Dagblaðið - 09.02.1977, Síða 24
Gagnkvæmu veiðisamningarnir við Færeyinga:
Gróðinn allur
Færeyinganna
— a.m.k. fyrst um sinn þar sem við munum ekki fullnýta
kolmunnakvóta þeirra strax
Fari svo, sem allar líkur
benda til, að Alþingi íslendinga
og Lögþing Færeyja samþykki
gagnkvæmu fiskveiðisamning-
ana, sem gerðir voru hér fyrir
skömmu, lítur út fyrir að Fær-
eyingar hafi allan ávinning af
þeim, a.m.k. til að byrja með og
um fyrirsjáanlega framtíð.
Sem kunnugt er samdist
þannig að Færeyingar fengju
að veiða hér 25 þús. tonn af
loðnu á ári gegn því að við
fengjum að veiða 25 þús. tonn
af kolmunna hjá þeim á ári.
Um leið og þetta verður
væntanlega samþykkt geta
Færeyingar þegar í slað notað
sér sinn hlut án nokkurs auka-
kostnaðar við að útbúa skip til
veiðanna og hér er um að ræða
veiðar sem þeir kunna full tök
á eins og við.
Hins vegar gegnir öðru máli
með kolmunnaveiðar okkar hjá
þeim. Til þeirra veiða eru lík-
lega ekki nema um tíu íslenzk
nötaskip nægilega öflug, auk
þess sem þau verða að útbúa sig
flotvörpum. Þá hafa íslending-
ar sáralitla sem enga reynslu af
þessum veiðum og kunna því
lítið til þeirra. Fyrst um sinn
yrðu þær því hálfgerðar til-
raunaveiðar.
Hvað snertir verðlag fyrir
k'olmunna og loðnu til bræðslu
er munurinn lítill eða enginn
ef miðað er við verðlag síðasta
sumars á kolmunna og meðal-
verð á loðnu í fyrra.
Hægt er að skreiðarverKa
kolmunnann og fengist þannig
mun betra verð fyrir hann, ef
markaðir opnuðust, en þá þarf
að ísa hann um borð og kosta
meira til umbúnaðar en þegar
veitt er til bræðslu.
Kolmunnaveiðar við Færeyj-
ar eru mögulegar í apríl og maí,
þótt við höfum einnig leyfi til
að veiða hann í júní. Hins veg-
ar eru stærstu loðnubátar okk-
ar á loðnuveiðum hér alveg
fram í apríl.
Kolmunni er veiðanlegur hér
við land í júlí og ágúst, skv.
tilraunum sem gerðar voru með
bv. Runólfi sl. sumar. Miðað við
reynslu síðasta sumars af sum-
arloðnuveiðunum má hins veg-
ar búast við að stærstu loðnu-
bátarnir muni fremur verða á
loðnu en kolmunna. Miðað við
það sem blaðið hefur kannað
má einnig teljast ólíklegt að
þau skip muni verða nýtt við
kolmunnaveiðar við Færeyjar á
dauða tímanum milli
vetrarloðnuvertíðarinnar og
sumarvertíðarinnar.
Blaðinu er ekki kunnugt um
neinn útgerðaraðila sem er far-
inn að undirbúa að senda bát
sinn á kolmunnann við Færeyj-
ar að loðnuvertiðinni lokinni,
a.m.k. ekki í ár. —
t>að eina sem virðist því rétt-
læra þessa samninga er að talið
er öruggt að við nýtum ekki
loðnustofninn hér nærri því
eins og óhætt er og því sé rétt-
látt að veita öðrum hlutdeild í
honum.
-G.S.
Nýjar aðferðir við greiningu blóðflokka og véfja:
Útiloka ranga feðrun
Ákvarða réttan fóður
„Ef gripið er til allrar þekk-
ingarinnar teljum við mögulegt
að útiloKa rangan föður og
þannig að ákvarða hinn rétta,
sé hann til kvaddur,“ sögðu
þeir Ólafur Jensson forstöðu-
maður Blóðbankans, og dr.
Alfreð Alfreðsson erfðafræð-
ingur, í stuttu viðtali við DB.
„Blóðflokkunargreiningu
hefur stöðugt fleygt fram frá
því farið var að nota hana,“
sagði Guðmundur Þórðarson,
Iæknir, sem mikið hefur starfað
að rannsóknum á þessu sviði í
Rannsóknarstofu Háskólans
undir stjórn og forstöðu Ólafs
Bjarnasonar, prófessors í
réttarlæknisfræði. „Stöðugt
fjölgandi ákvarðandi blóð-
flokkar, sem tekizt hefur að
greina frá því farið var að
kanna þetta svið fyrir um það
bil 50 árum, hafa aukið lík-
urnar á réttum niðurstöðum við
ákvörðun faðernis, þar sem vafi
hefur leikið á um það,“ sagði
Guðmundur.
Þær aðferðir, sem gera allt
að því 100% útilokun rangs
föður mögulegar, byggjast á
vefjaflokkun og rannsóknum a
henni. I sambandi við Uffæra-
flutninga hefur ör þróun orðið
á sviði vefjarannsókna og vefja-
flokkunar á undanförnum
árum, nánar tiltekið einkum
frá árinu 1960. Á þessum rann-
sóknum byggist erfðafræðileg
þekkingarundirstaða sem hefur
geysilega þýðingu í ýmsum til-
gangi; til dæmis varðandi:
1. Erfðafræðilega gerð manns-
ins,
2. Ýmiss konar rannsóknir
sakamála,
3. Barnsfaðernisákvarðanir,
4. Rannsóknir á mismunandi
tiðni sjúkdóma.
í marzmánuði á síðastliðnu
ári var farið að greina vefja-
flokka hér, og er þegar hafið
mjög merkilegt starf við söfnun
og flokkun tölvutækra upp-
lýsinga á þessu sviði.
„Það er rétt að með vaxandi
þekkingu og fullkomnari rann-
sóknum tekst nú að útiloka
menn sem ekki hefur verið
unnt að útiloka áður,“ sagði Jón
A. Ölafsson, sakadómari, sem
ásamt Sverri Einarssyni, saka-
dómara, fer nú einkum með
barnsfaðernismál sem borin
eru undir dómstóla í Sakadómi
Reykjavíkur.
BS.
Enn óvissa um Bahreinflug Flugleiða:
Reyna að fá
leyfið aftur
Það er unnið að málinu en ég
get engu spáð um, hvort það
ber árangur eða ekki, sagði
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, er hann var spurður
hvort fyrirhugað áætlunarflug
félagsins til Arabaríkisins
Bahrein væri dottið upp fyrir.
Eins og DB skýrði frá í fyrra
höfðu öll tilskilin leyfi fengizt
til flugsins og var unnið að
undirbúningi þess. Væri það
byrjað nú hefðu tilskilin leyfi
ekki skyndilega verið aftur-
kölluð af flugmálayfirvölditm í
Bahrein.
Vegna afstöðu yfirmanna
Gulf Air, sem er flugfélag
heimamanna, voru leyfin
endurskoðuð og kippt til baka,
væntanlega vegna neikvæðrar
afstöðu Gulf Air manna.
Pan American sótti um
Bahrein flug um svipað leyti og
Flugleiðir og fékk það félag
einnig leyfi sem ekki hefur ver-
ið afturkallað. Hefur Pan Am
flogið þangað síðan í desember
sl.
-G.S.
Reiðhjólin
hvílast ekki
1 góða veðrinu unaanfarna
daga hefur verið upplagt að
taka fram reiðhjólið sitt og
hjóla um borgina. En það eru
bara ekki allir sem nenna því,
nota afsökun á borð við: það er
svo kalt. Blikkbeljurnar eru
freKar notaðar og einn situr í
hverjum bll. Haldið þið að það
væri munur á heilsufari
þjóðarinnar ef allir tækju
þennan unga mann sér til fyrir-
myndar.
-DB-mynd Arni Páll.
frfálst, óháð dagblað
MÍÐVIKUDAGUR 9. FEB. 1977
Jón vill
hækkamörkin
Misritun varð i viotah við
Jón Skaftason alþingismann i
gær.
Hann sagðist, að sjálfsögðu,
vilja hækka skattleysismörk
launþega, það er að segja leyfa
tkattleysi af hærri tekjum en
nú er. í blaðinu stóð lækka í
staðinn fyrir hækka.
-HH
Nær 30
þúsund
ionnaf loðnuiil
Seyðisfjarðar
Sjö loðnubátar biðu eftir
löndun á Seyðisfirði í gærmorg-
un. Stóðu þá vonir til að þróar-
rými losnaði fyrir farma þeirra
en unnið var með fullum af-
köstum bæði í Síldarverki
smiðju ríkisis og hjá Hafsíld.
Blíðskaparveður var á Seyðis-
firði bæði á mánudag og í gær
en leiðindaveður og snjókomá
hefur verið að undanförnu.
Síldarverksmiðjur ríkisins
höfðu í gær tekið á móti 22170
tonnum af loðnu og frá
verksmiðjunni er búið að
skipa út 800 tonnum af loðnu-
mjöli. Hjá Hafsíld var á sama
tíma búið að landa 5230 tonnum
af loðnu, svo að heildarmagnið
á Seyðisfirði er komið fast að 30
þúsund tonnum.
-Óttar/ASt.