Dagblaðið - 10.09.1976, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976.
13
!í!t7TíTH
mzmrwB
iJ J'f L
■ Ondrus, Viktor, Dobias, Capkovic, Masny, Moder, Svehilik, Pavarnik, Peneka,
Jurkenin kom inn á sem varamadur.
iAR ÞRENNT
UM UÐUM!
sppni KSÍ á sunnudag á Laugardalsvelli.
Iljóta Valsmenn sinn þriðja bikarsigur?
og Akraness i keppninni.
deildar Vals, að félagið hefur aldrei
átt stærri eða tryggari áhorfendahóp
en einmitt nú, og Gunnar Sigurðsson,
formaður Knattspyrnudeildar ÍA,
sagði, að ekki þyrfti að smala á Akra-
nesi fyrir úrslitaleikinn. Þar væri
gífurlegur áhugi á leiknum. Það má
því búast við miklum fjölda áhorf-
enda á leikinn á sunnudag — leik
þessara tveggja skemmtilegu liða.
Urslitaleikur bikarsins skipar nú
mikinn virðingarsess í íslenzkri
knattspyrnu. Er ekki lengur horn-
reka eins og áður lengi vel, þegar
úrslitaleikir voru jafnvel háðir í des-
ember.
Valsmenn stefna nú bæði að sigri í
deild og bikár og hafa sýnt mikil
tilþrif oft á tíðum í sumar. En það
virðist erfitt að ná þeim áfanga. Það
hefur aðeins tvívegis skeð áður — KR
sigraði tvöfalt árin 1961 og 1963. Tvö
siðustu árin hafa Akurnesingar
stefnt að þessu marki — en fallið á
síðustu hindruninni. Urslitaleiknum í
bikarnum, en Islandsmeistarar urðu
þeir bæði 1974 og 1975.
— Ég veit hvað það er erfitt aó
sigra tvöfalt, sagði Gunnar Sigurðs-
son. Það höfum við Akurnesingar
fengið að reyna. En nú kómum við
miklu betur undirbúnir til leiks, en
til dæmis í fyrra í úrslitin gegn Kefla-
vík. Þá voru sjö leikmenn okkar ný-
komnir heirn eftir mikla landsleikja-
för íslenzka landsliðsins í Frakklandi,
Belgíu og Sovétríkjunum. Nú höfum
við hins vegar getað einbeitt okkur að
þessum leik með alla okkar leikmenn.
Við Valsmenn höfum einnig undir-
búið okkur vel og stefnum auðvitað
að sigri, sagði Pétur Sveinbjarnarson.
Sextán leikmenn, sem æft-hafa sam-
an að undanförnu, og reyndar í allt
sumar, hafa verið boðaðir til leiksins
— en þjálfari okkar mun ekki endan-
lega ákveða fyrr en klukkustund
fyrir leik hvaða 11 leikmenn hefja
leikinn fyrir Val.
Það var heldur ekki hægt að fá upp
liðsskipan Akurnesinga í gær. Lið
þeirra verður einnig endanlega valið
rétt áður en leikurinn hefst. Þetta
verður 17. úrslitaleikurinn í bikar-
keppninni. KR hefur oftast borið
sigur úr býtum eða sjö sinnum — og
þar af fimm sinnum í röð fyrstu fimm
árin. Fram, Valur og Vestmannaeyjar
hafa tvívegis sigrað, Akureyri, Kefla-
vík og Víkingur einu sinni.
Valur hefur þrívegis leikið til úr-
slifa í keppninni áður og tvívegis
sigrað. Urslitaleikir Vals:
1965 — ValurilA 5-3
1966 — KR:Valur 1-0
1974 — Valur:lA 4-1
Akurnesingar hafa sjö sinnum
áður leikið til úrslita og hreint furðu-
legt. Þeir hafa aldrei sigrað í keppn-
inni. Urslitaleikir Akurnesinga:
1961 — KR:ÍA 4-3
1963 —KR:lA 1-0
1964 —KR:ÍA 4-3
1965 — Valur:lA 5-3
1969 —ÍBA:IA 3-2
1974 — Valur — tA 4-1
1975 —ÍBK:ÍA 1-0
Arið 1969 gerðu Akurnesingar
fyrst jafntefli við Akureyringa, en
töpuðu svo síðari úrslitaleiknum.
Eins og áður segir hefst úrslitaleikur-
inn kl. tvö á sunnudag og mun lúðra-
sveit leika fyrir leik og í leikhléi.
Chrysler-open
í Groforholti
A laugardag fer fram golfkeppni
á Grafarholtsvellinum fvrir þá
sem hafa forgjöf 14 og hærri.
Keppnin nefnist Chrysler-openog
verður ræst út frá kl. 10 til 13.30.
ísland ívið sterk-
ara á góðum degi!
Tveir landsleikir við Sviss í handknattleik i nœstu viku. Annar
á Akranesi á þriðjudag. Hinn í Laugardalshöll á fimmtudag.
Það hefur verið mikið jafnræði
með íslendingum og Svisslend-
ingum í þeim tveimur lands-
leikjum, sem þjóðirnar hafa
leikið áður. Ég held þó að
íslenzka landsliðið sé sterkara,
þegar okkur tekst vel upp, sagði
Birgir Björnsson, formaður
íslenzku landsliðsnefndarinnar í
handknattleik í gær. A þriðjudag
og fimmtudag í næstu viku verða
tveir landsleikir miili íslands og
Sviss.
Hinn fyrri verður í íþrótta-
húsinu á Akranesi á þriðjudag og
hefst kl. 20.30 — en hinn síðari í
Laugardalshöllinni á fimmtudag
og hefst á sama tíma. Óvenju
snemma er farið af staó nú með
verkefni landsliðsins, því mikið
Howard til
Arsenal!
Arsenal keypti í gær Pat
Howard frá Newcastle fyrir 50
þúsund pund. Howard fór
fram á sölu og bitust tvö
lið um hann, Southampton og
Arsenal. Howard valdi síðan
Arsenal í gær og Terry Neill,
framkvæmdastjóri Arsenal gekk
þegar frá sölunni.
Þessi kaup Arsenal koma
talsvert á óvart því Pat Howard
hefur aldrei þótt mjög sterkur
leikmaður með Newcastle, sem
alltaf hefur haft fremur slaka
vörn. Howard lék miðvörð hjá
Newcastle. Howard er annar leik-
maðurinn sem Terry Neill
kaupir. Aður hafði hann keypt
Malcolm MacDonald einnig frá
Newcastle.
stendur til í vetur, þar sem
hápunkturinn verður B-keppnin í
heimsmeistarakeppninni. Hún
verður í Vínarborg um mánaða-
mótinfebrúar-marz á næsta ári.
Svisslendingar eru nú á
keppnisferðalagi um Norðurlönd
og óskuðu eindregið eftir því að
fá að heimsækja ísland og leika
hér tvo landsleiki. Island hefur
aðeins tvívegis leikið við Sviss.
Fyrra skiptið var á HM í Þýzka-
landi 1961 og var sá leikur ákaf-
lega þýöingarmikill fyrir bæði
löndin. Eftir mikla baráttu
sigraði ísland 14—12, þrátt fyrir,
að Sviss var þremur mörkum yfir
í leikhléi. Island komst því áfram
í keppninni — Svisslendingar
sátu eftir með sárt ennið. I úr-
slitunum átti íslenzka liðið svo
enn eftir að koma á óvart. Annar
landsleikur þjóðanna, var svo í
Sviss fyrir tveimur árum. Það var
i fjögurra-landa-móti og lauk leik
Islands og Sviss þá með jafntefli
21—21. Svisslendingar leika
hraðan og léttan handknattleik og
verða með nær sama lið í lands-
leikjunum hér og lék við ísland í
Sviss fyrir tveimur árum. Nýlega
léku þeir við Ungverjaland og
töpuðu naumt — aðeins með einu
marki 15—16 og gefur það til
kynna, að lió Sviss sé allsterkt nú.
Tveir Svíar munu dæma lands-
leikina — Krister Broman og Ake
Lofvenius.
Lið tslands fyrir þessa tvo leiki
verður skipað eftirtöldum leik-
mönnum:
Markverðir:
Birgir Finnbogason, F.H.
Guðjón Erlendsson, Fram.
Jens Einarsson I.R
Aðrir:
Viðar Símonarsson, F.H.
Geir Hallsteinsson F.H.
•Þórarinn Ragnarsson F.H.
Árni Indriðason Gróttu.
Þorbjörn Guðmundsson, Val.
Bjarni Guðmundsson Val.
Ágúst Svavarsson I.R.
Viggó Sigurðsson Viking.
Björgvin Björgvinsson Víking.
Olafur Einarsson Víking.
Magnús Guðmundsson Víking.
Þorbergur Aðalsteinsson Víking.
Handknattleiksmenn
leika golf í dag
Handknattleiksmenn munu i
dag leika á golfveili Ness og hefst
keppnin kl. 3. Ekki er að efa að
þar verður margt kunnra kappa
úr handknattleiksheiminum, en
nánari upplýsingar veitir Karl
Jóhannsson.
Ollerupflokkurinn
heldur sýningar
Næstkomandi sunnudag á að
vígja íþróttahús Vestmannaeyja.
1 vígslunni taka þátt leikfimi-
flokkar kvenna og karla frá
íþróttaskólanum í Oilerup i Dan-
mörku. Flokkar skólans eru
heimskunnir fyrir sýningar
sýnar. Síðast dvöldu þeir í Japan
og sýndu þar og hlutu mikið lof.
Þessir flokkar verða í Vestmanna-
eyjum og svo sýna þeir hér í
Reykjavík mánudaginn 13. sept. í
íþróttahúsi Hagaskólans.
Heimsækja síðan Akureyri og
sýna þar í íþróttaskemmunni
miðvikudaginn 15. sept. Aður en
flokkurinn heldur utan hefur
hann kveðjusýningu í Laugar-
dalshöllinni föstudaginn 17. sept.
Tvívegis áður hafa flokkar
skólans sýnt hér og komust þá
færri en vildu tii þess að sjá
sýningarnar.
Þróttarar knýja dyra hjó nógrönnunum:
T reysta á samhenta
íbúa Þróttarhverfis
— og nú á að reisa glœsilegt félagsheimili sem allra fyrst
„Við viljum sýna í verki að
meðal ibúanna í Þróttarhverfinu
ríkir samstaða. Það er alkunna að
sjóðir þeir sem styrkja byggingar
iþróttamannvirkja fullnægja
ekki því álagi sem á þá er. Við
ætlum að freista þess að byggja
sjálf að eins miklu leyti og unnt
er,“ sagði Magnús Óskarsson, for-
maður Þróttar í gær. Þróttarar
eiga fyrir höndum annasama
helgi.
Þeir eru að byrja að kanna
styrktarmannakerfi sitt og í því
skyni þurfa þeir að hringja í 3400
símanúmer íbúa hverfisins. Búið
er að senda út bréf frá félaginu
þar sem sagt er frá því sem á
döfinni er hjá félaginu. Það er
bygging á félagsheimili, en félags-
leg aðstaða er í algjöru lágmarki
í hverfinu. Ætti félagsheimili
Þróttar að bæta úr brýnni
nauðsyn i þessu efni.
Magnús kvað það vera ætlunina
aó styrktarmenn greiddu 500
krónur mánaðarlega næstu 2 árin
til heimilisins. Sú upphæð er
reyndar ekki há, andvirði tveggja
sígarettupakka eða svo, en nógu
há til þess að verði styrktar-
aðilarnir nógu margir, má búast
við að félagsheimili verði risið
áður en langur tími er liðinn.
„Við gerum okkur góðar vonir
um góðan árangur,“ sagði
Magnús. „Við höfum reyndar
þegar fengið stuðning margra og
vitum að fólki í hverfinu líkar vel
það starf sem félagið hefur unnið
með hinu unga fólki í hverfinu.“
-JBP-
' Míra sagði mér að opna það ckki l\ rr rn í>£>
vseri koniinn til Evrópn. . . En ég ,-rþar
raunvcrulega tiúna
Já, á lciö minni til Spánar.
Vcri) tvo daga í Part's. Hvers
vcgna spyrðu?