Dagblaðið - 09.02.1977, Side 1

Dagblaðið - 09.02.1977, Side 1
3. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1977 — 33. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12, SIMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 1. SÍMI 27022. Nýtegund flokkunar blóðs og vef ja: Röng feðrun úr sögunni —sjá baksíðuf rétt um merkar nýjungar, sem viðhafðar eruhérálandi — baksíða I náttföt- unum á ball í gærkvöldi Nyjasta samkvæmistízkan? Það er alveg makalaust hverju þeir tízkukóngarnir i París geta tekið upp á. Nú eiga allir að vera í náttfötum. Það hlýtur að vera i tízku, fyrst allir mæta svona á Öðal. Það er verst hvaó þau klæða fólk mis- jafnlega. Annars var ógurleg stemmning í gærkvöldi við Austurvöllinn og fólk virtist kunna mikið betur við sig í náttfötum heldur en venju- legum gallabuxum, enda engin furða, þær eru búnar að vera svo lengi í tízku. Stúlkan á myndinni tók það upp hjá sjálfri sér að reyna að skemmta fólkinu á staðnum. Það er erfitt að halda jafn- væginu á tveim stólum, svo það fór næstum því út um þúfur, en það gerði ekkert til ef dæma má af svipbrigðum krakkanna á myndinni. -KP./Arni Páll. V Gæzlan á von á nýrri þyrlu fyrir 250 milljónir —hefur tryggt sér rétt íkaupendaröðinni „Mikið hefur verið rætt um að panta nýja þyrlu fyrir Landhelgisgæzluna," sagði Pétur Sigurðsson forstjóri í viðtali við DB í gær. „Við höfum nú nýverið tryggt okkur rétt í kaupendaröð- inni en á undan okkur eru margir og þó við séum kornnir í röðina er varl hægt að segja að við séum orðnir kaupendur." Fyrir valinu hjá Land- helgisgæzlunni varð ný gerð af Sikorskv þyrlu, sem nýbúið er að reyna til fulln- ustu og verið er að hefja framleiðslu á. Þyrlugerð þessi gengur undir nafninu S-76 og er mjög fullkomin. Hún er tveggja túrbína en eins hreyfils. Verð hennar nú mun vera rétt um 250 milljönir íslenzkra króna. Pétur sagði DB að Gæzlan heföi átt nokkuð af vara- hlutum frá Sikorsky og þeir hefðu verið endursendir og með andvirði þeirra hefði Gæzlan komizt í kaupendaröð S-76 gerðar- innar. Gæzlan fékk í fyrra, skömmu eftir hrap Landhelgisgæzluvélarinnar í Skálafelli. nýja þ.vrlu af Hughes gerð. Hún er mun minni en nýja þyrlan verður. -ASt.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.