Dagblaðið - 10.09.1976, Side 24
---- V
Nýstárlegur aukasamningur við Sigöldu:
30% aukagreiðsla fyrir
sérstakt áhlaupaverk
Smiðir ganga þá í steypuvinnu með verkamönnum og verkamenn smíða
1 gær náðust samningar milli
Engergoprojckt, verktakans við
Sigölduvirkjun, og fulltrúa 120
verka- og iðnaðarmanna um
nokkuð sjaldgæfa ákvæðis-
vinnu við ákveðinn hluta af því
verki sem ólokið er við Sigöldu.
Eru það 120 verka- og iðnaðar-
menn sem sameiginlega taka að
sér að setja steypulag á jarð-
vegsfyllingu í enda aðrennslis-
skurðarins við stöðvarhúsið.
Verk þetta er mjög nauðsyn-
legl að vinna áður en verulegt
frost verður i jörðu. Skiptir það
reyndar sköpum varðandi það
hvenær verður hægt að taka
virkjunina í notkun, hvernig til
tekst með þetta verk.
Verka- og iðnaðarmennirnir
sem hér um ræðir myndu að
launum fá venjulega kauptaxta
sína. En takist hópnum að ljúka
verkinu fyrir 4. október fá þeir
greidda 30% uppbót á launin.
Takist þeim að ljúka verkinu
fyrr fá þeir enn meiri uppbót,
en dragist verkið fram yfir 4.
október minnkar 30% uppbótin
dag frá degi. 1 samningsdrögun-
um eru ákvæði um að hamli
veður vinnu eða vinna sé
óframkvæmanleg af öðrum
orsökum lengist fresturinn til
að ljúka verkinu án þess að
uppbót tapist.
Á samningafundinum i fyrri-
nótt töldu fulltrúar vinnuhóps-
ins að tíminn til verksins væri
naumur, en Júgóslavarnir sem
samninginn vilja gera við 120
— menningana telja tímann
rúman.
í gær átti að greiða atkvæði
fyrir austan um, hvort til-
boðinu yrði tekið eða ekki. Ef
af verður er hér um nýstár-
legan samning að ræða. Þá
munu smiðir ganga í steypu-
vinnu með verkamönnum og
viðteknar vinnuskiptingarregl-
ur riðlast, því það yrði sam-
eiginlegt áhugamál hópsins að
ljúka verki sem fyrst. Það
þýddi ótaldar krónur aukalega i
budduna. —ASt.
Of óður til
að fara ó
slysadeild
Til allmikilla óláta kom
við veitingahúsið Klúbbinn í
gærkvöldi nokkru fyrir mið-
nætti. Ungur maður gekk
þar berserksgang og varð
ekki róaður fyrr en lögreglu-
menn handtóku hann. Hafði
hann þá hlotið meiðsli í and-
liti, sennilega nefbrotinn.
Svo iila lét náunginn að róa
varð hann á lögreglustöðinni
áður en hægt var að fara
með hann í slysadeild til
skoðunar.
—ASt.
Laugarásbió:
Eldur i
rafmagns-
töflu
Laust eftir að sýningum i
Laugarásbíó lauk i gær-
kveldi kom upp eldur í
rafmagnstöflu. Brunnið
hafði utan af leiðslu
einhvers staðar og leitt út.
Þegar slökkviliðið kom á
vettvang var töluverður
reykur í anddyri biósins,
enda var rafmagnstafian
staðsett þar.
Fljótlega tókst að ráða
niðurlögum eldsins og ekk-
ert brann utan þess að raf-
magnstaflan eyðilagðist.
Að sögn slökkviliðsmanna
urðu litlar skemmdir, nema
ef eitthvað hefur skemmst
af reyk.
-BÁ.
Hjólhýsið fór ekki langt upp á eigin spýtur og stöðvaðist fljótlega í þýfinu skammt utan Reykjanes
brautarinnar, þegar tengiarmurinn stakkst í jarðveginn.
Hjólhýsið beygði 40 metra út í móa
„Afleiðingar hefðu getað orðið
hroðalegar, ef hjólhýsið hefði
losnað aftan úr jeppanum á
höfuðborgarsvæðinu í allri um-
ferðinni,11 sagði óheppinn vegfar-
andi þar sem hann stóð við hiól-
hýsi sitt um 40 metra utan vegar á
Vatnsleysustrandarheiði, skammt
innan Voga-afleggjarans, — ég
var að koma austan af Þingvöllum
og vissi ekki fyrri til en ég sá í
baksýnisspeglinum, að hjólhýsið
K
„Ryðgað í sárið," sagði öku-
maðurinn og hjólhýsiseigand-
inn, um leið og hann skoðaði
brotinn boltann, sem veitti
hjólhýsinu full mikið „frelsi".
fjarlægðist bílinn og beygði síóan
út af veginum hægra megin,
undan hliðarvindinum."
Við athugun kom í ljós að bolti
sem gengur i gegnum festingu á
bifreiðinni og auga á dráttararmi
hjólhýsisins hafði brotnað.
„Gamalt brot,“ sagði ökumaður-
inn um leið og hann skoðaði
ryðgað sárið.
Lán í óláni var þó að slys skyldi
ekki hljótast af óhappinu og hjól-
hýsið skemmdist aðeins lítils-
háttar. Hins vegar sýnir þetta at-
vik, að aldrei er of vel að slíkum
festingum gáð.
— emm
Stœrsta málverk
á Seltjarnarnesi
Stærsta málverk í Reykja-
vík var fyrirsögn á grein á
baksiðu DB í gær. Þarna er
auðvitað um mikinn mis-
skilning að ræða, að sjálf-
sögðu er þetta stærsta mál-
verkið á Seltjarnarnesi og
þó víðar væri leitað. Við
biðjum listakonuna og aðra
Seltirninga velvirðingar á
þessum mistökum.
— KP.
ASÍ BLANDAR SÉR í
MJÓLKURSÖLUMÁLIN
Loforð ráðherrans svikin?
NEFNDIN SKIPUÐ EN
EKKI KÖLLUÐ SAMAN
ASÍ mótmœlir hœkkun landbúnaðarvara
Miðstjórn ASI fjallaði í gær
m.a. um deiluna um mjólkursölu-
málin. i ályktun um málið segir
miðstjórnin að hún hafi þegar á
s.l. vetri fastlega varað við
afleiðingum breytinganna bæði
frá atvinnusjónarmiðum
afgreiðslustúlkna og einnig við
því að breytingarnar munu leiða
til lakari þjónustu við neytendur
og að öllum likindum hærra
mjólkurverðs.
Í ályktun sinni í gær lýsir ASÍ
fyllstu samstöðu með baráttu
Á.S.B. fyrir hagsmunum og rétti
félagskvenna þess, svo og með
starfi áhugahóps neytenda sem
staðið hefur að undirskriftasöfp-
un i mótmælaskyni við breyting-
una. Ennfremur ályktar stjórn
ASÍ:
1. Að beina þeirri ósk til verka-
lýðsfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
að þau láti málið til sín taka með
álvktununum og stuðningi við
ASB.
2. Að bjóða fram aðstoð til að
tryggja afkomu félagskvenna i
ASB og hagsmuni neytenda.
Býðst ASÍ til að tilnefna fulltrúa í
hugsanlegum viðræðum við rétta
aðila um viðunandi lausn fyrir
ASB og nevtendur.
—A.St.
„Miðstjórn ASl mótmælir harð-
lega þeim búvöruverðhækkunum
sem 6 manna nefnd hefur nú
ákveðið. Þessar miklu h?ekkanir
sýna, svo ekki verður um viilzt,að
endurskoðun kerfisins er nauð-
synleg", segir t ályktun miðstjórn-
ar ASl sem gerð var í gær.
Síðan vekur miðstjórn ASÍ
athygli á því að verulegur hluti
hækkananna nú á rætur að rekja
til endurskoðunar á verðlags-
grundvellinum, án þess að sú
endurskoðun sé studd itarlegri
könnun á raunverulegri þörf.
ASÍ minnir á að nefnd til
endurskoðunar á verðlagskerfi
landbúnaðarafurða o.fl. sem land-
búnaðarráðherra skipaði s.l. vor,
eftir ítrekuð loforð til aðila vinnu-
markaðarins, hefur enn ekki
verið kölluð saman.
—A.St.
fijálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER
Matvœlaiðjan
á Bildudal:
Útvegs-
bankinn vildi
kaupa en
SÍS neitaði
„Fyrsta uppboð var haldið
28. júlí og þá bauð Utvegs-
bankinn 4 milljónir í húseign-
ina, eignalóð og tilheyrandi
vélar. SÍS neitaði hins vegar
að samþykkja að þessu tilboði
yrði tekið,“ sagði Jóhannes
Árnason sýslumaður Barð-
strendinga er hann var inntur
eftir öðru uppboðinu sem
haldið verður á eignum Mat-
vælaiðjunnar á Bíldudal.
Jóhannes sagði að gefizt
hefði verið upp við rekstur
verksmiðjunnar fyrir rúmlega
einu ári síðan. Uppboðs hefði
síðan verið krafizt í marz.
Áhvílandi veðskuldir sam-
kvæmt veðbókarvottorði eru á
bilinu 14—15 milljónir.
Jóhannes sagði að nú færi
fram annað uppboð þann 15.
september en ekki er heimilt
að halda fleiri uppboð.
Þegar hafa verið seldir tveir
bátar á uppboði sem Matvæla-
iðjan átti. Aðaleigendur Mat-
vælaiðjunnar eru ekki Bíld-
dælingar og Jóhannes lagði
áherzlu á að fyrirtækið hefði
ekki spilað neitt inn í atvinnu-
mál á Bíldudal í heilt ár,
þannig að hér væri ekki um
neitt áfall að ræða fyrir af-
komu fólksins.
—BÁ
Energoproject
og Lands-
virkjun reyna
að finna
samkomu-
lagsleið
„Við komum til með að
reyna að ná samkomulagi okk-
ar á milli áður en leitað verður
til dómstólanna," sagði Rögn-
valdur Þorláksson verk-
fræðingur hjá Landsvirkjun.
Skaðabótakröfur Ener-
goprjoject, júgóslavneska fyr-
irtækisins sem séð hefur um
mannvirkjagerð við ' Sigöldu,
hafa vakið mikla athygli.
Júgóslavarnir heimta bætur
vegna þess aö útboðslýsing
hafi ekki verið sem skyldi.
Aðalástæðan fyrir skaðabóta-
kröfum þeirra er vatnsrennsli
í stöðvarhúsið sem hefur tafið
framkvæmdir um nokkrar
vikur.
Rögnvaldur sagði að reynt
yrði að semja í september og
október við forsvarsmenn
Energoproject. Ef ekki næðist
samkomulag fyrir lok október
yrði málið lagt fyrir
gerðardóm.
Viðræður eru þegar hafnar
á milli þessara aðila en lítill
árangur hefur enn náðst.
-BÁ-