Dagblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 1977. ■5 Tillagaá Alþingi: „Vinnuskilyrði sem stuðla að starfsgleði” ..Tilgangur laganna verói aö tryggja öllum landsmönnum starfsumhverfi, þar sem ekki er hætta á líkamlegu eöa andlegu heilsutjóni, en vinnuskilyrði eru í samræmi við lífskjör þjóðarinnar og tæknilega getu, stuðla að virð- ingu vinnunnar og starfsgleði.“ Svo segir í þingsályktunartil- lögu Alþýðuflokksmanna, sem fram kom i gær, um vinnuvernd og starfsumhverfi. „Lögin geri ráð fyrir eðlilegum íhlutunarrétti vinnandi fólks varðandi starfsum- hverfi sitt,“ segir einnig í tillög- unni, ,,en stefni að því, að verk- efni og vandamál á því sviði verði sem mest leyst í samstarfi verka- fólks og atvinnurekenda, svo og af samtökum vinnumarkaðarins, alit innan ramma laga og reglu- gerða. Núverandi stofnanir, er gæta öryggis á vinnustöðum, fái aðstöðu til að annast óhjákvæmi- legt eftirlit með því, að opinber- um kröfum sé fylgt á þessu sviði.“ Þá skuli lögin hafa ákvæði urm starfsaðstöðu fyrir fólk, sem hef- ur skerta vinnugetu, og stuðla að því, að það fái í sem ríkustum rnæli vinnu með heilbrigðum á venjulegum vinnustöðum. í greinargerð með þessari til- lögu um samningu laga af þessu tagi segja flutningsmenn, að slík löggjöf hafi undanfarin ár verið í undirbúningi og nýlega verið af- greidd á þingum hinna Norður- landanna. F.vrsti flutningsmaður er Bene-' dikt Gröndal. -HH Umhverfi vinnandi fólks hefur sitt að segja, innan húss sem utan. Þessi mynd frá Vestmannaeyjum og sýnir að víða er pottur brotinn í þessum efnum. RAFMAGNIÐ ER ALDREITRYGGT Á AUSTURLANDI Skorað á sjönvarpið að endursýna Kastljós Þegar Austfirðingar voru að horfa á þáttinn Kastljós í sjón- varpinu á föstudagskvöld, þar sem fjallað var um Geirfinns- málið, sló út rafmagnið á Gagn- heiði. Þegar slíkt gerist, er vararafall sem á að taka við. en sá rafall virkar ekki nema stöku sinnum. Því er það eindregin ósk okk- ar Austfirðinga, að Sjónvarpið endursýni áðurgreindan þátt hið allra fyrsta. Mér fannst fyrirspyrjendur spyrja fyrir al- þjóð, svo greinilegir og yfir- lætislausir sem þeir voru að allra dómi, en hér eystra gát- um við ekki séð nema um það bil sjö mínútur af þættinum. Regína Th/abj. BIÐ EFTIR LOND- UN Á ESKIFIRÐI Verksmiðjan hefur mí tekið á moti 15.600 tonnum af loðnu Loðnuskipin þurfa nú að biða einn til tvo sólarhringa eftir löndun á Austurlandi. Hefur nú verið landað úr fjórum bát- um. sem búnir voru að biða í einnsólarhnng eftir löndun á Eskifiröi. Santa sagan endur- tekur sig si og æ. Svona var þetta á sildarárunum. Ef síld- veiði var góð í einn til tvo sólar- hringa. varð löndunarstopp. Hólmatindur kom inn til Eskifjarðar í morgun með 50 tonn af stórþorski, eftir nokk- urra daga útivist. Á morgun ér væntanlegt til Eskifjarðar, skip sem tekur 500 tonn af loðnu- mjöli. Verksmiðjan á Eskifirði hef- ur nú tekið á móti 15.600 tonn- um af loðnu og hefur bræðslan gengið mjög vel. síðan rafmagn- ið komst að mestu í lag. Regína Th./abj. * Meiri erlend lán: Hið síðasta er 18 þúsund á mannsbarn Enn er aukið á erlendu lánin. Jóhannes Nordal Seðlabanka- stjóri, undiríitaði fyrir helgi í umboði fjármálaráðherra, samning um opinbert lánsútboð að fjárhæð 3.816 milljónir króna á núverandi gengi. Lánið tekur ríkissjóður sam- kvæmt lagaheimild um erlenda lántöku vegna framkvæmda- áætlunar ríkisins. Andvirði lánsins skal meðal annars verja til framkvæmda við virkjanir, dreifikerfi rafmagns, fiskiðnað og aðrar útflutningsgreinar. Lániðer boðið út á alþjóðleg- um verðbréfamarkáði með 9 v___ prósent vöxtum. Það er afborg- analaúst fyrstu þrjú árin. Láns- tími er lengstur 10 ár. Skulda- bréfin eru seld á 99,5% af nafn- verði. Milligöngu um lántökuna höfðu þessar erlendu fjárfest- ingarlánastofnanir og bankar, undir forystu First Boston (Evrópu), Credit Suisse White Weld, Hambros Bank, Manu- facturers Hanover og West- deutsche Landesbank Giro- zentrale. Þetta lán nemur um 18 þús- und krónum á hvert manns- barn í landinu. -HH HVITIR LEÐURSKOR Sérstaklega ætlaöirfyrir starfsfólk á dömur ogherra lcg. 301 1 — I.ilur: 11\ ill leðiir. Sla'i ðir: 36-1 i — Kr. 1.770 Sla'rðir: ll-lli — Kr. I.97i>,- ...einnig hentugir viö heimilisstörf

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.