Dagblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. FEBRUAR 1977.
9
ísinn á
Elliða-
ánum:
Tilkomumikil sjdn —
en hér er hætta á ferðum
Óven.jumikill og tilkomumikill
ís er nú í Elliðaám og vegna láng-
varandi frosta hefur rennsli úr
Elliðavatni minnkað verulega.
Blaðið hafði samband við stöðvar-
stjórann. Jón Ásgeirsson. og taldi
hann að þrátt fyrir minnkandi
vatnsmagn úr vatninu væri engin
hætta á að borgarbúar yrðu fyrir
óþægindum vegna rafmagnsleys-
is.
Hins vegar áleit stöðvárstjórinn
aðra hættu og meiri stafa af
ísnum en það er gálaus leikur
unglinga á klakanum í ánni. Væri
ísinn þar mjög misþykkur og
varasamur. k.vnni hann að bresta
þar sem þynnst vajri og fólk
þannig lenda undir ísnum og
e.t.v. berast með straumnum.
Þá kvartaði Jón undan ágangi
unglinga við Árbæjarstíflu og
kvað skemmdir af völdum þeirra
verulegar, en rétt er að benda á
að fikt í tækjum vatnsvirkjana
getur orðið lífshættulegt.
-JFM-
é
ísinn á Elliðaánum er falleg sjón
og ekkert því til f.vrirstöðu að
skoða hann, fara í svolitla göngu-
ferð, en farið ekki út á hann, það
kann að verða fólki að bana. (DB-
m.vnd Bjarnleifur).
Hetjan í leiknum tjáir vinum sínum að hann hyggist ráða niðurlögum
Drekans. Frá vinstri á myndinni: Hetjan Lancelot (Björn Guðbrandur
Jónsson), Elsa (Sigríður Þorgeirsdóttir), Kötturinn (Ragnheiður
Tryggvadóttir) og Karlamagnús (Indriði Einarsson). — DB-m.vnd
Hörður Vilhjálmsson.
DREKINNILLI -
OG HETJAN VÆNA
Við búumst auðvitað við metað-
sókn. þvi að leiksýningarnar í
fyrra og hittiðfyrra gengu svo
vel," sögðu tvær galvaskar auka-
stjörnur í leikritinu Drekanum,
er þær litu inn á ritstjórn Dag-
Itlaðsins.
Það er Menntaskólinn við
Hamrahlíð sem er að fara af stað
með þetta leikrit eftir rússneska
höfundinn Schwartz nú um helg-
ina. F.vrir nokkrum árum var það
flutt i útvarpi og einnig hefur það
verið sýnt víða um lönd.
Það fjallar um fjalladreka, ein-
vald sem hefur ráðið lögum og
lofum í borg einni og hafa borgar-
búar ekki þekkt annað en ofur-
vald hans. Þá kemur þar i heim-
sókn hetja sem vill losa menn
undan okinu. Þetta er ævintýra-
leikur og ætlaður allri fjölskyld-
unni. ,,Það er nefnilega bæði
hægt að taka þetta sem ævintýri
og þjöðfélagsádeilu," sögðu þær
galvösku.
25-30 manns leika í Drekanum,
en 50 manns hafa lagt hönd á
plóginn til þess að gera leikritið
sem bezt úr garði. Myndlistarfé-
lag skólans teiknaði leikmynd,
leiktjöld og búninga og músík-
alskir nemendur koma fram sem
sígaunar og spila á hljóðfæri.
Það hefur verið æft baki
brotnu fvrir sýningar og er unnið
i sjálfboðavinnu. Allt fyrir ánægj-
una. Ágóði sem verður gengur til
ýmissa tækjakaupa í skólanum og
félagsstarfa.
Aðalleikendur eru Karl Ágúst
Ulfsson. Jakob S. Jónsson, Sigrið-
ur Þorgeirsdóttir. Björn Guð-
brandur Jónsson og Indriði Ein-
arsson.
Leikstjóri er Þórunn Sigurðar-
dóttir.
Frumsýning verður á sunnudag
kl. 8.30. síðan verða sýningar á
sama tíma á þriðjudag og föstu-
dag. Frá aukasýningum verður
sagt síðar. EVl
Ný sending komin
ínúmerum 28-48
meðloðfóöri
ogófóðraðir
☆
Pantaniróskast
sóttar
sem fyrst
Verð f rá kr. 3.965.-
Millibriínir. Mjúkt en sterkt anilin skinn.
Með þykkum ekta hrágiímmísölum.
DOMUS MEDICA
Egilsgötu 3,
pósthólf 5050.
Sfmi 18519.