Dagblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977.
BYLTINGAR-
TILRAUN í
EÞÍÓPÍU
Þjóðhöfðingi Eþiópíu, Tefari Benti, brígadér, (til vinstri á mynd-
inni) og sex aðrir háttsettir herforingjar í stjórn iandsins voru
teknir af lífi fyrir helgina í Addis Ababa, eftir misheppnaða tilraun
til að steypa marxistastjórninni þar af stóli. Ríkisútvarpið í landinu
skýrði frá því í sérstakri fréttaútsendingu, að raunveruiegur leið-
togi landsmanna. Mengistu Haile Mariam iiðþjálfi, væri heill á
húfi. Hann er hægra megin á myndinni, sem tekin var 1975.
Bandaríkjamenn áhyggju-
fullir vegna Ginzburg
Bandaríkjamenn hafa lýst
yfir áhyggjum sínum vegna
handtöku sovézka andófs-
mannsins Alexanders Ginzburg
og endurtekið að þeir muni
ekki sitja hjá aðgerðarlausir ef
þessu heldur áfram.
t þriðju yfirlýsingunni, sem
ríkisstjórn Carters hefur sent
frá sér síðan hún tók við emb-
ætti 20. janúar sl. vegna þess að
baráttumenn fyrir mannrétt-
indum í Sovétríkjunum hafa
verið handteknir, er samúð
utanríkisráðuneytisins lýst með
málstað Ginzburg.
Hefur orðsending verið send
sovézkum ráðamönnum.
Aiexander Ginzburg
Behtu
Bretar
pyntingum?
Crumlin Road-fangelsið hefur þótt illræmt, en auk þess eru
pólitískir fangar í haldi í sérstökum búðum.
Irska ríkisstjórnin hefur
vísað ásökunum sínum á
hendur ríkisstjórn Bretlands,
þess efnis að pólitískir fangar
hafi verið pyntaðir í fangelsum
Breta á N-trlandi, til Mannrétt-
indadómstólsins í Genf. Segir í
kæru írsku ríkisstjórnarinnar
að Bretar hafi beitt yfirheyrslu-
aðferðum sem nálgast hafi
pyntingar.
Krefst irska ríkisstjórnin
þess að Bretar verði fordæmdir
fyrir þessa verknaði auk þess
sem þeir verði látnir gefa út
yfirlýsingu um að þeir muni
aldrei beita þeim á ný.
Ríkisstjórn Irlands skaut
máli sínu til Mannréttindadóm-
stólsins í fyrra, eftir að Mann-
réttindanefnd Evrópu hafði
komizt að þeirri niðurstöðu,
eftir fjögurra ára rannsóknir,
að Bretar hefðu beitt fanga
sína illri meðferð og jafnvei
pyntingum.
Munu Bretar hafa haft
þessar aðferðir í frammi eftir
að lög um handtökur án dóms
og laga gengu í gildi árið 1971.
Bretar hafa ekki mótmælt
niðurstöðum Mannréttinda-
nefndarinnar en þeir eru reiðir
trum fyrir að ætla að sækja mál
sitt fyrir dómstólnum. Líta þeir
svo á að afskipti dómstólsins
muni einungis verða til þess að
erfiðara verði að binda enda
á hermdarverk á Norður-
trlandi.
Israelsmenn vilja
selja — Banda-
ríkjamenn banna
ísraelsmenn munu tapa sem
svarar 150 milljónum Banda-
ríkjadollara ef Bandaríkja-
menn leyfa þeim ekki að selja
Ecuadormönnum 24 Kfir orr-
ustuþotur, sagði Simon Peres,
varnarmálaráðherra ísraels í
viðtali í gær.
Ecuadormenn hafa undir-
ritað kaupsamninginn en sala
er háð samþykki Banda-
ríkjamanna þar eð þotuhreyfl-
arnir eru smíðaðir af General
Electric-verksmiðjunum í
Bandaríkjunum. Utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna hefur
að því er virðist lagzt gegn þvi
að af kaupunum verði og hafa
tsraelsmenn reynt að fá þá til
þess að skipta um skoðun með
ýmsu móti að undanförnu.
Benti Peres á að ef þeir þver-
skölluðust yrði það einungis
þeim sjálfum í óhag, því
Ecuadormenn myndu þá að öll-
um líkindum, kaupa franskar
Mirage-þotur.
halía:
Óttazt að ehurefnin
renni ttt í Adríahaf
Italir óttast nú meiriháttar
mengun af völdum úrgangs-
efna sem sukku í hafið fyrir
tveimur og háifu ári. Hyggjast
þeir innan mánaðar ná níu
hundruð og sjö tunnum af
eitruðum efnum upp úr skips-
flaki á botni Adríahafs.
Stáltunnurnar innihalda blý-
efni sem notuð voru við olíu-
vinnslu. Þær voru meðal ann-
ars farms í júgóslavneska flutn-
ingaskipinu Cavtat sem sökk
eftir árekstur út af Otranto á
strönd Adríahafs undir haust
1974.
Vísindamaður einn í Róma-
borg, sem skoðaði sýni er náð-
ust upp úr skipsflakinu i des-
entber, sagði fréttamönnum i
siðuslu viku að tunnurnar gætu
eyðilagzt og eiturefnin lekið í
hafið.
Séu allar tunnurnar í sama
ástandi og sú sem hann skoðaði,
sagðist vísindamaðurinn ekki
hrífast af þeirri tilhugsun að
synda í sjónum við Otranto eft-
ir tvo eða þrjá mánuði.
Liggur nú fyrir dómsúr-
skurður sem heimilar að björg-
unartilraunirnar hefjist 28.
febrúar. Verkið hefur verið
boðið út og tilboðum skilað.
Skóvinnustofa tilsölu
Öll verkfæri, tæki og vélar ásamt
vörulager til sölu.
Uppl. í síma 30155 og 85891.
Harald A. Albertsson
Skóvinnustofan Hrísateigi 47.
Starfskraftur
óskast strax við símaafgreiðslu o.fl.
Föst yfirvinna. Umsóknir sendist
afgreiðslu Dagblaðsins merkt
„Rösk 1357”.
Lockheed:
3000 milljón
dollara samningar
— og ekki eitt sent
í mútugreiðsiur
Þetta er Ravi Tikkoo, stjórnarformaAur
bandariska tankskipafólagsins Glotic Tank-
ers U.S.Inc. Hann er fœddur i Kashmír en
er nú brezkur þegn og hefur pantað fyrsta
kjarnorkuknúna olíuflutningaskipið i sög-
unni. Verður þaö smíðað i Bandarikjunum
— eða raunar þau, þvi um þrjú skip er aö
ræða. Aætlaöur kostnaður er 200 milljarð-
ar.
Lockheed - flugvélaverk-
smiðjurnar áttu ekki í erfiðleik-
um með að finna tilefni til að
tilkynna: að þvi hefðu borizt
pantanir f.vrir þr.íá inill.jarða doll-
ara á síðasta ári, án þess að borga
eitt sent i mútur.
,.Við höfum ekki borgað
krónu." sagði Robert Haack,
stjórnarformaður Lockheed. þeg-
ar fréttamenn spurðu hann hvort
mútugreiðslur tíðkuðust enn í
viðskiptum erlendis. Stjórnskip-
uð nefnd fletti ofan af þessum
viðskiptaháttum 1975.
Á blaðamannafundi og í ræðu
hjá Commonwealth-klúbbnum í
San Francisco sagði Haack enn-
fremur að rannsókn f.vrirtækis-
ins sjálfs myndi leiða i ljós að(
engar mútur hefðu verið greiddar
innanlands.
Haack bætti því við að hann
væri viss um að afnám mútu-
greiðslnanna m.vndi þafa slæm
áhrif á sölu erlendis.