Dagblaðið - 08.02.1977, Síða 24
Jölvuvædd ríkisfyrirtæki gera
menn að vanskilamönnum ’
—segir Guðmundur J. Gudmundsson
„Málshöfóun til leiðréttingar
á dráttarvöxtum, sem verka-
mönnum er nú gert að greiða
vegna vanskila á opinberum
gjöldum, er nú íhuguð í fullri
alvöru," sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
Verkamannasambands Islands,
í viðtali við DB.,
Af ástæðum sem verkamenn
telja sig ekki eiga sök á, hefur
svo farið að reglulegar
greiðslur þeirra hafa ekki
borizt Gjaldheimtunni í tæka
tíð, samkvæmt hennar bókum.
Hefur Gjaldheimtan af þessum
sökum gert þeim að greiða
dráttarvexti vegna vanskila.
Hafa þessir dráttarvextir verið
teknir af launum þeirra sam-
kvæmt kröfu liennar. Þessu
vilja verkamenn ekki una og
krefjast leiðréttingar. Þessi
ágreiningur tekur til viku-
kaupsverkamanna hjá ríkis-
fyrirtækjum.
„Þetta er flókið mál og þarf
að skoðast alveg sérstaklega,"
sagði Guðmundur Karl Jóns-
son, deildarstjóri í launadeild
fjármálaráðuneytisins, er
fréttamaður spurði hann um
þetta mál. Kvaðst hann ekki á
þessu stigi geta tjáð sig um það,
hver niðurstaðan yrði, en málið
væri til athugunar. „Þetta
tekur til örfárra manna,“ sagði
hann.
Guðmundur Karl kvað málið
taka til þeirra stofnana sem
hefðu sjálfar greitt laun starfs-
manna þeirra sem hér um
ræðir. Sé þetta vegna van-
greiðslna á opinberum
gjöldum, sém átt hefði að taka
reglulega af launum. Hann
sagði, að dráttarvaxtaút-
reikningur hefði í fyrra verið
gerður hjá Gjaldheimtunni
hinn 15. hvers mánaðar. Þegar
það sem tekið var af launum
t.d. hinn 10. mánaðar hefði ekki
borizt til Gjaldheimtunnar fyrr
en t.d. hinn 20. mánaðar sýndu
innfærslur á greiðslum vanskil
hinn 15.
Samkvæmt orlofslögunum fá
fastir vikukaupsmenn orlofs-
laun fyrir þann mánuð sem
þeir taka sumarleyfi. Þannig er
ekki tekið og lagt fyrir orlofsfé
af hverjum vikulaunum, heldur
fá þeir sumarleyfismánuðinn
greiddan eins og venja er til um
laun fastráðinna mánaðar-
kaupsmanna. Af þessum orlofs-
launatíma er skki tekið af
mönnum upp í opinber gjöld.
Er það í samræmi við tilgang
orlofslaganna. Þeirri fjárhæð,
sem annars væri tekin af laun-
um orlofsmánaðarins, er dreift
á þá mánuði ársins, sem eftir
eru af árinu. Á greiðslu
opinberra gjalda getur þannig
orðið dráttur sem því nemur.
Samkvæmt reglum Gjald-
heimtunnar verða þannig van-
skil sem dráttarvextir eru
lagðir á.
Samkvæmt venju eru skattar
ekki teknir af mönnum í júlí-
mánuði, þótt þeir vinni hann,
þar sem gert er ráð fyrir því, að
þann mánuð taki menn almennt
orlof.
„Þennan drýgsta mánuð til
margvíslegrar útivinnu taka
menn ekki orlof eftir tölvufor-
skrift," sagði Guðmundur J.
„Þar sem ekki er tekið af laun-
um ' manna þann mánuð
sem þeir fara í orlof gerir tölvu
væðingin menn að vanskila-
mönnum og dráttarvaxta-
kröfum rignir yfir þá sem síðar
á árinu fara í sitt orlof."
„Þetta verður ekki þolað,"
sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson. „Ef þetta fæst ekki
leiðrétt, verður látið reyna á
rétt manna með málshöfðun."
-BS.
Tugmilljónatjón íeldsvoða á Akranesi ígærkvöldi:
GÓLF HÚSSINS BAÐAÐ
í STEINOLÍU RÉn
ÁÐUR EN KVIKNAÐI í
—slökkviliðsmaður f ékk reykeitrun, f éll úr stiga og slasaðist
Það var mikið bál og vel nært af olíu og öðrum eldfimum efnum sem slökkviliðsmenn á Akranesi
glintdu við í gærkvöldi. Vatn var af skornum skammti og aðstæður því erfiðar í byrjun. Þarna varð
tugmilljónatjón. A myndinni má greina skólabílinn sem brann í dyragætt smurstöðvarinnar.
DB-mynd Hlynur Eggertsson.
Gólf smurstöðvarinnar á Akra-
nesi. sem er á Suðurgötú 91,
hafði verið baðað í sieiriolíu í
hreinsunarskyni og löðraði því
í olíunni er eldur kom þar upp,
rétt fyrir kl. 21 i gærkvöldi. Olli
olían því að eldurinn barst um
húsið á svipstundu og varð það
þegar alelda.
Neistarnir, sein íkveikjunni
ollu, komu frá rafmótor, sem
knúði háþrýstidælu er
verkstæðismenn hugðust nota
nl að hreinsa bílmótor.
Þeir sem í húsinu voru náðu
að forða sér út en ekki gafst
ráðrúm til að bjarga neinu svo
sem varahlutabirgðum, stórum
fólksflutningabíl. olíubirgðum
og fleiri vermætum. Taldi
slökkviliðsstjórinn á Akranesi,
Stefán Teitsson, ekki óvarlegt
að meta tjónið á tugi milljóna,
er DB ræddi við hann í morgun.
Auk þess var þarna um að ræða
einu smurstöðina á Akranesi.
Að sögn Stefáns kom sloKkvi-
liðið brátt á vettvang en vatns-
skortur háði slökkvistarfinu
fyrstu 15 til 20 mínúturnar, eða
þar til vatn var tekið af
sementsverksmiðjunni og leitt
á brunastaðinn sem er þar
skammt frá. Þá gekk allt vel og
var búið að slökkva eldinn um
kl. 22. Stóðu þá aðeins veggir
hússins uppi. en þeir eru
steinsteyptir.
Töluverðar sprengingar urðu
í olíubirgðunum, en engan
sakaði við það. Hins vegar fékk
einn slökkviliðsmannanna
aðkenningu að reykeitrun er
hann var staddur uppi i stiga.
Féll hann nokkra meta niður úr
stiganum ofan á járnarusl og
meiddist eitthvað. Var hann
fluttur á sjúkrahúsið og var á
góðum batavegi í morgun eftir
þvi sem Stefán bezt vissi.
Þetta er annar stórbruninn á
Akranesi á skömmum tíma, en í
september sl. brann þar neta-
verkstæði til kaldra kola. Að
sögn Stefáns eru brunavarnir á
Akranesi ekki lakari en gengur
og gerist og útkall liðsins fá
miðað við það fjölmenni sem
það þjónar. Þá gat hann þess
einnig að þegar netaverkstæðið
brann, hefði ekki logað upp úr
nokkru húsi á svæði liðsins í tíu
ár.
Að mati Stefáns er liðið all-
vel tækjum búið en vatnsskort-
ur í bænum háir hinsvegar
fyllstu afköstum, eins og fram
kom í gærkvöldi.
-G.S.
fijálst, úháð daghlnð
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBR. 1977
t'i ' ■iliTr .'-ír-wr-M—n
Jötunn ennþá fastur:
Fimm
milljónir
farnar
ísúginn
Jötunn, stóri borinn
Orkustofnunar, er enn fastur á
458 metra dýpi í borholunni
við Laugaland i Eyjafirði, eftir
þeim upplýsingum sem DB
aflaði sér í morgun.
Hafa starfsmenn unnið nótt
og dag við að reyna að losa
borkrónuna sem festist sl.
föstudag er grjóthrun varð í
holunni.
Að Laugalandi er unnið að
borunum fyrir hitaveitu Akur-
eyrar og er talið að borinn
kosti um eina milljón króna í
leigu og með kostnaði á dag,
svo að mikið er í húfi.
-HP.
Sakbending í
handtökumálinu
íVogunum:
Engin
stúlka
handtekin
Sakbending i handtöku-
máli Karls Guðmundssonar,
sem.á sínum tíma var hand-
tekinn í Vogum á Vatns-
leysuströnd ásamt Guðbjarti
Pálssyni, fór frain í húsa-
kynnum Sakadóms Reykja-
víkur í gær. Engin handtaka
fór fram að henni lokinni.
Átta stúlkur stóðu í röð
við gluggavegg, sem snýr út
að Borgartúni klukkan
nærri 6 í gærkvöldi. Þeir
Karl og Guðbjartur litu á
stúlkurnar. Með þeim var
einnig bílstjóri sá sem ók
tveim stúlkum í leit að
Guðbjarti hér í Reykjavík
daginn sem handtakan í
Vogunum var.
Ein stúlkan, sem til var
kvödd, taldi sig bera kennsl
á tvo óeinkennisklædda lög-
reglumenn úr Keflavík við
sakbendinguna.
Steingrímur Gautur Krist-
jánsson, skipaður
setudómari í handtöku-
málinu kvað þarna hafa
verið um einfalda lögreglu-
rannsókn að ræða og hann
ekki verið þarna viðstaddur.
Hannes Thorarensen,
rannsóknarlögreglumaður,
sem er dómaranum til.
aðstoðar við rannsókn máls-
ins, stjórnaði sakbending-
unni. Hann sagði við
fréttamann DB að sakbend-
ing væri viðleitni til þess að
leita sannleikans í málinu og
alltaf væri gert ráð fyrir
þeim möguleika fyrirfram
að til væru kvaddar alsak-
lausar stúlkur. Slíkur liður í
rannsókn, sem sakbending
væri, hlyti því að vera við-
kvæmt mál og bezt að geta
sinnt því í kyrrþey. Að öðru
leyti kvaðst hann ekki tjá sig
um þessa rannsókn.
Sem fyrr segir fór engin
handtaka fram að lokinni
sakbendingunni.
BS.