Dagblaðið - 16.02.1977, Page 6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977.
Erlendar
fréttir
ÖMAR
VALDIMARSSON ?
I
REUTER
8
Brunagabb
varð henni
að bana
Fjögurra barna móðir í
Birmingham í Englandi
fékk alvarlegt lost og dó á
heimili sínu fyrir skömmu
þegar slökkviliðið og lög-
regla voru plötuð að heimili
hennar undir því yfirskini
að þar væri að brenna.
Okunnur maður, sem enn
hefur ekki fundizt, hringdi
til slökkviliðs og lögreglu í
Birmingham og sagði að hús-
ið, þar sem konan bjó ásamt
fjölskyldu sinni, stæði í
björtu báli og íbúarnir
kæmust ekki út.
Eiginmaðurinn sakar nú
þann, sem hringdi um að
vera valdur að dauða konu
sinnar.
Cyrus Vance kynnir Israels-
mönnum friöartillögur í dag
C.vrus Vanee utanríkisráð-
herra Bandarikjanna kom í
gær til ísraels og mun í dag
kynna ráðamönnum í Jerúsa-
lem tillögur Bandaríkjanna um
að koma ísraelsmönnum og
Aröbum aftur að samninga-
borðinu.
Vance sagði við komuna til
ísraels að Bandaríkjamenn
myndu halda áfram að styðja
við bakið á ísraelsmönnum,
eins og þeir hefðu gert á undan-
förnum árum. Talið er að ráð-
herrann muni fyrst og fremst
reyna að fá ísraelsmenn til að
samþykkja að fulltrúar
Palestínuaraba fái sæti við
samningaborðið í næstu friðar-
viðræðum.
Bandaríski utanríkisráðherr-
ann verður sex daga á ferðalagi
sínu um Mið-Austurlönd og
heimsækir sex ríki. Hann mun
hafa þann háttinn á að ræða við
valdhafa og kynna þeim
árangur fyrri viðræðna við aðra
valdhafa. Það var forveri hans í
starfi, Henry Kissinger, sem
hvatti hann til að fara sjálfur í
þetta ferðalag til Mið-
Austurlanda. Astand mála er
þannig þessa dagana aó vissast
var fyrir valdamikinn mann að
fara og ræða málin frekar en að
senda einhvern lægra settan
sendiboða.
Cyrus Vance og fyrirrennari
hans i starfi utanríkisráðherra,
Henry Kissinger. Það var ein-
mitt Kissinger sem hvatti
Vance til að fara sjálfur til
Mið-Austurlanda og kynna sér
málin í stað þess að senda ein-
hvern lægra settan.
Svíþjóð:
Kóngurinn situráfram
í dag ákveður sænska þjóð-
þingið á ný að Svíþjóð skuli
vera konungsríki. Augljóst er
að mótmæli Vinstri flokksins
—kommúnistanna (VPK)
verða ekki tekin til greina við
umræðuna, en flokkurinn
hefur lagt til á nokkrum und-
anförnunt þingum að Svíþjóð
skuli verða lýðveldi.
Stjórnarskrárnefnd sænska
þingsins, sem að meirihluta til
er skipuð fulltrúum borgara-
flokkanna hefur lagt fram álit
þar sem segir að engin rök
mæli með því að breyta stjórn-
arfornti landsins.
íbúðtil leigu
6 til 7 herb. íbúð til leigu á Neskaup-
stað. Til greina koma skipti á íbúð á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Uppl. í
síma 97-7496.
Starfslaun handa
íistamönnum árið 1977
Hór moö eru auglyst til umsoknar starfslaun til handa íslenskum listamönnum
áriö 1977. Umsóknir sondist úthlutunarnofnd starfslauna, menntamálaráöuneyt-
inu, Hvorfisgötu 6, fyrir 15. mars n.k. Umsóknir skulu auökenndar:
STARFSLAUN LISTAMANNA.
í umsókn skulu eftirfarandi atriöi tilgreind:
1. Nafn, heimilisfang, fœöingardagur og ár, ásamt nafnnúmeri.
2. Upplysingar um náms- og starfsferil.
3. GreinargerÖ um verkefni, sem liggur umsókn til grundvallar.
4. Sótt skal um starfslaun til ákveöins tíma. Veröa þau veitt til þríggja mánaöa
hiö skemmsta, en eins árs hið lengsta, og nema sem nnst byrjunarlaunum
menntaskólakennara.
5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sinar áríö 1976.
6. Skilyröi fyrir starfslaunum er, aö umsækjandi só ekki í föstu starfi, meðan
hann nýtur starfslauna, enda til þess ætlast, aö hann helgi sig óskiptur
verkefni sínu.
7. Aö loknu verkefni skal gerö grein fyrír árangri starfslauna.
Tekiö skal fram, aö umsóknir um starfslaun áríÖ 1976 gilda ekki í ár.
Reykjavík, 14.febrúar 1977.
Úthlutunarnefnd starfslauna.
Bariztí
Líbanon
ígær
Bardagar brutust út á nýjan
leik í gær i Suður-Líbanon,
skammt frá landamærum ísra-
els. íbúar í norðlægum þorp-
um í ísrael segja að þar hafi
kristnir skotmenn og líbanskir
vinstrisinnar og Palestínuar-
abar átzt við.
I bardögum þessum var
beitt fallbyssum og sjálfvirk-
um sprengjuvörpum. Þrátt
fyrir að friður hafi að nafninu
til verió saminn í borgarastyrj-
öldinni í Libanon í nóvember
síðastliðnum hafa bardagar
verið algengir í landinu og
friðargæzlusveitir ekki verið
þar barnanna beztar.
Hér sjást þau Elisabet Taylor og Henry Wynberg saman. Ekki virðist
honum hafa vegnað vel eftir að leiðir þeirra skildu fyrst hann þurfti að
fá smástelpur tii lags við sig og jafnframt að seija unglingum áfengi og
eiturlyf.
Friðill Elisabetar Taylor
ákærður fyrir að hafa
átt kynmök við smástelpur
Henry Wynberg bílsali, sem
þekktastur er fyrir að hafa verið
friðill Elisabetar Taylor milli
hjónabanda hennar og Richards
Burtons, hefur verið ákærður
fyrir að hafa kynmök við ungar
stúlkur. Þá hefur honum einnig
verið gefið að sök að hafa gefið
unglingum áfengi og eiturlyf.
Wynberg verður ákærður í dag
fyrir þessar sakir. Alls eru það tíu
afbrot sem hann verður látinn
svara fyrir.
Annar maður, James Fole, hef-
ur einnig verið ákærður fyrir að
hafa tekið þátt í saurlífi Wyn-
bergs. Þeir eru sagðir hafa átt
kynmök við 15 og 16 ára gamlar
stúlkur á síðasta ári og síðan tekið
dónalegar myndir af þeim. Foley
hefur enn ekki fundizt en lög-
reglan í Hollywood leitar nú að
honum. Wynberg var handtekinn
28. janúar en látinn laus gegn tíu
þúsund dala tryggingu.
Henry Wynberg kynntist Elisa-
betu Tavlor árið 1973. Það var
Peter Lawford leikari er kynnti
þau. Hann var friðill leik-
konunnar um 14 mánaða skeið,
eða frá því að hún skildi við
Richard Burton og þar til hún
giftist honum aftur í Botswana í
Afríku.