Dagblaðið - 09.02.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1977.
* ---------------------
Málshöfðun á hendur Kissinger og fleirum:
Við viljum fá að sjá
útskrift á öllum sím-
tölum Kissingers
—segir höpur f réttamanna og sagnf ræðinga
Hópur bandarískra frétta-
manna og sagnfræðinga leitaði
í gærkvöld til dómstóla og
krafðist þess að fá afhentar út-
skriftir á símtölum dr. Henry
Kissingers sem hann átti áður
en hann varð utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Mennirnir höfða mál á
hendur Henry Kissinger,
Daniel Boorstin bókaverði
þingskjalasafns Bandaríkj-
anna, þar sem Kissinger-skjölin
eru geymd og síðast en ekki sízt
Cyrus Vance núverandi utan-
ríkisráðherra. Mál er höfðað á
hendur Vance þar eð hann er
yfirmaður utanríkisráðuneytis-
ins og því ábyrgur fyrir því að
skjölin fáist afhent.
I Bandaríkjunum eru í gildi
lög sem heimila hverjum sem
er að biðja um hvaða upplýs-
ingar sem ríkisstjórnin hefur
undir höndum. Þeirri beiðni er
einungis hægt að neita varði
uppýsingarnar öryggi landsins.
Er Kissinger lét af embætti í
janúar afhenti hann þingskjala-
safninu öll pappírsgögn sín sem
hafa hlaðizt upp síðan 1969.
Hann lét þau fyrirmæli fylgja
að aðeins hann, eða þeir sem
hann gæfi leyfi, mættu hafa
aðgang að þessum skjölum
næstu 25 árin.
Málshöfðun fréttamannanna
og sagnfræðinganna byggist á
því að útskriftin á símtölum
Kissingers hafi verið gerð af
einkariturum ríkisstjórnarinn-
ar og hlíti því sömu reglum og
önnur stjórnarskjöl. Því eigi
ekkert að vera því til fyrirstöðu
að almenningur fái að kynna
sér þau.
Kissinger hefur í hyggju að
nota pappírsgögnin til þess að
rita endurminningar sínar.
7
Henry Kissinger neitaði ölium að fá að glugga i skjalasafn sitt fyrr
en eftir 25 ár á þeirri forsendu að hann hygðist nota það til að rita
endurminningar sínar. Nú fer hópur blaðamanna og sagnfræðingaí
mál við hann til að fá þessu hnekkt.
Austurríki:
Langferðabílstjórar
viðriðnir hasssmygl
Lögreglan i Austurríki til-
kynnti í gær að hún hafi haft
hendur í hári helztu ráða-
manna i hring eiturlyfjasmygl-
ara sem smvglað hefði meiru
en tveimur tonnuin af hassi
inn í landið undanfarin fjögur
ár.
Eiturefnið kom með leynd
með vöruflutningabifreiðum
frá Tyrklandi en var síðan
skipt niður í smærri sendingar
sem voru sendar til V-
Þýzkalands.
Fjórir austurriskir lang-
ferðabílstjórar hafa verið
handteknir vegna málsins.
Vélmenni til leigu
Langar þig til þess að leigja vélmenni til þess að sinna húsverk-
um fyrir 450 dollara á dag? Ef svo er, geturðu haft samband við
uppfinningamanninn Ben Skora, sem býr í útjaðri Chicago-borgar,
en hann hefur teiknað og smíðað vélmennið Arok sem er fjar-
stýrt ogknúið áfram með rafhlöðum.
Arok líður áfram á völsum og er fjarstýrður með auðveldum
búnaði, líkt og gerist með f jarstýrð sjónvarpstæki.
Auðvitað getur hann talað við fólk. Skora hefurleigt vélmenniðút
til verzlana og trúðsýninga, eða hvertsem fólk sækist eftir undar-
legri skemmtan, eins og t.d. í Chicago-klúbbnum.
Chiang Ching og
samstarfsmenn
hennar hugðust
gera uppreisn í
Peking 9. októ-
ber og ef hún
mistækist átti
að berjast til
dauða daginn
eftir í Shanghai,
að því er opin-
berir aðilar
segja í Kína.
Kínverjar upplýsa:
„Shanghai-klíkan” hugði
á uppreisn íoktóber
Chiang Ching, ekkja Maos
Tse-tungs, og þremenningarnir
sem sitja með henni í varðhaldi
hugðu á uppreisn í Peking 9.
október siðastliðinn. Hefði hún
mistekizt átti að berjast til
dauða i Shanghai daginn eftir.
Þessar upplýsingar hafa borizt
Spánn:
Rýmkað um
starfsemi
stjóm-
málaflokka
Spænska ríkisstjórnin sté
í gærkvöld stórt skref í þá
átt að leyfa flestalla stjórn-
málaflokka í Iandinu. Öllum
vafaatriðum, og þá eflaust
kommúnistaflokki landsins,
verður þó vísað til æðsta
dómstóls af stjórninni
sjálfri.
Þar með er úr sögunni,
að innanríkisráðuneyti
Spánar fjalli um tilvist
stjórnmálaflokka.
frá valdhöfum í Kína í gegnum
japönsku fréttastofuna Kyodo.
Samsærið barst Hua Kuo-
feng til eyrna 5 dögum áðui
en allt átti að fara af stað og
þremur dögum seinna sátu allir
leiðtogar ,,Shanghaiklíkunnar“
bak við lás og slá.
Hefði samsæri fjór-
menninganna tekizt, átti að
handtaka Hua Kuo-feng og Li
Husueh-nien varaforsætisráð-
herra landsins, að þvi er
heimildir Kyodo herma.
Til leigu
skrifstofuhúsnæði
alls 126 ferm á einumbezta stað í austurbænum (Grensás).
Húsnæóið er mjög smekklega innréttað með harð-
viði og teppalagt. Nokkur skrifborð og gardínur geta fylgt.
Innbyggðir skápar.
Bjart og skemmtilegt húsnæði. Sér inngangur. — Laust
strax.
Tilboð sendist afgreiðslu Dagblaðsins Þverholti 2 merkt
„Laust strax 246“.