Dagblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1977.
Kosningaúrslit íDanmörku:
Anker Jörgensen var sigur-
vegari þingkosninganna
— Vinstriflokkur Hartlings missti heiming fylgis súis
Danskir kjósendur virðast
treysta Anker Jörgensen. bezt
til að leysa vandamál þjóðar-
innar ef marka má úrslit kosn-
inganna sem fóru fram í gær.
Þá vann Jafnaðarmanna-
flokkur Jörgensens glæsilegan
sigur og hlaut 65 þingmenn af
179 i danska þinginu. Flokkur-
inn bætti við sig 12 þingsætum.
Vinstriflokkur Poul.
Hartlings galt mest afhroð.
Hann tapaði helmingi fylgis og
hefur nú 21 þingmann en hafði
áður 42. Framfaraflokkur
Mogens Glistrups er nú næst-
stærsti stjórnmálaflokkurinn í
Danmörku. Hann hlaut 26 þing-
sæti og bætti við sig tveimur.
Réttarsambandið, sem átti
engan fulltrúa á síðasta þingi,
hlaut sex þingmenn að þessu
sinni. Flokkur aldraðra, sem
bauð nú fram í fyrsta skipti,
hlaut aðeins 0,8% greiddra at-
kvæða sem nægði ekki til að
koma manni á þing. — Kosn-
ingaúrslitin hafa enn ekki bor-
izt frá Færeyjum og Grænlandi.
Á hvorum stað eru kosnir tveir
menn á þing.
Ef litið er á kosningaúrslitin
í heild þá er þróunin sú að
miðflokkarnir juku fylgi sitt en
flokkar lengst til vinstri og
hægri töpuðu. Helzta skýringin
á hruni Vinstriflokks Hartlings
er talin vera sú að hann neitaði
að taka þátt í stjórnarmyndun í
ágústmánuði síðastliðnum er
Jörgensen myndaði minni-
hlutastjórn.
-Kosningaúrslitin eru nálægt
því sem spáð hafði verið áður
en Danir gengu að kjörborðinu.
Þó er fylgisaukning jafnaðar-
manna mun meiri en búizt
hafði verið við. Talið er að
Anker Jörgensen hefjist handa
strax í dag við að reyna að
mynda meirihlutastjórn.
Danskir fréttaskýrendur telja
þó að það geti tekið langan tíma
að raða upp nýrri ríkisstjórn.
Mál málanna í Danmörku í
dag er stefna í launamálum. Þá
eiga Danir við vaxandi atvinnu-
leysi að stríða, jafnframt því
sem erlendar skuldir hlaðast
upp. I kosningabaráttunni lof-
aði Jörgensen að draga úr
þjóðarútgjöldum til að grynnka
á skuldum við útlönd.
Kosningaþátttaka í gær var
með því bezta sem gerist. Á
kjörskrá voru um 3.5 milljónir
manna og greiddu 88.6% at-
kvæði.
Framfaraflokkur Mogens Glistrupsbætti vid sig tveimur þingmönnum frá því í kosningunum í janúar
1975. Flokkur hans er nú sá næststærsti í Danmörku.
Anker Jörgénsen var sigurvegarl dönsku þingkosninganna. Taiið er
að hann hefjist handa strax i dag við að mynda nýja meirihluta-
stjórn.
■ Forsíðuviötal:
Ingunn Einarsdóttir, frjálsíþróttakona
■ Litið inn á æfingu Leikfélags
Hamrahlíðarskóla
■ TonyCurtissemCasanova
■ Smásaga eftir Stellan Anderson