Dagblaðið - 04.12.1976, Page 24
Erfið staða fiskverkunarfyrirtækja á Suðurnesjum:
Fjórar stöðvar í Njarð-
víkum og Keflavík hafa
nú lokað
— læt toearann sigla frekar en að verka heima,
segir Guðbergur í ísstöðinni í Garðinum
Það er orðin andstyggileg
staða þegar maður er farinn að
velta fyrir sér hvort ekki sé
hagkvæmara að láta eigið skip
sigla út með aflann heldur en
að verka aflann heima í eigin
húsum, en sú staða er komin
upp hjá mér, sagði Guðbergur
Ingólfsson, forstjóri Isstöðvar-
innar í Garði, í viðtali við DB í
gær,
Hann sagði að sér reiknaðist
nú til að hagkvæmara væri að
láta skuttogarann sigla með afl-
ann og yrði það líklega gert í
næstu tveim til þrem túrum.
ísstöðin h/f rekur útgerð,
frystihús, saltfiskvinnslu og
úmfangsmestu þurrfiskverkun
á landinu. Guðbergur sagðist
hafa staðið í þessu í 26 ár og
sýndist sér sem reksturinn
hefði aldrei verið erfiðari en að
undanförnu.
Það eru fleiri en ísstöðin sem
eiga í erfiðleikum og þannig er
nú búið að loka fjórum frysti-
húsum í Keflavík og Njarðvík-
unum. Þau eru Andri, Sjö-
stjarnan, Brynjólfurog Jökull.
Guðbergur sagði að aðrir
þraukuðu meira af vilja en
mætti og mundi hann í lengstu
lög reyna að halda starfseminni
eitthvað í gangi þar sem 50 til
60% vinnufærra manna í Garð-
inum ynnu hjá fyrirtækinu.
Hann sagði höfuðvandann
tvenns konar. Annars vegar
væri afurðaverð of lágt nú mið-
að við framleiðsluverð, einkum
þó hvað þurrfiskinum viðkæmi.
Hins vegar sagði hann að starfs-
fólkið væri of lágt launað, sem
þýddi að bezta fólkið leitaði yf-
irleitt í aðra vinnu, eins og t.d.
á Vellinum.
-G.S.
ÍSLENZK YFIRBYGGING Á RAFMAGNSBÍL
A ALÞJOÐAMARKAÐ?
„Ahugi minn hel'ur alltaf staðið
til að læra að teikna bíla en gall-
inn er bara að ég hef ekki efni á
því,“ sagði Steinn Sigurðsson
sölumaður í viðtali við DB í gær,
en hann heíur nú smíðað raf-
magnsbíl eftir verðlaunateikn-
ingu sinni sem hann hlaut verð-
laun fyrir í samkeppni banda-
ríska tímaritsins Popular Mecha-
nics, í fyrra. t verðlaun fékk hann
undirvagn og kom hann til lands-
ins í vor.
í frístundum sínum í sumar
hefur Steinn svo smíðað yfir bíl-
inn og er hann nú kominn á göt-
una, 2,30 metrar að lengd, tveggja
manna, um 500 kíló að þyngd, þar
af vega geymar á annað hundrað
kíló, hámarkshraði er um 60
km/klst. og kemst bíllinn 50 km á
hleðslunni, en væntanleg er betri
hleðsla.
Yfirbyggingin er hugsuð fram-
leidd í pörtum, þannig að menn
geti sjálfir sett hana saman, og er
ekki útilokað að bandaríska fyrir-
tækið Elcar í Indiana í Bandaríkj-
unum hefji framleiðslu á þessum
yfirbyggingum. Bíllinn er að
sjálfsögðu mjög hljóðlátur og
engin mengun stafar frá honum.
Steinn hefur tvisvar tekið þátt í
alþjóðlegri samkeppni um teikn-
ingar bíla og unnið í bæði skiptin,
Volvo efndi til fyrri keppninnar.
Þá teiknaði hann Minkinn sem
flestir Reykvíkingar munu
þekkja á götunum.
-G.S.
Þessa mynd tók Steinn af bílnum þegar hann var fullbúinn en ekki búið að skrá hann. Litla myndin var
tekin eftir að búið var að skrá bílinn. DB-mynd Sv. Þorm.
Banamenn
Guðjóns Atla:
8og 10
ára
fangelsi
Banamenn Guðjóns Atla
Árnasonar voru í gær dæmd-
ir til átta og tíu ára fangels-
isvistar fyrir brotið. Annar
þeirra, Albert Ragnarsson
frá Akureyri. var ekki orð-
inn 18 ára þegar brotið var
framið og hlaut því 8 ára
fangelsisdóm en hann var
einnig dæmdur fyrir nokkur
þjófnaðar- og skjalafalsbrot.
Hinn, Kristmundur Sigurðs-
son frá Reykjavík, var
dæmdur í tíu ára fangelsi,
enda orðinn 18 ára þegar
brotið var í'ramið. Albert var
einnig dæmdur til greiðslu
fébóta og báðir voru dæmdir
til greiðslu sakarkostnaðar.
Þeir báru sig nokkuð
mannalega þegar dómurinn
var kveðinn upp og skröfuðu
saman. Máli þeirra verður
áfrýjað til Hæstaréttar sam-
kvæmt lögum. Þeir voru úr-
skurðaðir i allt að 150 daga
gæzluvarðhald, eða þar til
Hæstiréttur hefur fjallað
um málið og kveðið upp úr-
skurð sinn.
Halldór Þorbjörnsson
yfirsakadómari kvað upp
dóminn. -ÓV
frjálst,áháð dagblad
LAUGARDAGUR 4, DESr 1976
Sala skuttogarans
Hoffells
frá Breiðdalsvík:
Dauðadómur
fyrir
Breiðdalsvík
— enga atvinnu að
fá heima, segja
skipsmenn
Ég er svo heppinn að eiga
engar eignir á Breiðdalsvík og er
þvi ekki bundinn við staðinn, því
þar verður ekki yfir neinu að
hanga þegar togarinn er farinn og
ekkert að byggja á nema einum
100 tonna báti, sagði Hallbjörn
Kristinsson, 3. vélstjóri á Hvalbak
SU, sem nú er búið að skíra
Hoffell, eða eftir að gengið var
frá bráðabirgðasölusamningi á
skipinu til Fáskrúðsfjarðar.
í svipaðan streng tók Pálmi
Pálsson stýrimaður en þeir eru
báðir frá Breiðdalsvík og er Pálmi
að byggja þar. Þeir sögðu að nú
væri svo mikið framboð á hús-
næði á staðnum að fullbúið ein-
býlishús, sem hreppsfélagið lét
byggja sem leiguhúsnæði fyrir að-
komufólk, gengi ekki út. Einnig
að þeir aðkomumenn, sem komið
hefðu þangað á síðustu árum og
hugsað sér að setjast þar að, væru
nú annaðhvort farnir eða á för-
um.
Þá hafði blaðið tal af Sigurði
Guðmundssyni útgerðarstjóra,
sem var sammála um að sala
skipsins væri mjög alvarlegt áfall
fyrir atvinnuástand á staðnum.
Forsagan er að meðeigendurnir,
Stöðfirðingar, eru að fá nýtt skip
og vildu þá selja hlut sinn í Hval-
bak. Sagðist Sigurður hafa reynt
til hins ýtrasta að hraðfrystihúsið
á Breiðdalsvík og Bragi h/f sam-
einuðust um að kaupa hlut Stöð-
firðinga, enda fá þessi fyrirtæki
megnið af afla togarans, en það
reyndist árangurslaust. Þá sagði
Sigurður upp starfi sínu þar sem
grundvöllur útgerðarinnar var
brostinn að hans mati. Byggða-
sjóður vildi ekki hlaupa undir
bagga þar sem útgerðin gat ekki
gefið fasteignatryggingu fyrir
láni en fyrirtækið á engar hús-
eignir og ekki dugði veð í skipinu.
G.S.
✓
\
Atta nýir menn í stjóm ASI
Varla verður greint hvort meirihluti stjórnarmanna eru vinnuþegar eða atvinnurekendur og embættismenn
Þrátt fyrir öll stór orð og
mikil áform fór það svo á þingi
Alþýðusambands íslands að
deila má um hvorir hafi tögl og
hagldir þar, menn sem lifa af
verkamannalaunum eða þeir
sem hagnað- hala af annarra
manna vinnu eða vinna verk í
ákvæðisvinnu. Rígheldni við
stjórnmálaflokkana var alls
ráðandi og frá þinginu kemur
Sjálfstæðisflokkurinn verst út
frá pólitísku sjónarmiði. Guð-
mundur H. Garðarsson gaf ekki
kost á sér og Pétur Sigurðsson
féll i kosningu til miðstjórnar
og munaði þar þúsundum at-
kvæða.
. „Það eru 8 af 15 mönnum
sem hverfa nú úr stjórn ASÍ,“
sagði Björn Jónsson forseti ASl
en hann var einróma kjörinn
með lófataki. „Eg vona að þetta
verði allt til góðs því mörgu
þarf að snúa til betri vegar.
Þetta þing var afkastamikið.
kannski það afkastamesta frá
upphafi, og lengst munu menn
minnast samþykktarinnar um
stefnuskrána," sagði Björn.
Björn sagði að ASÍ hefði ekki
nema 12 manna starfslið og
næsta verkefni þess yrði að
vinna úr ályktunum þingsins og
móta sfcfnu ASl i verkalýðs-
málunum. Tekjur ASl eru 800
kr. af hverjum félagsmanni
verkalýðsfélags en þeir eru nú
um 45 þúsund talsins.
Forsetakjör ASÍ fór fram
með lófaklappi og fékk Björn
Jónsson tvívegis langvarandi
klapp. Þegar kom að kjöri vara-
forseta var tónninn annar.
Margrét Auðunsdóttir fyrrver-
andi formaður Sóknar stakk
upp á Aðalheiði Bjarnfreðs-
dóttur. Kosningin tók langan
tíma og var sú stund e.t.v.
hápunktur þingsins. Snorri
hlaut 34250 atkvæði en Aðal-
heiður 10225.
Þar með var teningunum
kastað og ljóst að málin yrðu
áfram eins og þau hafa verið
nema það að kjörnefnd tók
meira tillit til fulltrúa láglauna-
fólks og alþingismenn og aðrir
hálaunamenn drógu sig ýmist
til baka eða hreinlega komu
ekki til greina.
1 miðstjórn voru þessir
kosnir: Hermann Guðmunds-
son Hlíf 42600, Jón Snorri Þor-
leiísson TR 42600, Öskar Vig-
fússon SH 42525, Guðríður
Elíasdóttir Hf„ 42250, Jón
Helgason Akureyri 42075, Eð-
varð Sigurðsson Dagsbrún
41925, Þórunn Valdimarsdóttir
Rvík 41325, Jón Agnar Eggerts
son Borgarnesi 41100, Einar
Ögmundsson Rvík 40475,
Bjarnfríður Leósdóttir Akra-
nesi 35800.
Kosning varaforseta og mió-
nefndar tók marga klukkutíma.
Urðu forráðamenn leiðir á
málum og sáu fram á margra
milljóna kostnað ef þingið tæki
föstudagskvöld af Hótel Sögu.
Allar kosningar eftir það fóru
fram með lófataki enda minna
áríðandi eða mótandi. - ASt.
Gætu mjólkurfræðingar
ráðið málum?
„Ríkisstjórnir hafa aldrei
fengið þakkarávörp á ASl-
þingi. Þó þetta ASl-þing hafi
verið mjög gott og jafnvel
markað tímamót er það ekk-
ert öðruvisi en önnur í garð
ríkisstjórnarinnar, þetta var
gott þing,“ sagði Hannibal
Valdimarsson.
„Stefnuskráin er merk-
asta málið og mun lengi
minnzt. Þetta er líka af-
kastamesta ASl-þing frá
upphafi," sagði Björn
Jónsson forseti ASl.
„Við gætum farið í verk-
íall sem dugar fyrir allan
verkalýðinn í landinu,"
sagði fulltrúi mjólkurfræð-
ínga en viðurkenndi að
þeir hefðu tvöfalt kaup á við
láglaunahópa landsins.
„Stjórnmálin og flokka-
pólitíkin setja of mikinn
svið á aðalþing ASÍ,“ sagði
Karvel Pálmason alþingis-
maður.
-ASt.
V