Dagblaðið - 08.02.1977, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1977,
RAFVIRKJAR
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða
rafiðnaðarmann til starfa nú þegar.
Laun eru samkvæmt launaflokki B 13.
Umsóknarfrestur er til 11. febrúar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum
umsóknareyðublöðum til rafveitu-
stjóra, sem veitir nánari upplýsingar
um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Meistarafélag byggingamanna
Suðumesjum
Skilafrestur
í samkeppni um merki félagsins
er framlengdur til 15. feb. nk.
Stjórnin.
KERFIÐ
INNHVERF ÍHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION
PROGRAM
Selfyssingar
Almennur kynningarfyrirlestur
verður miðvikudaginn 9. febrúar kl.
20.30 í GAGNFRÆÐASKÓLANUM A
SELFOSSI.
Öllum heimill aðgangur.
íslenzka ihugunarfélagið.
Auglýsing
um styrki úr Lánasjóði íslenzkra
námsmanna
Hér með auglýsir stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna
til umsóknar styrki úr sjóðnum skv. 12. gr. laga nr.
57/1976 og 22. og 23. gr. rgg. nr. 347/1976.
Umsóknarfrestur er til 1. marz nk.
Almenn skilyrði fyrir styrkveitingu eru þessi:
1. Umsækjandi hafi fulinýtt rétt sinn og möguleika á láni
úr sjóðnum.
2. Aðstæður umsækjanda geri honum ómögulegt að
stunda nám sitt án frekari námsaðstoðar.
Styrkir þessir eru veittir með tilliti lil eftirfarandi
ástæðna m.a,:
a. örorka og veikindi.
b. erfiður f járhagur vegna fjölskyldu.
c. búferiaflutningur vegna náms.
Auk þess auglýsir sjóðurinn aukaferðastyrki fyrir skóla-
árið 1976-’77. Aukaferðastyrkur er veittur ef
umsækjandi færir fuilgild rök að því að sérstakar
ástæður geri honum nauðsynlegt að fara oftar en einu
sinni milli heimilis og námsstaðar.
Reykjavík l.febrúar 1977.
Lónasjóður ísl. nómsmanna
Laugavegi 77.
I
Almenni músíkskólinn:
Leika létt lögf
sér og öðrum til
skemmtunar
Þegar Miðbæjarskólinn var
fullur af krökkum hér um árið og
allir voru hræddir við skólatann-
lækninn, var ekkert sældarbrauð
að' ganga á eftir konunni í hvíta
sloppnum, þegar hún kom að
sækja mann í tíma. Konan gekk
marga stiga og upp á loft, sem var
löng leið fyrir krakka með maga-
pínu vegna kvíðans. Það átti
kannski að spóla. Krakkarnir
sögðu að hún væri ofsalegur fant-
ur og svo var lyktin alveg hræði-
leg. Svo þurfti að borða hafra-
graut í heilan dag á eftir, ef hún
spólaði mann.
ir klassískan gítarleik. Þegar við
litum þarna inn var Sigurður
Jónsson að kenna 11 ára stúlku á
orgel og að sjálfsögðu spilaði hún
fyrir okkur.
Karl stofnaði Almenna músík-
skólann fyrir þremur árum. Til-
gangurinn með stofnun skólans
var að gera fólki kleift að læra að
leika létt lög á hin ýmsu hljóð-
færi, sér og öðrum til skemmtun-
ar. Skólinn er fyrir fóik á öllum
aldri og er nemendum skipt í
hópa eftir aldri.
Tónfræði er kennd við skólann
fyrstu tvö árin og einnig nótna-
lestur. Námið er byggt þannig
upp að nemendur geti sem fyrst
farið að leika létt lög. Svo er það
smáþyngt og tónfræðinni fléttað
inn í námið. Karl sagði að það
væri aðalatriðið að nemend-
ur fengju það mikinn áhuga að
þeir væru duglegir að æfa sig
heima og þess vegna mætti ekki
þyngja námið skyndilega.
Nemendur sem byrjað hafa hjá
Karli, hafa margir farið út í alvar-
legt tónlistarnám, en flestir koma
til að geta leikið sjálfum sér til
ánægju.
•KP
l
mM
jj
Nú ganga krakkar með allt
öðru hugarfari þessa þröngu stiga
í Miðbæjarskólanum. Þau eru
komin hingað til að læra á hljóð-
færi og hlakka til. Þar sem skóla-
tannlæknirinn í Miðbæjarskólan-
um var í gamla daga er nú Al-
menni músíkskólinn til húsa. Þar
kennir Karl Jónatansson, hinn
kunni harmoniku-leikari þeim
yngri að fara höndum um þetta
skemmtilega hljóðfæri. Þeir sem
hafa áhuga á að læra t.d. á gítar
eða píanó geta einnig fengið
kennslu. Karl hefur t.d. Tékka,
sem heitir Miloslav og hann kenn-
Það eru ekki eintómir karl-
menn sem læra á harmóníku,
kvenfólkið er einnig liðtækt á
þessu sviði tónlistar.
Karl Jónatansson, harmóníku-
leikari, stofnaði Almenna mús-
íksskólann fyrir þremur árum.
DB-myndir Bjarnieifur.
Þessir strákar eru að iæra
klassískan gítarleik hjáTékkan-
um Miloslav.