Dagblaðið - 29.01.1977, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1977.
23
Sjónvarpið annað kvöld kl. 21.25:
Sá imiðið
nýr maður í
Ríö—eða...?
Tveggja þátta úttekt Ríó-
manna á „ljóðabók" Jónasar
Friðriks skálds lýkur annað
kvöld kl. 21.45. Fyrri þátturinn,
sem einnig bar heitið „Allir eru
að gera það gott“, var sýndur sl.
sunnudag og er mál manna að
þar hafi þeim félögum tekizt
vel upp, sérstaklega hvað
varðaði fótamennt í hinum
margvíslegustu dansatriðum.
Þeir Ágúst, Gunnar og Helgi
munu í þættinum á sunnu-
dagskvöld ljúka við að „mynd-
skreyta“ ljóð Jónasar og þar á
meðal er lítið ljóð sem ber
heitið Óli Jó.
Samkvæmt meðfylgjandi
mynd mun það verða mynd-
skreytt á viðeigandi hátt og
hefur Ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra nú fyrstur
ráðherra orðið til þess að leggja
skemmtikröftum íið í saklausu
gamni. Slíkt er algengt erlendis
og þykir sjálfsagt að ráðherrar
og þingmenn reyni að svipta af
sér hulu hátíðleika.
Þátturinn er á dagskrá
klukkan 21.25.
Hver er þessi maður með strákunum úr Rió?
Sjónvarp
Utvarp
Útvarpiðá
morgun
kl. 15.00:
Spurt og
spjallað
um
skólamál
Það verður rætt um skóla-
mál í þættinum Spurt og
spjallað. í umsjön Sigurðar
Magnússonar.
Spurningin sem Sigurður
leggur f.vrir viðmælendur
sína er stór i sniðum og vafa-
laust sýnist sitt hverjum en
hún er svona: Samrýmist
skólakerfi okkar hugmynd-
um yðar um skynsamlegustu
leiðir til þess markmiðs að
sú kynslóð, sem nú er að
vaxa upp, verði fær um að
stefna til þeirrar farsældar
sem þér viljið að þjóðin
megi eftirleiðis fáað njóta?
Þátttakendur eru Jenna
Jensdóttir rithöfundur,
Kristján Friðriksson iðnrek-
andi, Kristján J. Gunnarsson
fræðslustjóri og dr. Wolf-
gang Edelstein.
EVI
Útvarpið annað kvöld kl. 19.25: Framhaldsleikrit
Maðurmn sem borínn var til konungs
Framhaldsleikritið sem byrjað
verður að flytja í útvarpinu á
ntorgun heitir Maðurinn sem
borinn var til konungs. Það er
eftir enska rithöfundinn Dorothy
L. Sa.vers, alls 12 þættir.
Leikurinn fjallar um ævi Jesú
Krists og styðst höfundurinn að
miklu leyti við ritningarstaði guð-
spjallanna og lætur guðspjalla-,
mann segja söguna. Þarna koma
fram mjög margar og margbreyti-
legar persónur, eins og gefur að
skilja. Höfundur fer nærfærnum
höndum um efnið en gerir það þó
svo lifandi a.ð okkur finnst sem
við séum stödd á þessum fornu
slóðum Nýja testamentisins. Það
gefur flutningi leiksins aukið
gildi að fengin hafa verið frá
brezka útvarpinu þau leikhljóð
(effektar) og tónlist sem þar voru
notuð.
Dorothy Leigh Sayers fæddist í
Oxford árið 1893. Hún var ein af
f.vrstu konunum sem tóku próf
frá Oxford-háskóla. Um 1920 fór
hún að skrifa sakamálasögur þar
sem Peter Wimsey lávarður var
aðalsöguhetjan og urðu þær brátt
vinsælar. Færri vita þó að hún
skrifaði allmörg trúarleg leikrit,
meðal annars Maðurinn sem bor-
inn var til konungs (The man
born to be king)árið 1941.
Doroth.v Sa.vers var fjölhæf kona.
Hún fékkst einnig við þýðingar á
miðaldaskáldskap og varð fræg
Margir þekktir leikarar leika i framhaldsleikritinu sem byrjar annað kvöld. Það er leikstjórinn,
Benedikt Arnason, sem situr fvrir endanum á borðinu. DB-m.vnd Arni Páll.
f.vrir Dante-þýðingu sína. Hún
Iézt árið 1957.
Maðurinn sem borinn var iil
konungs hefur notið mikilla vin-
sælda þar sem verkið hefur verið
flutt erlendis, ekki sízt í Bret-
landi. enda’ mjög áhe.vrilegt verk.
Hér verður leikurinn fluttur
næstu tólf sunnudaga að loknum
kvöldfréttum.
Það voru þær Vigdís Finnboga-
dóttir og Torfe.v Steinsdóttir sem
gerðu þýðinguna en.leikstjóri er
Benedikt Arnason.
EVI
þeim oft erfiðara að losna úr
þeim en að komast i.
Þá kemur og í ljós viðhorf
eldra fólks og sýnd eru dæmi
um að oft er góður skilningur á
milli þess og unga fólksins.
Þættirnir eru alls 14. Þeir
eru kanadískir og taka þeir að
mestu mið af lífi fólks í Kanada
og Bandaríkjunum. EVI
Sjónvarpið á morgun kl. 17.00: MannlíTið
UNGLINGSÁRIN
,.Jú, þessi þáttur er ekki
síður fróðlegur en hann b.vggist
ef til vill meira á viðtölum og
frásögnum en hinir," sagði
Óskar Ingimarsson. þýðandi og
þulur þáttanna Mannlífið, en
10. þáttur er á dagskrá á
morgun.
Ilann fjallar um unglinga á
aldrinum 13—18 ára, um breyt-
ingarnar sem 'verða á þessum
árum, bæði likamlegar og and-
legar. Heimsóttur er mennta-
skóli þar sem nemendur eru
með uppreisnaranda og viðhorf
þeirra unglinga könnuð, sem
leggjast út, ef svo má að orði
Viðhorf eldri og' yngri kvn-
slóöarinnar stangast oft á. en
skvldi ekki vera hægt að brúa
kvnslóðabilið meira en gert er?
komast. Teknar eru tali 2 stúlk-
ur sem þannig er ástatt fyrir. og
kemur í ljós að þessir krakkar
lenda i alls konar flokkum og er
Sjónvarpið annað kvöld kl. 20.30: Heimsdkn
Systurnar i Stykkishólmi
Systur úr St. Fransiskusarregl-
unni hófu rekstur sjúkrahúss í
Stykkishólmi fyrir 40 árum og
hafa rekið það siðan. Auk sjúkra-
hússins starfrækja þær einnig
prentsmiðju og barnaheimili.
Sjónvarpsmenn heimsóttu reglu-
systurnar um miðjan þennan
mánuð og kynntu sér starfsemi
þeirra og lífsviðhorf.
Umsjón annaðist Magnús
Bjarnfreðsson, kvikmyndun
Sigurliði Guðmundsson, hljóð
Jón Arason og klippingu Ragn-
heiður Valdimarsdóttir.
EVI