Dagblaðið - 04.12.1976, Síða 1
2. ARG. — LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1976 — 274. TBL.
RITSTJORN SIÐUMULA 12, SÍMI 83322. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2, SlMI 27022 .
GYS KATLA UM MIÐJAN
DESEMBER?
— ferli í eldkeilum erlendis
benda til þess
„Það er rétt að ég tel að hafa
beri mjög mikla gát á Kötlu
fram að miðbiki desember,“
sagði Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur í samtali við
Dagblaðið.
„Ástæðan fyrir þessu er sú
að frá þvi um miðjan ágúst
síðastliðinn hefur spennuút-
lausn í skjálftum í fjallinu farið
jafnt og þétt vaxandi á sama
hátt og hefur sums staðar gerzt
í erlendum eldkeilum fyrir eld-
gos. Ef sams konar ferli halda
áfram í þessari aukningu vaxa
líkurnar fyrir því að eitthvað
fari að gerast um miðjan mán-
uðinn, — nánar tiltekið 15.-20.
desember.
Hitt er aftur á móti á að líta,“
sagði Ragnar ennfremur, að
eldfjöll eru afskaplega ólík
hvert öðru. Skjálftar í Kötlu
hafa minnkað undanfarna 3—4
daga og ég tel að eftir svosem
eina viku verði hægt að segja
ákveðið um hvort um venjuleg-
an haustskjálíta er að ræða
eða hvort eldgos er í nánd.
Talsvert hefur verið um jarð-
hræringar á Kötlusvæðinu á
hverju hausti síðan árið 1970.
Nú eru liðin 58 ár frá síðasta
Kötlugosi og ef litið er aftur í
aldir hafa gos skipzt nokkuð á á
40 og 60 ára íresti. Ragnar tók
það fram að þó stæðust gosin
ekki upp á ár heldur gætu liðið
1-2 ár tram yfir eða á vantaoi
nokkur ár.
Ragnar Stefánsson var að því
spurður hvort gos yrðu ekki
kröftugri eftir þvi sem lengra
liði á milli þeirra. Hann kvað já
við því. „Hins vegar er engu
hægt að spá um það hve næsta
Kötlugos verður kröftugt,“
sagði hann, „Kötlugosin eru
alltaf kröftug."
-AT
Sjónarvottur að aðdraganda flugslyssins í gær:
VIRTIST BEYGJA KRAPPT FRÁ HÁSPENNULÍNUNNI
síðan sá ég hana ekki koma upp fyrir hæðina aftur
Rannsóknanefnd flugslysa kannaði vettvang og vélina sjálfa. en glöggt má sjá af m.vndinni hversu höggið hefur verið gifurlegt.
DB-m.vnd Sveinn Þorm.
Forstöðumenn Slippfélagsins um Hoffellsmálið:
Áskiljum okkur rétt til að krefja útgerðina um skaðabætur
þrjú skip lokuðust inni - nokkur bíða eftir að komast að - 25 manna starfslið verkefnalaust
Við áskiljum okkur rétt til að
krefja útgerðarfélagið um
bætur vegna þess tjóns, sem við
höfum orðið fyrir og það er svo
þess hvort það vill lögsækja
mennina eða ekki, sagði Þórar-
inn Sveinsson framkvæmda-
stjóri Slippfélagsins i viðtali
við DB í gær.
Guðmundur H. SigUrðsson
yfirverkstjóri sagði i viðtali við
blaðið að 25 manna lið hefði
verið meira og minna verkefna-
laust alla vikuna vegna Hoffells
en skipið lokar þrjú önnur skip
inni sem eru tilbúin til sjósetn-
ingar. Þá bíða skip einnig eftir
að komast upp i slippinn, m.a.
Börkur NK, og töldu íorráða-
menn Slippfélagsins ekki ólík-
legt, að einhver skip, sem ætl-
uðu til viðgerðar hjá þeim,
ieituðu annað vegna þessárar
tafar.
Eins og blaðið skýrði frá i
gær bjuggu fimm skipverjar á
Hoffellinu, sem áður hét Hval-
bakur, um sig i skipinu á mið-
vikudagskvöldið, opnuðu botn-
loka þess, þar sem það er i
slippnum, og læstu vélarrúm-
inu svo viðgerðarmenn frá
Hamri gátu ekki haldið áfram
við viðgerð i vélarrúmi. Gera
mennirnir þetta til að knýja
fram uppgjör, en þeir segja út-
gerðarfélagið skulda áhöfninni
10 til 15 milljónir króna. Óttast
þeir- að uppgjör fáist aldrei
eftir að skipið er selt en Kaup-
félagið á Fáskrúðsfirði er að
kaupa skipið.
I f.vrrakvöld stóð til af Slipps-
ins hálfu að rjúfa straum til
skipsins til að knýja mennina
til uppgjafar, enda er það álit
forráðainanna Slippfélagsins
að það sé ósanngjarnt af mönn-
unum að láta þessar aðgerðir
bitna á Slippnum sem er eng-
inn aðili að málinu. Telja þeir
að mennirnir gætu mótmælt
jafnkröftuglega þótt skipið
lægi einhvers staðar við
bryggju og starfsemi Slipp-
félagsins fengi að halda
eðlilega áfram.
Fallið var frá ákvörðuninni
um að rjúfa strauminn af
ör.vggisástæðum. m.a. vegna
þess að skipið er ekki frostklárt
og gæti þvi skemmzt af völdum
rafmagnsle.vsis.
Hins vegar var sú ákvörðun
tekin i gærmorgun að taka
landganginn frá skipinu og ein-
angra mennina þannig. Varsér-
stakur kranabíll með körfu
fenginn á staðinn og mönnun-
um boðið upp á að vera fluttir
með körfunni ofan úr skipinu
ef þeir óskuðu þess.
Deilan leyst
Síðari hluta dags í gær var
straumur rofinn til skipsins en
upp úr klukkan fimm kom út-
gerðarstjórinn um borð með
tvær milljónir króna og loforð
um fullnaðaruppgjör alveg á
næstunni. Féllust skipsmenn
þá á að hætta frekari að-
gerðum. Laust upp úr kl. 6 kom
svo mannskapurinn frá borði
og var ferðinni heitið upp í
banka að skipta ávísunum. Þá
var það að frétta að áframhald-
andi viðgerð átti að hefjast i
gærkvöld. eða i morgun.
-G.S.
„Vélin var að koma í átt frá
Hafravatni og sá ég hana stefna á
háspennulínuna. Eftir því sem
mér virtist snarsveigði vélin rétt
á móts við línuna og sveigði niður
á við og fór í hvarf við hæð. Þegar
ég sá hana ekki koma aftur yfir
hæðina fór ég strax að aðgæta það
og sá hvers kyns var,“ sagði Pétur
Ólafsson bóndi á Dalalandi í Mos-
fellssveit um aðdraganda að flug-
slysinu þar skammt frá sumarbú-
stað Guðmundar heitins frá Mið-
dal.
Pétur fór heim til sín í skynd-
ingu og gerði sjúkraliði aðvart en
að því búnu tók hann saman teppi
og ábreiður og hélt á slysstaðinn.
Að sögn hans voru mennirnir
báðir með meðvitund en mjög illa
á sig komnir af kulda, fyrir utan
mikil meiðsli. Hlúði hann að þeim
þar til sjúkraliðið kom.
Slysið hefur sennilega átt séi
stað rétt undir kl. 3 og virðist
vélin hafa steypzt nær beint á
nefið og brotnaði hún fyrir aftan
stjórnklefa. Svo giftusamlega
vildi til að eldur kom ekki upp í
henni.
I flugvélinni voru tveir menn,
Viðar Friðriksson flugkennari og
Sigurður Ingibjartsson flugnemi,
og slösuðust þeir báðir mjög al-
varlega. Þeir eru þó ekki taldir í
lífshættu.
Flugvélin er af gerðinni
Cessna-150 í eigu flugskólans
Flugtaks í Reykjavík, fullkomin
kennsluvél. Hún er gerónýt. -G.S.
Hvellur í 1. umferd
sovézka meistara-
mótsins í skák í
vikunni
Tal vann
Petrosjan í 27
leikjum -bis. 9