Dagblaðið - 16.02.1977, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1977.
fi
Útvarp
23
Sjónvarp
p
r
*
Sjónvarp
kl. 21,00 íkvöld:
MAJA FLYTUR AFTUR
HEIM Á STORMEY
Næstsíðasti þátturinn um
Maju á Stormey er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld kl. 21.00.
Nefnist hann Fimbulvetur.
í síðasta þætti brann ibúðar-
hús þeira Maju og Janna og
bjargast þau naumlega og voru
komin heim til foreldra Maju.
Þar fengu þau lítið hús þar
sem þau gátu verið út af fyrir
sig með börnin. Nú tekur Janni
að sér póstferðir og skömmu
síðar berast fréttir af því að
úlfar séu komnir í nágrennið.
sem var mjög óalgengt á þess-
um slóðum. en þeir komast yfir
ísinn austan að. Þau óttuðust
úlfana mjög. ekki sízt vegna
Janna. þar sem hann var einn í
póstferðunum.
Nú taka þau að undirbúa
flutninginn aftur til Stormeyj-
ar og þurfa þau að taka sér nýtt
lán til þess að geta b.vggt sér
nýtt hús. En haustið áður höfðu
þau einmitt greitt síðustu af-
borgunina af fyrra láninu.
Um vorið er orðið mjög
þröngt í búi hjá Maju og fjöl-
skyldú hennar og verða þau
eiginlega að leita á náðir
sveitunga sinna um matbjörg.
Strax og hægt var að sigla út í
Stormey fl.vtja þau þangað
aftur og verða fyrst í stað að
vera í gripahúsinu á meðan
verió er að Ijúka við b.vggingu
nýja hússins.
Kynntar eru nýjar
veiðiaðferðir, sem útheimta að
fiskimennirnir fari lengra út á
miðin en þessi aðferð gefur
betri aíla. Nágranni þeirra
Maju og Janna, sem verió hafði
á móti þessari nýju veiðiaðferð,
fer í veiðiferð en hann kemur
ekki aftur.
Þýðandi þessa framhalds-
myndaflokks er Vilborg
Sigurðardóttir. Þátturinn er
sendur út í lit.
Sjónvarp íkvöld kl. 20,35: Nýjasta tækni og vísindi
Nýjungar í um-
ferðarmálum og
matvælaframleiðslu
Nýjasta tækni og vísindi er á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl.
20.35. Sigurður Richter er um-
sjónarmaður. í þættinum verða
sýndar átta brezkar myndir. Sú
f.vrsta nefnist Vagn án öku-
manns. Þar segir frá tilraunum
sem verið er að gera með sjálf-
stýringu í strætisvagna, líkt og
lengi hefur verið gert með flug-
vélar.
Dauðhreinsaðir kjúklingar
nefnist næsta mynd. Komið
hefur í ljós að þegar kjúklingar
eru aldir upp í dauðhreinsuðu
umhverfi eru þeir ekki aðeins
lausir við sjúkdóma heldur
þ.vngjast þeir allt að 30% meira
en venjulegir kjúklingar. Nú er
verið að gera tilraunir með að
ala kjúklinga upp á þennan
hátt, og e.t.v. fleiri tegundir
búfjár.
Býflugur og blómin: Er-
lendis eru býflugur mjög
nauðsynlegar til þess að hjálpa
til við að frjóvga ávaxtablómin.
Nú er farið að safna saman
frjóum hlómanna og síðan er
tæki sett á býkúpurnar. Tækið
úðar frjóunum á býflugurnar
þannig að tryggt er að þær
frjóvga blómin, þegar þær
setjast á þau.
Úmferðaröryggi nefnist
næsta mynd. Þar er sagt frá
öryggisútbúnaði sem ætlað er
að vernda fólk sem er utan við
bílinn. Öryggisútbúnaður bíla
hefur hingaó til aðeins verið
miðaður við að vernda fólkið
sem er inni í bílunum.
Fiskeldi nefnist næsta mynd,
og er þar skýrt frá ýmsum
nýjungum í fiskeldi í fersk-
vatni.
Viljastýrður blóðþrýstingur
nefnist næsta mynd. Hingað til
hefur verið áliítið að blóð-
þrýstingur manna væri ekki
undir stjórn viljans. Nú hafa
jógar í Austurlöndum sýnt
fram á að þeir geta stýrt sínum
eigin blóðþrýstingi. Þess vegna
hefur verið reynt að kenna
fólki sem hefur of háan blóð-
þrýsting að lækka hann með
viljaeinbeitingu og hefur þetta
dugað vel i mörgum tilfellum.
Loks er mynd er nefnist flug-
hermir. Það er tæki sem notað
er til að kenna flugmönnum
hvernig þeir eiga að bregðast
vió ýmsum aðstæðum sem geta
komið upp á flugi. Venjulega
er notaður flugstjórnarklefi á
jörðu niðri þar sem hermt er
eftir atburðum, en þessi nýi
flughermir er um borð í lítilli
tveggja sæta vél og í vélinni er
tölva sem getur breytt flugeig-
inleikum vélarinnar svo að hún
hermir eftir flugeiginleikum
ýmissa annarra gerða af vélum,
allt frá þungum flutninga-
vélum og yfir i léttar
orustuþotur.
-A.Bj.
Ef kjúklingar eru aldir upp i dauðhreinsuðu umhverfi eru þeir ekki einasta lausir við sjúkdóma. Þeir
þyngjast 30% rneira en venjulegir kjúklingar.
' ' —■■■ ■■■■ ^
Útvarpið i kvöld kl. 19,35:
Um rannsóknir íverkfræði-
og raunvísindadeild Háskólans
Streituþol og
hjartaskemmdir
,.Ég mun fjalla um
rannsóknir á efnaskiptum
hjartans og hjartaskemmdir."
sagði dr. Sigmundur
Guðbjarnason prófessor sem
flvtur áttunda erindi flokksins
unt rannsóknir í verkfræði- og
raunvísindadeild Háskólans.
I fyrsta lagi gerir Sigmundur
grein f.vri.r mikilvægustu efna-
bre.vtingum hjartans. Þá lýsir
hann áhrifum kransæðastiflu á
efnaskiptin. siðan áhrifum
streitu á efnasamsetningu
hjartans og áhrifum mataræðis
á stroituþol og myndun hjarta-
skom mda.
Sigmundur sagðist okki
myndu ræða mataræði. enda
væri þetta aðeins 25 mínútna
erindi og aðeins stutt kynning á
miklu stærra verkefni. Hann
minnist þó á fituefni. sölt og
steinefni.
Prófessorinn hefur ferðazt
mjög víða og flutt erindi um
þessi mál á sérhæfðúm
ráðstefnum hjartasérfræðinga.
Ek-ki alls fyrir löngu var hann í
Japan í þessum tilgangi, on
hann hefur farið til fjögurra
hoimsálfa. Hann hefur unnið
við þetta í 16 ár. þar af 10 i
Bandaríkjunum.
-EVI.
Sigmundur Guðbjarnason prófessor er búinn að vinna i 16
ár í sambandi við hjartarannsóknir. DB-m.vnd Bjarnleifur.