um notkun afsláttarkorta. Ég er öryrki og hef fengið þessi afsláttarkort síðan þau voru fyrst afhent. Yfirleitt hef ég sótt þau upp á skrifstofurnar við Hlemm, en um daginn varð ég að fara inn á afgreiðsluna á Lækjartorgi til að fá miðana þar. Ég framvísaði örorkuskír- teini mínu en fékk þau svör hjá afgreiðslustúlkunni að ein- ungis 70 ára og eldri fengju- miðana. Ég hef vitni að því að hún sýndi alls enga kurteisi, nema síður væri, og tók ekki til greina orð min. Hver er skýringin á þessu?> Er starfsfólk SVR svona illa upplýst eða hafa reglurnar eitt- hvað breytzt? I)B bar þessar spurningar undir Eirík Ásgeirsson forstjóra SVR, og kvað hann þetta vera á einhverjum mis- skilningi byggt. Rétt til af- sláttarkortanna ættu allir 70 ára og eldri auk þeirra sem liafa 75% örorku eða meira. Geta þeir fengið þesísi kort á skrifstofum SVR gegn framvís- un tilskilinna gagna. Eiríkur kvað viðkomandi vel- komið að snúa sér til skrifstof- unnar og fá þar leiðréttingu mála sinna. Rétt tii afsláttarkorta eiga 70 ára og eldri auk þeirra sem hafa 75% örorku eða meira. birtist í Vísi handtekur svo rannsóknarlögreglan ljós- myndara Dagblaðsins fyrir meinta m.vndatöku á hinum skinhelga Karl Schiitz og færir blaðamann blaðsins i klukku- stundar stofufangelsi fyrir engar sakir aðrar en þær að hafa verið staddur í húsakvnn- um rannsóknarlögreglunnar þegar hin meinta myndataka átti sér stað. Slík vinnubrögð eru ekki ein- ungis sakhæf lögleysa, heldur lýsa þau jafnframt betur en flest annað því algera upp- lýsingale.vsi sem ríkir í sam- skiptum rannsóknarlögregl- unnar og fjölmiðla (og þar með almennings). Erlendis þykja góð samskipti og gagnkvæmt traust lögreglu og almennings undirstöðuatriði í framkvæmd löggæzlu og rann- sóknum sakamála. Má nefna að í Bretlandi höfðar lögreglan mjög til hjálpar almennings við lausn sakamála og fjölmiðlar þar í landi flytja jafnan nákvæmar fréttir af rannsókn- um sakamála, þar sem almenn- ingi eru veittar greinargóðar upplýsingar um framvindu rannsókna og fólk hvatt til að veita lögreglunni allar þær upplýsingar og aðstoð er leitt gæti til lausnar sakamála. Á þerinan hátt á almenningur ákaflega auðvelt með að fylgj- ast með framvindu lögreglu- rannsókna, þar eð fjölmiðlarnir hafa heimildir sfnar jafnan beint frá blaðafulltrúum lögreglunnar, sem gegna því starfi einu að veita sem gleggst- ar og áreiðanlegastar fréttir af starfi lögreglunnar. Með þessu móti skapast jafnframt ákveðið traust af hálfu almennings til lögreglunnar, þar eð tækni- þjálfun og starfshæfni rann- sóknarlögreglumanna er jafnan upp á það bezta sem um getur. Hérlendis virðist sá háttur hins vegar hafður á, að almenn- ingi er haldið I óvissu um eðli og rannsöknir sakamála eins lengi og auðið er, og rann- sóknarlögreglan kemur fram sem einskonar ríki í ríkinu, sem ekki ber skylda til aó láta I té neinar upplýsingar um starf- semi sína og starfsháttu. Koma þýzka glæpasérfræðingsins Karls Schiitz hingað til lands hefur leitt sannleiksgildi þessa í ljós svo ekki verður um villzt. Hann hefur starfað undir handarjaðri Arnar Höskulds- sonar (sem samkvæmt upp- lýsingum eins dagblaðsins á dögunum mun mæltur á þýzka tungu), og hvorki dagblöðun- um né fréttamönnum útvarps og sjónvarps hefur verið ieyft að ná af honum tali, og til- raunir til að ljósmynda sér- fræðinginn margrómaða leiða til handtöku og stofufangelsis- vistar, sem ekki á sér neina lagalega réttlætingu. Af þessu ætti að vera ljóst að brýna nauðsyn ber til að starf- semi og vinnubrögð rann- sóknarlögreglunnar séu endur- skoðuð og þau færð í það horf sem eðlilegt getur talizt. Al- menningur á heimtingu á að hann sé upplýstur um fram- vindu sakamálarannsókna, en verði ekki að mynda sér skoðanir og draga ályktanir af þeim mörgu og margvíslegu slúðursögum sem vanræksla rannsóknarlögreglunnar á greinargóðri upplýsingamiðlun hrindir af stað. Óskandi er að Örn Höskulds- son og kumpánar hans í rann- sóknarlögreglunni geri sér grein fyrir því að góð samskipti lögreglu og almennings séu undirstaða árangursrikrar lög- gæzlu, og ekki er að vita nema stórsnillingurinn Karl Schiitz geti þar bent þeim á sitt lítið af hverju sem betur mætti fara í starfsháttum rannsóknarlög- reglunnar. Ekki veitir af, ef stemma á stigu við þeirri þróun sem nú virðist eiga sér stað í íslenzkum afbrotamálum. KOMIÐ MUMMA AFTUR AÐ — tveir aðdáendur Mumma Meinhorns í öngum sínum Stórhöfði og kálhöfði skrifa: Okkur vinnufélagana dauðlangar til að komast að þvi hvernig stendur á fjarveru okkar ágæta vinar, Mumma Meinhorns, sem er langbezta myndasagan í blaðinu. Viljum við beina þeim tilmælum til hlutaðeigandi að kippa þessu í liðinn sem fyrst til að tryggja sáluhjálp margra aðdáenda hans. Við erum sammála bréfriturunum um ágæti Mumma Meinhorns og getum glatt þá félaga með því að myndasagan mun hefjast aftur í þessari viku. Birgðirnar þraut og eigum við von á nýjum sögum með honum í hraðbréfi frá Kaupmannahöfn núna einhvern daginn. Þvottur á snúrum er merki lifandi og starfandi f ólks I.A. skrifar: I blöðum er stundum amazt við þvotti sem hengdur er á snúrur á svölum fjölbýlishúsa. (Sjá m.a. grein í DB 4. ágúst sl ). Hann þykir vist til óprýði. En hvar eiga húsmæður að þurrka þvott sinn ef ekki þar? Önnur hlið á málinu er sú að mér finnst þvottur lífga upp á útlit hús, svona til að sjá. Væri hann ekki, þá væri allt útlit húsanna mun dauflegra. Þvottur á snúrum ber merki þess að þarna búi lifandi og starfandi fólk. Látum því húsmæðurnar í friði við að þurrka þvott sinn á sínum eigin svölum. Það ætti engan að angra, heldur hafa gagnstæð áhrif.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.