Dagblaðið - 20.10.1976, Qupperneq 9
DAUBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1976.
AISLANDI ERU STULKURNAR
EINS OG ELDFJÖLL"
segja sœnskir blaðamenn
sem fóru og könnuðu óstandið
hér á landi
Tveir blaóamenn frá sænska
blaðinu FIB Aktuelt komu til
tslands á síðastliðnum vetri..
Tilgangur fararinnar var að
k.vnna sér hvernig íslendingar
skemmtu sér.
Þeir urðu undrandi á mörgu
sem þeir sáu og sérstaklega
töldu þeir að íslenzkar stúlkur
væru einstaklega léttar í pilsi
og að drykk.juskapur unglinga
væri hrikalegur.
Grein um þessa ferð þeirra
birtist i Aktuelt 9. ágúst síðast-
liðinn. Fylgdu henni m.vndir og
viðtöl v:ð 8 íslenzkar stúlkur:
Hér verður aðeins gripið
niður í frásögn þeirra:
Ballið byrjaði þegar við
brugðum okkur á Röðul. Leigu-
bílstjóri, sem ók okkur mælti
eindregið með þeim stað.
Við komumst að því i þessari
ferð að vínmenning íslendinga
er afar bágborin og afar
auðvelt er að fá stúlkur til
fvigilags við sig.
Drekka sig fulla áður
en farið er á ball
Húsin fara ekki að fyllast
fyrr en um eða eftir ellefu.
Skýringin er einfaldlega sú að
það er svo dýrt að drekka á
veitingahúsum og kaupið er svo
lágt að menn re.vna að drekka
eins og þeir geta áður en farið
er á ball. En það er ekki nóg
rneð að menn drekki úr sinni
flösku heima heldur reynir fólk
að smygla víni inn á dans-
leikinn. Sá ég menn vera að
pukrast með flöskur úti í horni.
Þarna sá ég stúlku flytja sig af
einu hné yfir á annað og þiggja
sopa. Uti á gólfi voru þá tvær
stúlkur að skaka sig á hæsta
máta óviðkunnanlegan hátt.
Einhverjir náðu því þó hvað
þær voru að meina og tveir
strákar fóru út á gólf til þeirra.
Með eða ó moti
„kananum?"
íslenzku stúlkurnar skiptast
í tvennt hvað viðvíkur afstöðu
þeirra til bandarísku her-
mannanna
Þær hata þa sumar eins og
pestina en aðrar eru í nánu
sambandi við þá. Fyrrnefndi
hópuriun er langstærstur og
þær líta af mikilli fyrirlitningu
niður á þær sem eru ,,í
kananum".
Stór hluti íslenzks kvenfólks
hefur ótrú á íslenzkum karl-
..Eg hef aldeilis fengið að
vita af því að ég er með
Ameríkana sem er þar að auki
dökkur." sagði ein 19 ára
atvinnulaus.
..Eg elska hann vegna þeirr-
ar umh.vggju sem hann sýnir
mér. þá umhyggju geta
íslenzkir strákar ekki veitt."
..Það skiptir engu máli fyrir
mig af hvaða þjóðerni
maðurinn er, en ég veit að það
skiptir aðrar miklu máli" sagði
ein þ.jónustustúlka sem er 27
ára. Hún bætti því við að hún
færi oft með strák heim f.vrsta
kvöldið og fvndist ekkert að
því enda væri hún á pillunni.
,.Eg er búin að vera á
pillunni í 4 ár og finnst allt i
lagi að sofa hjá strákum fyrsta
kvöldið," sagði tvítug
mönnum. Ein þeirra sagði við
mig: „Islenzkir strákar vita
ekki hvað það er að vera
rausnarlegur og þeir hugsa
aldrei um neinn nema sjálfan
sig."
Hún bætti við að þegar þeir
ætluðu að skemmta dömunum
og fara út með þær settust þeir
bara að sumbli. Svo yrðu þeir
útúrdrukknir og leiðinlegir og
þá leiddust stelpurnar oft út í
það að fara að hvolfa í sig af
hreinum ieiðindum. Það væri
ekki sérlega skemmtilegt að
horfa upp á „gæjana" sína
afgreiðslustúlka. Hún sagði
blaðamanninum einnig frá því
að hún hefði glatað öllum vin-
konunum við það að umgang-
ast Ameríkanana.
„Ég á vinkonu sem er ógift
og á þrjú börn sitt með hverj-
um manninum. Sjálf get ég
ekki hugsað mér að sofa hjá
neinum, nema mér þyki
eitthvað vænt um hann,“ sagði
21 árs nemi.
„Ég veit ekki hvort ég stend
nokkuð í því að gifta mig.
Systir mín er einstæð móðir og
hefur það alveg stórfínt,"
sagði ein 23 ára sem afgreiðir á
vínveitingastað.
„Það er miklu meira varið í
útlenda stráka en strákana hér
sem alltaf eru sífullir og að
lenda undir borði kvöld eftir
kvöld.
Þessi stúlka taldi þá banda-
rísku taka íslenzkum
kvnbræðrum sínum fram í öllu.
Þeir væru sannkallaðir herra-
menn. hefðu peninga og betri
framkomu.
Kynlíf byrjar
hjá þeim 12 ára
Það er ekki óaigengt að
stúlkur á Islandi öðlist sína
fyrstu samfarare.vnslu þegar
þær eru 12 ára gamlar. Og al-
drepast úr afbrýðisemi," sagði
sú sama.
„Ég fer yfirleitt ein heim af
því að ég geri það miklar
kröfur til stráka sem ég vil
sofa hjá," sagði ein 19 ára sem
er atvinnulaus.
„Strákarnir hérna geta
ekkert talað um nema bíla,
stelpur og brennivín, þó til séu
undantekningar,“ sagði 19 ára
nemi.
31 árs gömul kona sem ekur
strætisvagni og er nýkomin
aftur á lífið eftir 6 ára hjóna-
band sagði: Það er eðlilegt að
sofa hjá þeim strákum sem
manni þ.vkir eitthvað vænt um
og finnst jafnframt eitthvað til
koma.
-bA.
gengt, er að þær komist „á
fast" þegar þær eru 14 ára og
þá hefst kynlífsreynsla þeirra
fyrir alvöru.
Á íslandi er ekki löglegt að
hafa samfarir fyrr en
viðkomandi er orðinn 16 ára en
það er ekkert eftirlit með því.
Ekkert ■ er auðveldara en fá
pilluna. Það nægir að hringja í
lækni og hann sendir lyfseðil í
apótek.
Þrátt fyrir að auðvelt sé að fá
pilluna fæðast um 30% allra
barna á íslandi utan hjóna-
bands. Það er orðið svo algengt
á íslandi að eignast börn í
lausaleik að það þykir ekkert
athugavert við það. En hafa
verður í huga að mjög erfitt er
að fá löglega fóstureyðingu á
íslandi.
Slagsmál á Óðali
Á miðvikudagskvöldi fór ég í
Óðal.Menn voru þar meira og
minna undir áhrifum enda þótt
vínveitingar væru ekki leyfðar
á veitingahúsum það kvöld.
Eg sat við borð þar sem tvær
stelpur og nokkrir strákar voru.
Fólkið var með glös sem í var
vökvi sem líktist appelsínusafa
en það var vínlykt úr glösun-
um. Greinilegt var að menn
voru birgir af víni þetta mið-
vikudagskvöld.
Allt í einu sló í brýnu og ég
fékk tækifæri til að sjá ærleg
slagsmál. Einhverjir strákar
voru að rífast um stelpu og allt
í einu voru þeir roknir saman.
Hnúum og hnefum var beitt af
alefli og stelpurnar öskruðu og
píptu og hvöttu mennina. Það
var ekki fyrr en einn lá meðvit-
undarlaus sem hætt var.
Þessi slagsmál vöktu enga
sérstaka athygli meðal gest-
anna. Þetta var í samræmi við
kynni mín af íslendingum og
.fslenzku, hvorugt er yfirfullt af
hlýju, kærleika eða ósk eftir
því að komast i samband við
aðrar mannverur.
HVAÐ SEGJA ÞÆR ÍS-
LENZKU UM STRÁKANA?
Rjúpnaveiðimenn
Haglabyssu skotfœri
Viðgerðarþjónusta
Verzlið þar sem þjónusta er veitt
Póstsendum
Sportvöruverzlunin
GOÐABORG
Kristján Vilhelmsson
Freyjugötu 1 — Símar 19080 og 24041