Dagblaðið - 29.01.1977, Síða 14

Dagblaðið - 29.01.1977, Síða 14
14 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1977. \ E/v/s enn í hjónabandi Nú eru lióin rúm þrjú ár síðan Elvis Presley og kona hans, Priscilla, skildu að skipt- um. Þrátt fyrir að svona langur tími sé liðinn, er enn ekki end- anlega búið að ganga frá skilnaðinum. Þeim var veittur skilnaður árið 1973 á grundvelli ósættan- legs missættis. En hvorugt hef- ur gert sér það ómak að ganga frá þeim skilyrðum sem þarf, til að hjónaband þeirra verði lýst ógilt. Þessum formsat- riðum þarf að fullnægja til að þau geti gengið í hjónaband að n.v.ju. ,,Eg er alveg ánægð með hlutina eins og þeir eru,“ sagði Priscilla, ,,og læt þess vegna reka á reiðanum." Lögmaður hennar sagði: ,,Þau verða að gera það upp við sig hvort þau vilji að skilnaður þeirra sé löglegur. Priscilla hefur engar áhyggjur af þessu eins og stendur og hefur ekki gefið það í sk.vn við mig að húri vilji bre.vtingar þar á. Elvis getur einnig hvenær sem er farið fram á að þessum skilyrðum verði fullnægt. En hann hefur bara aldrei gert það. Það virðist sem þau séu bæði ánægð með ntálin eins og þau eru. Og í augum laganna eru þau enn gift. Ef annað hvort þeirra gengur í hjónaband nú, þá verður það ólöglegt.“ Þau hafa örsjaldan hitzt síðan þau skildu. Einu skiptin hafa verið þá sjaldan að Elvis hefur beðið um að fá að sjá dóttur sína. Lisu, sem er átta ára og býr meö móður sinni. Elvis hefur dregið sig inn í sinn eiginn, undarlega heim, og skríður út úr hýðinu á kvöldin, þá sjaldan sem hann lætur sjá sig. Ilann sást i alllangan tíma í fylgd með Sheilu R.van. sem er f.vrrverandi fegurðardrottning, en síðan hefur hann sést með þó nokkrum konum, þar á meðal Lindu Thompson. Priscilla fór frá Elvis til að geta verið hjá Mike Stone. Hann kennir m.a. karate. Hún hefur upp á síðkastið sést með hárgreiðslumanninum sínum, Elie Ezerzer. En hún hefur gert lýðnum Ijóst. að hún hafi ekki í hyggju að ganga aftur í hjónaband. Hún hafi hreinlega ekki áhuga ^á þvi. „Eg trúi ekki á hjóna- bandið og við höfum ekki gert neinar framtíðaráætlanir,“ seg- ir hún. Priscilla, sem nú er 31 árs, hefur lagt fé í nokkur arðvænleg f.vrirtæki og þarf engar áh.vggjur að hafa af peningum. Hún fékk um 2 milljónir dala (380 milljónir Isl.) við ‘skiln- aðinn í beinhörðum peningum og hlutabróf í tveimur fyrir- tækjum sem Presle.v á. Við lá V Elvis og Priscilla á brúðkaupsdegi þeirra. Hún fór frá honum eftir fimm ára búskap. Þegar allt iék í l.vndi. Stoitir foreldrar með dóttur sína, Lísu. Elvis og Linda Thompson. Elvis og Priscilia eftir skilnaðinn.. að hún fengi ekkert við skilnaðinn nema litla 100.000 dali (19 milljónir ísl.) Það munaði engu að hafður hefði verið af henni, hluti hennar i auöæfum Elvis Presleys. Elvis sagði i réttinum, að Priscilla hefði samþykkt 100.000 dala fjárupphæð, auk 1.000 dala á mánuði í lífe.vri og 500 dölum átti að verja á mánuði til uppeldis dóttur þeirra, Lisu. En Priscilla, sem sagðist aldrei hafa fengið vitneskju um tekjur manns síns, sagði að þetta nægði henni ekki til fram- færis. Öskir hennar urn hærri líf- eyri voru ekki virtar viðlits og i örvæntingu sinni snéri hún sér til lögfræðings. Elvis var ásakaður um að hafa vitandi vits haldið réttind- um hennar leyndum. Lög- fræðingar Elvis reyndu að þagga niður þann orðróm, að Elvis hefði reynt að hafa af Priscillu hennar hluta og flýttu sér að búa til annan samning. I þetta sinn fékk Priscilla 1.445.000 dali i beinhörðum peningum (130 milljónir isl.), Priscilla og Elie Ezerzer. sér til framfæris 4.200 dali á mánuði í eitt ár, helming söluverðs húss þeirra í Bel Air, upphæð sú var 750.000 dalir og fimm prósent af hagnaði tveggja fyrirtækja i eigu Presleys. Elvis samþykkti einnig að greiða 4.000 dali á mánuði (730 þús. ísl.), til uppeldis dóttur sinnar auk allra skólagjalda og lækniskostnaðar. Þetta kostaði Priscillu um 50.000 dali. sem hún greiddi lögfræðingum, en að öllu þessu afloknu sagði hún við vin sinn: „Þetta margborgaði sig.“ BRIGITTE BARD0T - VINUR DÝRANNA áhugi Bardot á dýravernd bráð- minnkað, þar eð hún átti ekki von á því, að hún lenti á bólakaf í skrifstofuvinnu, er hún stofn- aði sjóðinn. Alls konar beiðnir og gjafir hafa streymt og bréfin sem henni berast skipta nú þúsundum. Margir velta því fyrir sér, við hvað leikkonan muni taka ást- fóstri, er dýraáhuginn dettur upp fyrir. Kannski verður það lögfræði. Brigitte á nefnilega í málaferlum þessa dagana — f.vrir misnotkun á sjóðsfénu sínu. —en dýraáhuginn f er óðum minnkandi Draumadís flestra karl- manna. Brigitte Bardot, lýsti því yfir í fyrrasumar að hún væri orðin hundleið á að leika í kvikmyndum og hygðist helga dýrurn og dýravernd krafta sína. Hún fylgdi rnálinu þegar «€ Brigitte Bardot lét mvnda sig meö nokkrum ferfættum vin- um sinum og komu þa“r mvndir í bókinni Brigitte Bardot, vinur dvranna. eftir og stofnaði sjóð til styrkt- ar þeim sem vilja berjast fyrir dýravernd. Bardot gerði það einnig að gamni sínu. um svipað leyti. að sitja fvrir hjá ljósmyndara ásamt nokkrum ferfættum vin- um sfnum. Arangurinn er nú kominn í bók, sem nefnist Brig- itte Bardot, vinur dýranna. Bókin hefur vcrið smátíma á markaðnum núna og selzt mjög vel (verið„beast seller". eins. og vikuritiö Time kallaði það).. Siðan þetta gerðist hefur

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.