Dagblaðið - 09.02.1977, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1977.
Sigfríð Þórisdóttir hjúkrunarkona Dýraspítalans er búin að fá skurð-
arborðið og lampann og er harla ánægð með það.
Vonazt eftir að Dýra-
spítalinn komist í
gagnið eftir mánuð
Brátt líður að því að Dýraspítal-
in komist í gagnið. Að sögn Sig-
fríðar Þórisdóttur dýrahjúkrun-
arkonu verður hann væntanlega
tekinn í notkun fyrstu eða aðra
helgina í marz. Þá er gert ráð
fyrir að hann verði opinn klukku-
tíma á hverju kvöldi.
Sifellt bætast við tæki og nauð-
synlegir hlutir fyrir spítalann.
Þegar DB leit þar inn var verið að
koma fyrir búrunt fyrir stærri
dýr, t.d. hunda eða kindur. Einnig
er verið að smíða innréttingar
undir alls konar áhöld. Eins og
komið hefur fram verður skurð
stofa á spítalanum en ekki er búið
að ákveða hvaða læknir starfar
með Sigfríð á spítalanum. Vænt-
anlega verður þess ekki langt að
bíða.
-KP
Kaupið tvöfaldaðist en...
Klósettið hækkaði úr
7 þúsund í 30 þúsund
Kaupið hefur hækkað miklu
minna en bvggingarkostnaður
yfirleitt. Þannig hefur tiltölu-
lega hæg hækkun kaupsins
haldið vísitölu byggingarkostn-
aðar niðri. Þetta sést vel af
dæmi sem blaðið þekkir um
samninga um b.vggingu skrif-
stofuhúsnæðis. Samningurinn
var gerður fyrir tveimur árum
en nú fvrir skömmu, við upp-
gjörið voru tölurnar orðnar um
þrisvar sinnum hærri en þær
voru við gerð samningsins.
Klósettið hafði þannig hækk-
að úr 7 þúsund krónum í 30
þúsund!
En á þessu tímabili hefur
kaupið aðeins um það bil tvö-
faldazt.
Plötur í skilrúm höfðu á
þessu tímabili hækkað í verði
úr 55 þúsundum í um 156 þús-
und krónur.
Gólfdúkurinn hafði farið úr
51 þúsundi upp i 191 þúsund á
þessum tíma.
Hurðirnar höfðu þó ekki
hækkað nema úr 110 þúsund-
um í 200 þúsund.
Verðið á teppunum hafði
hækkað úr um 9.500 í 32 þús-
und krónur.
Þannig hafði margt þrefald-
azt og meira til en meðalhækk-
unin varð um þreföldun.
Launþegar gátu ekki haldið í
við slíka hækkun á byggingar-
kostnaðinum. Á þessu tímabili,
frá gerð samningsins 1974 til
desember siðastliðins, tæplega
tvöfaldaðist þriðji taxti Dags-
brúnar og áttundi taxtinn
komst lítið eitt fram yfir það að
tvöfaldast. -HH
1 gær komu búrin langþráðu í Dýraspítalann. Og þau voru umsvifalaust prófuð, hvort sem fyrsti „íbúinn"
var nú veikur eða ekki. Þetta minnir óneitanlega allmjög á fangaklefa en svona á þetta að vera á fínustu
og beztu dýraspítulum. — DB-myndir Bjarnleifur.
Minnsta atvinnu
leysi í janúarlok
—síðan skráning höf st
Eigendaskipti án
þinglýsinga algeng
Minna atvinnuleysi var á
landinu um síðustu mánaða-
mót en nokkurn tíma hefur
verið á þessum árstíma síðan
félagsmálaráðuneytið fór að
skrá atvinnuleysið um allt
landið.
Skráðir atvinnuleysingjar
eru nú alls 637 en voru 779
fyrir mánuði. Á sama tíma í
f.vrravetur voru atvinnuleys-
ingjarnir 1165 og 936 árið
þar áður, svo að dæmi séu
tekin.
Atvinnulausum fjölgaði
heldur í Reykjavík í síðasta
mánuði og urðu 130. Þeir
voru 318 á sama tima í fyrra.
Þá fjölgaði atvinnulaus-
um á Húsavík úr 13 í 34.
Rækjuvinnsla lá þar niðri. Á
Selfossi varð einnig aukning
úr 35 í 60 og kom til að
prjónastofa lokaði um ára-
mót og konur, sein þar unnu,
gengu síðan atvinnulausar.
Loðnan olli hins vegar
straumhvörfum á ýmsum
stöðum. Sitthvað annað varð
til að lyfta atvinnulífinu. A
Dalvík fækkaði atvinnulaus-
um úr 26 í 10 í mánuðinum.
Á Þórshöfn varð fækkunin
úr 52 i 12, úr 86 í 12 á
Vopnafirði og úr 27 i 12 á
Breiðdalsvík. í Hrísey
fækkaði atvinnuleysingjum
úr 33 í 18. -HH
Eigendaskipti á fasteignum
hafa tíðkazt í verulegum mæli
án þess að kaupsamningum
hafi verið þinglýst. Samkvæmt
lauslegri athugun verður ekki
betur séð en þess séu fjölda-
mörg dæmi um langt skeið að
menn hafi keypt fasteignir og
gert um þau viðskipti kaup-
samninga. Hafa þessar eignir,
íbúðir eða hús, síðan mjög oft
verið seldar þriðja aðila sem
síðan hefur fengið í hendur af-
sal frá upphaflegum eiganda.
Ekki hvað sízt eru þessi dæmi
algeng þegar um var að ræða
sölu á íbúðum sem ýmist voru á
byrjunarstigi byggingar eða
jafnvel alls ekki byrjað að
byggja.
Dagblaðið birti í sl. viku frétt
um slík fasteignaviðskipti og
var þar tilgreind með nafni
ákveðin fasteignasala i Reykja-
vik. Vitað er að margar fast-
eignasölur hafa annazt samn-
ingagerðir um slík viðskipti.
Augljóst er að með þessu hafa
menn .verið að komast hjá og
spara sér greiðslu þinglýsingar-
gjalda á íbúðum sem þeir ætla
ekki að eiga til langframa.
Maður sá sem keypti og seldi
aftur íbúð þá sem greint var frá
í frétt DB, og áður er að vikið,
var eigandi hennar enda þótt
hann þinglýsti ekki kaupsamn-
ingi þeim er um viðskiptin var
gerður.
Eins og fyrr segir er fjöldi
dæma um hliðstæð vióskipti
þekktur á fasteignamarkaðn-
um.
BS.
FESTI-GRINDAVÍK
FÖSTUDAGSKVÖLD KL. 9-1
Dansleikur helgarinnar
Sætaferðir frá BSÍog Torgi, Keflavík
Hljómsveitin 0PERA fró Þorlókshöfn