Dagblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1977. 17 Friðbjörn Þorsteinsson í Vík lézt 8. feb. 1977. Hann fæddist 8. ágúst 1891. Friðbjörn vann á heimili móður sinna fram yfir tvítugs- aldur. Þá giftist hann Guðnýju Guðjónsdóttur. Bjuggu þau Friðbjörn og Guðný fyrstu búskaparárin sin að Flögu í Breiðdal. Vorið 1920 keyptu þau jörðina Vík í Fáskrúðsfjarðar- hreppi. Þeim hjónum varð 9 barna auðið. Eitt andaðist í bernsku en átta komust upp og eru þau öll á lífi. Bóas Hannibalsson lézt 10. feb. Útförin fer fram frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 17. feb. kl. 13.30. Ingibjörg Pálmadóttir frá Reka- vik bak Látrum verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. feb. kl. 10.30 . Hafiiði Jón Hafliðason lézt 14. feb. Kristniboðssambandið Almenn samkoma verður i kristniboðshús- inu. Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20.30. Benedikt Arnkelsson talar. Allir velkomnir. Hörgshlíð Samkoma í kvöld, miðvikudag. kl. 8. Nóttúruverndarfélags Suð-Vesturlands verður haldinn í Norræna húsinu í kvöld. miðvikudag. 16. feb. kl. 20.30. Kaffistofan verður opin. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfund- arstörf. 2. önnur mál. 3. Skipulag Reykja- víkur. A fundinn koma Hilmar Ólafsson for- maður Þróunarstofnunar og Sigurður Harðarson arkitekt. Öldrunarfrœðafélag íslands h'undur verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar 1977 kl. 20.30 í föndursalnum á (Irund (gengið inn frá Brávallagötu) Fund- arefni: 1 Atvinnumál aldraðra. Frum- mælandi Gísli Sigurbjörnsson 2. Ýmis mál. Fulltrúar frá Alþýðusambandi íslands. Tryggingastofnun Ríkisins og Vinnuveit- endasambandi íslands munu mæta á fund- inn. Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að mæta vel og stundvislega og taka með sér gesti. Stjórn öldrunarfræðafélags Islands. Ákæra gefin út í Flugfraktarmálinu: Fengu 32 sendingar afhentar úr tolli án þess að borga Akæra hefur veriðs gefin út á hendur sex mönnum fyrir umboðssvik, skilasvik og tolla- lagabrot í framhaldi af rann- sókn á Flugfraktaimálinu sem upp kom í lok árs 1974. Hefur rannsókn staðið siðan og lauk síðast í desember sl. skv. þeim upplýsingum, sem DB hefur aflað sér. Embætti ríkissak- sóknara gaf út ákæru á hendur mönnunum sex 24. janúar sl. Þessir sex menn eru Jóhann Stefánsson, Ásgeir H. Magnús- son, Loftur Baldvinsson, Matthías Einarsson, Garðar Ölafsson og Guðgeir Leifsson, flestir kunnir fjármálamenn í Reykjavík. Málavextir eru þeir, að í árs- lok 1974 kom samkvæmt ákærunni í ljós að Guðgeir Leifsson sem þá var starfs- maður í vörugeymslu Flug- frakt, hafði afhent 32 vörusend- ingar til innflytjenda án þess að þeir framvísuðu tilskildum pappírum um greiðslu tolla og greiðslu sjálfrar vörunnar. Sjálf fraktin var þó yfirleitt greidd þegar varan var afhent. Voru tveir menn, þeir Guð- geir og Jóhann Stefánsson, sem var upphafsmaður þessara svika að því er kom fram í rannsókninni, úrskurðaðir í gæzluvarðhald á sínum tíma. Rannsókn leiddi í ljós, að Jóhann hafði sjálfur fengið af- hentar átján þessara vörusend-' inga (sem allar voru fluttar inn á nafni Ásgeirs H. Magnús- sonar), Garðar Ólafsson átta, Asgeir H. Magnússon fjórat og Matthías Einarsson tvær. Einnig var því haldið fram í yfirheyrslum að umsamið hafi verið í upphafi að Guðgeir fengi 10—30 þúsurTd krónur í eigin vasa fyrir hverja send- ingu sem hann afhenti á þenn- an hátt. Stangast framburður hans og Jóhanns á um þetta atriði. Telur Guðgeir sig hafa fengið um 75 þúsund krónur en Jóhann sig hafa greitt honum 300—400 þúsund krónur. Allar þessar sendingar komu til landsins og voru afhentar á árinu 1974. Megnið af þeim hefur nú verið greitt. Inn í rannsókn málsins í sakadómi Reykjavíkur hefur flæk.zt fjöldi dularfullra víxla, ávísana og skuldabréfa. Þrír menn, allir kunnir „fjármála- menn“, hafa einnig komið við sögu þessa máls, sem er hið ævintýralegasta. Dagblaðið mun á næstu dögum hefja birtingu greina- flokks eftir Halldór Halldórs- son fréttamann þar sem hann fjallar ítarlega um þetta mál og rannsókn þess. Rétt er að taka fram, að áður- greindum sex mönnum hafa ekki verið birtar ákærurnar vegna mikilla anna viðkomandi sakadómara, Gunnlaugs Briem. Hann hefur aðeins viljað stað- festa að sex menn væru ákærðir fyrir þrjú framan- greind brot sem skiptust eitt- hvað á milli þeirra. -ÓV. BÍL ST0LIÐ FRÁ UNGRISTÚLKU —geta lesendur hjálpað að f inna bflinn? Tveggja dyra bíl, grænblárri Cortinu árgerð 1967, var stolið að kvöldi miðvikudagsins 9. þessa mánaðar eða aðfaranótt fimmtudagsins 10. frá Karlagötu 18 í Reykjavík. R-43343 er skrásetningarnúmer bílsins. Lögreglan hefur auglýst eftir hinum stolna bíl. Enginn* hefur gefið sig fram til þess að gefa neinar ábendingar um bílinn. Ung stúlka, sem er eigandi bílsins, er að vonum orðin mjög áhyggjufull um afdrif bílsins 'síns. Útvarpsauglýsingar lög- reglunnar gætu vel hafa farið fram hjá einhverjum þeim sem gætu gefið ábendingar um bílinn. Eru lesendur Dagblaðsins beðnir að gera lögreglunni, blaðinu eða eiganda bílsins viðvart, ef þeir hafa orðið varir við grænbláa Cortinu með áðurgreindu númeri eða jafnvel númeralausa. -BS. Sendiráðið á að finna Hort „Ekkert bréf frá Tékkó- slóvakíu var í póstinum okkar í morgun," sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksambands íslands í viðtali við DB í morgun. „Enn er því ekki vitað um það hvenær Hort kemur hingað til lands og ekki heldur hver verður aðstoðar- maður hans í áskorendaein- víginu," sagði Einar. Einar kvað Skáksam- bandið hafa sent hraðskeyti til Tékkóslóvakíu í gær. í því var beðið um tilkynn- ingu tékkneska skáksam- bandsins um framangreind atriði. Auk þess var sendi- fulltrúi við tékkneska sendi- ráðið í Reykjavík beðinn um að setja sig inn í málið. „Vegna gerðrar dagskrár og af öðrum ástæðum er að verða nauðsynlegt fyrir okkur að fá vitneskju um komu Horts og aðstoðar- manns hans,“ sagði Einar S. Einarsson. BS. Afram Keflavik! hrópuðu þessar frisku og taliegu steipur fyrir utan Þjóðleikhúsið i gær. Sex hundruð aðrir krakkar tóku undir — og síðan aftur og aftur þegar allur hópurinn var farinn inn í húsið til að horfa á Dýrin í Hálsaskógi. Þar inni var að vísu ekki hrópað Afram Keflavík, heldur tekið þátt í ævintýraleiknum um dýrin af lífi og sál. DB-mynd: Bj.Bj. I.O.G.T. St. Veröandi nr. 9. F’undur í kvöld. miðviku- da« kl. 20.30. Gestakvöld. St. Danielsher kem- ur I heimsókn. Æt. Grensóskirkja Foreldrar ferminparbarna í Grensáspresta- kalli. Munið fundinn i kvöld kl. 8.30. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins í Reykjavík heldur fund mióvikudaKÍnn 16.. feb. kl. 20.30 i Slysavarnahúsinu Granda- Karði. Óskar Þör Karlsson fulltrúi SVFl flvt- ur erindi. einsön«ur. InKveldur Hjaltested og skemmtiþáttur. FélaKskonur fjölmennið. Myndasýning — Eyvakvöld verður í Lindarbæ niöri miövikudaKÍnn 16. feb. kl. 20.30. Pétur Þorleifsson sýnir. Allir velkomnir. Ferrtafélau ísiands. Trésmiðir Þorraþrælsskemmtun verrtur hjá Trésmirta- félaui Re.vkjavíkur lauKarda«inn 19. fcbrúar art HallveiuarstíK 1. kl. 20-02. Mirtasala þrirtju- daeinn 15. febrúar oj* mirtvikudaKÍnn 16. febrúar kl. 18-19.30 á skrifstofunni. TrésmirtafélaK Revkjavikur. DAGBLAOID ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ SÍMI 27022 ÞVERHOLTI 2 Til sölu er Repromaster og Gevacopy framköllunarvél. Hringið í síma 32992 eftir vinnu. Til sölu hálfs árs kerruvagn, lítið notaður og m)ög vel með farinn. Uppl. í síma 82063 eftir kl. 19. Barnavagn. vagga. reiðhjól. skipslíkan og ým- islegt fleira til sölu. Uppl. að Bræðraborgarstíg 38 eftirkl. 6. Til sölu vel farið: stóll kr. 25 þús„ Sívaló- hilluveggur kr. 65 þús„ sem ný Elan skíði kr. 8 þús. og nýtt Matra sófasett. Uppl. í síma 43605. Búslóð: Sófasett, ísskápur, frystikista o.'fl. til sölu. Uppl. að Kleppsvegi 120. 7. hæð til hægri, milli kl. 8.30 og 9.30 í kvöld. Lafayette 3ja rása, 1.5 vött og Dearce Simpson loftnetsmagnari. 12 rása, 12 volt. passar í sendibíla og báta. Jeppakerra, 15 tommu dekk, beizli f.vrir kúlu. í góðu lagi. Uppi. í síma 92-6323. Til sölu Nordmende sjónvarp 24“. Einnig Tricity eldhúsvifta og Armstrong strauvél. Allt í góðu lagi. Fiðla óskast til kaups. Uppl. í síma 14599. Nýtt baðkar og sturtunotn úr potti, handlaug í borði og hvítt salerni til sölu. Uppl. í síma 43837, eftirkl. 17. Til sölu 25 tommu forhitari ásamt stjórn- tækjum og dælu, allt í fullkomnu lagi. hagstætt verð. Uppl. í sima 82870 og 36722 eftir kl. 7. Bíleigcndur — Bílvirkjar Amerísk skrúfjárn, skrúfjárna- sett, sexkantasett, visegrip, skrúf- stykki, draghnoðatengur, stál- merkipennar 12v, málningar- sprautur, micrometer, öfugugga- sett, bodyklippur, bremsudælu- slíparar, höggskrúfjárn, stimpil- hringjaklemmur, rafmagnslóð- boltar/föndurtæki, lóðbyssur, borvélar, borvélafylgihlutir, slípi- rokkar, handhjólsagir, útskurðar- tæki, handfræsarar, lyklasett, verkfærakassar, herzlumælar, stálborasett, rortengur, snittasett, borvéladælur, rafhlöðuborvélar, toppgrindur, skíðabogar. topp lyklasett, bílaverkfæraúrval. — Ingþór, Ármúla, sími 84845. Til sölu Rafha gormaeldavél. verð kr, 10 þús„ einnig blár svefnsófi sen þarfnast viðgerðar, verð kr. 5 þús. Uppl. í síma 35416. Óskast keypt Óska eftir að kaupa vinnuskúr. Vinsamlega hringið í síma 32992, eftir vinnu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.