Dagblaðið - 23.08.1976, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. AGÚST 1976.
(i
27
Útvarp
Sjónvarp
Athyglisverð mynd um
Sjónvarp
kl. 22.00 í
kvöld:
undirbúning undir dauðann
Við dauðans dyr, nefnist
mjög athyglisverð bandarísk
fræðslumynd sem er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld kl. 22.
Þýðandi er Jón O. Edwald og
spurðum við hann um efni
myndarinnar.
,,Það mætti líkja þessari
mynd við fyrirlestur því
læknirinn, Elisabet Kiibler-
Ross, situr og ræðir vió
íhorfendur.
Hún segir frá reynslu sinni í
því að hjálpa sjúklingum á
banastundinni. Á starfsferli
sínum hefur hún rætt við 800
sjúklinga sem legið hafa fyrir
dauðanum og eru þaó mest
börn sem hún hefur rætt við.
Hún segir frá því sem fólk
óttast mest að hennar dómi
þegar dauðinn nálgast og
hvernig reynslan hefur kennt
henni að auðveldast sé að veita
fólki hjálp eða aóstoð á bana-
stundinni til þess að það geti
kvatt þennan heim með frið í
sálinni. Segir hún frá ýmsu sem
fyrir hefur komið og nefnir
nokkur dæmi til skýringar máli
sínu.
Elisabet Kúbler-Ross er
svissnesk en býr í Chicago. Hún
hóf ung störf sem Iæknir í
flóttamannabúðum í Evrópu. Á
undanförnum þrjátíu árum
hefur hún haldið námskeið og
fyrirlestra um þessi mál fyrir
hjúkrunarfólk, lækna og presta.
Myndin krefst þess að fólk
fylgist vel með henni, það þýðir
ekki að ætla sér að horfa á hana
á hlaupum,'1 sagði Jón O.
Edwald.
—A.Bj.
Nýi fréttamaðurinn á skjánum, Sigrún Stefánsdóttir. DB-mynd
B.jarnleifur.
Nýtt andlit
í f réttatíma
• 9
sionvarpsins
„Þetta er ljómandi
skemmtileg tilbreyting," sagði
Sigrún Stefánsdóttir sem
nýlega hóf störf sem frétta-
maður hjá sjónvarpinu.
Sigrún vrnr áður ritstjóri
íslendings á Akureyri, en er
íþróttakennari að mennt.
„Eg sótti um starf íþrótta-
fréttamanns en svo bauðst mér
almennt fréitamannastarf og
kaus ég það heldur."
— Ertu flutt með börn og
buru til höfuðstaðarins?
„Eiginmaðurinn kemur ekki
fyrr en eftir einn og hálfan
mánuð. Hann mun taka við
deildarstjórastöðu hjá Rauða
krossinum. Eg er með syni
mína tvo með ntér, þeir eru sex
ára og eins og hálfs árs.“
Eiginmaður Sigrúnar er
Björn Þórleifsson félagsmála-
stjóri Akureyrar.
— Varstu ekki dálítið tauga-
óstyrk fyrst þegar- þú komst
fram fyrir alþjóð á skjánum?
„Blessuð vertu. ég er enn
svolítið taugaóstyrk en það
lagast vonandi þégar frá líður,“
sagði Sigrún Stefánsdóttir
fréttamaður hjá sjónvarpinu.
—A.Bj
Mánudagur
23. ágúst
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: ,,Blómið blóörauða"
eftir Johannes Linnankoski. Axel Thor-
steinson og Guómundur Guðmunds-
son íslenzkuðu. Axel Thorsteinson les
(15).
15.00 Miðdegistónleikar. Ingrid Haebler
leikur Píanósónötu í E-dúr (D459)
eftirSchubert. Christoph Eschenbach.
Eduard Drolo og Gerd Seifert leika
Tríó í Es-dúr fyrir píanó, fiðlu og horn
op. 40 eftir Brahms.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Tónleikar.
17.30 Sagan: „Sumardvöl í Grænufjöllum"
eftir Stefán Júlíusson. Sigríður Eyþórs-
dóttir les (5).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurf regnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson
flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn. Sigurður
Lárusson bóndi á Gilsá í Breiðdal
talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 Dulskynjanir IV. Ævar R. Kvaran
flytur erindi sitt: Sálfarir.
21.15 Samleikur: Hlíf Sigurjónsdóttir og
lck Chou Moon leika Sónötu í A-dúr
fyrir fiðlu og píanó eftir César
Franck.
21.30 Útvarpssagan: „Stúlkan úr Svarta-
skógi" eftir Guömund Frímann. Gísli
Halldórsson leikari les (15).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaöarþáttur.
Baldur Gestsson bóndi Ormsstöðum I
Dalasýslu segir frá í viðtali við Gísla
Kristjánsson.
22.35 Norskar vísur og vísnapopp. Þor-
valdur örn Árnason kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
1
Sjónvarp
Mánudagur
23. ágúst
20.00 Fróttirog veöur.
20.30 Auglýsingar og dagsk rá.
20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
21.10 Hvemig brygðist þú viö? Breskt
sjónvarpsleikrit eftir Charles
Humphries. Aðalhlutverk Ian
McShane og Helen Cotterill. Derek
West hefur verið kvæntur í mörg ár,
á 2 dætur og lifir hamingjusömu
fjölskyldulífi. Hann fer í söluferð til
æskustöðvanna. og þar kemst hann að
því, að hann á þriðju dótturina.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.00 Við dauöans dyr. I þessari
bandarísku fræðslumynd er rætt við
kunnan lækni. Elisabetu Kubler
Ross. Að lokinni heimsst.vrjöldinni síð
ari fór hún til starfa í fangabúðum og
síðan hefur hún einkum unnið að þvi
að létta fólki síðustu stundirnar á
banabeói. Læknirinn skýrir viðhorf
sín til'þessara alvörumála i ljósi sér-
stæðrar lífsreynslu. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.55 Dagskrárlok.
Lisa Burnell, Helen Cotterill og lan McShane í hlutverkum
sínum í brezka sjónvarpsleikritinu sem sýnt verður í kvöid.
Sjónvarp kl. 21.10:
Hvernig brygðist þú við?
Feilsporin
í sjónvarpinu í kvöld kl.
21.10 veröur sýnt brezkl
sjónvarpsleikrit eftir Charles
Humphris. Nefnist þaö Hvernig
brygöist þú viö? Fjallar það um
sölumann, Derek West að
nafni. Hann hefur verið
kvæntur í mörg ár og hefur
íœsku
búið við hamingjusamt fjöl-
skyldulíf með konu sinni og
tveim dætrum. Hann fer í
söluferð til æskustöðva sinna
og kemst þar að því að hann á
ekki bara tvær dætur, heldur
þá þriðju. Þýðandi er Dóra
Hafsteinsdóttir. —KL
FRIMERKJASAFNARAR
Sérstimpill Reykjavíkurskák-
mótsins á sérútgefnum umslögum
með merki mótsins og einnig meö
teiknuðum myndum af íslenzku
keppendunum eftir Halldór
Pétursson.
Umslögin verða til sölu á keppnis-
stað í Hagaskóla, opnað verður kl.
2 þann 24. ágúst, upplag mjög
takmarkað.
REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ
/ Taflfélag Reykjavíkur