Dagblaðið - 04.12.1976, Page 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAC.UK 4. DKSKMBKR 1976.
Potrosjan Tal
Larsen
Tal hótar nú strax Rh5 fylgt
eftir af Rxd4 og hefur mjög
vænlega stöðu. Þess vegna
ákveður Petrosjan að fórna
riddara fyrir tvö peð í von um
að ná sterkri stöðu á miðborð-
inu.
20. Rxe6 — fxe6 21. Hxe6 —
Df8 22. d5 — Rb8 23. Be3 —
Ra6 24. Rd4? — Rxd5 25. cxd5
— Hxc3 26. Bxa6.
n Wm 1ÓPÉ
íís sn 11
■ B ■ m
iH 11 &■ ■
33 'W% n _
lb " B 1 ■ W|S 1A Ag
26.-----Bxd5!!
Þrumuleikur. Hvítur missir
valdið á riddaranum og um leið
er hrókur hans á e6 í uppnámi.
27. He7 — Bf7 28. H7e4 —
Dc5!
Það er ekki lengur hægt að
bjarga riddaranum og
Petrosjan, sem talinn er hafa
hvað mesta möguleika að
standa sig vel í heimsmeistara-
keppninni, gafst upp.
Heimsmeistarinn Anatoly
Karpov fór rólega af stað í
fyrstu umferðinni á mótinu í
Tbilisi. Hann stýrði svörtu
mönnunum gegn Rasjkovskij
og. lauk skák þeirra með
friðsömu jafntefli. Geller var
hins vegar í baráttuhug —
fórnaði peði í byrjuninni gegn
Svesjnikov — en hafði ekki
erindi sem erfiði. Svesjnikov
hélt fengnum hlut og vann.
líann er af mörgum talinn
sterkasti skákmaður heims,
þeirra sem ekki eru með stór-
meistaratitil. Annar skák-
maður, sem engan titil ber,
Dorfmann, kom mjög á óvart og
sigraði Romanishin. Eftir-
töldum skákum í fyrstu umferð
lauk með jafntefli: Það er
Tjesjkovskij—Polugajevskij,
Grigorjan—Vaganjan og Bala-
sjov—Zakarov. Aðrar skákir
fóru í bið en ekki hafa borizt
fréttir af þeim enn. Hins vegar
er áreiðanlegt að áhugi skák-
Karpov
áhugamanna víðs vegar um
heim mun beinast til Sovét-
ríkjanna nú i desember því
skákmeistaramótið þar er eitt
öflugasta skákmót heims. Dag-
blaðið mun birta fréttir af
mótinu eftir beztu getu.
Hvítt: Larsen
Svart: Rodriguez.
1. c4 — g6 2. Rc3 — Bg7 3. d4
— c5 4. d5 — Rf6 5. e4 — 0-0 6.
Bd3 — e6 7. Rge2 — exd 8. exd
Bent segist hafa beitt sál-
fræðinni i skákinni, þar sem
mótherjinn sé fyrst og fremst
taktiker, og þessi uppsetta,
„þurra“ staða hafi hent honum
illa.
8.-----Rg4 9.0-0—Re5?
Svartur hefði betur leikið d6.
10. d6! — Rbc6 11. f4 — Rxd3
12. Dxd3 — Rb4 13. Dd2 —a6
14. f5 — b5 15. a3 — Rc6 16.
Rd5 — gxf 17. Rg3 — Rd4 18.
Re7+ — Kh8 19. Rgxf5 — Rxf5
20. Rxf5.
Einfaldast. Það finnst ekki
fljótvirk vinningsleið eftir 20.
Hxg5 — Bb7.
20.------Df6 21. Rxg7 —
Dxg7.
Bent Larsen sigraði fyrr á
árinu á skákmóti í Lanzarote,
hlaut átta vinninga af ellefu
mögulegum, hálfum vinningi á
undan Darga, Vestur-
Þýzkalandi. Bent fékk einnig
fegurðarverðlaun á mótinu
fyrir bezt tefldu skákina. Það
var gegn Rodriguez frá Perú
sem varð í fimmta sæti á
mótinu með sex vinninga.
Ekki var danski stór-
meistarinn þó viss um að
skákin hefði verið hin bezta á
mótinu, þvi þegar hann skrifaði
um hana setti hann ,,bezta“
innan gæsalappa. Var hann á
því að skák Darga, þegar hann
vann Bellon, Spáni, hefði jafn-
vel verið ennþá betri. En hvað
um það. Við skulum líta á þessa
,,beztu“ skák mótsins.
RODRIGUEZ
22. b4!
Svartur getur valið hvort
hann heldur vill: vonlaust
endatafl eða vonlaust miðtafl!
22.-----Bb7 23. Bb2 —f6 24.
Hael — Bc6 25. exb5 — axb5
26. bxc5 — Ha4 27. Hxf6! og
svartur gafst upp.
Geller
Geller
vann
Karpov
— Síðustu fréttír
frá sovézKa
meístaramótinu
Rétt áður en blaðið fór í
prentun fenguni við þær
fréttir. að Geller hefði unnið
Karpov i 3. umferð á sovézka
meistaramótinu. Romanish-
in vann Tal, Petrosjan vann
Svesjnikov.
Dorfman var efstur eftir 3
umferðir með 2.5 vinninga.
Vann Vaganjan í 2. umferð
og gerði jafntefii við
Smyslov í þriðju. Sm.vslov
vann Romanishin í 2. um-
ferð. Baljasov vann Gulko.
Margar biðskákir eru og
staðan óljós. Karpov hafði
einn vinning eftir þrjár um-
ferðir.
V /
Jólamarkaður
HÖFUM 0PNAÐ JÓLAMARKAÐ
AÐ LAUGAVEGI26
Á ANNARRI HÆÐ
Á jólamarkadnum er ótrúlegt
vöruúrval og þér geríð
hvergi betrí kaup fyrír jólin
fHÖFUM M.A. Á BOÐSTÓLUM:
Appelsínur
Mandarínur
Epli
Greip
Banana
Vínber
'Jólaskraut
Leikföng
Gjafavörur
Jólatré
Kerti
Myndir
★★★★★★
Nýjar vörur
teknar upp
daglega
OPIÐ TIL
KL. 6 í DAG
Verzlið í Verzlanahöllinni Laugavegi 26, það er spor í rétta átt
Verið velkomin
Jólamarkaöurinn
-\r
VERZLANA
T-íolliinT
LAUGAVEG56
\r