Dagblaðið - 08.02.1977, Side 22

Dagblaðið - 08.02.1977, Side 22
22 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977. 9 TÓNABÍÓ I Enginn er fullkominn (Somc like it hot) W v/ i I/ .... l j n íi / ;" yO-;XN m jí m „Some like it hot“ er ein bezta samanm.vnd sem Tónabíó hefur haft til sýninga. Myndin hefur verið endursýnd víða erlendis við mikla aðsókn. Leikstjóri: Billy Wilder. Aðalhlutverk: Marilvn Monroe, Jaek Lemmon, Tony Curtis. Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. 9 NÝJA BIO I French Connection 2 9 GAMIA BIO íslenzkur texti Æsispennandi og mjög vel gerð ný bandarísk kvikm.vnd, sem alls staðar hefur verið sýnd við met- aðsókn. M.vnd þessi hefur fengið frábæra dóma 'og af mörgum gagnrýnend- um talin betri en French Connect- ion I. Aðalhlutverk: Gene Hackman Fernando Ray. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. llækkað verð 9 HAFNARBÍÓ Litli risinn Hin spennandi og vinsæla Pana- vision litmynd með Dustin Hoff- man og Faye Dunaway. Islenzkur texti. Bönnuð innan 16 ára. v Endursýnd kl. 8.30 og 11.15. NVJUNG. Samfelld 1.30 til 8.30. 2 myndir. sýning kl. Hort gegn hörðu Spennandi ný litmynd og Ruddornir Spennandi Panavision-litmynd. Endursýnd. Bönnuð innan 16 ára. Samfelld sýning kl. 1.30 til 8.20. 9 BÆJARBÍÓ D Monnrónin Nýjasta mynd Alfred Hitchcock, gérð eftir sögu Cannings „Thé Rainbird Pattern”. Bókin kom út i ísl. þýðingu á sl. ári. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 9. íslenzkur texti. Sólskinsdrengirnir Víðfræg bandarísk gamanmynd frá MGM; samin af Neil Simon og afburðavel leikin af Walter Matthau og George Burns. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 9 LAUGARÁSBÍÓ Hœg eru heimotökin D Ný hörkuspennandi bandarísk sakamálamynd um umfangsmikið gullrán um miðjan dag. Aðalhlutverk: Henry Fonda, Leonard Nimoy o. fl. ísl. texti. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 12 ára. 9 AUSTURBÆJARBÍÓ D Leikið við dauðonn (Deliverance) ISLENZKUR TEXTI Æsispennandi kvikmynd, byggð á samnefndri sögu, sem kom út í ísl. þýðingu fyrir sl. jól: Aðalhlutverk: Burt Reynolds, John Voight. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 5, 7 og 9. 9 STJÖRNUBÍÓ D Okkar beztu ór (The Way We Were) íslenzkur texti Ný, víðfræg, amerísk stórmynd í litum og Cinema Scope með hin- um frábæru leikurum Barbra Streisand og Robert Redford. Leikstjóri Sidney Pollack. Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. 9 HÁSKÓIABÍÓ D Árósin á Entebbe- flugvöllinn Þessa mynd þarf naumast að aug- lýsa svo fræg er hún og at- burðirnir sem hún lýsir vöktu heimsathygli á sínum tíma þegar Israelsmenn björguðu gislum á Entebbeflugvelli í Uganda. Mvndin er í litum með islenzkum texta. Aðalhlutverk: Charies Bronson Peter Finch Yaphet Kottó. Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.30. Hækkað verð. BIAÐIB Umboðsmann vantará Blönduds. Upplýsingar hjó Sœvari Snorrasyni, Hlíðurbraut 1 Blönduósi, sími 95-4122 og afgreiðslunni í Reykjavík, sími 22078. 9 Útvarp Sjónvarp A Laugarvatni eru margir skólar. Þetta er héraðsskólinn. DB-mynd. Útvarp íkvöld kl. 20,50: Frá ýmsum hliðum Menntasetrið að Laugarvatni heimsótt Met-bréfabunki eftir síðasta þátt frá unglingum úti á landsbyggðinni „Við fórum til Laugarvatns á dögunum og heimsóttum alla skólana þar nema barna- skólann. 1 síðasta þætti kynnt- um við húsmæðraskólann," sagði Hjálmar Árnason, en hann er annar stjórnandi þáttarins Frá ýmsum hliðum, sem er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 20.50. „í kvöld er ætlunin að kynna menntaskólann, héraðsskólann og íþróttakennaraskólann, reyndar aðallega hann. Auk þess verður lesið úr bréfum frá hlustendum en eftir síðasta þátt var slegið algert met í bréfasendingum. Við fengum hvorki meira né minna en 350 bréf — gamla metið var 280 bréf. Svo kemur auðvitað leyni- gesturinn í heimsókn. Þessi bréf voru að miklu leyti frá krökkum úti á landi og senda þeir bæði svör við get- raun þáttarins og heilmikið efni, m.a. leikrit. Við fáum heil- mikið af hugmyndum við lestur þessara bréfa. Krakkarnir biðja um að fá kynningu á ákveðnum skólum og starfsgreinum. Við erum ánægðir yfir hve vel þessi heimsókn okkar út fyrir höfuðborgina tókst. I Ijós hafði komið að unglingar víða um land voru óánægðir með hve efnisval þáttarins var einskorðað við Reykjavík. Nú höfum við loksins fengið leyfi til þess að fara út á land og taka þáttinn upp þar og við ætlum að reyna að halda þvf áfram,“ sagði Hjálmar Árna- son. Hjálmar kennir íslenzku við Flensborgarskólann í Hafnar- firði, en meðstjórnandi þátt- arins, Guðmundur Árni Stefánsson, leggur stund á laga- nám við Háskóla íslands. -A.Bj. Útvarp íkvöld kl. 19,35: Hvaða reglur gilda um óskipt bú? Þáttur um lögfræðimál og réttarstöðu einsf aklinga „Við munum aðallega fjalla um óskipt bú í þættinum.það er að vísu ekki búið að taka hann upp, þannig að ég veit ekki alveg hve mikið efni við komumst yfir,“ sagði Jón Stein- ar Gunnlaugsson lögfræðingur, annar stjórnándi þáttarins Hver er réttur þinn? sem er þáttur um réttarstöðu einstáklinga og samtaka þeirra. Hinn umsjónarmaðurinn er Ei- ríkur Tómasson lögfræðingur. Þátturinn er á dagskrá út- varpsins í kvöld kl. 19.35. „Það er kallaö að eftirlifandi sitji 'í óskiptu búi með börnum og fjallar þátturinn um þær reglur sem gilda þar um og hver séu skiíyrði þess að fólk fái leyfi til að sitja í óskiptu búi. Einnig um hver sé réttur eftirlifandi maka og barna og eftir hvaða reglum búinu verður skipt og hvenær aðilar geti krafizt skiptingar á búinu. Þá munum við einnig svara bréfum frá hlustendum. Jú, við fáum alltaf þó nokkuð af bréf- um. Þau eru auðvitað nokkuð misjafnlega greinagóð. Efni bréfanna er eiginlega um allt milli himins og jarðar en oft fjalla þau um það efni sem var í næsta þætti á undan, fólk vill gjarnan fá meiri upp- lýsingar um það sem fjallað hefur verið um,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson lög- fræðingur. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.