Dagblaðið - 14.09.1976, Page 13
_ DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1976.
þróttir
13
óttir
13
ga við Slovan í kvöld?
nó toppleik
að nóst!
gegn Real Madrid, sagði Jón Pétursson
) vitum ákaflega ntio.
ð vitum þó svolítið um tékk-
ska landsliðið og leikaðferð
ss og það lilýtur að leika
ipaða knattspyrnu og Slovan
gna hins mikla fjölda lands-
smanna Slovan.
Er við lékum við Real Madrid
cst okkur mjög vel upp og
ðum að sýna ágætan leik eftir
fitt keppnistímabil þar sem við
iðum í fallbaráttu. Síðan þá
fur gæfan verið okkur hliðholl
undanfarin tvö ár höfum við
iðið í baráttunni um íslands-
nstaratitilinn.
Okkur hefur að vísu ekki tekizt
vinna þann eftirsótta titil, til
ss hefur vantað herzlumuninn.
, að veldur er erfitt að segja en
5 töpuðum tveimur af' fjórum
rstu leikjum okkar í 1. deild í
mar og það varð okkur dýr-
vpt því eftir það þurftum við að
a Val.
Skýring á töpum í upphafi var.
toppleikmenn liðsins náðu sér
ki vel á strik. En liðið óx eftir
í sem á sumarið leið þó ekki
fi okkur tekizt að knýja fram
;ur í siðari leik okkar við Val.
i svona er knattspyrnan, það er
: skammt á milli velgengni og
ira.
En nú er Evrópukeppnin
;st á dagskra hjá okkur. Það er
kert vafamál. að Evrópu-
ppnin veitir þeim leikmönnum,
ekki standa í landsliði íslands
hljóta því fáa möguleika. dýr-
eta re.vnslu á að leika gegn
im beztu. Þetta er mikil upp-
un. Ég man bara þegar ég var
byrja í þessu. Það var stórkost-
legt að fá að leika i Evrópu-
keppni.
Ég hef verið svo lánsamur að
eiga sæti í landsliði og þvi hefur
mér veitzt tækifæri til að leika
fleiri leiki gegn beztu liðum
Evrópu. Þetta hefur hjálpað mér
mjög mikið, hjálpað mér að verða
betri leikmaður.
Þó verð ég áð segja alveg eins
og er — ástand Laugardalsvallar
er skuggi á er við leikum gegn
beztu landsliðum og félagsliðum
Evrópu. Það er ákaflega leiðin-
legt að þurfa að bjóða upp á hálf-
ónýtan völl. Það hefur stundum
verið sagt að það komi íslenzkum
knattspyrnumönnum til góða að
leika við slíkar aðstæður. Slíkt er
mikill misskilningur. ísland hef-
ur náð mörgum af sínum beztu'
landsleikjum einmitt á beztu leik'-
völlum Evrópu.
Nei, ástand Laugardals-
vallarins er ákaflega bagalegt.
Það heftir eðlilega framrás knatt-
spyrnu á tslandi. Leikmenn ná
alls ekki að sýna eðlilegar fram-
farir þegar ástandið er eins og
raun ber vitni.
Nú er nýbúið að gera miklar
lagfæringar á leikvellinum i-
Laugardal en eftir örfáa leiki er
völlurinn í sama farinu og á
síðasta ári. Sjálfsagt verður
völlurinn bannaður af FIFA á
næsta ári. Háðulegt, því miður.
Kópavogsmenn hafa sýnt
okkur, að hægt er að búa til góðan
völl á íslandi, aðeins ef rétt er að
málum staðið. Það hefur sýnilega
ekki verið gert í Laugardal.
RisarSviss
gegn íslandi
— Fyrri landsleikur íslands og Sviss i
handknattleik verður i kvöld
Það hefur tekizt mjög góð sam-
vinna milli Handknattleikssam-
banda og forráðamanna nýja
íþróttahússins á Akranesi — og
árangurinn er meðal annars sá,
að þar fer fram iandsleikur i
kvöld. Fyrsti landsleikur karla,
sem háður er í íþróttabænum
mikla, Akranesi, sagði Axel
Sigurðsson, þegar blaðið ræddi
við hann í morgun. Það er lands-
lið Sviss í handknattleiknum, sem
komið er í heimsókn — lið, sem
er i svipuðum gæöaflokki og ís-
lenzka landsliöið. Leikurinn í
kvöld á Akranesi ætti því að geta
orðið tvísýnn og jafn.
Það má segja, að i ár sé óvenju
snemma farið af stað með verk-
efni landsliðsins, enda mikið
framundan á handknattleiks-
sviðinu í vetur. Svisslendingar
hafa verið á ferðalari um Norður-
lönd og óskuðu eftir því, að fá að
heimsækja ísland og leika hér
landsleiki. Stjórn HSI varð þegar
við þeirri ósk — og landsleikirnir
tveir eru þvi framundan. Á Akra-
nesi í kvöld og hefst leikurinn kl.
20.30 og svo í Laugardalshöll á
fimmtudag.
Miðað við fjölda landsleikja
okkar við hinar ýmsu þjóðir má
segja, að tími sé kontinn til frek-
ari samskipta milli Sviss og Is-
lands. Frá upphafi landsleikja-
sögu íslands hefur aðeins tvíVegis
verið Ieikið við Sviss. Fyrri leik-
urinn var í heimsmeistarakeppn-
inni í Vestur-Þýzkalandi 1961 og
var afar þýðingarmikill fyrir
bæði löndin. Hann skar úr um
hvort landið kæmizt í úrslit
heimsmeistarakeppninnar. Sá
sigraði mátti halda heim með sárt
ennið. Leikurinn var ákaflega
spennandi en lengi vel leit út
fyrir sigur Sviss. í hálfleik var
Sviss með þriggja marka forustu,
en kapparnir kunnu, Birgir
Björnsson, Gunnlaugur Hjálmars-
son, sem eru meðal þeirra, sem
séð hafa um undirbúning íslenzka
landsliðsins í sumar, Ragnar Jóns-
son, Karl Jóhannsson og allir
hinir, snéru við blaðinu í síðari
hálfleik. Tókst að vinna upp
þriggja marka muninn og gott
betur. Island sigraði með 14-12. I
úrslitakeppninni stóð ísland sig
svo með hinum mesta sóma.
Síðari landsleikur íslands og
Sviss var fyrir tveimur árum í
Sviss, þegar íslenzka landsliðið
tók þar þátt í fjögurra landa móti.
Það var spennandi leikur eins og
sá fyrri og lauk með jafntefli 21-
21, en í þessari keppni gerði ís-
lenzka liðið sér lítið fyrir og
sigraði Vestur-Þýzkaland. Fyrsti
landsliðssigurinn gegn Vestur-
Þjóðverjum.
Svisslendingar hafa orð á sér
fyrir léttan og skemmtilegan
handknattleik og þó þeir séu ekki
meðal fremstu þjóða í dag hafa
þeir oft komið verulega á óvart.
Bezti árangur þeirra í ár er naumt
tap gegn Ungverjum 15-16. Þá
hafa þeir unnið Austurríkismenn
í ár með 18-13.
Flestir svissnesku landsliðs-
mannanna nú eru stórir og stæði-
legir menn —helmingur lands-
liðsmannanna, sem hingað er
kominn til landsleikjanna er 1.88
m á hæð eða meir. Sá hæsti er
1.95 m. Flestir hafa mikla reynslu
í landsleikjum — og svissneska
liðið er næstum eins skipað og
það, sem gerði jafntefli við ísland
fyrir tveimur árum. í liðinu leika
eftirtaldir menn (landsleikja-
fjöldi innan sviga)
Markverðir:
Nr. 1 Urs Zeier (29)
— 12. Daniel Eckmann (45)
— 15. Edi Wickli (22)
Aðrir leikmenn:
Nr. 2 Ernst Zullig (56)
— 3. Hansruedi Hottiger (5)
— 5 Max Schar (3)
— 6 Peter Maag (10)
— 7 Konrad Affolter (32)
— 8 Robert Jehle (3)
— 9Hans Huber (29)
— 10. Jurg Huber (22)
— 11 Urs Graber (18)
— 13 Hansjöng Böni (8)
— 14 Ger. Staudenmann (6).
íslenzka landsliðið æfði og lék
við Víking í íþróttahúsi KR í gær-
kvöld — en síðan var fundur að
Hótel Esju og þar mætti pólski
landsliðsþjálfarinn, sem kom til
landsins í gær.
Ondrus fyririiði Slovan og tékkneska landsliðsins hampar bikarnum
þegar Tékkar unnu Evrópukeppni landsliða.
maen
.
Muller
skoraði fimm
Eins og við sögðum frá í gær vann
Bayern Munchen stórsigur á Tennis
Borussia Berlín í þýzku
Budesligunni um helgina. Alls
sendu leikmenn Bayern knöttinn
níu sinnum í uet andstæðinganna
án þess að fá mark á sig sjálfir.
Og hver skvldi hafa skorað
meginþorrann af mörkunum? Jú
auðvitað Gerd Muller. þessi mesti
markaskorari sem þýzk knattspyrna
hefur átt — og raunar öll Evrópa.
Alls skoraði Muller fimm mörk og
var í banastuði. Ilann verðskuldar
því fyllilega val í heimsliðið nýlega
en eins og kunnugt er gefur Muller
ekki kost á sér í þýzka landsliðið.
Eitt sinn datt Muller og sat þá á
vellinum og sneri baki í markið. En
á ötrúlegan hátt tókst honuin að
senda knöttinn aftur fyrir sig, rétt
innan við stöng. Já, Gerd Muller
kann að skora mörk. kappinn sá.
Stórsigur
Kanadamanna
Nú fer fram mikið íshokkímót
í Kanada, sem sterkustu íshokkí-
þjóðir heims taka þátt í. Þær
eru Kanada, Tékkóslóvakía, Sovét-
ríkin, Bandaríkin, Svíþjóð og Finn-
land. Leikið var í riðlum og leika
Kanadamenn og Tékkar til úrslita.
Alls verða úrslitaleikirnir þrír —
það er ef úrslit fást ekki úr tveimur
fyrstu. En ailt bcndir til að svo
verði, því í gærkvöld léku Kanada-
menn og Tékkar fyrsta leik sinn og
unnu Kandamenn stórsigur, 6-0.
Yfirburöir Kanadamanna voru
miklir og áttu Tékkar i mestu erfið-
leikum með hina fljótu Kanada-
menn.
Keflvíkingar
í Hamborg
Keflvikingar munu í kvöld
Icika við Hamborg SV í Evrópu-
keppni hikarhafa. Leikurinn fer
fram í Hamborg og mun Jón Ás-
geirsson lýsa leiknum.
Þorsteinn Ólafsson, sent nú
stundar nám í Lundi, mun koma
til móts við Keflvíkinga og leika
með sínum gömlu félögum. Vafa-
lítið verður róðurinn hjá Kefl-
víkingum þungur því Hamborg
hefur á aö skipa einu bezta félags-
liði Þýzkalands.og flestir vita að
Keflvíkingar hafa ekki átt gott
sumar.
Þvi munu Keflvíkingar vafa-
litið leika stífan varnarleik í von
um að sleppa sem bezt frá
leiknum. Keflvikingar munu
siöan dvelja á Spáni og koma ekki
heim fyrr en þremur dögum fyrir
leik liðanna, sem fram fer hér í
Reykjavík.