Dagblaðið - 09.02.1977, Blaðsíða 6
tí
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1977.
Erlendar
fréttir
HELGI
PETURSSON
ASGEIR
TÖMASSON
REUTER v
Ritstjórí
Hustler
sekur
um
klám
Ritstjóri víðlesins banda-
rísks „karlmannablaðs",
Hustler, hefur verið fund-
inn sekur um klám af versta
tagi. Ritstjórinn, sem heitir
Larry Flynt, var fyrir
skömmu dæmdur í borginni
Cincinnati í Ohio, Banda-
ríkjunum' til að sæta 7—25
ára fangelsi og tíu þúsund
dollara sekt.
Lögfræðingur Flynts
hefur áfrýjað máli hans.
Manntjón
íJapan
vegna
snjókomu
Mikil snjókoma í Norður-
Japan hefur kostað 41 manns
lífið það sem af er þessu ári.
Járnbrautakerfi norðurhlut-
ans er lamað og borgin Aomori
er undir 1.85 metra þykku
snjóalagi. 600.000 manna liði
hefur verið sett það verkefni
að moka götur og frá b.vgging-
um.
Sérstök þingnefnd — sú
fyrsta um fjórtán ára skeið —
hefur verið skipuð til að fást
við þetta vandræðaástand.
Amy Carter
gætt
af mordingja
33ja ára gömul svört kona
hóf nýtt lif í Bandaríkjunum
um helgina en konan, sem er
dæmdur morðingi, skipti á
klefa sínum í fangelsi fyrir her-
bergi í Hvíta húsinu.
Mary Fitzpatrick kom til
höfuðborgarinnar, sl. laugar-
dag og tók þar á ný við starfi
sínu sem barnfóstra dóttur for-
setahjónanna, Amy, sem er níu
ára að aldri. Hópur starfs-
manna frá Hvíta húsinu tók á
móti henni á flugvcllinum og
fréttamenn og forvitnir
áhorfendur umkringdu hana.
„Það er eins og ég sé Marilyn
Monroe, ég trúi þessu varla,“
sagði Mary er henni var ýtt í
skyndi inn í glæsilega bifreið í
skini sjónvarpsvélaljósa og ekið
til nýja heimilisins við
Pennsylvaníu Avenue.
Mary hafði gætt Amy á
árunum 1971 til 1974 er Carter
var ríkisstjóri í Georgíu. Hafði
hún fengið leyfi til þess í sam-
ræmi við endurhæfingaráætlun
fyrir fanga, sem þar er í gildi,
en varð að snúa aftur til fang-
elsisins á hverju kvöldi.
Hún mun nú verða einn af
starfsmönnum á heimili for-
setahjónanna, býr þar í húsinu
á þriðju hæð og fær um 6000
dollara árslaun, frítt fæði og
vinnuföt.
Fitzpatrick, sem er fráskilin
tveggja barna móðir, var dæmd
til lífstíðarfangelsisvistar árið
1970, er hún var fundin sek um
að hafa skotið karlmann
nokkurn, í rifrildi í bænum
Lubkin í Georgíu. Samkvæmt
heimildum lögreglunnar hafði
hún komið vinkonu sinni, sem
átti í miklum vandræðum með
fyrrum elskhuga sinn, til
aðstoðar.
„Við erum öll yfir okkur
hrifin,“ sagði Rosalynn Carter,
er Mary kom til Hvíta hússins.
Reynt við heimsmet
—einu sinni enn
Karl Thomas velfar hérna til mannfjölda á jörðu niðri. Myndin
var tekin, er hann lagði upp frá Santa Anita i Kaliforníu og hugðist
fljúga til Flórída á tíu dögum eða skemur. Takist það hefur hann
sett nýtt heimsmet í flugi yfir Bandaríkin.
Thomas var fiskaður upp úr Atlantshafinu í fyrra er honum
mistókst að fijúga frá Bandaríkjunum yfir úthafið.
Júgóslavía:
Fjórír Hollendingar
handteknir meö
720 kíló afhassi
Lögregla í Belgrad í Júgó-
slavíu handtók fyrir nokkru 4
menn fyrir að reyna að smygla
720 kílóum af hassi til Vestur-
Evrópu.
Fólkið, sem handtekið var, er
allt búsett í Hollandi. Það er á
aldrinum 22—26 ára. Það hafði
falið hassið í bílum sínum.
Þetta er mesta magn eiturlyfja
sem hefur verið gert upptækt í
Júgóslavíu.
Júgóslavnesk yfirvöld til-
kynntu í gærkvöld að fólkið
hefði verið handtekið fyrir
hálfum mánuði. Ekki var þess
getið hvaðan fólkið var að
koma.
N0RÐMENN
BYGGJA SKIP
FYRIR FATLAÐA
Norski Rauði krossinn íhugar
nú áætlun um smíði á sérstöku
skemmtiferðaskipi sem yrði sér-
smíðað með þarfir fatlaðra fyrir
augum. Hugmyndin að smíði þess
konar skips er upprunalega
hollenzk, en Norðmenn munu
ætla að smíða skip er verið geti í
siglingum meðfram ströndum
Noregs yfir sumarmánuðijia.
Taliðer að um eitt þúsund fatlaðir
búi í oæjum meðfram ströndiniu.
Skipið á að taka 60 farþega sem
farið gætu í allt að viku
skemmtisiglingu með skipinu,
sem verður bæði fyrir þá sem
bundnir eru við hjólastóla og þá
sem eru rúmliggjandi.
Um vetrarmánuði á að nota
skipið sem blóðbanka og fundar-
staði fyrir hinar ýmsu deildir
Rauða krossins og þá gæti það
verið notað sem sjúkraskip í
styrjöldum eða náttúruham-
förum.
Kostnaður við gerð skipsins er
áætlaður um 50 milljónir norskra
króna og á að vera tilbúið til
notkunar á árinu 1979 ef af
verður.
Sérstök nefnd, þar sem
Haraldur krónprins er f forsæti,
hefur fjallað um málið og er búizt
við að ákvörðun um smfðina verði
tekin snemma á þessu ári.